Þjóðviljinn - 08.07.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.07.1964, Blaðsíða 1
Númerin BIRT á föstudac □ Þeir sem enn hafa ekki gert skil í Happ- drætti Þjóðviljans, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við okkur í dag þar eð vinnings- númerin verða birt í föstudagsblaðinu. — Skrif- stofan að Týsgötu 3 verður opin í dag klukkan 9—12 og 1—7 sími 17514. Gamall póstmeistari á síldarplani Hér á Raufarhöfn göngum við fram á Þórð Halldórsson, fyrrverandi póstmeistara é Kefla- víkurflugvelli, og vinnur hann sem smiður í sumar á síldarpianinu Óðni á Raufarhöfn. Hann er hér að bora gat á tunnurnar og þykir vel liðtaekur scm smiður. — (Ljósm. Þjóðv. G. M.). Færeyjaflugi FÍ stefnt í hættu Hjúkrunarskorturinn alvarlegt vandamál: Sjúklingunum ekki séð fyrir brýnustu jsjónustu ■ Þjóðviljanuim hefur borizt fréttatilkynning frá Fé- lagi lækna við heilbrigðissitofnanir þar sem segir að ný- lega hafi 77 læknar og læknakandidatar í Reykjavík und- irritað mótmæli Itil ríkisstjórnarinnar þar sem gagnrýndur er sá dráttur sem orðið hefur á byggingu Hjúkrunarskóla Islands. Telja læknarnir óviðunandi að vegna skorts á hjúkrun sé ekki hægt að sjá sjúklingum fyrir brýnustu þjónustu. f fréttatilkynningu læknanna segir m.a. svo um þetta mál: Síðasta Alþingi hafði synjað um sérstaka fjárveitingu til þyggingar Hjúkrunarskólans og fréttir höfðu borizt læknum um það, að ríkisstjórnin myndi ekki nota heimild í fjárlögum til sér- stakrar lántöku í þessu skyni. Mótmælum læknanna fylgdi ákveðin áskorun um að hefja þegar framkvæmdir við bygg- ingu Hjúkrunarskólans. Bentu læknar á, að hjúkrunar- skorturinn væri mjög alvarlegt ÆFR-ferð útíbláinn ■ ÆFR fer í kvöldferð út í bláinn í kvöld kl. 20 stund- vslega frá Tjarnargötu 20. Öll- um heimil þátttaka, jafnt fé- lögum í ÆFR sem öðrum. Sam- ið hefur verið við Ferðaskrif- stofuna Landsýn og veitir hún nánari upplýsingar um ferðina í síma 22890. — Þátttaka til- kynnist í skrifstofu ÆFR, sími 17513. — Ferðaklúbbur ÆFR. vandamál, sem færi vaxandi.. Jafnframt var tekið fram, að ítrekuð tilmæli læknasamtak- anna á undanfömum árum til heilbrigðisyfirvaldanna að vinna að lausn þessa vanda hefði eng- Tvö nmferðarslys Skömmu eftir kl. 8 í gær- morgun lentu tveir fólksbílar í árekstri í Skerjafirði og valt annar bíllinn við áreksturinn. ökumaður hans sem heitir Ingþór Sigurbjörnsson, Kambs- vegi 3, meiddist eitthvað á höfði og var hann fluttur í slysavarð- stofuna. Um kl. 2 síðdegis varð það slys á Borgartúni að strætis- vagn lenti aftan á fólksbíl og kastaðist fólksbíllinn við högg- ið aftan á vörubíl. Kona sem ók fólksbílnum og stúlka er sat hjá henni í framsætinu blutu báðar minniháttar meiðsli. Aðalfundur ÆFH Aöalfundur Æskulýðsfylkingar- innar í Hafnarfirði verður kl. 9 í kvöld, miðvikudagskvöld, í Góðtemplarahúsinu (uppi). Dag- skrá samkvæmt félagslögum. Æ.F.H. an sýnilegan árangur borið. Má í því sambandi geta þess, að á- ætlað hefur verið, að til að starfrækja hin nýju sjúkrahús, sem nú eru í smíðum, muni þurfa um 150 starfandi hjúkr- unarkonur til viðbótar við þær, sem fyrir eru. Læknar telja með öllu óvið- unandi, að vegna skorts á hjúkr- un sé ekki séð fyrir brýnustu þörfum sjúklinga á sjúkrahús- um og öðrum heilbrigðisstofn- unum, svo sem elliheimilum og hjúkrunarheimilum. — Þannig snertir hjúkrunarskorturinn alla sjúklinga, sem sjúkrahúsvistar þarfnast og er auk þess hemill á eðlilega þróun og framkvæmd- ir heilbrigðismála í landinu. Læknastéttin hlýtur því að Hta mjög alvarlegum augum, á þá þróun, að svo brýnt vandamál er af alþingi og öðrum stjórn- arvöldum látið sitja á hakanum. Það skal tekið fram, að um það bil er læknarnir undirrit- uðu mótmæli sín hófust viðræð- ur milli lækna og ráðherra um h júk runa rvandamáíl i ð með já- kvæðum