Þjóðviljinn - 05.03.1964, Side 12
•æet.
GÆRUSKINN 06
RAFMAGNS-
GÍTARAR
1 Sigtúum var töluvert
um að vera, unglingar stik-
uðu um gólf, sumir i gæru-
skinnum. aðrir berandi raf-
magnsgítara, kennarar reyktu
pípur og allir með töluverðan
sameiginlegan prófskrekk.
Þarna fór fram allsherjar-
æfing á dagskrá árshátiðar
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
og Gagnfræðaskólans í Vonar-
stræti sem skyldi haldin
um kvöldið.
Á sviðinu var æfður leik-
þáttur eftir Svein Bergsveins-
son málvísindamann og pró-
fessor útí Berlín í langan
tíma — en Sve'nn hefur
lagt mikið kapp á gaman-
söm skrif og átti á sínum
tíma mikla aðild að Spegl-
inum. Þessi þáttur er upphaf
leikrits sem Sigrún Kvaran
fann í fórum föðurs síns
Ævars — en sjálf leikur hún
dótturina í húsinu. Og höfðu
unglingamir sjálfir æft
þennan þátt algjörlega á eig-
in spýtur og þar að auki
prjónað aftan við hann
nokkuð skynsamlegan endi:
tengdasonurinn (Þorsteinn
Steingrímsson) hafði til að
létta sér strembið tilhugalíf
haldið við væntanlega tengda-
móður (Sigríður Anna Þor-
grímsdóttir).
Og þar á eftir kom fram
heldur en ekki vígalegur
kvartett úr Gagnfræðaskólan-
um við Vonarstræti, vopnaðir
tveim rafmagnsgíturum fima-
lega mögnuðum og svo
trommusetti. Þessir náungar
voru skilgetnir afkomendur
þeirra The Beatles sem nú
hafa loksins skotið Englandi
aftur upp i tölu fyrstaflokks
stórvelda að því er frétta-
skýrendur herma. Þó voru
þeir ekki eins hárprúðir, og
fyrirmyndimar, ekki ennnþá.
Þeir öskruðu af miklum
dugnaði. tóku fimleg bak-
föll og öðru hvoru hlamm-
aði einn þeirra sér á annað
hnéð svo sem til sviðrænna
stílþrifa. Á milli bítlasöngva
var svo skotið óvæntu lagi:
Lóan er komin að kveða
burt snjóinn. Kveða burt
leiðindin. það getur hún.
En þungamiðja dagskrár-
innar voru nokkrir þættir úr
Otilegumönnum Matthíasar
Jochumssonar og hafði Karl
Guðmundsson veitt hinum
ungu leikurum nokkrar leið-
beiningar. Þetta var að mörgu
leyti sérkennileg sýning —
strákar voru í öllum hlut-
verkum — látum nú Grasa-
Guddu vera hún hefur alltaf
verið karlleikin, en Ásta var
einnig leikin af strák. Þar
að auki var skotið inn í leik-
inn nokkrum tímabærum at-
hugasemdum um kennara
skólanna.
Menn voru náttúrulega
taugaóstyrkir, enda lítill
tími til æfinga því flestir
hlutaðeigendur búast við sál-
arstyrjöld sem kölluð er lands-
próf. Og alltaf eltir bölvuð
feimnin Harald og Ástu,
hvert sem þau fara um land-
ið. Það er annars merkilegt
hve unglinga langar mikið
til að tvístíga í leikþáttum,
einnig að krækja saman
fingrum eða vandræðast eitt-
hvað annað með hendumar
á sér. Hinsvegar sjást slík
feimniseinkenni aldrei á þeim
hafi þeim verið fenginn gítar
og dægurlagatexti. Skyldi
manninum vera það eigin-
legt að syngja dægurlög, mér
er spum?
Sviðdjarfastir voru þeir
Skugga-Sveinn og Ketill
skrækur enda vinsæl hlut-
verk. Það gerist að vísu ekki
á hverjum degi að Ketill
er orðinn stærri og fyrir-
ferðarmeiri en Sveinn — en
Skuggi (Helgi Ivarsson) bætti
það upp með mjög hressilegri
framkomu og sanngrimmu
fasi.
