Þjóðviljinn - 07.02.1964, Side 6

Þjóðviljinn - 07.02.1964, Side 6
g SÍÐA NNIÍIIAQQH Föstudagur 7. febrúar 1964 Brezkar dylgjur um málshöfðun í Haag Lagt fast að Norðmönnum að slaka á landhelgiskröfunum Nýr forsætisráðherra OSLÓ 6/2 — Norska „Dagbladet“ skýrir frá því að á bak við tjöldin sé nú lagt mjög fast að norsku st'jórn- inni að fallast á skerðingu landhelginnar áður en fisk- veiðaráðstefnan sem Bretar boðuðu til kemur aftur sam- an í London 26. febrúar n.k. Blaðið segir að m.a. hafi verið gefið í skyn að ef Norðmenn haldi fast við land- helgisákvæði sín eigi þeir á hættu að þeim verði stefnt fyrir alþjóðadómstólinn í Haag, eftir að gengið hefur ver- ið formlega frá sáttmála þeim sem meirihluti Lundúna- ráðstefnunnar samþykkti. Norðmenn fetuðu í fótspor Is- lendinga og færðu út fiskiveiði- lögsöguna í tólf mílur, en veittu um leið brezkum togurum heim- ild til veiða að sex mílna mörk- um fram til haustsins 1970. Þá eiga allar undanþágur að falla úr gildi. 1 þeim sáttmála sem þrettán af sextán ríkjum á Lundúnaráð- stefnunni hafa komið sér saman um (íslendingar, Norðmenn og Danir skárust úr leik; Danir þó aðeins vegna veiða við Græn- land og Færeyjar), er gert ráð fyrir að ríki sem stundað hafa veiðar á strandmiðum fái að halda þeim áfram, eftir að fisk- veiðilögsagan hefur verið færð út 1 12 míkir. „Sanngjörn lausn“ Blaðið segir að þetta mál sé mikið rætt í ráðuneytum, rík- isstjóminni og stofnunum Stór- þingsins. Ýmsir haldi því fram að finna mætti „sanngjama lausn“ sem ekki fæli í sér of miklar tilslakanir af Norð- manna hálfu. Það sé meðal annars á það bent að Norðmenn geti átt á hættu að missa markaði fyrir sjávarafurðir sínar ef þeir rejmist ófúsir að slaka til. Spennandi upp- skurður í Sovét Fyrir stuttu gerðist sá atburður nálægt Sevastopol í Úkraínu, að drengur fékk sprengjuhleðslu í hnéð, og var úrskurðað, að hún gæti sprungið þá og þegar. Svitinn draup af enni læknanna, þegar þeir fikruðu sig inn að hleðslunni, sem gat sprungið ef þeir færu harkalega að henni. Konsomolskaja Pravda skýrði fyrir nokkrum dögum frá uppskurði. sem sennilega á sér engan líka. Þessi upp- skurður var álíka spennandi fyrir sjúklinginn og fyrir lækna og aðstoðarfólk. Gat sprungið hvenær sem var Allt byrjaði þetta með þvi, að Edák Pavljútsjen og leik- braeður hans tóku upp á þeirri skemmtun að leita að ósprungnum sprengikúlum og kasta þeim á bfl, til þess að heyra þær springa. Þegar leikurinn stóð sem hæst einn daginn fékk Edík' allt í einu eitthvað í annað hnéð. Fyrst héldu allir, a-‘ þetta væri sprengjuflís, eftir að fullorðna fólkið hafði kom- izt á snoðir um hvað það var, sem drengimir voru að leika sér að. Við myndatöku kom aftur á móti í ljós, að þetta var engin flís heldur sjálf sprengihleðslan, og sprengi- efnið var enn á sínum stað. Sérfræðingar sögðu að hún gæti sprungið hvenær sem væri, ef málmur kæmist að henni. Hver sekúnda sem ár Sex skurðlæknar, og hjúkr unarkonur þeim til aðstoðar hófu svo uppskurðinn. Þa vissu vel, að ef þau væru harðhent eða ógætin gátu bæði þau og strákurinn sprungið í loft upp. Læknpmir urðu að leggia t-’-‘ . og notuðu í þeirra stað vel sótthreinsaða tréstauta, eftir að þeir höfðu skorið á b”A“u. Eftir heila eilífð. þ' hver sekúnda var r tókst læknunum að í sprengihleðsluna og henni á öraggan stað. Þessi atburður gerðist rétt hjá Sevastopol, þar sem enn úir og grúir af ósprangnum sprengjum eftir harðar orust ur, sem þama voru háðar í heimsstyrjöldinni. Andstaða fiskimanna En blaðið segir að samtök norskra fiskimanna hafi lýst yfir eindreginni andstöðu við hvers konar tilslakanir í land- helgismálinu. Norðmenn megi ekki afsala sér hætishóti af þeim réttindum