Þjóðviljinn - 15.05.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 15.05.1964, Side 3
Föstudagur 1S. maí 1964 HÖBVILnHN SIDA } Flugumenn sendir frá USA til árásu á Kábu HAVANA 14/5 — Flugrumenn og spellvirkjar, þjálfaðir og vopnaðir í Bandaríkjunum, gengu á land á austurströnd Kúbu í gær, skutu á sykur- hreinsunarstöð og kveiktu í henni. Talsmenn árásarliðsins sögðu að með þessu strandhöggi væri hafið stríðið gegn stjórn Castros. Castro staðíesti sjállur ; nótt að þessi árás hefði verig gerð við hafnarbæinn Pilom í Ori- ente-fylki. Hann lýsti ábyrgð á hendur Bandaríkjastjórn og i kvað árásarmennina vera á mála hjá henni. Hann sagði að 75.000 sekkir af sykri hefðu eyðilagzt í brunanum. Árásarmennirnir gáfu sjálfir Þeir Krústjoff og Nasser hafa skipzt á heiðursmerkjum, Krúsjoff verið sæmtlur Nilarorðunni, Nasser nafnbótinni „Hetjja Sovétríkjanna“ og er einn örfárra útlendinga sem hana hefur fengið. Krústjoff í ræðu í Egyptalandi: Assúanstíflan dæmi um hvað smáþjó&irnar geta afrekað Langvittnt og erfítt strið i S- Vietnam KAÍRÓ 14/5 — Enn var mikið um dýrðir í Assúan við Níl í dag, en þá var með sprengingu rutt úr vegi fyrir- hleðslu og vatni Nílarfljóts veitt í nýjan farveg, sem það mun renna um þar til lokið hefur verið að gera stífl- una miklu. Þegar 340 kiló af dýnamíti höfðu rutt fljótinu veginn, streymdi gruggugt vatnið inn í kílómetra langan skurg og gegn- i um sex mikil göng, en í þeim er ætlunin að koma fyrir túrb- inum:“ ~~ Þeir Krústjoff og Nasser ENSKIR FRAKKAR hleyptu í sameiningu af stað sprengingunni, en geysilegur mannfjöldi réði sér ekki fyrir fögnuði yfir að lokið var fyrsta áfanganum i beizlun hins mikla fljóts. Athöfnin stóð í þrjár klukku- stundir og þeir héldu allir ræð- ur, Krústjoff, Nasser og A1 Salaal, forseti Jemens. Ben Bella Alsírforseti hafði ætlað að vera viðstaddur athöfnina, en hann kom ekki fyrr en seinna um daginn til Kaíró úr heim- sókn sinni í Tékkóslóvakíu. Dæmi um afrek smáþjóða í ræðu sinni sagði Krústjoff að Assúanstíflan væri Ijóst dæmi um hvílík afrek smáþjóð gæti unnið. Sovétrikin hefðu Framhald á 9. síðu. WASHINGTON 14/5 — Stríðið í Suður-Vietnam verður bæði langvinnt og erfitt, viðurkcnndi Robert McNamara landvarna- ráðherra þegar hann ræddi í dag við blaðamenn við heim- komuna frá Saigon, Hann fullyrti þó að ef fylgt væri þeirri stefnu sem nú hefði verið tekin í baráttunni við skæruliða Vietcongs myndi sig- ur vinnast að lokum. Hann sagði að það hefði m.a. verið ákveðið að tvíefla styrk flug- hers stjórnarinnar í Saigon, fjölga flugmönnum hennar um helming úr þeim 400 sem hún hefði nú. Til þess yrðu Banda- ríkin að veita aðstoð sína og hann sagði að hann myndi leggja til að hernaðaraðstoð þeirra yrði bæði aukin og henni hraðað. í Miami í Bandaríkjunum út tilkynningu um árásina. Fjöl- mennt lið hefði tekið þátt í henni og hún hefði gengið sam- kvæmt áætlun. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði í Was- hington í nótt að hún faefði enga hugmynd haft um þessa árás og vissi ekki meira um hana en lesa mætti j blöðum. Það væri nú sem áður stefna Banda- ríkjanna að ekki bæri að stuðla að slíkum árásum eða láta þær óátaldar. Bann vifl Iyfjasölu? Bandaríkjastjórn ákvað í dag að setja á eftirlit með allri sölu matvæla og lyfja til Kúbu, en það eru einu vörutegundirnar sem ekki hefur legið blátt bann við að selja Kúbumönnum. Á- stæðan til þessarar ákvörðunar er sú að spurzt hefur að Kúbu- stjórn hafi leitað fyrir sér um kaup á lyfjum frá Bandaríkjun- um og þyki rétt