Þjóðviljinn - 20.03.1964, Qupperneq 8
3 SlÐA
ÞIÓÐVILJINN
Föstudagnr 20. marz 1864
I minningu Hafnfirðings
Valgeir Sigurðsson
trésmiður
F. 6. nóv. 1909 — D. 14. marz 1964
í dag kl. 1.30 er jarðsunginn
frá Fossvogskirkju Valgeir Sig-
urðsson trésmiður.
Með örfáum línum vildi ég
kveðja þennan góða dreng, við
hann og leiki okkar í bemsku
eru tengdar margar af mínum
skýrustu og ljúfustu endur-
minningum frá þeim árum, en
þaer voru fyrir okkur og verða
ekki raktar hér. Lífsferill hans
er hins vegar sú hetjusaga, sem
vert er að láta að einhverju
getið nú, þegar hann er allur.
Valgeir var fæddur í Hafnar-
arfirði 6. nóv. 1909, sonur Sig-
urðar Jónssonar verzlunar-
manns og síðar fiskimatsmanns
í Hafnarfirði og fyrri konu
hans Guðnýar Ágústu Gísla-
dóttur. Hann var því albróðir
Gísla fisksala í Hafnarfirði og
Guðmundu, sem bæði dóu
síðastliðið sumar.
Móður sína missti Valgeir er
hann var á fyrsta ári og þáði
heilsuleysi svo að segja i
vöggugjöf. Móðurforeldrar mín-
ir, Sigurður Friðriksson og
Oddný Eiríksdóttir tóku hann
í fóstur og ólst hann upp hjá
þeim. Hann kom veikur til
þeirra á fyrsta árinu og hrak-
aði heilsu hans hvað sem að
var gert. Það voru víst berkl-
ar sem höfðu búið um sig í
hnélið vinstri fótar og er hann
var á öðru árinu varð að taka
fótinn af honum. Af sömu rót-
um munu hafa verið höfuð-
kvalir er hófust fáum árum
síðar og hann átti við að stríða
frá bamæsku og fram til
manndómsára. Þrátt fyrir
læknisaðgerðir æ ofan í æ
tapaði hann heym að verulegu
leyti þegar í æsku. Fötlun og
sífelldar þjáningar hlutu að
móta lund hans og viðmót á
bemskuárunum en náðu aldrei
að brjóta niður meðfæddan
kjark hans. Skapið var mikið
og ótamið og hann harðnaði
vi ðhver ja raun. Það særði stolt
hans ef hann varð var við að
einhver úr félagahópnum eða
hópi hinna fullorðnu tók hann
ekki fullgildan í einu og öllu
þrátt fyrir fötlunina, enda dró
hann ekki af sér — hljóp við
hækju sína með sínu taktfasta
lagi, ætíð tvö hopp á fætinum
milli þess að hækjunni var
stungið niður. og hraðinn var
furðulegur, klifraði öllum bet-
ur, sat hest og reiðhjól eins
vel og hver annar og engum
þýddi að reyna við hann á
skautum, á sínum eina skauta
fór hann með ofsahraða og
Móðuharðindi
Framhald af 7. síðu.
verst urðu úti f hinni fyrri
móðuharðindatíð, fátæka fólks-
ið og böm þeirra, áttu sér nú
brjóstvöm í samstöðu gegn
slíkum mönnum og áform
þeirra náðu ekki marki, nema
helzt í því, sem þeim þótti
líka mestu máli skipta, að
geta fengið fasteignir fyrir
sauðarlæri, láta almúgann
gjalda helmtng sparifjár síns
í sauðarlærasjóð. Almúginn
hefur varið sig og böm sín
fyrir sultinum að þessu. En
andinn lifir æ hinn sami, sagði
skáldið. Síðast í dag 28. febr.
eru þessir menn að hóta nýj-
um herferðum á hendur al-
múganum í móðuharðindandan-
um, og ekki er hægt að neita
því að drefjamar frá þeim
sjást í þ.jóðfélaginu á ofmörg-
um þúfum. Eftir helmings dýr-
tíðarhækkun af móðuharð-
indaandanum fá börnin sömu
upphæð og þeim var ákvörð-
uð þegar til atlögunnar móti
þeim var gengið. Gamla fólkið
fær uppbót, sem þeim er sízt
að þakka, í þeim anda að
þeim dugi að fá þetta í einu
lagi einhvertíma á árinu. Og
svo rauð er sólin fyrir þessu
fólki, að það tekur bita og
sopa frá hvers barns munni,
til að halda við þeirri útgerð
sem bankastjóri einn lýsti ný-
lega að krefðist styrkja um
leið og keyptar eru fasteign-
ir fyrir milljónir.
