Þjóðviljinn - 18.07.1964, Side 3
Laugardagur 18. júli 1964
ÞIÖÐVnjINN
StDA 3
Sigur Goldwaters vekur étta víða um heim
en fasistablöð fagna
Le Monde: Framboð hans sönnun fyrir því
að þeir hafa á réttu að standa sem ekki viija
fela Bandaríkjamönnum forráð mála sinna
PARÍS, LONDON og SAN FRANCISCO 17/7 — Viðbrögðin við hinum
mikla sigri Barry Goldwaters á flokksþingi Repúblikana í San Francisco
eru mjög á eina leið. Blöð víðast hvar í heiminum láta í ljós ótta við þá
þróun mála sem af sigri hans gæti leitt. Hið áhrifamikla franska borgara-
blað „Le Monde“ telur að sigur hans sanni að þeir hafi á réttu að standa
sem vilja ekki fela Bandaríkjamönnum forráð mála sinna. Málgögn fas-
ista fagna á hinn bóginn sigri Goldwaters.
Einkonnandi fyrir viðbrögð
blaða í Vestur-Evrópu við sigri
Goldwaters eru þau ummæli
málgagns austurrískra sósíal-
demókrata, „Arbeiter-Zeitung“,
að „það sé eins og Kennedy for-
seti hafi verið myrtur öðru
sinni“, að Goldwater skuli hafa
verið útnefndur til forsetafram-
boðs á vegum Repúblikana-
flokksins.
íhaldsblaðið „l’Aurore" í Par-
ís segir að það myndi verða ó-
skaplegt áfall fyrir „hinn frjálsa
heim“ ef Barry Goldwater yrði
kosinn forseti Bandaríkjanna.
„Le Monde“ kemst þannig að
orði: — Útnefningin er veiga-
mikil röksemd fyrir þá sem eins
og de Gaulle forseti telja að
Evrópa geti ekki falið verndara
örlög sín sem kann að vilia vel
í dag, en enginn veit hvað ger-
ir á morgun.
Mesta stríðshættan
Charlgs Moyreaux, fyrrverandi
formaður Frjálslynda flokksins
í Belgíu, segir j grein í „Le
Soir“: — Geigvaenlegar yfirlýs-
ingar Goldwaters og stefnuskrá
sú sem hann er fulltrúi fyrir
fela í sér mestu hættuna á
heimsstyrjöld sem nokkru sinni
hefur vofað yfir mannkyninu.
Málgagn sænskra sósíaldemó-
krata „Stockholms-Tidningen“
kemst svo að orði að 883 öskr-
andi þingfulltrúar j „Cow Pal-
ace“ þar sem flokksþingið er
haldið hafi valið til frambjóð-
anda afturhaldssamasta.og hæfi-
leikasnauðasta manninn sem gaf
kost á sér.
i
„Andleg verðmæti“
Við annan tón kveður í mál-
gagni ítalskra nýfasista, „II
Secolo". Blaðið segir að Gold-
water sé einn þeirra manna sem
trúi á „andleg verðmæti“ og
skilji öðrum fremur hina miklu
hættu sem stafi af kommúnism-
anum. Hann unni menning-
unni, virði föðurland sitt og
söffulega hefð þess.
Eitf af blöðum stjórnarinnar
í Suður-Vietnam, „Dan Chu“ í
Saigon, telur að útnefning jGold-
eaters muni hafa j för með sér
að Bandaríkjastjórn muni leggja
sig enn meira fram við að finna
lausn á vandamálum Suður-
Vietnams.
Blöð Francos á Spáni fagna
sigri Goldwaters og telja hann
vísbendingu um að Bandaríkin
muni herða sig í baráttunni
gegn heimskommúnismanum.
Gcigvænlég tilhiigsun
Hin hálfopinbera franska
fréttastofa AFP hefur eftir emb-
ættismönnum frönsku stjórnar-
innar sem ekki vildu láta nafna
sinna getið að það sé geigvænleg
tilhugsun að Barry Goldwater
kunni að verða forseti Banda-
ríkjanna. Útnefning hans sanni
réttmæti þeirrar stefnu de Gaulle
að losa um tengslin við Banda-
ríkin.
Blað brezka Verkamanna-
flokksins „Daily Herald" segir
að enginn í Vestur-Evrópu geti
fagnað sigri Goldwaters fyrir ut-
an viss öfl í Vestur-Þýzkalandi.
