Þjóðviljinn - 11.07.1964, Síða 10
Báturínn og eiginkonan
Garðar Finnsson er skip-
sfijóri á Höfrungi III. frá
Akranesi og náðum við stuttu
spjalli af honum á dögun-
um. Var báturinn þá að
landa tvö þúsund málum hjá
verksmiðjunni á Raufarhöfn.
Garðar er kunnur aflamað-
ur í síldveiðiflotanum og hef-
ur þetta óbi'igðula sjötta
skilningarvit í lagi. Hann
var einu sinni að sigla skipi
sínu út úr Akraneshöfn og
stóð góðglaður í brúnni.
Skipverjar hans unnu á
dekki og sjá allt í einu kall-
inn í brúarglugganum og
kallar hann spotzkur niður á
dekkið.
..Jæja, strákar. Nú köstum
við“. ,,Þeir héldu að hann
væri að gamna sér og tóku
þetta e:ns og hvert annað
spaug. Þeir héldu áfram
verki sínu. Ennþá birtist
Garðgr í brúarglugganum og
er nú orðinn höstugur í máli
„Hvað er þetta strákar.
Hversvegna kastið þið ekki“.
Þeir köstuðu og fengu ell-
efu hundruð mál af síld. Það
var stutt í þeirri sjóferðinni.
Nú er Garðar með eitt mynd-
arlegasta skipið í flotanum
og er það splunkunýtt síðan
í vor. Komdu niður í mat-
sal og fáðu . þér kaffi“ segir
hann. Við gengum inn í sal-
inn og er þar um að litast
eins og um borð í farþega-
skipi.
Garðar er kominn út af
kunnum vestfirzkum afla-
klóm og er fæddur á Flat-
eyri við önundarfjörð. Hann
er þrekmenni í sjón og raun
og æðrulaus í yfirbragð.i
Flateyringar eignuðust nýlega
fallegan fiskibát og var hann
skírður í höfuðið á föður-
bróður hans og heitir Hin-
rik Guðmundsson. Faðir
hans hét Finnur Guðmunds-
son og drukknaði á síld-
veiðum sumarið 1936. Skeði
það í Sigluf jarðahöfn. Var
Finnur aflasæll skipstjóri og
var þá með Svöluna frá ísa-
firði.
„Hvenær komuð þið á
miðin?“
,,Við komum hingað norður
kringum tólfta júní og var
þá hæsti báturinn kominn
með átta þúsund mál. Vor-
um með seinni skipunum og
vorum uppteknir við vorsíld-
veiðar fyrir sunnan. Vorúm
búnir að fá níu þúsund
tunnur á þeirri vertíð. Nú
höfum við ellefil þúsund mál
með þessum farmi“.
„Hvernig reynist nýja
skipið?“
„Maður er að byrja að
verða hluti af því og sam-
lagast þessum svokallaða
skipsanda og virðist mér
þetta traust og gott skip.
Það tekur alltaf sinn tíma
að ven.iast nýju skipi og
læra að þekkja viðbrögð
þess og með tímanum verð-
ur það hluti af manni sjálf-
um eins og eiginkona manns.
Það er svo sem engin til-
viljun, að sumir skipstjórar
skíra skipin sín í höfuðið á
eiginkonunni.
,.Hvað finnst þér einkenn-
andi fyrir þessa síldarvertíð?"
„Sumarvertíðin á síld hef-
ur aldrei byrjað svona
snemma og 'er það aukinni
tækni að þakka við síldveið-
ar. Það er mikilvægt að vera
í lifandi tengslum við alla
framþróun í þessum efnum
og eru litlu bátamir orðnir
úreltir við sfldveiðar. Á
stóru skipunum hefur dreg-
ið úr spennunni milli salt-
sfldar og bræðslusíidar vegna
minnkandi verðmismunar og
er okkur ekkert kappsmál að
koma sildinni endilega í salt.
Stórir farmar af bræðslu-
síld og hröð löndun skiptir
orðið meira máli heldur en
litlir farmar af góðri sölt-
unarsfld. Þetta gildir þó ekki
um litlu bátana.
Allir eru frískir um borð
og við biðjum fyrir kveðju
heim“, sagði Garðar að
lokum. — g.m.
SURTUR VAKNADUR Á NÝ OG SPÝR
NÚ HRAUNl í STRÍÐUM STRAUMUM
Á fimmtudaginn sást að nýju hraun renna úr Surti. All-
langt er síðan hraun hefur sézt renna úr gígnum, en hins
vegar hefur gufus'trókur sézt þar alltaf öðru hverju.
Hraunið rennur úr gamla gígnum í tveim straumum til
sjávar. Ennfremur er þar nú mikill gufustrókur og var
þetta tilkomumikil sjón í gær; glóandi hraunið og gufu-
strókurinn birtuat s'jónum í gegnum mistrið, sem var yfir.
