Þjóðviljinn - 12.07.1964, Blaðsíða 1
□ Samkvæmt upplýsingum síldarleitarinnar á
Seyðisfirði í gær var þá bjart og gott veður á mið-
unum fyrir austan og logn. Frá því kl. 8 í gær-
morgun til um kl. 2 síðdegis höfðu 11 skip til-
kynnt um afla sinn til síldarleitarinnar og voru
þau með frá 300 og upp i 800 mál og tunnur. í
fyrrinótt fengu 49 skip samtals 24100 mál og
tunnur.
Skip sem tilkynntu um afla
sinn eftir klukkan. 8 í gærmorg-
un voru þessi: Fákur 300 tunnur,
Strákur 300 mál, Sigurjón Am-
laugsson 500 tunnur, Eldborg 400
mál. Birkir 400 tunnur, Faxi 500
mál, Fjarðarklettur 80 mál, Kóp-
ur 300 tunnur, Jörundur III. 300
lunnur, Ögri 800 tunnur og Stef-
án Árnason 750 máL
Þær þvo svuntur sínur uð lokinni söltun
Stúlkurnar á myndinni hér fyrir ofan eru að livo svunturnar sínar að lokinni söltunartörn. „Við
söltuðum fimm tunnur hver og fáum um kr. 275.00 fyrir vikið. Úrgangurinn úr síldinni var um 40%
og fáum við þá hærra fyrir hverja tunnu“, sögðu stúlkumar. Þær heita talið frá vinsitri: Guðrún
Sigurðardóttir frá Borgarfirði eystra, Ragnheiður Brynjólfsdóttir frá Akureyri og Hulda Brynjólfs-
dóttir frá Brúnum á Melrakkaslðttu. Stúlkurnar salta allar hjá söltunarstöðinni Óðni en neðri mynd-
<j> in er cinmitt af söltun á Óðinsplaninu að kvöldlagi. -------- (Ljósm. Þjóðv. Guðgeir Magnússon).
Skipin eru mjög dreifð um
veiðisvæðið sem er á svipuðum
slóðum og áður. Nokkur skip
hafa fengið góð köst utan við
grunnið í Héraðsflóadýpinu. m.a.
fékk einn bátur, Ólafur Frið-
bertsson, þar 2000 mála kast.
Síldin fer mest í salt en hún
er mjög misjöfn og úrgangur
mikill. Fást yfirleitt ekki nema
40-60% út úr henni í salt.
Skipin leggja flest upp afla
sinn á Austfjarðahöfnum og
vissi síldarleitin ekki nema um
eitt skip er hefði farið með afla
til Raufarhafnar. Nægilegt þróar-
rými er nú á öllum höfnum
austanlands og söltun hafin alls
staðar.
Háseta tók út af
Arnkatli en var
bgargað naumlega
NESKAUPSTAÐ í GÆR — Það óhapp vildi til á miðun-
um fyrir austan kl. 16 í gær, að háseta á Arnkatli SH frá
Rifi tók út. Náðist hann aftur eftir nokkra s|tund með-
vitundarlaus og liggur nú sæmilega haldinn á Sjúkra-
húsi Neskaupsitaðar.
Þeir á Arnkatli voru að
kasta á síld 28 sjómílur suð-aust-
ur af Dalatanga, og kræktist þá
halafótur um fót eins háetans.
Gísla Gunnlaugssonar frá Ytra-
Leiti Skógarströnd, hann er 21
árs gamall. Dróst hann út með
Umferðurslys
íKópuvogi
Um klukkan 2.30 í gær varð
það slys í Kópavogi að bifreið
var ekið á Ijósastaur við Kárs-
nesbraut rétt vestan Urðarbraut-
ar. Mun ökumaðurinn sem var
kona hafa misst v&ld á bílnum
en staurinn stendur mjög innar-
lega við götuna. Konan og barn
sem með henni var i bílnum
meiddust bæði og voru flutt í
Slysavarðstofuna eh ekki var
kunnugt um hve meiðsli þeirra
voru mikil er blaðið fór í prent-
un , síðdegis í gær. Bíllinn
skemmdist mjög mikið.
nótinni og ,fór á bólakaf, en
bátsmenn drógu nótina þegar inn,
settu út plastbát og náðu Gísla
eftir um það bil 10 mínútur. Var
hann þá meðvitundarlaus og
lífgunartilraunir þegar hafnar.
Tjaldur SH var þama nær-
staddur og fór stýrimaðurinn Al-
freð Magnússon, um borð í Am-
kel. Hann hafði lært svokall-
aða blástursaðferð í Stýrimanna-
skólanum sl. vetur og tókst hon-
um mjög bráðlega að lífga Gísla
við. Haft var sambandviðsjúkra-
hús Neskaupstaðar og kom Arn-
kell hingað um miðnætti sl. nótt.
Gísli hafði dmkkið talsvert af
sjó og auk þess snúizt um ökla,
en líðan hans er sögð eftir at-
vikum..
Þykja félagar Gísla á Arn-
katli hafa sýnt snarræði og
dugnað við björgun hans, þá má
segja að kunnátta Alfreðs stýri-
manns á Tjaldi hafi bjargað lífi
Gísla. Annars vildi Alfreð sem
minnst um þetta tala, er frétta-
maður Þjóðviljans hafði tal af
honum í dag. — H. G.
Fælir skrúfuröstin frá nýju
norsku bátunum síldina?