Ihaldsblaðið „Daily Mail“ segir
að verði Goldwater forseti
Bandaríkjanna muni Atlanzhafs-
bandalagið Ifða undir lok. en
Sovétríkin neyðast til að víkja
frá stefnu friðsamlegrar sambúð-
ar.
Mikill fögnuður
Allt ætlaði um koll að keyra
á flokksþinginu í San Francisco
í gærkvöld þegar Barry Goldwat-
er gekk í ræðustólinn. Leið
lahgur tími áður en hann gat
tekið til máls. Hann lýsti þeim
ásetningi sínum að gersigra John-
son forseta í kosningunum í
Þrír g-ervihnettir á loft
CAPE KENNEDY 17/7 — A
föstudag var þrem gervihnöttum
skotið á mismunandi 'brautir úr
sömu eldflauginni frá banda-
ríska tilraunasvæðinu Kennedy-
höfða.
nóvember, vemda „frelsið"'
heimafyrir og ryðja því braut
erlendis.
En enda þótt yfirgnæfandi
meirihluti þingfulltrúa styðji
Goldwater. er ljóst að sundrung-
in í flokknum er nú meiri en
nokkru sinni, og hafa hvatningar-
orð manna á borð við Eisen-
hower og Nixon um að flokks-
menn skuli nú láta alla misklíð
sín á milli niður falla lítinn ár-
angur borið.
— Við verðum að treysta
frelsið heimafyrir og verja aðrar
þjóðir fyrir ágengni harðstjórn-
arinnar, sagði Goldwater. Til
þess verða allir að leggjast á
eitt og því er það ekkert glap-
ræði að leita eftir samvinnu við
öfgamenn. Það er engin dyggð
að vera gætinn og hófsamur í
baráttunni fyrir réttlæti.
Þingheimur fagnaði þessum
orðum hans ákaflega, en sumir
fulltrúar gengu þá af fundi. með-
al þeirra allmargir frá New
York.
Gríski forsætisráðherrann Papandreou sést hér á myndinni (t.v.)
með Adlai Stevenson fulltrúa Bandaríkjana hjá SÞ. Papandreou
hefur verið á þeytingi um veröldina upp á síðkastið vegna Kýp-
urmálsins svo sem og vopnabróðir hans í NATO tyrkneski for-
. sætisráðherrann.
Astandii á Kýpur hefur farii
hríiversnandi síiustu dagana
Stjórnir Danmerkur og Svíþjóðar íhuga að kalla aftur
heim hermenn þá er þeir sendu í gæzlulið SÞ á eynni
NICOSIA, STOKKHÓLMI, KAUPMANNAHÖFN 17/7 —
Ástandið á Kýpur versnaði enn alvarlega í dag. Friðar-
sveitir Sameinuðu þ'jóðanna urðu að senda kanadíska her-
sveit til Kyreníahéraðs er æsingar ukust í héraðinu. Sam-
tímis bárust þær fréttir, að ríkisstjómir Danmerkur og
Svíþjóðar hefðu báðar snúið sér til SÞ og látið í ljós á-
hyggjur sínar vegna þróunar mála á Kýpur. Báðar ríkis-
stjómimar telja að forsendur fyrir frekari þátttöku
danskra og sænskra hersveita í friðarhemum hverfi með
þessari þróun.
Samkvæmt frétt frá danska
utanrfkisráðuoeytinu ræddi sendi-
herra Dana hjá SÞ þessi mál
við Ralph Bunche varafram-
kvæmdastjóra samtakanna og
lýsti því yfir, að danska stjórn-
in vænti þess, að aðalritarinn
(gníinental hjólbarðarnir
Eru sterkir og end-
ingargóðir
ÚTSÖLUSTAÐIR
Ólafsvík:
Bildudal:
ísafirði:
Blönduósi:
Akureyri:
Húsavik:
Raufarhöfn:
Breiðdalsvík:
Hornafirði:
Vestmannaeyjum;
Þykkvabæ:
Keflavík:
Hafnarfirði;
Sauðárkrókur
Búðardalur
Marteinn Karlsson
Gunnar Valdimarsson
Bjöm Guðmundsson, Brunng. 14
Zóphónías Zóphóníasson
Stefnir h.f. flutningadeild
Jón Þorgrímsson, bifreiðaverkst.
