Þjóðviljinn - 17.06.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.06.1964, Blaðsíða 2
SÍÐA ÞJÓÐVILJíNN Miðvikudagur 17. júnf 1964 Félksf jölgunin um 25% á 12 árum □ Samkvæmt síðustu árbók Sameinuðu þjóð- anna um fólksfjölda voru íbúar jarðarinnar sam- tals 3.135 miljónir á miðju ári 1962. Er þar um að ræða fjölgun sem nemur 25 af hundraði síðan á miðju ári 1950, en þá var fjöldi jarðarbúa 2.509 miljónir. Frá því árið 1958, þegar fjöldi jarðar- búa var 2.893 miljónir, nam fólksfjölgunin 2 af hundraði árlega. Asía (að Sovétríkjunum und- anskildum) hefur að geyma 56,3 af hundraði allra jarðar- búa. Á Kyrrahafssvseðinu búa fæstir, eða minna en 1 af hundraði jarðarbúa. í Evrópu, Norður- og Suður' Ameríku bjuggu 27,5 af hundraði jarð- arbúa árið 1962. Evrópa (að Sovétríkjunum undanskildum) er þéttbýlasta álfan með 88 manns á hvern ferkilómetra, en Kyrrahafs- svæðið er strjálbýlast með 2 menn á hvern ferkílómetra Meðaltalið, þegar heimurinn er tekinn sem heild, er 23 menn á hvern ferkílómetra. Sé heiminum skipt í sex meginsvæði, eins og venjulega er gert í alþjóðlegum skýrslum bar sem ekki er miðað við hin- ar gömlu álfur, lítur dæmið þannig út; FÓLKSFJÖLDI í HEIM- INUM Á MIÐJTJ ÁRI 1962: Fólksfjöldi í miljónum Þéttbýli á fer- kílómetra Árleg aukn. 1958 til 1962 í prósentum Afríka 269 Ameríka N&S 430 Asía 1.764 Evrópa 434 Kyrrahafssv. 17,2 Sovétríkin 221 Heimurinn 3.135 9 2,3 10 2,3 64 2,3 88 0,9 2 2,2 19 1,7 23 2,0 Hið bannhelga svið Morgunblaðið er komið í skemmtilega klípu. Á sunnu- daginn var birti það frétt um mótmælaorðsendinguna ,,sem 72 einstaklingar, komm- únistar, sendu bandaríska sendiherranum á Islandi”, og sæmdi þá meðal annars Sig- urð A. Magnússon. aðalgagn- rýnanda Morgunblaðsins, kommúnistanafnbótinni. Hef- ur það eflaust glatt augu Kristmanhs Guðmundssonar og fleiri sem lengi hafa þótzt vita um annarlega pólitíska innviði Sigurðar, og raunar einnig Matthíasar Johannes- sens. En i gær neyðist Morg- unblaðið til að afturkalla stimpil sinn; það kennir hin- um handhæga prentvillupúka um að hafa fellt niður orð- ið „flestir” á undan kommún- istar; og auk þess er birt grein þar sem Sigurður A. Magnússon telur ritstjóra sína andlega sálufélaga Mc- Carthys heitins, John Birch Society og Goldwaters. Til þess að klóra í bakkann birt- ir blaðið svo þar að auki leið- ara þar sem sagt er að það hafi vakið „furðu að á meðal þeirra, sem undirskrif- uðu áskorun til bandaríska sendiherrans i sjónvarpsmál- inu, voru nokkrir eindregnir andkommúúnistar”. Og i lok le'ðarans stynur blaðið upp þeirri von ,.að sú saga end- urtaki sig ekki að góðir menn ljái nöfn sín í hugsunar- leysi á áróðursplögg komm- únista”. enda þótt sá góði maður Sigurður A. Magnús- son árétti f sama blaðinu að þar hafi sannarlega ekki ver- ið um neitt „hugsunarleysi” að ræða! öll sýnir . þessi fiækja hversu brýnt