Þjóðviljinn - 22.01.1964, Page 6
g SlÐA
ÞIÚÐVILIINN
Miðvikudagur 22. janúar 1964
FRÁ MIÐALDARSKEGGI TIL NÚTÍMASKEGGS
í byrjun fornaldar báru menn skegg, en Alexander mikli inn-
leiddi þá tízku að raka á sér kjammana og varaði hún fram til
120 e.Kr. Þá var það Hadrían keisari, sem lét þegna sína safna
skeggi og hélzt sá siður fram á byrjun 3. aldar, er Konstaritín
mikli breytti aftur tízkunni og var sá siður ríkjandi næstum alls
staðar í Rómaveldi að skera skegg sitt og þar til fomöld lauk.
Aðeins prestar og munkar í austurhluta Rómaveldis létu skegg
sitt vaxa, eins og prestarnir í Gamla testamentinu höfðu gert.
Fall Rómaveldis
í byrjun miðalda ruddi
skeggið sér til rúms í Evrópu
á mjög áþreifanlegan hátt.
Skeggjaðir germanir ruddust
niður til Frakklands, Spánar
og Ítalíu. Einn þessara þjóð-
flokka dró meira að segja
nafn sitt af' síðu skeggi, en
það voru langbarðar.
Rómverjar settu hins vegar
stolt sit í að halda áfram
að raka sig og sýna þannig
andstæðurnar milli þessara
viUimanna, sem héldu innreið
sína I landið og hinna siðuðu
Rómverja.
Stríð um skegg
páfans
Á vesturlöndum voru það
prestarnir, sem mesta áherzlu
lögðu á rakstur, alveg öfugt
við grísk kaþólska. Og þessi
munur átti á miðöldum eft-
ir að valda löngum og heift-
arlegum deilum milli róm-
versk-kaþólsku og grísk-
ka'þólsku kirkjunnar. Og hvor-
ugur vildi vægja. Það væri
að vísu full sterkt til orða
tekið að segja, að þetta hafi
verið orsökin til klofnings
kirkjunnar, en skegg prest-
anna var oft notað sem á-
steytingarsteinn.
Var sankti Pétur
skegglaus?
Þetta kann að virðast skipta
litlu máli nú, en á 8. öld e.kr.
risu út af þessu miklar deil-
ur milli páfans í Róm og patrí-
arksins í Konstantínópel. Páf-
inn þóttist geta sannað, að
heilagur Pétur. stofnandi róm-
versku kirkjunnar, hafi ver-
ið nauðrakaður og væri það
hefð í Róm allt frá frum-
kristni, að karlmenn skyldu
raka sig.
Að vísu voru ekki aliir eins
ginkeyptir fyrir deilunum um
skegg páfans. Það er sagt að
patriarkinn í Konstantinópel
hafi leitað ráða hjá patríark-
inum í Antíokíu, og hafi hann
þá svarað á þessa lund:
Hvað kemur okkur það við,
hvort páfinn rakar sig?
Nauðrakaðir
krossfarar
Skeggið varð smám saman
vinsælt meðal háttsettra ver-
aldlesra höfðingja, og því bet-
ur sem leikmenn hirtu skegg
sín þeim mun vandlegar
brýndu kirkjunnar menn rak-
hnífa sína. Aðeins örfáar
munkareglur, eins og kapús-
ínar, söfnuðu skeggi.
En borið saman við austur-
landabúa, Grikkjaveldi og
Býzantíska ríkið, voru vest-
urlandabúar á miðöldum eins
og nýslegið tún hjá veisprottn-
um rúgakri. Þegar krossfar-
amir komu austur til þess að
hertaka Landið helga, vöktu
þeir undrun Grikkja og Araba
vegna skeggleysisins. Arabísk
börn hlupu í felur, þegar þau
sáu rakaðan krossfara, eins
og bömin okkar fela sig í pils-
’im móður sinnar, þegar ein-
hver skeggjúðinn kemur í
heimsókn á heimilið.
Skeggfaraldur
t 15. öld
Á 15. öld varð róttæk breyt-
ing á tízkunni. Skeggið breidd-
ist út eins og faraldur og það
voru engar lufsur, sem fengu
að spretta í friði, heldur vel-
hirt og velpúðrað skegg. Þetta
var í samræmi við glæsileika
og prjál endurvakningartíma-
bilsins.
