Þjóðviljinn - 28.05.1964, Side 1
Aðalfundur ÆFR haldinn í kvöld
Aðalfundur Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík verður haldinn
í kvöld klukkan 8.30 e.h. í Tjarnargötu 20. — Fundarefni: Inntaka
nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Starfið framundan. Önnur
mál. — Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og eru beðnir að
sýna félagsskírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
Gerf roS fyrlr aS allír Eyjabáfar gerí upp samkvœmf samníngi
Sex Eyjabátar hafa haft
fyrirskipun LIU að engu!
□ Sex Vestmannaeyjabátar, sem stunduðu þorskveiðar í nót á vetrar-
vertíðinni, hafa þegar gert upp við skipverja samkvæmt hringnótarsamn-
ingnum, síldarsamningnum, eins og sjómannafélögin á öllu Suðvestur-
landi hafa krafizt, og hafa þannig haft að engu „fyrirskipun“ LÍÚ-stjórn-
arinnar um að gera upp samkvæmt línu- og netasamningnum.
□ Þessir bátar eru: Marz, Bergur, Gulltoppur, Ófeigur II., Ófeigur
| III. og Reynir.
□ Sigurður Stefánsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vest-
mannaeyjum, segir það liggja í loftinu að einnig útgerðarmenn þeirra 5
til 6 báta, sem eftir eru. geri upp samkvæmt gildandi samningum, eins
og allir útgerðarmenn í Eyjum gerðu í fyrra.
Sjá nánar frétt á 9. síðu
Þorkell máni
selur fyrir 17
þúsund pund -
Júní seldur fyr
ir 30 þús. pund
S. L. MANUDAG seldi Þorkell
máni í Grimsby 230 tonn fyr-
ir tæp 17000 £. Á sama tíma
voru íhaldsmenn í Flafnar-
firði að semja um sölu á
togaranum Júní fyrir 30000
sterlingspund, en Júní og
Þorkell máni eru skip af
svipaðri gerð og smíðuð
sama ár, keypt fyrir svipað
verð fyrir forgöngu ríkis-
stjórnarinnar.
HVERT STEFNIR í þjóðfélagi
I>ar sem slíkt ráðslag á sér
stað, að togari er seldur úr
landi fyrir aðeins 30000 £ á
sama tíma og sams konar
skip kemur að landi með
verðmæti fyrir 17000 £ eftir
eina veiðiferð?
Þiéttur vann Val
í gær léku Þróttur og Valur
í Islandsmótinu í knattspyrnu og
sigraði Þróttur með 4 mörkum
gegn 2. í hálfleik var staðan
2:1 fyrir Val.
EKKI LAT A SAMNINGAFUNDUM
| | Enn er haldið áfram stöð-
ugum fundum sem samn-
inganefndum verkalýðsfélag-
anna fyrir norðan og austan
I og fulltrúum atvinnurek-
! enda, og stóð fundur í
fyrrinótt til kl. 2.30. Á þeim
fundi var einkum rætt um
kvennakaup og unglinga-
vinnu, en engin endanleg
«>—---------------------------
Nehru forsætkrá&berra Ind-
lands lézt í gærmorgun
NEW DEHLI 27/5 í morgun lézt á heimili sínu í
N. Dehli Jawaharlal Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, og var banamein hans hjartaslag. Missti
Nehru meðvitund snemma um morguninn og lézt
nokkrum klukkustundum síðar. Hann varð 74
ára gamall. Bálför Nehrus verður gerð á morgun
og verður viðstaddur fjöldi þjóðhöfðingja og full-
trúa þeirra hvaðanæva að úr heiminum.
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur Nehru ekki gengið heill til
skógar undanfarið. Hann varð
alvarlega veikur í janúar og varð
að taka sér leyfi frá störfum.
yfirgefið New Dehli, þegar dauð-
inn sótti hann heim.
Helztu æviatriði.
Nehrus mun lengi minnzt sem
Nehru hafði ætlað að taka 3ja i eins atkvæðamesta stjórnmála-
daga hvíld nú, en hafði enn ekki 1 manns aldarinnar og þess manns.
er
hoa$#i»SiJir ^ °r
★ Samkvæmt yfirliti Hagstofu fslands var vöruskiptajöfnuður-
inn hagstæður um tæpar 53 miljónir króna fyrstu fjóra mánuði
þessa árs, en á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um rúmlega 41 miljón Uróna.
★ Fram til aprílloka bcssa árs hafa veriö fluttar út vörur fyrir
1.373.737 þtís. kr. en innflutningur nemur 1.320.792 þús. kr.
sem næst á eftir Gandhi átti
hvað mestan þáttinn í að afla
Indverjum sjálfstæðis. Nehru var
fæddur 1889, af tignum ættum.