Þjóðviljinn hafði í gær sam-
band við flugskólann Þyt og
ræddi þar við Ásmund Eyjólfs-
son flugstjóra, sem flaug yfir
eyjuna í gær.
Ásmundur lagði af stað rétt
fyrir 14.30 í gærdag og kom
aftur laust fyrir klukkan 16.
Með honum voru í förinni tveir
útlendingar og íslendingur frá
„Lönd og leiðir". Veitti Ás-
mundur blaðinu ofanritaðar upp-
lýsingar og sagði ennfremur að
Hvað gerðist /
Róm 26. júni?
■ Athygli lesenda skal vakin
á þvf, að ERLEND TÍÐINDI
birtast i blaðinu á morgun,
sunnudag. Fyrirsögn þeirra er:
HVAÐ GERÐIST Á ÞINGI f
RÓMABORG 2S. JÚNÍ?
gígurinn væri alveg fullur á
köflum en stundum drægi úr
hrauns,traumnum. Hann tjáði
okkur einnig að hann hefði flog-
ið yfir eyjuna á fimmtudggs-
kvöldið um klukkan 22.30 og
hefðu þá verið í eyjunni nokkr-
ir menn við mælingar.
Blaðið hafði einnig samband ■
við Landmælingar ríkisins og |
var tjáð að einn maður hefði I
verið við mælingar frá þeim að-
ila.
Gufustrókurinn sést glögglega
úr Vestmannaeyjum nú sem fyrr
en hraunrennslið ekki. Lítið
hefur verið um ferðir yfir gos-
stöðvunum á flugvélum þrátt
fyrir ágætt skyggni. Virðist nú
vera svo komið. að löndum vor-
um þyki iítið púður í Surti.
Nú er verið að vinna að rann-
sóknaráætlun um Surt og eyna.
Er þetta á vegum Rannsóknar-
ráðs ríkisins og mun Steingrím-
ur Hermannsson veita rann-
sóknunum forstöðu. Meðal þeirra
sem taka munu þátt í þessu
eru Unnsteinn Stefánsson haf-
fræðingur, Sturla Friðriksson og
Eyþór Einarsson. Aðalsteinn Sig-
urðsson fiskifræðingur hefur
þegár rannsakað botnlíf um-
hverfi eyjuna og þeim rannsókn-
um mun líklega haldið áfram.
Sigurður Þórarinsson hefur
landslagsmótun og aðrar breyt-
ingar er verða kunna á lögun
eyjarinnar á sinni könnu. Guð-
mundur Sigvaldason jarðfræð-
ingur mun sjá um jarðefna-
fræðilegu hlið málsins.
Rannsóknarráðið mun e.t.v.
efna til ferða út í eyjuna í
sumar með hálfs mánaðar milli-
bili en síðar með eins mánaðar
millibili í vetur.
Nú mun og í ráði í þessu
sambandi að teikna kort af eyj-
unni í mjög stórum mælikvarða.
Dœmdur fyrir nauðgun og
árós í fjögurra ára fangelsi
í gær var í sakadómi Reykja-
víkur kveðinn upp dómur í máíi
ákæruvaldsins gegn Óla Ágústs-
syni, en hann var ákærður fyr-
r að hafa tekið 16 ára gamia
stúiku nauðuga í kirkjugarðinum
í Suðurgötu aðfaranótt 11. maí
sl. og slegið förunaut stúlkunn-
ar áður höfuðhögg. Ákæran var
tekin að öllu leyti tfl greina og
sakborningur dæmdur skv. Í94.
og 217. gr. alm. hegningarlaga
í 4 ára fangelsi. Til frádráttar
kemur gæzluvarðhald hans síð-
an 1. maí. Þá var hann dæmdur
til að greiða stúlkunni bætur
að fjárhæð kr. 84.1145.00 og
til að greiða allan sakarkostnað.
ÍBV - FH 6:2
I gærkvöld léku Vestmanna-
eyingar og FH í 2. deild. Vest-
mannaeyingar sigruðu með 6:2
(2:1 í hálfleik). Hafa Vestmanna-
eyingar unnið alla sína leiki og
mega heita öruggir sigurvegarar
í A-riðli 2. deildar. Munu þeir
þá leika við Akureyringa til úr-
slita um að komast f 1. deild
næsta ár.
176 lesta stálskip
smíðað hjá Stálvík
í gærkvöld var stærsta fiski-
skipinu, sem smíðað hefur ver-
ið hér á landi úr stáli, hleypt
af stokkunum í skipasmíðastöð-
inni Stálvík í Garðahreppi.
