Þjóðviljinn - 30.06.1964, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. júní 1964
HÚÐTIUINN
SIÐA
Farfuglar
Framhald af 12. síðu.
hefur keypt, og sagði hann. að
með þessu væri að hefjast nýr
áfangi í starfsemi Farfugla hér
á landi. og nú væri eiginlega i
fyrsta skipti hægt að veita Far-
fuglum sem hingað koma sams
konar þjónustu og þeir geta not-
ið í öðrum löndum. Húsið er
gamalt ibúðarhús sem Farfugl-
ar hafa innréttað að nýju og
var unnið að því eingöngu í
sjálfboðavinnu, mest af ungling-
um 17—20 ára. Húsið er allt hið
vistlegasta, og verða þar 50
gistirúm. þegar allt er komið í
notkun.
Leita rstöð
Framhald af 1. síðu.
skoða 50 konur á dag og u.þ.b.
10000 árlega og fylgjast síðan
með þeim á nokkurra ára fresti.
Talið er að konur á þessum
aldri séu um 44000 á öllu land-
inu, þar af 20 þúsund í Reykja-
vik. Starfsfólk stöðvarinnar er
Alma Þórarinsson yfirlæknir,
Ólafur Jensson ráðgefandi lækn-
ir, Helga Þórarinsdóttir og Val-
gerður Bergsdóttir rannsóknar-
konur (frumugreiningar), Guð-
rún Broddadóttir og Hertha
Jónsdóttir hjúkrunarkonur.
Kynþáttaóeirðirnar
magnast enn í USA
WASHINGTON 29/6 — Ólgan í suðurríkjum
Bandaríkjanna sem stafar af mannréttindabar-
áttu blökkumanna magnast enn. Um helgina urðu
enn miklar róstur í bænum St. Augustine í Flór-
ida, þar sem átökin hafa verið hvað hörðust síð-
ustu vikumar, og skiptust hvítir menn og þel-
dökkir á skotum þar á sunnudaginn. Enn hefur
verið sent meira herlið til Mississippi, en leitin
að stúdentunum þremur sem hurfu um fyrri helgi
hefur ekki borið neinn árangur.
Hinar alvarlegustu róstur hóf-
ust í St. Augustine á laugar-
dagskvöld. Svertingjahatarar
skutu á íbúðarhús í einu hverfi
svertingja í bænum. Skotið var
úr haglabyssu á hvítan ungling
sem ók fram hjá hverfinu og
særðist hann á öðrum fæti. Tals-
menn beggja kenndu hvorir öðr-
um um upptök skothríðarinnar.
Aukið lið
Lyndon B. Johnson forseti,
sem staddur var í Minneapolis
í Minnesota á laugardaginn gaf
þaðan fyrirmæli um að enn
m'eira lið úr sambandshernum
skyldi sent til Mississippi þar
Krústjoffog föruneyti
var vel fagnað í Osló
OSLÓ 29/6 — Nikita Krústjoff, forsætisráðherra Sovétrík'j-
anna, og föruneyti hans var vel fagnað við komuna til
Oslóar í morgun, þegar hin opinbera heimsókn hans í
Noregi hófst. Fréttamenn segja að viðtökurnar í Osló
hafi verið öllu hjartnæmari en í Kaupmannahöfn og Stokk-
hólmi. í ræðum sem þeir Gerhardsen forsætisráðherra
héldu í dag lögðu þeir báðir áherzlu á þá góðu sambúð
sem jafnan hefur verið milli Noregs og Sovétríkjanna.
í hádegisveizlu sem norska
stjómin hélt gestum sínum í Ak-
ershus komst Einar Gerhardsen
m.a. svo að orði:
— Nafn yðar, helra forsætis-
ráðherra, hefur verið sérstaklega
tengt hugmyndinni um friðsam-
lega sambúð ríkja. Ég býzt ekki
við að til sé sá maður í Noregi
sem er yður ósammála um að sá
eigi að vera grundvöllurinn und-
ir öllum samskiptum þjóða. En
við viljum gjaman að þetta hug-
tak væri látið gilda annað og
meira en aðeins það að forða |
beri stríði og hafi ég skilið yður I
rétt. eruð þér einnig þeirrar |
skoðunar.
Friðsamlcg samkeppni
— Þér hafið oft talað um sam-
keppni milli ríkja sem búa við
ólík þjóðfélagskerfi. Við viljum
gjaman taka þátt í slíkri frið-
samlegri samkeppni og við erum
vissir um að okkar þjóðfélag
mun standa sig vel í henni. En
ætti þessi samkeppni ekki að
einkennast meira af friðsamlegri
og vinsamlegri samvinnu en
reyndin hefur verið? spurði Ger-
hardsen sem taldi alla mögu-
leika á auknum viðskiptum og
samvinnu Noregs og Sovétríkj-
anna á ýmsum sviðum.