□ Nokkur nýjustu skipin í íslenzka fiskveiði-
flotanum hafa til þessa komið með lítinn síldar-
afla á land og stjórna þeim þó þrautreyndir afla-
menn.
Um þetta mál hefur frétta-
maður Þjóðviljans sent blaðinu
eftirfarandi fréttir:
Raufarhöfn 9/7 — Það hefur
vakið athygli í síldarflotanum,
að þrjú nýjustu og fallegustu
skipin, öll undir stjórn þraut-
reyndra aflamanna, hafa lítið
veitt cnnl>á af síld.
ÞajJ eru Fróðaklettur, Akurey
og Snæfuglinn. Öll þessi skip anna myndi óeðlilega skrúfu
eru nýkomin til landsins og1 röst og fæli síldina á flótta.
voru smíðuð í Noregi. Villi á
Akurey er biiinn að kasta 108
sinnum og var einn á miklum
sildarslóðum í heilan sólarhring
og bar nákvæmlega ekkert úr
býtum. Þó hefur þetta verið
aflasæll skipstjóri fram að þessu.
Sömu sögu er að segja af Bóasi
á Snæfuglinum og Guðmundi
Kristjánssyni á Fróðakletti en
hann var áður mcð Fagraklctt.
Talið er líklegt að skrúfa skip-
JARÐSKJÁLFTI A N0RÐURLANDI
Um sexleytið í gær bárust
Þjóðviljanum fréttir af jarð-
skjálftum á tveim stöðum
norðanlands. — Fréttaritari
blaðsins á Sauðárkróki skýrði
blaðinu svo frá, að þar hefði
fundizt a'i^uarpur kippur kl.
5.46, og fr* ckagaströnd frétt-
ist litlu síðar um snarpan
skjálftakipp á nákvæmlega
sama tíma, sem hefði verið
það snarpur, að fólk hefði
hlaupið' út úr húsum, en ekki
vissi hann til þess að neitt
tjón hefði orðið.
Veðurstofan gaf blaðinu
þær upplýsingar, að jarð-
skjálftamælar hér syðra hefðu
sýnt, að kippurinn á Sauðár-
króki hefði verið 4 stig að
styrkleika og staðið yfir í
nokkrar sekúndur, en kipp-
urinn á Skagaströnd öllu
meiri, eða 4—5 stig, og var-
að í átta til tíu sckúndur.
Fréttamaður blaðsins á
Sauðárkrólci lét þess cinnig
getið, að síðastliðið fimrntu-
dagskvöld hefðu fundizt kipp-
ir út með Reykjaströnd, og
hefði einn þeirra verið nokk-
uð snarpur.
Ekki liöfðu borizt fregnir
af jarðskjálftum annars stað-
ar frá, þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi.
Norskur sérfræðingur er vænt-
anlegur til landsins til þess að
athuga Fróðaklett.
Sö/tun hófst á
tveim stöðum
Neskaupstað í gær. — Söltun
hófst í gær hjá söltunarstöð-
inni Ási. Jón á Stapa lagði þar
á land 285 uppmældar tunnur,
Tjaldur SH 202 tunnur og Grund-
firðingur II. kom þangað í morg-
un með rúmlega 100 tunnur.
Söltunarstöðin Drífa byrjaði sölt-
un í morgun. Freyfaxi KE kom
með 400 tunnur. Síldin er sæmi-
leg, en úrkast er nær 50%. Þess
má geta að síldarstúlkur fá meira
fyrir hverja tunnu ef úrkastið
er meir en 50"/n> þá fá þær kr.
64.20 (þar af kr. 4.20 i orlof), en
annars kr. 54.50 — (þar af kr.
3.50 í orlof). Þetta er í fyrsta
sinn sem orlof er greitt í pen-
ingum en ekki merkjum.
Síðan í gærkvöld hafa þessi
skip komið til síldarbræðslunnar:
Jón á Stapa með 229 mál, Skaga-
röst 505, Víðir SU 700. Hafrún
NK 250, Eldey 500, Ó1 Maan-
ússon EA 950, Guðbjörg ÓF 400,
Stapafell 100 og Héðinn 500. —
★ Af efni Sunnudags Þjóð-
viljans í dag má nefna: Dóttir
skútumannsins á Frostastöð-
um, frásögn Sigríðar Þor-
steinsdóttur, þriðju grein
Björns Þorsteinssonar frá
Grænlandi: Innrás í Iand Nu-
ita. Skiptum okkur ekki af
því, eftir Art Buchwald, tvær
greinar um tækni og vísindi:
Dularfullur fiskur og Loft-
steinalag í Evrópu fyrr og nú.
Ennfremur eru í blaðinu hinir
föstu þættir svo sem bridge,
vcrðlaunagetraunin, krossgát-
an, Bidstrupteikning o. fl.
★ Óskastundin fylgir einnig
blaðinu að venju og flytur
hún fjölbreytt og skemmtilegt
efni fyrir börn.
Æfingokeppni
skáksveito
N. k. mánudagskvöld fer fram
æfingakeppni milli stúdentaskák-
sveitar þeirrar sem nú er á för-
um til keppni í heimsmeistara-
móti stúdenta, er háð verður í
Póllandi og sveitar þeirrar sem
fyrirhugað er að senda fyrir Is-
lands hönd á olympíumótið í
í haust í ísrael. Keppnin mun
fara fram í MÍR-salnum í Þing-
holtsstræti 27 og hefst kl. 8.