Gvendur smali: Hörður E.
Tómasson, 3. bekk A, Grasa-
Gudda: Brynjólfur Gautason,
4. bekk A, Sigurður í Dal:
Halldór Björnsson, 4. bekk
A og Jón sterki. Jón Eiríks-
son, 3. bekk A. — (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).
ÍWÍSw
Ásta: Jens Hjaltesteð 2. bekk A, Haraldur: Ólafur Lárusson,
3. bekk L. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Þar eru verkföll bönnuð!
Félagsheimili iðnaðarmanna 1
Hafnarfirði var opnað um helg-
ina og var vígt með dansleik
á laugardagskvöld. Blaðamenn
áttu kost á því að skoða þessi
smekklegu húsakynni um helg-
ina og lofar verkið hafnfirzka
meistara í. hvívetna.
Skínandi parketgólf
10 þús. verða 380 þús.
Félagsheimilið er til húsa á
annarri hæð i svokallaðri Frí-
múrarahöll við Linnetstíg og
leggur hæðin sig á tvö hundruð
fermetra. Samkomusalur er
hundrað og þrjátíu fermetra og
tekur hundrað og fjörutíu gesti.
Salurinn er með skínandi
parketgólfi og glervegg á suð-
austurhlið með Þórsplanið fyrir
neðan og útsýni yfir höfnina.
Þá er þama fundarherbergi,
eldhús með nýtízku þægindum
og teppalögð forstofa með inn-
gangi inn á tvö snyrtiherbergi.
Hafnfrizkir iðnaðarmenn
keyptu hæðina í fokheldu á-
standi árið 1961 og hafa unnið
í þegnskylduvinnu að innrétt-
Þeir voru áður til húsa í
Flensborgarskólanum og árið
1938 til nýja skólans tíu þús.
krónur og seldu svo bessa
eign árið 1957 fyrir þrjú hundr-
uð og áttatíu þúsund krón-
ur og fluttu þá í Ráðhúsið.
Þetta var aðalfjárstofninn og
með útlagðri vinnu er félags-
heimilið að verðmæti kr.
1.000.000.00 í dag.
Vindlarnir og leyni-
vopnið
Eitthvað var nú gjaldkeri fé-
lagsins órólegur yfir fjármálun-
um og sagðist hafa neyðst til
þess að reykja vindla upp á
síðkastið á götum Hafnarfjarðar
með traustvekjandi svip fjár-
máiamanns í huga.
Félagar hans í stjóminni töldu
þetta ástæðulaust og hafa lofað
honum vopni á næstunni til
þess að skrúfa út úr meðlimum
aura.
Ætlunin er að stofna kven-
félag ihnan samtakanna og á
að senda eiginkonurnar á menn-
ina, ef þeir verða eitthvað ó-
þægir í fjárútlátum.
Þá hió gjaldkerinn dátt og
kvaðst alltaf hafa blessað kon-
umar. Annars eru traust'r
fjármálamenn í ætt gjaldkerans
og var einn forfaðir hans fjár-
haldsmaður Strandakirkju í i
Selvog'num.
í Rafha o^ kirkian
1 En hvernig finnst iðnaðar-
mönnum að vera svona i ná-
býli við frímúrara og allt það
slekt. Þeir eru nú á tveimur
hæðum hér fyrir ofan og höf-
um við lítið af þeim að segja.
Það er jafnvel bannað að stíga
upp í neðstu tröppuna á leið-
inni upp og er hver meðlimur
með lykil og gengur hér upp
með leyndardóms svip. Forystu-
menn frímúrara í Hafnarfirði
eru Axel i Rafha og Magnús
Már Lárusson, prófessor. Heyrzt
hefur að kirkja sé í smíðum
á efstu hæðinni.
Tónleikar hjá Sinfóníuhljóm-
sveit lslands verða næstkomandi
fimmtudagskvöld í Háskóiabíói.
Að þessu sinni verður á efnis-
skrá Sinfónía í C-dúr eftir Ge-
i orges Bizet. Den bergtekne, op.
