Þjóðviljinn - 22.01.1964, Síða 2
Hðsmnim
Miðvíkudagur 22. janúar 1964
Sovézkir og arabískir byggingaverkfræðingar hafa starfað saman að byggingu Assuanstiflunnar,
og nú er unnið dag og nótt til þess að siá smiðshöggið á bygginguna. Eftir tæpa fjóra mánuði
verður Níl veitt í nýjan farveg. 15. maí verður hluti af Sadd-eUAali rafstöðinni tekinn í notkun.
Qg þar með er fyrsta áfanga náð í byggingu þessa geysilega mannvirkis^ sem skapar straumhvörf
í sögu Arabíska sambandsiýðveldisins.
Ekkert athugavert við gúm
björgunarbát Hringvers
■ Skipaskoðun ríkisins hefinr eftirlit með svokölluðum
gúmmíbátum, sem hafa rutt sér til rúms sem björgunar-
tæki á bátaflota íslendinga. Enginn efast lengur um gagn-
semi þessa björgunartækis og er til dæmis talið, að þau
hafi þegar bjargað um þrjú hundruð mannslífum úr sjó
hér á landi. Þar af um s'jötíu mannslífum í Vestmanna-
eyjum.
vélbáturinn Hringver
sökk á dögunum, þá blés ekki
neðri lofthringurinn út og hafðl
þó gúmmíbáturinn gengið undir
skoðun tveimur dögum áður hjá
Einari Gíslasyni, eftirlitsmanni
gúmmíb.iörgunarbáta í Vest-
mannaeyjum. Hvöss ummæli
voru höfð eftir eiganda Hring-
vers í blöðum og jafnvel drótt-
að að eftirlitsmanninum, að
hann hefði ekki staðið í stöðu
sinni.
Skipaskoðun ríkisins brá hart
við og lét flytja umræddan
gúmmíbát um borð í skip til
flutnings hingað suður og var
það gert undir eftirliti tveggja
lögregiumanna og formanns sjó-
dóms.
Fékk eftirlitsmajprinn í Eyj-
um ekki að koma nálægt bátn-
um.
Nú hefur Sfcipaskoðun ríkis-
ins yfirfarið þennan bát og gert
sínar athuganir á bátnum og
birt niðurstöður sinar blaða-
mönnum. sem boðaðir voru á
vettvang niður í Grandaver i
gærdag og fengu að skoða þenn-
Höf-
uðpaurinn
Vísir segir i fyrradag að
þegar ýmsir leiðtogar Fram-
sóknarfipkksins tali um
frjálsa verzlun eigi þeir við
„frelsi til þess að eiga leyni-
reikninga í fjarlægum heims-
álfum. frelsi til þess að pretta
og svíkja i milliríkjavið-
skiptum, frelsi til þess að
stinga undan gjaldeyri í tug-
milljóna mseli”. Þama er
rösklega kastað af mönnum
sem telia hús sitt auðsjáan-
lega ekki byggt úr gleri. Og
Vísir tilgreinir nánar skot-
mark sitt; hann segir að af-
brotaiðjan hafi fyrst og
fremst verið stunduð af ein-
um „höfuðpauri” — þótt
hann „hafi sloppíð ódæmdur
sökum fvmingarákvæða is-
lenzkra laga”. Höfuðpaurinn
er þannig Vilhjálmur Þór,
sjálfur seðlabankastjóri lands-
ins, æðsti trúnaðarmaður rík-
isstjórnarinnar i efnahags-
málum. sá maður sem Bjarni
Benediktsson og Gunnar
Thoroddsen hafa velþóknun
á. Það er jafngott að steinar
Vísis geigi ekki, þegar höfuð-
paurinn heldur sig i þvílík-
um félagsskap.
Og manni koma raunar í
hug fleiri höfuðpaurar. Tii
skamms tíma var aðaleigandi
Vísis Bjöm Olafsson heild-
sali Bjöm og Vilhjálmur
hafa um langt skeið verið
eins og samvaxnir tviburar
í gróðabraili sfnu; sameigin-
lega sjá þeir þjóðinni fyrir
hinum alkunna vestræna lýð-
ræðisdrykk kóka kóla; og
þegar Vilhjálmur notaði fjár-
muni samvinnufélaganna til
að stofna hlutafélag og græða
á oliusölu varð Bjöm Óiafs-
son frá upphafi einn af hlut-
höfunum, þannig að einnig
hann er aðili að leynireikn-
ingum, prettum og svikum og
gjaldeyrisstuldi i tugmiljóna
mæli. Vilji Vísismenn gæta
fullrar varúðar eftirieiðis og
hlífa hinum foma húsbónda
sínum, ættu þeir, áður en
þeir veitast næst að höfuð-
paurnum, að spyrja líkt og
drengurinn sem sá Vilhjálm
og Bjöm saman á gðtunni:
HVor er kóka og hvor er kóla?