það er orðið að rannsóknarréttur Morgun- blaðsins felli um það úrskurð hvert samneyti megi hafa við ,.kommúnista” og hvert ekki Alkunna er að margt ar leyf’lest Sjálfstæðisflokkur- inn vrnn sem kunnugt er að stofnun þýðveldis fyrir r rétt- um T árum í mjög innilegri samvinnu við ..kommúnista”, Aðalleiðtogi Sjálfstæðisflokks- ins, Ólafur Thors,,; mynglaði fjrrstu stjórn lýðveldisins með „kommúnistum” og hefur jafnan talið þá sam- vinnu til einstakrar fyrir- myndar. Fjölmörg mál, stór og smá, hafa verið útkljáð á þingi með samvinnu Sjálf- stæðisflokksins og „kommún- ista”. og er þar skemmst að minnast kjördæmabreytingar- innar 1959 Síðan nýr mað- ur tók við formennsku í Sjálfstæðisflokknum hefur hann lagt sig i framkróka til þess að ná sem beztri sam- vinnu við „kommúnista”. eins og fram kom í samning- unum í nóvember og des- ember í fyrra og í samkomu- laginu v:ð Alþýðusambandið fyrir skemmstu, en það taldi Morgunblaðið einhver mestu og beztu tíðindi í tveggja áratuga sögu lýðveidisins. Og þannig mætti lengi telja. En hvar er þá hið bann- helga svið, þar sem samvinna við „kommúnista” er óheim- il? Morgunblaðið ærist æv- inlega ef landsmenn taka upp samvinnu án stjórnmála- greiningar til vemdar ís- lenzku sjálfstæði, íslenzkri mennmgu og íslenzkri þjóð- ernisvitund. Þá krefst blaðið þess að menn haldi sig inn- an pólitískra dilka og æpi hver gegn öðrum. meðan er- lend afsiðunaráhrif lykja æ þéttar að bióðinni, Það virð- ;st vera æðsta hugsjón Morg- Unblaðsins að Islendingar standi vamarlausir gegn beim háska sem einn megnar að svipta okkur sjálfstæðri menningarlegri tilveru. En bróun síðustu tíma nr skrif Morgunblaðsins s.iá',r' sýna að lafnvel b>H- hpiðnaberg er nú að elat?0' bótt bað mun: að vísu ful1 mikið bráðiæti að eiga vnr á bví að einkavinur , knmn, únista” sá landskunni aöngu garpur Bjarni Benediktssor Wgi leið sína um Revkjanp' á r-.»'ní-»v»/4pcMn-n vp»mur. — Austri. DAGSKRÁ hóiíðarhaldanna 17. fúní 1964 I. DAGSKRÁIN HEFST Kl. 10.00 —- Samhljómur kirkjuklUkkna i Reykjavik. KI. 10.15 — Forseti borgarstjórnar leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar. Karlakórinn Fóstbræður syngur: Sjá roðann á hnjúkunum háu. Stjóm- andi: Ragnar Björnsson. 10.30 — Lúðrasveitir barna og unglinga leika við Elli- heimilið Gi’und og Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Stjómendur: Karl O. Runólfsson og Páll Pampichler Pálsson. II. SKRUÐGÖNGUR KI. 13.15 — Safnazt saman við Melaskóla. Skólavörðu- torg «g Hlemm. Frá Melaskólanum verður gengið um Furumel, Hringbraut, Skothúsveg, Tjarnargötu og Kirkju- stræti. Lúðrasveit Reykjavíkur og lúðrasveit barna- og unglingaskóla Reykjavíkur leika. Stjómandi: Páll Pamp- ichler Pálsson. ■ Frá Skólavörðutorgi verður gengið um Njarðargötu, Laufásveg, Skothúsveg, Frikirkjuveg, Lækjargötu og Skólabrú. Lúðrasveitin Svanur og lúðrasveit