32 eftir Edward Grieg. Einsöngv-
ari í þessu tónlistarverki verður
norski ópemsöngvarinn Olav
Eriksen og einnig syngur hann
Kung Eriks visor, eftir Ture
Upptökin að þessari miklu
hallarsmíði átti Jóngeir heitinn
Eyrbekk fisksali og átti hann
neðstu hæðina. Þarna var áður
á lóðinni fiskbúð hans.
Ein kona í karlaselskap
Iðnaðarmannafélag Hafnar-
fjarðar hefur sex deildir inn-
an sambandsins og er raunar
félagsskapur allra iðnaðarmanna
í Hafnarfirði. Þar er Trésmiða-
félag Hafnarfjarðar, Múrarafé-
Framhald á 8. síðu.
Rangström. Olav Eriksen er lista-
maður á heimsmælikvarða og
þykir einn af fremstu túlkend-
um Grieg í heiminum í dag.
Verður þetta merkur tónlist-
arviðburður hér á landi.
Eftir hlé verður, svo leikin
Sínfónia nr. 7, d-moll, op. 70,
eftir Antonín Dvorák.
Olav Eriksen syngur á Akur-
eyri og Selfossi á næstunni.
ílleftu hljémleikar
Smfóníusveitarínnar
Fimmtudagur 5. marz 1964 — 29. árgangur — 54. tölublað.
Útilokað svall og sukk
KEFLAVlK, 2/3 — Nýlega
tók til starfa hér nýr og vist-
legur matsölustaður og ber
nafnið Tjamarkaffi. Fjörutíu
manns geta snætt samtimis í
aðalmatsal. Þessi matsölustað-
ur er í leiguhúsnæði hjá Hús-
felli h.f. við hliðina á Útvegs-
bankanum í Keflavik.
Forstöðumaður heifir Ragn-
ar Guðmundsson frá Tjarnar-
koti í Innri Njarðvík. Ragnar
Ljósvíkingurinn o
Isafirði, 4/3 — Hér er áhugi fyr-
ir því að gera jarðgöng gegnum
Breiðdalsheiði. Það yrði mikil
samgöngubót til fjarðanna sunn-
an til á Vestfjörðum. Breiðdals-
hciði Iiggur milli Skutulsfjarðar
og önundafjarðar. Þessi fræga
heiði rís snarbrött allt að sex
hundruð og tíu metra yfir sjáv-
armál og er með torsóttustu
fjallvegum á Vestfjörðum. Bíl-
vegurinn er í ótal krákustígum
beggja megin upp á háheiðina.
Eiginlega rísa hlíðamar Ióðrétt
til himins og þótti tæknilegt af-
rek sumarið 1936 hjá Lýði Jóns
syni, vegavinnuverkstjóra. þegar
bílvegurinn var lagður yfir heið-
lærði matreiðsluiðn árið 1937
hjá þeim frægu systrum Stein-
unni og Margréti Valdemars-
dætrum á Hótel Skjaldbreið í
Reykjavík. Við opnun flutti
einn gestanna, Guðmundur
Finnbogason, vígsluljóð og er
síðasta erindið þannig:
Ég meina þó af mat og drukk,
mönnnm sem að kemur bezt.
Útilokað svall og sukk.
Sælir allir fyrir rest.
j Breiðdalsheiðin
ina. Versti kafli leiðarinnar er
í svokölluðum Kinnum og er þar
snjóskafl árið um kring. Jarð-
göngin myndu verða sjö hundruð
metrar að Iengd og taka hundrað
metra af hæðinni.
Magnús Hjaltason, bamakenn-
ari og skáld prisaði þó þessa
heiði á sínum tíma og þótti
fjallaloftið tært og hreint á þess-
um slóðum, þegar hann var
borinn yfir hana á kviktrjám
píslum kvalinn. Hann varð síðar
þekktur sem Ólafur Kárason
Ljósvíkingur i Heimsljósi Kilj-
ans. Seinna gckk hann yfir þessa
heiði bundinn aftan í hross sem
fangi á Ieið til dómara síns.