sem þeir tryggðu sér þegar fiskveiðilög- sagan var færð út í tólf mílur. Blaðið segir að ekki sé enn ráðið hvort umræður verði í Stórþinginu um landhelgismál- ið áður en Lundúnaráðstefnan kemur saman aftur til að ganga endanlega frá sáttmál- anum, en raddir hafi verið uppi um að málið yrði rætt á þingi fyrir luktum dyrum. Víst sé að þetta verði eitt af höfuðmálum sem fjallað verði um á næsta fundi Norður- landaráðs sem hefst í Stokk- hólmi 15. febrúar, en ólíklegt sé að nokkurt samkomulag tak- ist þar um sameiginlega af- stöðu Norðurlanda. Færeyingar ekki með Hákon Djurhuus lögmaður hefur skýrt frá því að enginn færeyskur fulltrúi muni sitja Lundúnaráðstefnuna þegar hún kemur aftur saman. Viðskipta- fulltrúi Færeyinga í Skotlandi, Oddmar Skarðhamar, var sér- stakur fulltrúi Færeyja í dönsku samninganefndinni á fundum í desember og síðasta mánuði, en hann mun ekki koma aftur á ráðstefnuna. Með þessu vill færeyska stjórnin leggja áherzlu á að engin til- slökun komi til greina frá tólf mílna fiskveiðimörkunum við Færeyjar sem tekur fullt gildi 12. marz n.k.. þegar undanþág- um brezkra togara til veiða að sex mílunum lýkur. Kynþáttajafn- rétti í USA CLEVELAND 5/2 — Skólayfir- völdin í Cleveland fyrirskipuðu í dag fullkomið jafnrétti hvítra barna og svartra í skólum bæj- arins. Börn blökkumanna hafa haft aðgang að nokkrum skólum hvítra barna áður, en hefur ver- ið safnað saman í sérbekki. Þetta hefur leitt af sér kröft- ug mótmæli, og nú hafa skóla- yfirvöldin látið undan. Úíf £_^ Sameinaði sjálfstæðisflokkurinn í Nordur-Ródesíu vann mikinn sigur í nýafstöðnum þingkosningum þar og hiaut 55 þingsæli af 75. Afríski þjóðþingsflokkurinn undir forystu Harry Nkumbula hlaut 10 og flokkur evrópskra landncma undir forystu John Roberts hlaut jafnmörg. Hinn sigursæli Sjálfstæðisflokkur hefur nú myndað stjórn og er Iciðtogi hans, Kcnneth Kaunda, forsæt- isráðherra. Hann sést hér á myndinni ásamt konu sinni. Evr- ópskir Iandnemar í Suður-Ródesíu hafa brugðizt þannig við hin- um mikla kosningasigri Kaunda að talið er sennilegast að þeir segi sig úr lögum við brezku stjórnina og stofni sjálfstætt lýð- veldi, sem myndi þá styðjast við Suður-Afríku. Óvenjuleg mótmælaaðferð PARÍS 472 — Franskir bændur sem eru harla óánægðir með það lága verð sem þeir fá fyrir kartöflur sínar hafa ákveðið ný- stárlega aðferð til að vekja at- hygli stjómarvaldanna á þeirri óánægju sinni. Þeir munu næstu daga senda Pompidou forsætis- ráðherra, Pisani landbúnaðar- ráðherra og d’Estaing fjármála- ráðherra tveggja kílóa pakka af kartöflum í ábyrgðarpósti og mun hver ráðherranna fá sendar þrjár lestir af kartöflum áður en lýkur. Nýr Ranger eftir mánuð ,LögfræSingar Hitlers geta enn dregið andann léttar' BONN 5/2. — Dr. Elmar Herterich, sem bent hefur á marga fyrrverandi nazistaforingja, hefur nú beðið einn ósigurinn enn. Hins vegar getur Hans Kolb ríkissak- sóknari í Wursburg verið ánægður. Það hefur komið í Ijós, að Kolb gerði ekki annað en það, sem þá var rétt og gott, þegar hann afhenti Gestapó pólska fanga á tímum nazista. Hann gerði skyldu sína og fyrir það er ekki hægt að refsa honum. Dómsyfir- völdin f Bamberg vísuðu kærunni á hendur Kolb frá. Kolb, Schiedermaier og mörgum öðrum. 