barna- og unglingaskóla Reykjavíkur leika. Stjórnendur: Karl O. Runólfsson og Jón G. Þórarinsso.n. ■ Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg, Banka- stræti, Austurstræti og Pósthússtræti. Lúðrasveit verka- lýðsins leikur. Stjómandi: Ólafur L. Kristjánsson. — Fánaborgir skáta ganga fyrir skrúðgöngunum. III. HÁTÍÐAHÖLDIN VIÐ AUSTURVÖLL KI. 13.40 — Hátíðin sett af formanni þjóðhétíðarnefnd- ar, Ólafi Jónssyni. Gengið í kirkju. Kl. 13.45 — Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun; Vígslubiskup séra Bjarni Jónsson. Einsöngur: Magnús Jónsson, óperusögvari. Organleikari: Dr. Páll ísólfsson, tónskáld. Dómkórinn syngur. Þessir sálmar verða sungn- ir: Nr. 43 Lát vorn Drottinn . . . Nr. 664 Upp þúsund ára þjóð . . . Nr. 675 Faðir andanna. Kl. 14.15 — Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur blómsveig frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Siguirðssonar. Lúðrasveitirnar leika þjóðsönginn Stjórnandi: Karl O. Runólfsson. KI. 14.25 — Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, flytur ræðu af svölum Alþingishússins. Lúðrasveitirnar leika ísland ögrum skorið. Stjómandi: Páll Pampichler Pálsson. Kl. 14.40 — Ávarp Fjallkonunnar af svölum Alþingis- hússins. Lúðrasveitirnar leika: Yfir voru ættarlandi. Stjórn- endi: Jón G. Þórarinsson. IV. BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓLI Stjórnandi og kynnir: Klemenz Jónsson. KI. 15.00 — Hljómsveit leikur undir stjórn Carls Billich. Ávarp: Reynir Karlsson, framkvst. Æskulýðsráðs Reykja- víkur. Söngur trúðanna. Tvöfaldur kvartett úr Þjóðleik- húskórnum. Atriði úr Mjallhvít. Dvergarnir: Árni Tryggva- son, Lárus Ingólfsson, Valdimar Helgason, Gísli Alfreðs- son, Flosi Ólafsson, Guðjón Ingi Sigurðsson og Sverrir Guðmundsson. Leikstjóri: Klemenz Jónsson, Dýrin koma í heimsókn. Tvöfaldur kvartett syngur. Tónlistar-trúður- inn. Jan Morávek. Sjómenn og síldarstúlkur. Tvöfaldur kvartett syngur. Skátasöngvar: 10 skátar leika og sjmgja Barnakór. Skopstæling. Tvöfaldur kvartett syngur. Brúðu- dans Þorgrímur Einarsson. Bítlarnir. Tvöfaldur kvartett syngur. Bjössi bolla og Palli pjakkur. Leikþáttur: Bessi Bjarnason og Árni Tryggvason. Loftbelgirnir Tvöfaldur kvartett, félagar úr Þjóðleikhúskórnum: Guðrún Guð- mundsdóttir, Inga Hjaltested, Ingibjörg Þorbergs, Ragn- heiður Guðmundsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hjálmtýr Hjálmtýsson, ívar Helgason og Jón Kjartansson. Stjóm- andi: Carl Billich. Lúðrasveit drengja, V. HLJÓMLEIKAR Á AUSTURVELLI Kl. 16.30 — Lúðrasveit Reýkjavíkur leikur. Stjómandi: Páll Pampiehler Pálsson. Karlakór Reykjavíkur, Karlakór- inn Fóstbræður. Stjórnendur: Jón S. Jónsson og Ragnar Björnsson. VL Á LAUGARDALSVELLINUM Kl. 16.30 — Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi Jón G. Þórarinsson. KI. 17.00 — Ávarp: Baldur Möller, formaður Í.B.R. Skrúð- ganga