Málverk af æskustöðvunum
Kelduhverfi, 3/3 — Á síðastliðnu
hausti urðu skólastjóraskipti við
heimavistarskólann í Skúlagarði.
Frú Ingibjörg Indriðadóttir frá
Höfðabrekku hætti störfum og
við tók Angantýr Einarsson
kennari frá Akureyri. Það sem
af er þessum vetri hefur heilsu-
far verið gott í sveitinni. Heldur
er dauft yfir félagslífinu. Unga
fólkið hefur horfið á braut ým-
ist í atvinnuleit eða til skóla-
náms.
Hér var haldið mikið hjóna-
ball nýlega og var margt boðs-
gesta úr nálægum sveitum. Við
það tækifæri var Skúlagarði af-
hent stórt og vandað málverk
að gjöf frá nokkrum gömlum
Keldhverfingum, sem eru bú-
settir á Akureyri. Málverkið er
gert af Sveini Þórarinssyni frá
Kílakoti. Er það gert af brekku-
brúninni vestan við Auðbjargar-
staði og sézt austur yfir Keldu-
hverfið með Axarfjarðarfjöllin í
baksýn.
Afli góður á þorskanót
Þorlákshöfn, 3/3 — Landað var í
alla nótt hér í Þorlákshöfn og
fengu bátar með Þorskanót á-
gætan afla og var það mest-
megnis ýsa af Selvogsbankanum.
Þannig fékk Grótta 60 tonn, en
yfirleitt voru Þorlákshafnarbátar
með afla frá 20 tonn til 30 tonn.
Átta bátar biðu losunar í
fyrrakvöld.
Einar Freyr leiðbeinir Ólafsvíkingum
Ólafsvík, 2/3 — Leikfélagið hér
f Ölafsvík er nú að hefja æfing-
ar á gamanleiknum Orustan á
Hálogalandi og er Einar Krist-
jánsson Freyr leiðbeinandi.
1 vetur hefur verið unnið að
lögn aðalskolpleiðslu fyrir kaup-
túnið og er það verk vel á veg
komið. E.V.
Síldarverksmiðja á Hornafirði?
Höfn í Hornafirði, 3/3 — Hér eru
menn farnir að hugleiða þann
mögulcika að koma upp síldar-
verksmiðju og er það mál í at-
hugun. Enginn vafi er á þvi, að
hún hefði haft nóg að gera í vet-
ur, þegar síldin veiddist við Ing-
ólfshöfða og á Skciðarárdýpi og
bátarnir þurftu að fara mcð
hana austur á firði og til Rvík-
ur. Þá er cinnig hagstætt að hafa
hér síldarverksmiðju og síldar-
plan á ofanverðu sumri og jafn-
vel á haustin. Hún er stór og
falleg norðlenzka hafsíldin, sem
veiðist við sunnanverða Aust-
firði siðla sumars. — B. Þ.
Kosið í Verkamannafélagi Húsavíkur
Húsavík, 3/3 — Sjálfkjörið var
í Verkamannafélagi Húsavíkur á
dögunum og kom aðeins einn
listi fram þannig skipaður:
Aðalstjórn:
Formaður: Sveinn Júlíusson.
Ritari Hákon Jónsson. Gjaldkeri:
Gunnar Jónsson.
Meðstjórnendur:
Jónas Benediktsson, Magnús
Andrésson.
Varastjórn:
Varaformaður Þrá'nn Krist-
jánsson. Vararitari: Kristján
Ásgeirsson. Varagjaldkeri: Al-
bert Jóhannesson.
Varamcðstjórnendur:
Jón B. Gunnarsson, Jóhann
Gunnarsson.
Trúnaðarráð:
Jón Einarsson, Amór Krist-
jánsson, Ólafur Aðalsteinsson,
Guðni Jónsson, Bjöm Þorkels-
son, Kristinn Lúðvíksson.
Varatrúnaðarráð:
Aðalgeir Þorgrímsson, Öskar
Guðmundsson, Kristján Þórðar-
son, Pétur Bjarnason, Birgir
Lúðvíksson og Hákon Maríus-
son. — A. K.