Alitaf friður
— Má ég að lokum ,sagði Ger-
hardsen. lýsa gleði okkar yfir
hinni góðu sambúð sem ríkir
milli þjóða okkar. Þær eru ólík-
ar flestum öðrum nágrannaþjóð-
pm að því leyti að þær hafa
aldrei háð stríð sín á milli. Ar-
ið 1905 var Rússland eitt fyrsta
ríkið til að viðurkenna fullveldi
okkar og í vor minnumst við
þess að 40 ár eru liðin frá því
að við tókum upp stjórnmála-
samband við Sovétríkin. 1 síðari
heimsstyrjöldinni börðumst við
hlið við hlið gegn hinum nazist-
ísku árásarmönnum og hetjudáð-
ir sovétþjóðanna vöktu þá al-
menna aðdáun f Noregi. Við
gleymum þvf ekki að það voru
sovézkir hermenn sem leystu
Austur-Finnmörk undan okinu
og að margir þeirra létu þá lffið.
Ræða Krústjoffs
Svárræða Krústjoffs var mjög
á sömu lund. Hann minntist
einnig þeirrar vináttu sem ein-
kennt hefði öll samskipti Norð-
manna og þjóða Sovétríkjanna
og ræddi sérstaklega, eins og
Gerhardsen, um sameiginlega
baráttu þeirra á stríðsánunum.
— Alkunna er að þjóðir okkar
hafa átt saman að sælda í mörg
hundruð ár og hafa jafnan verið
góðir grannar og aldrei herjað
hvor á aðra. Við getum fullyrt
að vinátta þjóða okkar hefur
staðist tímans tönn á sama hátt
og fornir múrar þess húss sem
við nú erum í.
Viðræður á morgun
Á morgun, þriðjudag, munu
hefjast viðræður forsætisráðherr-
anna um sameiginleg áhugamál
rfkjanna og munu utanríkisráð-
herrarnir Gromiko og Lange taka
þátt í þeim, svo og sendiherrar
þeirra hvors hjá öðru.
sem ennþá hefur ekkert spurzt
til stúdentana þriggja sem hurfu
í nágrenni bæjarins Philadelphia
á sunnudaginn var. Mikil leit
hefur verið gerð að þeim og
hafði 200 manna lið úr land-
göngusveitum flotans verið sent
þangað fylkislögreglunni til að-
stoðar við leitina. Enginn vafi
er talinn á því að stúdentamir
sem komu til Mississippi til að
aðstoða blökkumenn í réttinda-
baráttunni hafi verið myrtir.
Johnson ákvað að senda meiri
liðsauka til Mississippi að ráði
Allen Dulles, fyrrverandi yfir-
manns leyniþjónustunnar CIA,
sem var sendur þangað að kanna
ástandið.
Lið til St. Augustínc
Fylkisstjórinn í Florída, Farr-
is Bryant, hefur einnig sent lög-
reglunni í St. Augustine Þðs-
nuka, en hann ræddi á sunnu-
daginn við talsmenn kynþátt-
anna í bænum.
Um 200 lögreglumenn fylgdu
í dag um 30 svertingjum til
baðstrandarinnar við St. Aug-
ustine en þar hafa hvað eftir
gegn því að Goldwater öldunga-
að undanförnu, þegar hvftir of-
stækismenn hafa ráðizt á blökku-
fólk sem þangað hefur komið.
Þetta er talin sigur fyrir
blökkumenn bæjaiúns, því fram
að þessu hefur lögreglan heldur
snúizt á sveif gegn þeim í átök-
unum.
Gcgn Goldwatcr
Mannréttindasamtök blökku-
manna (NAACP) samþykktu á
aðalfundi sínum í Washington á
laugardag að beita sér af alefli
gegn þvi að Goldwater öldunga-
deildarmaður verði f framboði
við forsetakosningarnar í haust.
Þetta er í fyrsta sinn á þeim
55 árum sem liðin eru síðan
samtökin voru stofnuð að þau
samþykkja slíka beina íhlutun
í bandarísk stjórnmál. Ástæðan
er sú að Goldwater var einn af
örfáum þingmönnum Repúblik-
ana sem greiddu atkvæði gegn
jafnréttisfrumvarpi Kennedys
forseta
Happdrætti
Framhald af 1. siöu.