skáta og íþróttamanna. Stúlkur úr Ármanni sýna fimleika. og akrobatik. Stjórnandi: frú Guðrún Lilja Hall- dórsdóttir. Piltar úr K.R. og Ármanni sýna áhaldaleik- fimi undir stjórn Benedikts Jakobssonar. Glímusýning undir stjórn Ilarðar Gunnárssonar. Glímumenn úr Ár- manni og K.R. sýna. Drengjaflokkur Ármanns sýnir leik- fimi undir stjórn Skúla Magnússonar. Boðhlaup stúlkna og drengja frá Iþróttanámskeiðum Reykjavíkurborgar. Knattspyrna. Úrvalslið 4. flokks úr Vesturbæ og Austurbæ keppa. Keppni í frjálsum íþróttum: 110 m. grindahlaup; 100 m. hlaup; 100 m. hlaup kvenna; 100 m. hlaup sveina; 400 m. hlaup; 1500 m. hlaup; kúluvarp; hástökk; stangar- stökk; langstökk kvenna; 1000 m. boðhlaup. Keppt er um bikar, sem forseti fslands gaf 17. júní 1954. Leikstjóri: Jens Guðbjörnsson. Aðstoðarleikstjóri: Sveinn Björnsson. Kynnir: Örn Eiðsson. VII. KVÖLDVAKA Á ARNARHÓLI Kl. 20.00 — Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi: Jón G. Þorarinsson. Kvöldvakan sett: Valgarð Briem, ritari Þjóðhátíðarnefndar. Lúðrasveitin Svanur leikur: „Hvað er svo glatt“ Geir Hallgrímsson, borgarstjóri flytur ræðu. Lúðrasveitin Svanur leikur Reykjavíkurmars eftir Karl O. Runólfsson. Höfundurinn stjórnar. Félagar úr karla- kórnum Fóstbræður syngja með aðstoð Svavars Gests og hljómsveitar. Kveðja- frá Vgstur-fsiendingum: Richard Beck. Tvísöngur: Eygló Viktorsdóttir og Erlingur Vigfússon. Myndir úr Fjallkirkjunni, bók Gunnars Gunnarssonar. Flytjendur: Lárus Pálsson, Valur Gíslason og Þorsteinn Ö. Stephensen. Einleikur og tvíleikur á píanó: Vladimir Askenazy og Malcolm Frager. Félagar úr karlakórnum Fóstbræður syngja. Svavar Gests og hljómsveit aðstoðar. Gamanþáttur: Ómar Ragnarsson. VIII. DANS TIL KL. 2 EFTlR MIÐNÆTTI Að kvöldvökunni lokinni verður dansað á eftirtöldum stöðum: Á Lækjartorgi: Hljómsveit Svavars Gests. Söngv- arar: Anna Vilhjálmsdóttir og Berti Möller. — f Aðal- stræti; Lúdó sextettinn. Söngvari Stefán Jónsson. — Á Lækjargötu: Hljómsveit Magnúsar Randrup. Söngvarar Sigríður Magnúsdóttir og Björn Þorgeirsson. Auk þess leika p.g syngja J.J. kvintettinn og Einar til skiptis á dansstöðunum. Kynnir á Lækjartorgi: Svavar Gests. Kl. 02.90 — Dagskrárlok. Hátíðahöldum slitið frá Lækjar- torgi. Gæzla fyrir börn sem kunna að tapast verð- ur í Alþýðuhúskjallaranum meðan á barna- skemmtuninni á Arnarhóli stendur. Einnigj við afereiðslu S.V.R. við Útvegsbankann um kvöldið. ÞJÓÐHÁTlÐARNEFND. VÖRUR artöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó. KRON - b ú ði r n a r Síldarstúlkur Síldarstúlkur Viljum ráða síldarstúlkur til Siglufjarðar. — Gott húsnæði. Getum útvegað söltunarpláss á Seyðis- firði eftir að söltun lýkur á Siglufirði. — Fríar ferðir og húsnæði og kaupírygging. UPPLÝSINGAR GEFNAR í SÍMA 34742. HARALDUR BÖÐVARSSON & CO. AKRANESI. t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.