Þjóðviljinn - 26.04.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 26.04.1964, Page 12
ÍÞRÓTTAHÖLL RÍS Á DALVÍK Á Dalvík er verið að byggja stórt og myndarlegt íþróttahús og verður það vonandi lyft'stöng fyrir allt íþróttalif og félagslíf hér á staðnum. Fréttaritari Þjóð- viljans á Dalvík átti nýlega spjall við byggingarmeistar- ann, Jón E. Stefánsson, og taldi hann. að þetta hús yrði fullbyggt um þúsund fermetr- ar. Ekki er meiningin að byggja húsið í einum sam- felldum áfanga. En þegar húsið verður fullbyggt verð- ur íþróttasalurinn 33x13 metrar að stærð. Hæð t;l lofts verður 7 metrar. Áhorf- endasæti verða í húsinu fyrir 250 manns og stæði fyrir 60 manns. Þá verður bygging fyrir framan íþróttasalinn. en þar verða snyrtiherbergi, böð, fundarherbergi og á- haldageymslur. Áföst við salinn verða einnig búningsherbergi og böð undir áhorfendastúkunni. Þetta er engin smásmíði og verður þetta stærsta íþrótta- hús á Norðurlandi fullsmíð- að. 1 fyrrasumar var hafizt hana um bygginguna og þá steyptur grunnur og hluti af sal og áhorfendasvæði. Vinna hófst svo að nýju í góðviðr- inu í vetur. Það var í önd- verðum marzmánuði og var þá byrjað að slá upp fyrir frambyggingunni. Núna er búið að steypa hana upp og farið að slá utan af henni. Það er einsdæmi hér á Dal- í. ' Þessi mynd er nýlega tekin af íþróttahúsinu í smiöum á Dalvík, (Ljósm. H.K.). Sunnudagur 26. apríl 1964 — 29. árgangur — 94. tölublað. Ný gerð af skurð- gröfu reynd hér í gær bauð Heildverzlunin Hekla fréttamönnum að skoða nýja vökvastýrða vélgröfu, HY-Mac 580, sem kom- in er til landsins og þykir um margt fullkomnari en fyrri gerðir af vélgröfum. Er það fyrirtækið Hydraulic Machinery Company sem framleiðir þessa vél. Var skurð- grafan reynd á Klambratúninu í gærmorgun og þótti vinna mjög vel. vik að unnið sé að húsbygg- ingum á þessum árstima með svona góðum árangri. Jón E. Stefánsson hefur unnið við húsbyggingar i samfellt 42 ár og lærði hann hjá Gunnlaugi Sigfússyni á sínum tíma. Jón vann við smíði gafla skólahússins hér, en það hús byggði Elias heit- inn Halldórsson árið 1932. Jón byggði hinsvegar nýja skólahúsið fyrir átta árum. Skólinn hér á Dalvík er barna- og miðskóli með landsprófsdeild og eru 70 nemendur í skólanum í vet- ur. Skólastjóri er Helgi Þor- steinsson. Ætlunin er að gera Dalvík að meira skólaþlássi með byggingu íþróttahússins og er það raunar mikið á- tak fyrir ekki stærra kaup- tún að ráðast í smíði svo mikillar byggingar. Til við- miðunar má geta þess, að þessi íþróttasalur er svipað- ur að stærð og íþróttasalur bandaríska hersins á Kefla- víkurflugvelli. Hvað mega höfuðstaðabúar segja um framtak þessa litla þorps á Norðurlandi. — H. K. ORKA SETUR UPP FÍA TVERKSTÆÐI Nú hefur Orka h.f. opnað bifreiðaverkstæði að Laugavegi 178 hér í bæ fyrir Fíatbifreið- ir enda hefur verið skortur á viðgerðarþjónustu á þessum vin- sælu ítöUku bifreiðum undan- farin ár. Bifreiðaverkstæðið er rúm- góður og bjartur salur ásamt skrifstofu fyrir verkstjóra og snyrtiherbergjum og kaffistofu fyrir starfsfólk. Viðgerðarsalurinn er hólfaður niður í átta reiti og eru sex reitimir ætlaðir sem pláss fyr- ir sex biívélavirkja við vinnu f ina. Hver bifvélavirki hefur við- erðarborð með nýtízku verk- ærum og er mikið lagt upp