Þegar kirkjan, kristinna
manna samfélag, bjó til hel-
víti, hefur það eflaust verið
fyrir það, að henni var Ijóst
að sumir menn kusu að lifa
og starfa gegn anda lífsins,
ausa kuldanum á blóm lífsins
og andans í rangindum og
glæpum gegn lífinu. Kirkjunni
var Ijóst að þessir menn gátu
ekki verið í samfélagi andans
cg hún bjó þeim til vistarveru,
og af fádæma höfðinglegu ríki-
læti ákvað hún að það skyldi
vera nógu heitt á þeim.
VDNOUÐ
fVdÍr
$ígurfx>rJónsson &co
Jfaftuustntti if
Byggingarfélag alþýðu
Reykjavík
Aðalfundur félagsins árið 1964 verður haldinn
mánudaginn 23. marz kl. 20.30 í húsi S.Í.B.S.,
Bræðraborgarstaíg 9, uppi (lyftan verður í gangi).
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
■
hækjan var notuð jöfnum
höndum til þess að ýta sér á-
fram, stýra eða hemla.
A þessum árum, fram undir
fermingu gat hann verið skap-
bráður og harðsnúinn, ef hann
reiddist, en drenglyndi hans
brást aldrei, hvorki þá né síð-
ar. Við vorum góðir félagar. þó
ég væri réttum tveim árum
yngri en hann, höfðum lagt
til hliðar eina misklíðarefnið
frá fyrri árum, en það var
hvor okkar ætti meira tilkall
til ömmu minnar. Löngu síðar
varð mér ljóst að hann átti
sæti hið næsta henni, nær en
hennar eigin böm. Hann var
jafnan glaðlyndur og bjartsýnn
og hjálpsamari en nokkur ann-
ar bæði sem bam og fulltíða
maður. Strax í barnaskóla var
hæfni hans í teikningu við
brugðið, hann var listamaður
öðmm þræði og fæddur smið-
ur. Trésmiður vildi hann verða,
ef þess væri nokkur kostur.
Forsjónin uppfyllti ósk hans er
Helgi Helgason í Trésmiðjunni
Rún tók hann til læringar og
hjá honum lærði hann iðn sína
á ámnum 1925—29. Þetta vom
erfið ár fyrir ungling á öðrum
fætinum. Unnið var við smíði
á gluggum, líkkistum og öðmm
þungum stykkjum á daginn en
iðnskólinn sóttur á kvöldin.
Sveinsstykki hans var stórt og
vandað skrifborð úr eik. sam-
kvæmt tízku þeirra tíma, hinn
mesti kjörgripur. Auðvitað
varð Valgeir góður smiður og
eftirsóttur þar sem gerðar voru
kröfur um frágang og vand-
virkni. hið frábæra handbragð
var hluti af honum sjálfum.
Sigur var unninn, eftlr harða
baráttu allt frá bemsku.
Valgeir kvæntist Lovísu
Pálsdóttur, hinni ágætustu
konu, en hún hafði áður verið
gift Halldóri Ölafssyni raf-
virkjameistara og átti þrjú
böm frá fyrra hjónabandi,
Ástu, Ragnar og Sverri. Þau
Vaigeir og Lovísa kunnu vel
að meta mannkosti hvors ann-
ars, gagnkvæm virðing og ást-
ríki einkenndi sambúð þeirra.
Oddný heitir dóttir þeirra. 18
ára gömul, hún var augasteinn
föður síns. öll em börnin efn-
isfólk.
Valgeir var hinn bezti heim-
ilisfaðir, umburðarlyndur, mild-
ur og hlýr. Hann lærði snemma
að temja sitt mikla skap sem
harðnað hafði í þjáningum
bemskuáranna.
Hann var reglusamur á flesta
hluti aðra en að innheimta úti-
standandi skuldir. Mörg vinnu-
stundin fór því fyrir lítið.
Margir stóðu í byggingum og
leituðu til hans, en hann vildi
hvers manns vanda leysa þótt
ekki væri greiðslan vis. Allt
gróðabrask var honum fjarlægt
svo aldrei græddist honum fé.