Friðgeir Steingrímsson
Elís P. Sigurðsson
Kristján Imsland, kaupmaður
Guðmundur Kristjánsson, Faxa-
stíg 27, hjólbarðaverkstæði
Friðrik Friðriksson
Hjólbarðaverkstæði Ármanns
Björnssonar
Vörubilastöð Hafnarfjarðar
Verzl. Haraldar Júliussonar
Jóhann Guðlaugsson.
Gúmmívinnustofan
SKHPHOLTI 35 — SÍMI 18955.
taki þegar í stað upp víðræð-
ur við hlutaðeigandi ríkisstjórn-
ir um herflutninga þá sem nú
fara fram á eynni. Ef málsað-
ilar sýni ekki þá varfærni sem
ástandið krefjist, hljóti danska
stjómin að taka til meðferðar,
hvort frekari forsendur séu fyr-
ir því, að danskar herdeildir
haldi áfram að gegna störfum
á eynni.
Svíar sneru sér til U Þant að-
alritara SÞ er hann var staddur
í Genf á fimmtudag. Sænska
stjórnin lagði áherzlu á það, að
hún liti þessa þróun mjög al-
varlegum augum og hún verði
neydd til þess að gera formleg-
an fyrirvara um framhald
sænskrar þátttöku í friðarsveit-
unum, ef viðkomandi aðilar
vilji ekki vinna með SÞ. Einnig
vill sænska stjórnin vita hvort
U Þant vilji eiga frumkvæði að
skyndifundi í öryggisráðinu.
Kanadíska hersveitin hefur
tekið sér stöðu milli stöðva
Grikkja og Tyrkja og reynt að
koma í veg fyrir frekari æsing-
ar og árekstra. En Grikkir hafa
nýlega dregið þangað að sér
töluvert lið og eru búnir bæði
sprengivörpum og stórskotaliði.
Talsmaður ríkisstjómar Kýp-
ur hélt því fast fram, að til-
gangur þessa herbúnaðar væri
alls ekki að ráðast á tyrknéska
bæinn Temblos, en það hefði
sést að Tyrkir væru að styrkja
hernaðaraðstöðu sína. Talsmað-
ur SÞ sagði að spennan í hér-
aðinu væri mjög mikil.
Tyrkneska utanríkisráðuneyt-
ið í Ankara skýrði frá því að
Tyrkland hefur vísað á bug mót-
mælum Kýpurstjórnar vegna
meintrar landgöngu tyrkneskra
hermanna á eyjuna á bug þar
sem þau væru út í loftið.
Utanríkisráðherra Kýpur Kyp-
rianou ræddi á föstudag við
sáttasemjara SÞ Sakara Tuomi-
oja í Genf. Því næst átti Tuomi-
o.ia viðræður við fulltrúa
Grikkja og talar við fulltrúa
Breta á laugardag.
Kypriancu utanríkisráðherra
Kýpur flaug samdegis til Aþenu.
þar sem hann ræddi við Pap-
andreou forsætisráðheira.
Brezka utanríkisráðuneytið
hefur skýrt frá því, að U Þant
aðalritari og forsætisráðherra
Grikklands, Papandreou komi til
Luodúna um helgina til að ræða
Kýpurvandamálið við brezku
stjórnina.
Seint í gærkvöld var opinber-
lega skýrt frá því í Kaupmanna-
höfn. að danska yfirherstjómin
hefði gefið yfirmönnum dönsku
hermannanna þúsund. sem eru í
friðarsveitum SÞ svo og yfir-
mönnum 40 manna lögregluflokks
sem þar er einnig fyrirskipanir
um að yfirgefa eyjuna, ef stríð
brýzt út.
Gizenga á fundi
meS Tshombe
LEOPOLDVILLE 17/7 — Fyrrum
varaforsætisráðherra Lúmúmba,
Antoine Gizenga tók þátt í blaða-
mannafundi í Leopoldville í dag
með Tsjombe forsætisráðherra,
fyrrum forseta Katangafylkis.
Gizenga hefur setið í fangelsi
á eyju nokkurri í Kongofljóti
rúmlega tvö ár þar til hann var
látinn laus síðastliðinn miðviku-
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall
ara jósefssonar.
Sólveig Hauksdóttir,
- Soffía Stefánsdóttir,
Jósef Indriðason og aðrir
vandamenn.
i