úr -aða við vinnuna og vinna þeir ftir ákvæðisvinnutaxta og fá -ð mestu að vera ótruilaðir við vinnu sína. Getur verkstjóri haft síma- ramband við bifvélavirkjann. þó að hann liggi undir bifreiðinni I gær hófst hér í Reykjavík iðstefna um áfengismál sem oðað er til af dórns- og kirkju- málaráðuneytinu í samráði við Landssambandið gegn áfengis- i bölinu. Sitja ráðstefnuna nokkr- ir forustumenn í félagsmálum og embættismenn. og einnig getur hann haft sam- band við varahlutaverzlun um- boðsins og látið senda sér vara- hluti á staðinn. Fyrirhugað er að framkvæma helztu viðgerðir, sem til falla, en þó fara ekki fram viðgerðir á yfirbyggingum eða meirihátt- ar viðgerðir á mótorum og mun þó verkstæðið sjá um viðgerðir á slíku og fylgjast með þeim á viðkomandi stöðum. Verkstæðið hefur yfir að , ráða góðu úrvali allra handverkfæra og er hverj- um manni skammtað visst magn af þessum verkfærum, sem hann geymir í kistu á vinnu- borði sínu. Ennfremur hefur hann vinnu- Ijós, rafknúinn lykil og þrýsti- loftúttak. ' Raftenglar eru við hvert borð og raflýsing er góð. Forstöðumaður verkstæðisins verður Friðrik Þórhallsson bif- vélavirkjameistari og hefur hann unnið við slíkt í New York í fjögur ár og numið vinnuhag- ræðingu á bandarískum verk- stæðum. Hér á landi eru um sex hundruð Fíatbifreiðir og er það von okkar að geta bætt úr skorti á viðgerðarþjónustu á þessum bifreiðum sagði Þórður Júlíusson forstjóri Orku i við- tali við blaðamenn um leið og hann sýndi þeim verkstæðið. Sérstæð íþróttakeppni í kvöld Stúdentar tefla fram úrvalsliðum I kvöld kl. 20.15 hefst að Há- logalandi myndarlegt íþróttamót í knattleikjum, sem íþróttafélag stúdenta gengst fyrir. Keppt verður i körfuknattleik, hand- knattleik og knattspyrnu. Háskólastúdentar tefla fram sínum liðum i hverri grein gegn sterkum andstæðingum. f knatt- spyrnu keppa stúdentar við Þrótt, sem er fslandsmeistari i knattspyrnu innanhúss. f hand- knattleik keppa þeir við FH og í körfuknattleik við úrvalslið úr ýmsum félögum. f Háskólanum eru nú margir af fræknustu í- þróttamönnum landsins í þess- um greinum. í knattspyrnuliðinu er t.d. Ellert Schram, í körfuknattleiks- liðinu eru m.a. Þorsteinn Hall- grimsson, Hólmsteinn Sigurðs- son. Einar Matthiasson, Einar Bollason og Kristján Ragnars- son og í handknattleiksliðinu Páll Eiríksson. Kristján Stefáns- son. Sigurður Einarsson, Bergur Guðnason, Pétur Bjarnason, Herbert Haraldsson og Jón Frið- steinsson. Ekki er að efa að þetta verður skemmtileg keppni, og hinn ágæti íþróttaáhugi, sem nú hefur vaknað meðal háskóla- stúdenta er lofsverður. HY-MAC 580 er vélknúin skurðgrafa með vökvaaflfærslu til gröfuarms, drifbúnaðs og hemlakerfis. Er aflfærslubúnað- ur þessi mörgum sinnum ein- faldari að allri gerð en venju- legur mekaniskur búnaður, sem sést bezt á því, að HYMAC 580 hefur enga víra, trissur, niður- færslutannhjól, tengi tromlur, tromlubremsur né flókinn og margbrotinn stjórnbúnað. f stað alls þessa kemur vökvadæla vökvastrokkar, og einfaldur og fljótvirkur stjórnbúnaður á HY- MAC 580. HY-MAC 580 er mjög afkasta- mikið verkfæri, þó fyrirferðin sé ekki mikil. Sem vökvastýrð grafa fær HY-MAC 580 graf- kraft sinn frá vökvastrokkum án aðstoðar fyrirferðarmikillar mótvigtar. HY-MAC 580 er á