að bandarísk stjórnarvöld geti fylgzt með slíkum viðskiptum. Engin niðurstaða á ráðherrafundi NA T0 Sagnrýni á Undén STOKKHÓLMI 14/5 — Stjórn- arskrárnefnd sænska ríkisþings- ins samþykkti í dag að víta Östen Undén, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, fyrir að hafa sofið á verðinum gagnvart njósn- aranum Wennerström. Þær vít- ur hlaut hann eftir hlutkesti, þar sem sósíaldemókratar og borgaraflokkarnir hafa jaín- marga menn í nefndinni. HAAG 14/5 — Vorfundi utan- ríkisráðherra Atlanzhafsbanda- lagsins lauk í Haag í dag. Ljóst er af tilkynningunni um störf fundarins að ráðherrarnir hafa ekki komizt að neinni niður- stöðu um þau mál sem fjallað var um. Þannig er í tilkynningunni ekki minnzt einu, orði á þau meginmál sem Rusk, utanrík- ■isráðherra Bandaríkjanna, lagði atíerzlu ái "fyrstú ræðu sinni, aðstoð við Bandaríkin í stríði þeirra í Suður- Vietnam og þátttöku allra Nato-ríkja í við- skÍDtabanninu á Kúbu. Hins vegar , er Kýpurmálið rætt í tilkynningunni, en það er einnig ljóst, að ekkert hef- ur miðað til samkomulags milli aðildarríkjanna sem þar eig- ast við, Grikkja og Tyrkja. Atriði úr japönsku myndinni „Konan í sandinum' ,Konan í sandinum' fékk hin sérstöku verðlaun í Cannes CANNES 14/5 — Hinni árlegu kvikmyndahátíð lauk { Cannes { dag með úthlutun verðlauna. Japönsk kvikmynd fékk hin sérstöku heiðurs- verðlaun hátíðarinnar, en frönsk fyrstu verðlaun- in, Grand Prix. Japanska myndin heitir „Suna no onga“ („Kon- an í sandinum") og hafði af öllum verið talin líkleg til verðlauna. Verðlaunin fyrir frönsku myndina, „Les parapluies de Cherbourg", af þeirri tegund sem kölluð er „dans- og söngva- mynd“, munu hins vegar hafa komið mörgum á óvart. Höfundur hennar er Jacques Demy og aðalhlutverkið leikur Catherine Deneuve. Verð- launin fyrir beztan leik var bæði skipt á milli leikara og leikkvenna. ítalinn Saro Urzi hlaut þau fyrir leik sinn í „Sedotta e abbandonata" og Ungverjinn Antal Pag'r fyrir leik sinn í „Alouette". Tvær bandarískar leikkonur skiptu með sér verðlaunum, þær Barbara Barrie og Ann Bancroft fyrir leik sinn í „One potato, two potato" og „The pumpkin eater". Sex fórust þegar orustuþafa hrapaði LAS VEGAS 14/5 — Orustuþota af gerðinni F-105 hrapaði í gær til jarðar og rakst á hús í út- hverfi borgarinnar Las Vegas. Flugmaðurinn fórst og einnig fjögur böm og 31 árs gömul móðir þeirra sem voru i eipu húsanna. 1 mörgum húsum kviknaði og gereyðilögðust sjö þeirra. Kjarnorkuknúin kaupför ótímabær LONDON 14/5 — Nefnd sem brezka stjómin skipaði fyrir þremur árum hefur komizt að þeirri niðurstöðu að enn sé ekki tímabært að smiða kjamorku- knúin kaupför, enda þótt allar líkur séu á þvi að þar komi að slík skip verði samkeppnis- fær. Nefndin leggur til að Brgt- ar hefji smíði kjamorkuofns til að knýja skipsvélar og áætlar að hann muni kosta 15 miljónir sterlingspunda. Borgarísjakar eru langt suður í hafi NEW YORK 14/5 — Skipstjórinn á norska skipinu Oslofjord segist hafa orðið var við mikla borgar- ísjaka á siglingaleiðinni vestur um haf og voru þeir óvenju sunnarlega, eða allt að 310 sjó- mílur suðaustur af Nýfundna- landi. Flóðhætta í Svíþjóð af völdum leysinga STOKKHÓLMI 14/'5 — Unnið er baki brotnu að því að forða miklum flóðum sem hætta er á vegna þess að leysingaísinn { Tomeelv á landamærum Sví- þjóðar og Finnlands hefur hlað- izt upp og stíflað fljótið. Það hefur þegar flætt yfir bakka sína, en nú er reynt að losa um stífluna með sprengingum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.