Á fyrstu árum sínum í Kópa-
vogi smíðaði hann sér vandað
íbúðarhús, að miklu leyti í eft-
irvinnu, en opinberum lána-
málum má með sanni um
kenna, að hann varð að selja
það án nokkurs hagnaðar ann-
ars en þess að verða reynslunni
ríkari. Granar mig að hann
hafi þá ofgert vinnuþreki sínu
og er hann ekki einn um þá
reynslu.
Valgeir var greindur maður
og allvel lesinn. 1 stjórnmálum
var hann vinstri sinnaður og
róttækur um ýmsa hluti, en
fordóma- og kreddulaus. Vín-
maður var hann aldrei. Hverj-
um manni betur kunni hann að
taka mótlæti og vonbrigðum. í
þeim efnum hafði hann alizt
upp í ströngum skóla. 1 skauti
fjölskyldu sinnar var hann
hamingjusamur, enda hjartfólg-
inn þeim er þekktu hann bezt.
Fyrir mína hönd, konu minnar
og bama þakka ég þessum
góða dreng samfylgdina og bið
honum góðrar ferðar. en votta
ástvinum hans hjartanlega
samúð okkar allra.
Sig. Sigmundsson.
Ný árbók SÞ
Hið árlega yfirlit yfir starf-
semi Sameinuðu þjóðanna,
„Yearbook of the United Nati-
ons”, er komið út í nýrri út-
gáfu. Þetta er 16. árbók sam-
takanna og tekur til ársins
1962 — ársins þegar Kúba,
Kongó og kynþáttavandamálin
í Suðjr-Afríku voru efst á
baugi. en jafnframt voru þá til
umræðu „þróunaráratugurinn”
svonefndi, efnahagslegar og
félagslegar afleiðingar afvopn-
unar og margt annað.
Árbók Sameinuðu þjóðanna
fjallar líka um starfsemi hinna
mörgu sérstofnana Sameinuðu
þjóðanna. I fylgiskjölum henn-
ar er m.a. skrá yfir meðlima-
ríki samtakanna, stærð þeirra,
fólksfjölda og daginn sem þau
gengu í Sameinuðu þjóðirnar.
Þar er ennfremur texti stofn-
skrárinnar, greinargerð um
starfshætti og aðildarríki sér-
stofnana, skrá yfir öll opin-
ber skjöl o.s.frv.
„Yearbook of the United
«>-
Nations 1962” er 800 blaðsíður
og kostar rúmar 700 ísl. kr.
— (Frá S.Þ.)
Fylkingin
Félagar. Farið verður i Skálann
um páskana. Nánari upplýsing-
ar á skrifstofu ÆFR, sími
1-75-13.
Stjómin.
&
KIPAUTGtRO RIKISINS
H E K L A
fer vestur um land til Akureyr-
ar 25. þ.m. Vörumóttaka í dag
og árdegis á morgun til Patreks-
fjarðar, Sveinseyrar. Bíldudals,
Þingeyrar, Flateyrar. Suðureyrar,
Isafjarðar, Siglufjarðar og Ak-
ureyrar.
VORSÝNING ÞJÓÐDANSA-
FÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður í Háskólabíói sunnu-
daginn 22. marz kl. 2.
Sýndir verða þjóðdansar
frá þrettán löndum.
^orsala aðgöngumiða er
’ Klanparstíg 9,
SÍMI 12507
REGNKLÆÐI
Síldarpils
Sjóstakkar
Svuntur
o.fl.
Mikill afsláttur gefinn.
VOPNI
Aðalstræti 16
(við hliðina á bílasölunni)
ÁSVALLAGÖTU 69
Sími 2-15-15 og 2-15-16
Kvöldsími 2-15-16.
TIL SÖLU:
2 herbergja ný íbúð við
Hafnarfjarðarveg. Stræt-
isvagnar i bæinn á 13
mínútna fresti. Falleg f-
búð, fyrsta hæð.
2 herbergja íbúð á Sel-
tjarnarnesi. Selst full-
gerð með tvöföldu gleri,
hita eldhúsinnréttin.awm
og svefnherbergisskáp-
um. Útborgun 250 þús.
5 herbergja íbúð i Vestur-
bænum.
Fokheld raðhús í sérskipu-
lögðu hverfi í Kópavogi.
Góð teikning.
5 herbergja endaíbúðir í
Háaleitishverfi. Sér
hitaveita i hverri íbúð.
Allt sameiginlegt full-
gert. íbúðin sjálf tilbú-
in undir tréverk.
Raðhús i Álftamýri. Selst
fokhelt með hita, eða
tilbúið undir tréverk.
Hitaveita.
HÖFUM KAUPANDA AÐ.