Og þama voru alls konar
skegg á boðstólum allt frá
meters löngu alskeggi sendi-
herra Elísabetar drottningar
hjá ívani grimma_ niður í ör-
mjóa hökutoppa. ívan grimmi
var svq hrifinn af skeggi Eng-
lendingsins, að hann gat ekki
stillt sig um að renna fingrun-
um gegn um það, þegar hann
talaði við hann.
Og nú gat rómverska kirkj-
an ekki lengur staðizt nýju
tízkuna, og páfamir í Róm
létu skegg sín vaxa næstum
alla 15. öldina og fram á sext-
ándu.
Skeggskattur
Um þessar mundir varð
Frakkland mesta stórveldi Evr-
ópu, og leiðtogi ríkisins Lúð-
vík fjórtándi og hirð hans
réðu tízkunni í Evrópu. Lúð-
vík konungur 14. rakaði sig
tvisvar á dag og þar með
var skegginu næstum útrýmt
úr álfunni. f þess stað var
þeim mun meiri áherzla lögð
á hárið, þ.e.a.s. hárkollumar
og trónuðu þær virðulega yf-
ir nauðrökuðum andlitunum.
Hárkollurnar vesluðust smám
saman upp, en raksturinn
blómstraði langt fram á næstu
öld. Skeggið samlagaðist ekki
tíðaranda 17. aldarinnar, þeg-
ar allt varð að vera sem
sléttast.
Og nú fengu páfarnir aftur
sléttar hökur, og sá siður hef-
ur haldizt síðan. Mótmælend-
ur höfðu fengið slíka and-
styggð á skeggi aristókratanna
á 16; öldinni, að þeir tóku að
raka sig og héldu því áfram
allt íram á 18. öld.
Pétur mikli vildi opna glugg-
ana til vesturs og hlýddi kalli
tíðarandans um rakaðar hök-
ur.„ Hann rakaði sig sjálfur
og krafðist þess sama af þegn-
um sínum.
Og þeir sem öhlýðnuðust
boði hans voru stundum rak-
aðir samt, eða látnir borga
háan skatt fyrir skeggið.
Skeggið og skap-
gerðin
En áður en búið var að
skera skeggið almennilega af
þessum mótþróafullu Rússum,
ruddi skeggið sér til rúms í
Vestur-Evrópu af nýjum
krafti. Þetta voru um leið nýj-
,ar hugmyndir, sem ruddu sér
til rúms í Evrópu. íhaldssam-
ir ráðamenn í Evrópu voru
allir nauðrakaðir; var þá
nokkur furða þótt hin nýja
frjálslyndisstefna, sem var að
vakna í Evrópu, tæki skeggið
upp á sína arma til þess að
undirstrika andstöðu sína
gegn öllu hefðbundnu?
Skeggið varð tákn fyrir rót-
tæka hugsun og flestar frels-
ishetjur þeirra tíma, bæði i
Frakklandi, ítaliu og Þýzka-
landi voru ýmist með kraga-
skegg, barta eða voldugt al-
skegg. Það kom oft fyrir, að
menn guldu skegg sín dýru
verði, þar sem tortryggin yf-
irvöld litu á skeggið sem sönn-
un fyrir því, að maðurinn
væri byltingarsinni og snerust
öndverð gegn skegginu eða
þeim, sem bar það.
Hættan af skegginu
í Bandaríkjunum var sið-
ur að raka sig langt fram
eftir öldum. Langt fram á
18 öld gat verið hættulegt
að safna skeggi, ekki af stjóm-
málaástæðum; heldur leyfði
almenningsálitið ekki, að menn
skæru sig úr heildinni.
Á þessu fékk veslings Palm-
er að kenna. Hann var skrýdd-
ur úfnu alskeggi, er hann hélt
innreið sina í skegglausan
smábæ í Bandarikjunum á 18.
öld. Hann lenti í löngum mála-
ferlum, sem lauk með því að
Palmer var settur í fangelsi.