Hann nam lögfræði og stundaði
um hríð lögfræðistörf i London.
1918 hvarf hann aftur til Ind-
lands og gerðist þá meðlimur i
Kongressflokknum. sem þá var
undir stjórn Gandhis. Gerðist
Nehru brátt einn helzti stuðn-
ingsmaður Gandhis og sat þrá-
faldlega í fangelsi Englendinga.
Forsætisráðherra Inólands varð
hann er landið hlaut sjálfstæði
sitt 1947, og var baö æ síðan.
Hann tók fyrstur stjórnmálaleið-
toga upp hlufleysisstefnu gagn-
vart stórveldum austurs og
vesturs og reyndi jafnan að
stuðla að friði i heiminum.
Nanda tekur við.
Við banabeð Nehrus var einka-
dóttir hans og þrír ráðherrar
Kongressflokksins. allir nánir
samstarfsmenn hins látna forsæt-
isráðherra. Einn þeirra. Gulzari-
lai Nanda. hefur tekið við störf-
um forsætisráðherra Fréttamenn
telia bó líklegra. að eftirmaður
Nehrus verði innanríkisráðherr-
ann Lal Bahadur Shastri.
niðurstaða náðist í þeim
efnum. Boðað til nýs fund-
ar kl. 20.30 í gærkvöld.
| | Eins og málin standa nú
mun vera langt til gengið
frá þeim atriðum samning-
anna, sem ekki snerta kaup-
gjaldið sjálft og flokkun á
kauptöxtum. Varðandi síð-
ast töldu atriðin hefur enn
ekkert þokazt í samkomu-
lagsátt.
| | Viðræðum ríkisstjórnar-
innar og samninganefndar
Alþýðusamb. hefur verið
Vegabréfsáritun
afnumin
Nýlega var gengið frá sam-
komulagi í Osló milli íslands og
Júgóslavíu um gagnkvæmt af-
nám vegabréfsáritana fyrir ís-
lenzkt og júgóslavneskt ferða-
fólk, sem ferðast vill milli land-
anna og dvelja þar í allt að 3
mánuði.
Samkomulag þetta gengur í
gildi hinn 1. júlí 1964.
Ekkert kom fram
við yfirheyrslur
Eins og frá var sagt hér í
blaðinu i gær gerði lögreglan
skyndilega leit í húsi nokkru ná-
lægt Tjörninni aðfaranótt s.l.
þriðjudags vegna gruns um að
þar væri rekin vændisstarfsemi.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni í gær er
nú rannsókn þessa máls að
ljúka og hefur ekkert það kom-
ið fram við yfh'heyrslur er
bendi tii þess að grunur þessi
hafi verið á rökum reistur og
hefur DÍlti þeim er handtekin
var í sambandi v'ð mál þetta nú
verið sleppt úr haldi.
haldið stöðugt áfram, þótt I formlegur fundur milli þess-
ekki væri um formlega fundi ara aðila yrði fyrir hádegi
að ræða, en búizt var við að | í dag.
Maður drukknar í mógröf
I gærmorgun varð það slys
að hálfsjötugur maður, Sigurjón
Ólafsson til heimilis að Elliða-
vatni drukknaði í mógröf í svo-
nefndri Elliðakotsmýri í Mos-
fellssveit.
Sigurjón hafði farið að heim-
an frá sér um kl, 6 í gærmorgun
í bifreið sinni og fannst hún á
Elliðakotsafleggjaranum skammt
frá mýrinni. Er talið að hann
hafi ætlað að hyggja að hestum
sem þarna voru og hann hafði
eftirlit með.
Sigurjón starfaði hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur og var
eftirlitsmaður i Heiðmörk. Þeg-
ar hann kom ekki til vinnu
sinnar í gærmorgun fóru vinnu-
félagar hans og ættingjar að
leita hans og fannst hann fljót-
lega í mógröfinni örendur.
GJÖF RAGNARS AFHENT
LISTASAFNI ASÍ I GÆR
I gær afhenti Tómas Guðmundsson skáld Listasafni Alþýðusam-
bands Islands að gjöf frá Ragnari Jónssyni upplagið að riti Björns
Th. Björnssonar listfræðings um íslenzka myndlist og er myndtn
tekin er Hannibal Valdimarsson forseti ASÍ veitti gjöíinm mót-
töku. — (Ljósm. Þjóðv. Ari Kárason).
Sjá frétt á 12. síðu
i