3—4 herbergja tilbúinni í-
búð i Háaleitishverfi, eða
norðanverðu Hlíðahverfi.
Staðgreiðsla.
3 herbergja íbúð í gamla
bænum. Aðeins íbúð með
sólarsvölum kemur til
greina. Mikil útborgun.
VERZLUNARHCSNÆÐI á
góðum stað. Má vera i
úthverfi.
1 SKIPTUM E R
ÓSKAÐ EFTIR:
4 herbergja íbúð með sér-
inngangi, fyrir hálft hús
í Vesturbænum.
4 herbergja íbúð í bænum
fyrir nýtt 130 fermetra
einbýlishús í Silfurtúni.
Mjög vandað hús.
2—3 herbergja íbúð i bæn-
um, fyrir 4 herbergja
nýstandsett íbúð á bezta
stað á Melunum. Stór
bilskúr
5 herbergja góð oúð fyr-
ir lúxushæð f Safamýri,
sem senn verður fullgerð.
Mjög vandaðar innrétt-
ingar. Allt tilbúið að ut-
an. bar á meðal stór bíl-
skúr.
ALMENNA
FASTEIGN ASAIflN
IINDARGATA 9 SÍMI 211S0
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON
T I L S ö L U :
V A N T A R :
2ja, 3ja og 4ra herb. íbúð-
ir, miklar útborganir. Einn-
ig kjallara og risibúðir af
sömu stærð. Einbýlishús og
hæðir með allt sér.
TIL SÖLU:
2ja herb. íbúð við Blóm-
vallagötu.
2ja herb. nýleg íbúð við
Ásbraut. Innrétting og
fyrirkomulag mjög glæsi-
legt.
3ja herb. risíbúð í Hlíðun-
um.
2ja herbergja við Lang-
holtsveg, í góðu standi,
1. veðréttur laus.
3ja herb. góð kjallaraíbúð
við Kvisthaga. sér inn-
gangur, sér hitaveita.
3ja herb. risfbúð við Lauga-
veg, sér hitaveita, þvottur
og geymsla á hæðinni.
3ja herb. hæð við Hverfis-
götu, ný standsett og mál-
uð með harðviðarhurðum,
sér inngangur, sér hita-
veita. eignarlóð, laus strax.
3ja herbergja nýleg jarð-
hæð við Álfheima, 90
fermetra, vönduð harð-
viðarinnrétting, allt sér.
4ra herb. ný glæsileg í-
búð í háhýsi við Sólheima
4ra herb. íbúð við Kára-
stíg, stofa og 3 svefnherb.
svalir, áhvílandi gott lán
til langs tíma.
Lúxushæð í Safamýri 150
ferm.. frágengin að utan
með stórum bflskúr, full-
búin undir málningu að
innan, glæsilegar innrétt-
ingar, allt sér.
Tímburhús asbestklætt í
góðu standi við Suður-
landsbraut, vel staðsett,
húsið er 5 herb. íbúð, útb.
'kr. útb. 100—150 þús.
KÓPAVOGUR:
Hæðir með allt sér, ein-
býlishús og lóðir.
Tilsölum.a.
2 herb. íbúð með 6ér inn-
gangi og sér hita, i stein-
húsi við Marargötu.
2ja herb. góð fbúð á 2. hæð
við Ljósheima.
2ja hcrb. kjallaraíbúð I
nýju húsi f Laugamesi.
2ja herb. góð kjallaraíbúð
við Blönduhlíð.
3ja herb. fbúð á 2. hæð i
Stóragerði. Herbergi fylg-
ir f kjallara.
3j herb. fbúð f timburhúsi á
eignarlóð f Skerjafirði. —
Lágt verð, lág útborgun.
3ja herb. fbúðir á hæðum f
steinhúsum við Hverfis-
götu.
4 herb. íbúð við Lokastfg.
Laus strax.
4ra herb. vandaðar fbúðir
við Háaleitisbraut.
4ra og 5 herb. fbúðir f
smfðum við Háaleitis-
braut og Fellsmúla.
Einbýlishús, nýleg og
vönduð við Hlíðagerði,
Sogaveg, Hlíðarveg.
Digranesveg og Alfhóls-
veg.
Fallegt timburhús með 7
herb fbúð, við Geitháls.
Auk ofangreinds, höfum
við fbúðir á ýmsum
stöðum f bænum. stór-
ar og smáar. Leitið
upplýsinga
Fasteignasalan
Tjarnargötu 14
Símar: 20625 og 23987.
?
4