1 bæklingnum eru bæði lianaai 1Kjaincnn eru ekki enn af baki dottnir þótt tilraunir þeirra með tunglför af Ranger-gerð hafi mistekizt til þessa. Þær tilraunir sem gerðar hafa verið fram að þessu hafa kostað um 5.000 milljónir króna. Tilkynnt hefur verið að sjöunda Rangcr-tilraun- n verði gerð eftir mánuð og tvö önnur Ranger-för séu tilbúin. Það var systir Herterichs, sem formlega bar fram ákæruna á hendur Kolbs. Hún er búsett í Bandaríkjunum. Herterich hef- ur nógu margar ákærur á sinni kðnnu fyrir, og það var ástæðan til þess að systir hans tók þessa ákvörðun. Gerði skyldu sína Kolb var ríkissaksóknari í Kalisch í Warthegau, en svo kölluðu Þjóðverjar pólsku borg- ina Kalitz eftir að þeir innlim- uðu hana f þýzka ríkið á styrj- aldarárunum. Nú heitir borgin aftur Kalitz og er í Póllandi. Dómsyfirvöldin í Bamberg staðfesta, að Kolb hafi afhent Gestapó pólska fanga. En með því að gera þetta fylgdi hann aðeins reglunum. sem ríkissak- sóknurum voru fyrirskipaðar á bessum tímum. Auk þess hafði Kolb einu sinni lagt til að felld- ar væri dauðadómur, og þess vegna er hann nú sakaður um <ð vera meðsekur um morð. Dómsyfirvöldin i Bamberg ■iegjast ekki geta fullyrt neitt um það, hvort einmitt þeir fang- ar, sem Kolb afhenti hefðu ver- ið drepnir eða ekki. Ekki væri heldur hægt að refsa Kolb fyr- ir að fella dauðadóm, vegna þess að á þessum tíma hafi verið í lögum, að dauðarefsing lægi við i slíkum tilfellum. Gcta drcgið andann Iéttar Þessi dómsúrskurður veröur varla til þess að styrkja Kerter- ich í trúnni á réttarfarið í Vest- ur-Þýzkalandi, og var hann þó ekki trúaður á það fyrir. Hann hefur nú stefnt svo mörgum, að hann kann varla tölu í þeim lengur. Nýlega gaf hann út bækling undíh nafninu: „Sie werden weiter marschieren". Þar leggur hann fram sönnunargögn gegn ýmsum mönnum. svo sem gamlar myndir og úrklippur úr dagblöðum, sem sanna sekt þess- ara manna. — Þeir, sem tóku þátt í að framkvæma réttvísi Hitlers geta nú enn einu sinn dregið andann léttar. Dómsyfirvöldin í Bamberg staðfesta enn einu sinni það sem löngu er vitað.: „Sá, sem studdist við ofbeldislög nazista, ber ekki lengur ábyrgð á því, þótt fjöldi manns hafi verið drepinn fyrir hans tilstilli“ seg- ir Neue Rhein Zeitung. Tvö börn barin til bana á barnabeimiii Formaður bamavemdamefndar í V-Berlín dó úr slagi við fregnina Klau-Eberhardt Amdt er lögregluþjónn í Vestur-Berlín, 32 ára að aldri. Hann hafði til skamms tíma barnaheim- ili á heimili sínu. Amdt hefur verið tekinn fastur og er sakaður um að hafa barið tvö barnanna til bana og misþyrmt hinum. Kona hans, sem er þrítug, er sökuð um að vera meðsek manni sínum. Formaður barnavernd- arnefndarinnar í Vestur-Berlín dó úr hjartaslagi þegar hann frétti þetta. f marz árið 1962 fengu hjónin Klau-Eberhart og Ingrid Arndt leyfi hjá yfir- völdunum að stofna bama- heimili á heimili sínu í Vest- ur-Berlín. f júlí tilkynnti Arndt, að Hildegard, sem var 15 mánaða, væri dáin. Hann sagði. að barnið hefði dottið fram úr rúminu. Engan gran- aði þá. að í rauninni hafði hann barið telpuna, svo fast, að hún lézt af heilablæðingu. í .nóvember sama ár dó Monílca, sem var 2 ára. Þá var það, að yfirvöldin tók að gruna, að ekki væri allt með felldu. Við krufningu kom í ljós, að hjartað í telpunni hafði bilað. Svo fast hafði fósturfaðir hennar barið hana. Við yfirheyrsluna sagði A. rndt frá uppeldisaðferðum sínum. Algenga-sta refsingar- aðferðin var að loka börnin inni í dimmu herbergi. Þegar þau vora óhrein. barði hann þau. Einu sinni neyddi hann litla telpu til þess að hanga á hárri skáphurð. þangað til hún sleppti sér af lofthræðslu. Öðru sinni lét hann fjögur bamanna niður í baðherberg- ið og sprautaði til skiptis á þau köldu og sjóðheitu vatni. Börnin grétu og köstuðu upp, en fyrir það var þeim líka refsað. Þau hjónin eiga sjálf 2 börn, sem þau fóru vel með. Verst var meðferðin á böm- unum, þegar stjúpfaðirinn kom drukkinn heim. Talið er líklegt, að Amdt verði dæmdur í 10 ára hegn- ingarvinnu, en þyngsta refs- ing fyrir líkamlegt ofbeldi, sem veldur dauða er 15 ára, r»prni '’uirirtq

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.