9. 7 d. Túnin 25%
.10. 8.a d. Teigar 25%
11. 6 d. Hlíðar 23%
12. 12 d. Sogamýri 22%
13. 2 d. Skjólin 20%
14. 11 d. Háaleiti 18%
15. Hafnarfjörður 13%
16. 8b d. Lækir 12%
17. Kópavogur 12%
18 Suðurland 11%
19. Norðurl. vestra 10%
20. Vesturland 10%
21 9 d. Kleppsholt 9%
22. Reykjanes 9%
23. Norðurl. eystra 6%
24. Vestfi-rðir 6%
25. lOa d. Heimar 5%
26. Suðurland 5%
27. Vestmannaeyjar 1%
Þeir sem vilja geta gert
upp við umboðsmenn okkar
úti á landi eða sent okkur
beint. Utanáskrift er: Happ-
drætti Þjóðviljans, ýsgötu 3.
Kaktusblóm
Framhald af 1. siðu.
yzt, innar gulbrún eða gul og
hvít innst. Blómin springa ætíð
út á kvöldin, standa í allri sinni
dýrð um nóttina, en visna svo
næsta morgun. Af þvf er nafnið
Næturdrottningin dregið. Til er
afbrigði með ýmsum rauðleitum
og fílabeinslitum litbrigðum, Oft
er beðið árum saman eftir nótt
drottningarinnar . , . ”
Herflugvélar í
USA rákust á
WASHINGTON 29/6 — Tvær
bandarískar herflugvélar rákust
á í dag yfir hafinu við Bermúda.
Flugvélar þessar voru ætlaðar
til björgunarstarfs og var verið
að æfa áhafnir þeirra í að kasta
sér út í fallhlífum yfir sjó.
Nokkrir höfðu stokkið út úr
flugvélunum Sjö þeirra hafði
verið bjargað þegar síðast frétt-
ist, þrjú lík höfðu fundizt, en
hinna var saknað.
Balletinn
Framhald af 12. síðu.
Og nú erum við hingað komin
og farin að æfa. Þetta leik-
hús er að vísu ekki stórt, en
mér finnst það þægilegt. Já
það er satt, að gryfjan er þröng
— ef músíkin legði undir sig
sem svaraði fremstu sætaröð
þá væri allt í himnalagi.
—Hafið þér nokkuð getað
svipazt um?
— Já, við fórum til Krý&uvík-
ur og Hveragerðis og sáum
myndarlega gufustróka og þetta
skemmtilega landslag sem hlýt-
ur að vera svipað því sem kvað
vera á tunglinu. En hrifnastur
hef ég orðið af birtunni, af
þessu sólsetri rétt eftir miðnætti.
Ég hef aldrei fyrr séð neitt þessu
líkt . . .
A. B.
Barnah/ól
ódýr, traust og vönduð barnahjól nýkomin.
Þrihjó!
kr. 685,00
kr. 1545,00 (f. 3—7 ára).
Miklatorgi.
BUNAÐARBANKI ÍSLAN3S
opnar tvö ný útibú 1. júlí 1964
Á Sauðárkróki
í Stykkishólmi
Afgreiðslutími alla virka daga kl. 10—12 og
2—4, nema laugardaga kl. 10—12 f.h.
Afgreiðslutími alla virkadaga kl. 10—12 og
1—4, nema laugardaga kl. 10—12 f.h.. — Auk
þess föstudaga kl. 6—7 e.h.
Sama dag yfirtekur Búnaðarbankinn rekstrarstarfsemi
SPARISJÓÐS SAUÐÁRKRÓKS og SPARISJÓÐS STYKKISHÓLMS.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
R.EYKJAVÍK — AKUREYRI
HELLU — SAUÐÁRKRÓKI
BLÖNDUÓSI — EGILSSTÖÐUM
STYKKISHÓLMI.
TILKYNNING
FRÁ
SPARISJÖÐI SAUÐÁRKRÖKS
Hér með tilkynnist heiðruðum viðskiptamönnum vorum,
að hinn 1 iúlí 1964 mun Búnaðarbanki íslands yfirtaka
rekstrarstarfsemi vora á Sauðárkróki.
Jafnframt því. sem vér'þökkum viðskiptavinum vorum
góð viðskipti undanfarna áratusi. væntum vér þess, að
útiþú Búnaðarþankans á Sauðárkróki megi n.ióta þeirra í
framtíðinni.
SPARISJÓÐUR SAUÐÁRKRÓKF
TILKYNNING
FRÁ
SPARISJÖÐI STYKKISHÖLMS
Hér með tilkynnist heiðruðum viðskiptamönnum vorum,
að hinn 1. júlí 1964 mun Búnaðarbanki íslands yfirtaka
rekstrarstarfsemi vora í Stykkishólmi.
Jafnframt því, sem vér þökkum viðskiptavinum vorum
sóð viðskipti undanfarna áratugi, væntum vér þess, að
útibú Búnaðarbankans í Stykkishólmi megi njóta þeirra í
framtíðinni.
ARISJÓÐUR STYKKISHÓLMS