— Austri.
an bát. Hjálmar Bárðarsan hafði
framsögu fyrir þeim félögum og
kváðu þeir ekkert athugavert
við bátinn. Allt honum tilheyr-
andi virðist vera í lagi. Skip-
verjar á Hringver, sagði skipa- j
sk i paskoðunarst jóri brutu að vísu
eina meginreglu í meðferð báts-
ins, þar sem þeir létu hann
blása sig upp á þilfari í staðinn
fyrir að kasta honum útbyrðis.
Mðguleiki er að þrengt hafi að
loftventlinum og hann hafi orð-
ið fyrir einhverri fyrirstöðu.
Hinsvegar flaut báturinn á
öðrum lofthringnum og hand-
dælur eru til staðar i hverjum
bát, sem hægt er að setja í sam-
band við ventla inni í bátnum.
Hefði verið hægt að dæla upp
neðri lofthringinn til frekara ör-
yggis. Það reyndi þó aldrei á
þessa öryggisráðstöfun, þar sem
skipverjum var bjargað svo
fljótt um borð í annað skip.
Það má ekki oftreysta þessum
björgunárbátum, sagði skipa-
skoðunarstjóri, og líta á þá
sem hundrað prósent örugga, þó
að þeir hafi reynzt ákaflega
dýrmætt björgunartæki. Til
dæmis votu menn einu sinni að
flytja svona gúmmíbát um borð
í vélbát og fleygðu irmpökkuð-
um bátnum 4 metra fallhæð af
bílpalli niður á þilfar með eft-
irfarandi ummælum:
„Þetta er helvítis rusl, ef þeir
þola ekki þetta“.
Við límdum viðvörunarmiða
á hvern bátaböggul eftir að okk-
ur var kunnur þessi hugsunar-
háttur. Gúmmíbáturinn er eins
og hvert annað mannanna verk
og ofmat á þeim er eins hættu-
legt og vanmat.
Einnig mættu sjómenn að ó-
sekju búa betur um gúmmíbát-
ana. Eru því miður dæmi um
kæruleysislega meðferð á þeim.
Að lokum kvaðst skipaskoðun-
arstjóri vilja taka framumeftir-
litsmann gúmmíbáta í Vest-
mannaeyjum, að hann væri við-
urkenndur samvizkusamur mað-
ur I starfi sínu.
AUSAVEGÍ 18 SIMI 19113
Kópavogur
Til sölu:
2ja herbergja ný íbúð við
Ásbraut.
2ja herbergja fbúð á jarð-
hæð við Lyngbrekku, full-
búin undir tréverk.
3ja herbergja góð risíbúð
við Hlíðarv., svalir, harð-
viðarhurðir, tvöfalt gler.
Timburhús, lítil ibúð við
Kársnesbraut, bílskúr stór
og verðmæt lóð.
Múrhúðað timburhús, 3ja
herbergja íbúð selst til
flutnings. Lóð getur fylgt
við Vatnsenda, kjarakaup.
Einbýlishús við Holtagerði,
uppsteypt.
Glæsilegt einbýlishús við
Melgerði, fokhelt með bíl-
skúr.
Einbýlishús við Hraun-
tungu, í smíðum, hæð með
kjallara og bílskúr.
6 herbergja glæsileg efri
hæð við Hlíðarveg, fok-
held, góð kjör.
6 herbergja glæsileg efri
hæð við Lyngbrekku, full-
búin undir tréverk.
Parhús við Digranesveg,
stórt og vandað, á þrem
hæðum. Góð kjör.
Byggingarióð við Álfhóls-
veg, ódýr grunnur.
Byggingarlóð við Austur-
gerði, m. teikningu o. fl.
Byggingarióð með steyptum
grunni við Bræðratungu.
Hefi kaupendur að 2ja, 3ja
og 4ra herbergja íbúðum í
Kópavogi. Einnig eldri hús-
um og nýjum, góðar út-
borganir.
rÆðsta veldi stíl-
leysunnar stóru
smekkleysu"
Ct er komið fjölritað Stú-
dentablað, gefið út af Stúdenta-
ráði Hásltóla Islands. Til ný-
breytni má það teljast, að rit-
ið er allt helgað einu máli,
nefnilega Hallgrímskirkju. Er
þar skemmst frá að segja, að
flestir þeir er í ritið skrifa
biðja þá byggingu aldrei þrif-
ast. hvað þá rísa fullbyggða.
Blaðið hefst á grein frá rit-
stjóm.. Segir þar, að síðustu for-
vöð séu nú fyrir bæjarbúa að
hindra það, að slík bygging sem
Hallgrímskirkja gnæfi „í allri
sinni smekkleysu“ yfir borgina.
Birt er kvæði Steins Steinars, er
svo hefst: „Húsameistrari rík-
isins tók handfylli sína af leir“.