Stálskip þetta er 176 lestir að
stærð og hefur hlotið nafnið Sæ-
hrímnir. Eigandi er hlutafélagið
Jökull í Keflavík.
Kjölurinn að Sæhrímni var
lagður í Stálvík um síðustu ára-
mót, en áður hafði ýmiskonar
undirbúningsvinna verið unnin.
Skipið heldur til síldveiða
fyrir Norður- og Austurlandi
innan fárra daga.
Lítíl veiði þegar
brælunni loks léttí
Í fyrrinótt, þegar brælan gekk I ur á miðunum í gær, logn og
niður á veiðisvæðunum við bjartviðri, var veiðin fremur lít-
Austurland, hélt síldveiðiflotinn il og hafði lítiliar síldar orðið
tii veiða. Þrátt fyrir gott veð-1 vart síðdegis í gær.
Forstjóri skógrœktardeildor
FAO i heimsókn
Um þcssar mundir er stadd-
ur hér á landi dr. Nils A. Osara.
en hann er forstjóri skógræktar-
deildar F. A. O. í Róm. Dr. Os-
ara hefur í hinni stuttu viðdvöl
sinni hérlendis ferðazt um og
kynnt sér skógræktarmál, m. a.
fór hann f Vaglaskóg og Hall-
ormsstað.
Á fundi með blaðamörinúm
gær lét dr. Osara ánægju sína
í Ijósi yfir þessu kærkomna tæki-
færi til að sjá og kynnast Is-
landi og íslenzkum skógræktar-
málum. Hann kvað sér vel kunn-
ugt um erfiðar aðstæður hér til
skógræktar vegna sandstorms og
uppblásturs en sagðist jafnframt
undrast hve langt áleiðis Islend-
ingar væru komnir í þessum mál
um. Það værí t.d. sannað að
barrtré þrifust ágætlega hér og
tilraunir með hvaða barrtegundir
hæfðu bezt íslenzkum staðháttum
væru komnar langt áleiðis. Um
500 barrtegundir væru í heim-
inum og margar þeirra þrifust
hér. Um 40 til 50 ólíkar teg-
undir hafa verið reyndar með
góðum árangri.
Dr. Osara lýsti hrifningu
sinni á tilraunastöðinni á Hall-
ormsstað og sagði hana vera á
heimsmælikvarða. Á Hallorms-
Hæstu vinningar í
Happdrætti H í
Föstudaginn 10. júlí var dreg-
ið í 7. flokki Happdrættis Há-
skóla íslands. Dregnir voru
2,200 vinningar að fjárhæð
4.020.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200.000
krónur, kom á heilmiða númer
27.946. Báðir heilmiðarnir voru
seldir i umboði Guðrúnar Ólafs-
dóttur, Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar. Austurstræti 18
100.000 króna vinningurinn
kom á hálfmiða númer 16.885.
Einn hluturinn var seldur í um-
boði Guðrúnar Ölafsdóttur,
annar í Kaupfélagi Hafnfirð-
inga, Hafnarfirði. sá þriðji S
Stykkishólmi og sá fjórði hjá
Ólafi Jóhannssyni, Kópavogi.
10.000 krónur: 1348 9568 10806 14935 15129
16512 18147 19050 19976 20402
22183 22351 23504 23608 26483
27945 27947 29186 37659 41311
42931 43141 47173 51275 53531
54079 56030 56209.
stað sá dr. Osara lerki sem plant-
að var 1938 og sagði hann að
vöxtur þess væri á við það sem
bezt gerðist erlendis, og mætti
nú fara að nytja það. Það tæki
um 20 til 30 ár að ala upp nytja-
skóg af lerki.
Sagði Osara að það væri mik-
ið hagsmunamál fyrir Islendinga
að geta framleitt timbur til eigin
nota því af því .væri mjög mikill
gjaldeyrissparnaður fyrir þjóð-
ina. Sá árangur sem þegar hefði
náðst sýndi að í framtíðinni gætu
Islendingar orðið sjálfum sér
nógir með timbur. Dr. Osara
heldur heimleiðis næstkomandi
sunnudag.
Nýr skrifstofu-
stjóri Eimskips
í Kaupmannahöfn
Svend Dipo Petersen
Hinn 11. júlí tekur Svend Dipo
Petersen við starfi skrifstofu-
stjóra hjá Eimskipafélagi Islands
í Kaupmannahöfn. Hann hefur
starfað á skrifstofu félagsins þar
frá ársbyrjun, 1927 eða í rúmlega
37 ár og reynzt hinn traustasti
starfsmaður.
Ásberg Sigurðsson sem nú læt-
ur af starfi skrifstofustjóra hef-
ur svo sem kunnugt er verið
skipaður sýslumaður Barðstrend-
inga frá 1. ágúst að telja.
4