Allt hafði þetta byrjað með
þvi, að fjórir þorpsbúar, sem
allir voru heljarmenni að burð-
um og töldu þennan skeggjúða
spilla siðferði þorpsins, á-
kváðu að lumbra á honum.
Þeir réðust að honum og ætl-
uðu að raka af honum skegg-
ið með valdi. Palmer varðist
frækilega, þangað til lögregl-
an skarst í leikinn.
En sem hann sat í fangels-
isklefa sinum barst sagan um
örlög hans til æðri staða og
smám saman fékk hann al-
menningsálitið með sér. Eftir
að hann slapp út úr fangels-
inu varð hann eins konar þjóð-
hetja og hann lifði það af að
sjá nýju skeggtízkuna frá Evr-
ópu hertaka Bandaríkin um
1860.
Existensíalista-
skeggið
En saga Palmers er ekki
DAR—ES—SALAAM 20/1 —
önnur tveggja svcita hersins í
Tanganfka gerði uppreisn í gær-
morgun, handtók brezka liðsfor-
ingja sem henni hafa stjórnað,
setti þá af og skipaói iands-
menn í þeirra stað.
Uppreisnin virðist hafa orðið
bæði vegna óánægju með hina
útlendu foringja og með málann.
1 kvöld virtist uppreisnin vera
einstæð í Bandaríkjunum.
Bandarikin urðu seinna aftur
helzti málsvari skegglausu
tízkunnar, sem hefur ríkt frá
aldamótum og fram í síðustu
ár. Og það eru aftur vissar
hugmyndir, sem standa að
baki nýju tízkunnar. T. d.
hefur existensíalisminn komið
sprettunni í margt svart skegg-
ið á ungum mönnum á megin-
landinu.
Jólasveinaskeggið
Við höfum nú staldrað við
stjómmálaskegg, trúarbragða-
skegg, heimspekiskegg, og væri
ekki úr vegi að minnast á
enn eina tegund skeggs, sem
hefur orðið þess valdandi, að
sumir menn, sem annars eru
vel rakaðir skrýðast voldugu
alskeggi einu sinni á ári. Þetta
er jólasveinaskeggið.
Jólasveinninn er vera, sem
á sér rætur á Norðurlöndum,
en hlutverk sitt sem gjafa-
miðlara bamanna hefur hann
erft frá dýrlingnum mikla,
sánkti Nikulási. Það er óhætt
að segja að sánkti Nikulás
var vinsælasti dýrlingurinn á
seinni miðöldum — margar
kirkjur eru honum helgaðar
og margir drengir skírðir eft-
ir honum.
Og þó er tilkoma hans mjög
á huldu. Sánkti Nikulás er
til orðinn úr tveimur sögu-
hetjum, biskupi sem uppi var
á 3. öld, og ábóta, sem var
uppi á 5. öld. Um hvorugan
þessara manna er nokkuð
vitað með vissu.
Hann fékk snemma þetta
einkenni, sem síðan hefur
fylgt honum, að dreifa gjöf-
um meðal bama, oftast óséð-
ur. í Evrópu varð hann vin-
ur barnanna, sem alltaf kom
til þeirra með gafír 6. desem-
ber.
Hann er austrænn prestur
og þess vegna hefur hann
skegg, þótt flestir aðrir róm-
versk-kaþólskir dýrlingar séu
skegglausir. Jólasveinninn er
sem sagt sambiand af Grikkja,
Vestur-Evrópubúa og Norður-
landabúa og það erum við víst
allir í andlegum skilningi.
Þess vegna fer vel á að draga
þessa ályktun: allir erum við
jólasveinar, þegar allt kemur
til alls.
liðin hjá en um tíma hafði ver-
ið haldið að hersveitin stefndi
að stjómarbyltingu í líkingu við
þá sem gerð var á Zanzibar
fyrir viku. Svo mun ekki hafa
verið og Nyerere forseti mun
aldrei hafa átt neitt á hættu.
★
Nokkurt manntjón mun hafa
orðið í Dar-es-Salaam og talið
að sex menn hafi látið lífið.
Lögreglan í Dallas er ekki enn komin á spor morðingja Kennedys.
<s>-
Skyndiuppreisn í Tanganíka
Hermenn settu af
brezka foringja
t