árangri að ætla má. íshrafl út af Hornbjargi Tilkynning frá Sif, flugvél landhelgisgæzhjnnar, kl. 18 í gærkvöld: Isinn úti fyrir Vestfjörðum liggur í 30 sjómílna fjarlægð frá landi. Norð-austur frá Hom- bjargi liggur 10—15 sjómílna belti með íshrafli til suðurs um Hornbanka og Óðinsboða allt að Drangaskörðum og Selskeri. Sí I da rverksm ið j - an á Raufarhöfn ★ Myndin hér að ofan er tekin ★ fyrir skemmstu á Raufarhöfn ★ um miðnæturbil og sýnir hún ★ síldarverksmiðjuna þar á ★ staðnum. Hún hcfur nú tekið ★ á móti yfir 170 þús. málum ★ til bræðslu og brætt á annað ★ hundrað þús. mál á vertíð- ★ inni en bræðslan hefur stað- ★ ið yfir í 33 sólarhringa. — ★ (Ljósm. Þjóðv. G. M.). □ Nýleg'a hafa dönsk flugmálayfirvöld til- kynnt Flugfélagi íslands, að hámarks flugtaks- þungi á flugvellinum í Færeyjum verði lækkað- ur frá því sem verið hefur. Þetta hefur það í för með sér, að farþegafjöldi í Færeyjaflugi Flugfé- lagsins lækkar, og er það talsvert áfall fyrir fé- lagið. Þjóðviljinn hafði í gær tal af Agnari Kofoed Hansen flug- málastjóra og sagði hann, að í gildi væru mismunandi reglur um hleðslu flugvéla miðað við flugbraut eftir því hvar í landi væri. Fram að þessu hefur ver- ið farið eftir íslenzkum reglum í Færeyjafluginu, en þær segja að hámarksþunginn megi vera 12.5 tonn en danskar reglur aftur á móti að hann sé 12,2 tonn, en eftir brezkum reglum má hann vera 12,7 tonn, svo að íslenzkar reglur fara þar meðalveginn. Nú krefjast Danir að farið sé eftir dönskum regl- um með flugtaksþunga. Þá hafði Þjóðviljinn einnig tal af Sveini Sæmundssym blaðafulltrúa Flugfélags Islands, og sagði hann að þessi krafa Dana væri Flugfélaginu mikil vonbrigði og hefði í för með sér, að Færeyjaflugið yrði rek- ið með algeru tapi. Einnig lenti félagið í vandræðum vegna þess, Lá við alvaríegu slysi í Sementsverksmiðjunni Akranesi í gær — Litlu mun- aði að stórslys yrði í Sements- verksmiðju ríkisins fyrir nokkr- um dögum, er rafvirki sem var að vinna við bilað raftæki fékk í sig rafstraum. Hann festist við tæ.kið og var ósjálfbjarga þar til komið var til hjálpar. Nánari atvik voru þau, að Snorri Hjartarson rafvirkja- meistari starfsmaður verksmiðj- unnar var að lagfæra bilun í rannsóknarstofu. Festist Snorri með báðar hendur við tæki það er hann var að gera við, en í verksmiðjunni er 380 volta spenna. Féll Snorri í gólfið og mun hafa misst meðvitund um stund. Svo vel vildi til, að einn af starfsmönnum rannsóknar- stofunnar. Hörður Sumarliða- son, var viðstaddur er slysið varð og gat hann rofið raf- strauminn, Snorri brenndist nokkuð á fingrum beggja handa og var nokkurn tíma að ná sér eftir þetta mikla raflost. að mikið hefur verið bókað af pöntunum og þá miðað við að sömu reglur giltu áfram. Þessi breyting leiðir af sér að flug- vélarnar geta aðeins flutt 15 farþega til Björgvinjar og Kaup- mannahafnar í stað 22, og 16 farþega í stað 23 til Glasgow.. Sést bezt af þessu að Flufélag- ið hefur orðið fyrir tilfinnan- legu tjóni og áframhaldandi Færeyjaflugi er stefnt í hættu. Háskólanum gefnar 750 þúsund kr. Kaj Langvad vei'kfræð- ingur og kona hans, frú Selma fædd Guðjohnsen. afhentu Háskólanum í gær, mánudaginn 6. þ.m.. sjóð að fjárhæð 120.000.00 danskar krónur, eða u.þ.b. 750.000.00 íslenzkar krón- ur. Vöxtunum af sjóðn- um skal varið til að styrkja menningartengsl Danmerkur og íslands. Ot- hlutanir fara fram árlega eða sjaldnar eftir ákvörð- un sjóðsstjómar. em skip- uð er 3 mönnum, og er háskólarektor formaður. Þessi sjóður er einn hinn mesti, sem stofnaður hefur verið við Háskólann. Metur Háskólinn mikils frábæra rausn og vinsemd gefenda. Mun þessi sjóður ótvírætt stuðla mjög að því að efla menningar- tengsl landanna tveggja. (Frá Háskóla Islands).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.