Þeir Sigtryggur Klemenzson og
Þórir Kr. Þórðarson svara þess-
um spurningum blaðsins: Hvert
er álit yðar á byggingariist Hall-
grfmskirkju? Og ef álit yðar er
jákvætt, teljið þér þá nauðsyn-
legt að kirkjan verði eins stór
(og þá að sama skapi dýr) og
fyrirhugað er — hvort minni
kirkja geti einnig komið að
sama gagni? Finnur prófessor
Þórir ýmsa ágalla á kirkjunni.
en telur ekki unnt að snúa við,
svo langt sé málið komið. Ekki
er Sigtryggur alveg á þessu, og
telur hann kirkjuna munu verða
„glæsilega og fagra byggingu,
Reykjavíkurborg og landinu öllu
til sóma‘‘.
Þá geysast fram á ritvöllinn
tveir velþekktir krossferðaridd-
arar íslenzkir, þeir Sigurður Lán-
dail og Pétur Ben. Pétur segir
m.a.:
„Arkitektar og aðrir hafa
UPPBOÐ
Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, tollstjór-
ans í Reykjavík o.fl. verða eftirtaldar bifreiðir
seldar á opinberu uppboði, sem fram fer við Bíla-
verkstæði Hafnarfjarðar við Reykjavíkurveg
fimmtudaginn 23. þ.m, kl. 3 síðdegis: G-826,
G-1360, G-2956, G- 1795, G-2690, R-11444, G-2721,
R-12084, R-12136.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Silkiborg auglýsir:
Köflótt teryleneefni í kjól og pils.
Einlit teryleneefni í buxur.
Terylene- stóresefni, Eldhúsgardínuefni.
Sængurveradamask.
Peysur og Blússur.
Angoragam margir litir.
SILKIBORG, Dalbraut 1.
DREIFINGIN
Laus hverfi um mánaðamót eða strax:
Melar Seltjarnarnes (hluti)
Fálkagata Langahlíð
DIOHNN
Sími 17-500.
fyrir löngu sýnt fram á hve
undursamlega það hafi tekizt í
þeim drögum sem til eru að
ytra og innra svip þessa húss
að sameina stíl allra alda og
allra þjóða í æðra veldi stíl-
leysisins stóru smekkleysu. Allt
ber því að sama brunni um in-
spiraitónina". Grein sína endar
Pétur á þessari meitluðu setn-
ingu: „Að þekkja sinn vitjun-
artíma, það er lóðið“!
I þennan sama streng taka
aðrir þeir er í blaðið rita, en
þeir eru: Skúli H. Norðdahl,
Hannes Kr. Davíðsson, EJS, öra
Ölafsson og Thor Vithjálmsson.
Þá er skýrt frá þvi, að tveir
menn hafi hreinlega neitað, að
svara spumingum blaðsins. og
eru það þeir Jónas frá Hrifla
og Bjöm Guðmundsson, for-
stjóri.
Sáttafundurí
togaradeiluum
Sáttasemjari ríldsins boðaði
til samningafundar kl 5 í gær
í togaradeilunni.
AsvaHagötu 69.
sími 33687. fcvöldsimi 23608
Tlt SÖBUs
3 herb. mjög vönduð íbúð
á 2. hæð í Stóragerði.
Mjög sólrík. frágengin lóð.
Góðar svalir. Harðviðar-
innréttingar.
3 herb. íbúð við Hjarðar-
haga. Teppalögð. Þvotta-
vélar í sameign. Bílskúrs-
réttur. Ibúðin er teppa-
lögð og henni fylgir upp-
þvottavél. Þá fylgir og
stofa á efstu hæð með
eldhúsaðgangi og baðher-
bergi þar á hæðinni. Mjög
góður staður.
4 herb. íbúðarhasð á Kirkju-
teig. 1 hæð, sérinngangur,
bíiskúr. Hagstætt verð.
3—4 herbcrgja risíbúð í
Hlíðahverfi.
2 herbergja íbúð á kyrriát-
um stað í Vogunum. 1
hæð.
5 herbergja ný íbúð í sam-
býiishúsi i Háaleitisbraut.
Mjög fín íbúð, teppalögð.
I S M I Ð tl M :
Lúxusvilla í sir.íðum á
bezta stað i náerenni borg-
arinnar. Eign sem er al-
veg í sérflokki
Lúxushæð á hitaveitusvæð-
inu. Ca. 160 ferm. Selst
uppsteypt með bOskúr.
Mikið úrval af 4—6 herb.
íbúðum í sambýlishúsum
á hitaveitusvæðinu
Höfum kaupanda að nýrri
fullgerðri íbúð í tvíbýlis-
húsi f bænum Til mála
kemur fbúð. sem er til-
búin undir tréverk. Að-
eins vönri” - oíen kemur
til grema. Útborgun ca.
700.000,00 kr.
MUNIÐ AÐ ETGNASKIPTI
ERU OFT MÖGULEG
H.TA OKKTTR _ NffiO
BlLASTÆÐT - BtLA-
ÞJÓNUSTA