beltaundir- vagni, sem búinn er 24 tommu breiðum beltum. Flothæfni HY- MAC '580 á mýrum og votlendi er einstök. Og þar sem graf- krafturinn er fenginn frá vökva- strokkunum án þess að aukinn þrýstingur á jarðsnertiflöt skrið- beltanna komi til greina við gröft, má fullyrða að HY-MAC 580 getur ekki aðeins farið yf- ir votlendi, sem maður væri við að sökkva í, heidur getur hún framkvæmt þar þá grafvinnu, sem hún er gefin upp fyrir, án aðstoðar fleka. Skriðbeltin eru drifin með vökvamótorum og hægt er að láta beltin snúast í gagnstæðar snúningsáttir, sem auðveldai mjög alla tilfærslu gröfunnar. Vökvadæla vökvakerfisins er þreföld. Er þar af leiðand) mögulegt að stjórna fleiri er einum vökvastrokk í einu, sem eykur vinnuhæfni gröfunnar að miklum mun. Þrýstileg og hringfærslu-tann- hjól snúningsborðs HY-MAC 580 eru algjörlega innbyggð og burðarrúllurnar eru kúluleg. Aflgjafi gröfunnar er Ford 6D, 6 strokka dieselvél, með 5.4 lítra slagrúmtaki, og afkastar hún 82 hö. við 2000 sn/mín. Stjórntækin eru þrír vökva- lokar, sem fara sjálfkrafa j dá- stöðu. Og hemlabúnaði skrið- beltanna er s^órnað með loka, staðsettum inni í stjórnhúsinu. Með gröfunni er hægt að 4á 7 mismunandi tegundir og stærð- ir af skóflum, 4 gerðir af kröbb- um, grjótplóg og ýtublað. Mesti brotkraftur skóflu er Framhald á 9. síðu. Sýning hjá nrkítektum á teikningum Eins og kunnugt er fór fyrir skömmu fram samkeppni um teikningu gagnfræðaskóla á Sel- fossi. Tillögur þær sem bárust í samkeppnina eru nú til sýnis hjá Byggingaþjónustu Arkitekta- félags Islands, Laugavegi 20, 3. hæð. Verður sýningin opin í dag kl. 13—18 og næstu viku á sama tíma. og er öllum heimill ó- keypis aðgangur. Það vakti athygli að í þess- ari samkeppni hlaut sami mað- ur bæði fyrstu og önnur verð- laun, Ormar Þór Guðmundsson arkitekt. Úr verzluninni Módelskartgripir — (Ljósm. Þjóðv. A.K.), Ný skartgripabúð: Módelskartgripir Sl. laugardag opnuðu tveir ungir menn nýja skartgripa- verzlun að Hverfisgötu 16a og ber hún nafnið Modelskartgrip- ir. Eigendur verzlunarinnar eru Sigmar Maríusson gullsmiður og Pálmi Jónsson gollsmíðanemi. Sigmar lærði gullsmíði hjá Halldóri Sigurðssyni gullsmið á Skólavörðustíg 2 og hefur unn- ið hjá honum siðan þar til nú að hann setur upp eigið verk- stæði og verzlun í samvinnu við Páima Húsnæði það sem þeir hafa á leigu að Hverfisgötu 16 a er um 70 fermetrar að stærð. Var þar áður til húsa fornbókaverziun. Þeir félagar hafa sett upp algerlega nýja innréttingu í húsnæðið og er búðin hin smekklegasta að öllu útliti og frágangi. Innrétting- una teiknaði Björn Emilsson, en þeir Sigmar og Pálmi smíðuðu hana sjálfir og settu upp. Eins og nafn verzlunarinnar bendir til er það ætlun þeirra félaga að fást einvörðungu við módelsmíði. Mun liggja frammi í verzluninni bók með teikning- um er þeir hafa gert að ýmis- konar skartgripum og getur fólk síðan valið teikningu sem því líkar, og síðan smíða þeir gripinn eftir henni. Einnig get. ur fólk komið sjálft með teikn- ingar ef það vill og fengið smíðað eftir þeim. Jafnframt getur það sjálft valið, sér steina í hringa og men. Eru þeir félagar með mikið úrval af ís- lenzkum steinum og auðvitað •'-1enda steina líka Það mun vera algpr nýjung Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.