Þjóðviljinn - 23.07.1964, Blaðsíða 12
LúBrasveit
Reykjavíkur
tii Færeyja
1 fyrradag lagði Lúðrasveit
Reykjavíkur af stað til Færeyja
með tveim flugvélum frá Flug-
félagi lslands. Ferðin er farin
í boði Bæjarstjórnar Þórshafnar
og Hafnar Hornorkester. sem
hingað kom í fyrrasumar í boði
Lúðrasveitar Eeykjavíkur. |
Lúðrasveitin mun leika í Sör-
vogi á Vogar, en halda að því
búnu til Þórshafnar. 1 Þórs-
höfn verða haldnir tvennir inni-
tónleikar, á fimmtudags- og
föstudagskvöld. Um helg'na
verður Lúðrasveitin í Klakksvík
en kemur í byrjun næstu viku
aftur til Þórshafnar, þar sem
hún leikur á Ólafsvökunni, sem
hefst 28. júlí. Á Ólafsvökudag
leikur Lúðrasveit Reykja víkur á ;
aðaltorgi Þórshafnar. Lúðrasveit-
in heldur heimleiðis 3. ágúst.
Auk þeirra hljómleika, sem
þegar eru nefndir, mun verða j
leik’ð í Vestmanna, Kvikvik og ,
á fleiri stöðum.
Þátttakendur í Færeyjaförinni
á vegum Lúðrasveitar Reykja-
víkur eru 44, þar af þrjátíu
hljóðfæraleikarar. Fararstjórar
eru Ottó Jónsson, Friðfinnur
Ólafsson og Helgi Sæmundsson,
stjómandi er Páll Pampichler
Pálsson en formaður Lúðrasveit-
ar Reykjavíkur er Björn Guð-
jónsson.
Vegna þoku í Færeyjum lentu
báðar flugvélamar á Egilsstöð-
um og voiu þar í fyrrinótt. Síð-
degis í gær er gert ráð fyrir að
hópurinn fljúgi svo Færeyja.
S/ys í Keriing-
arfjöllum
15 ára gamall piltur slasaðist
er „hann var að klifra í íshell-
um í Kerlingarfjöllum á þriðju-
d^gjjyþ,. Hópur fólks 30—40
manns, var í skáln þama. Pilt-
urinn, Hörður Harðarson Mjó-
stræti 5, var fluttur á sjúkra-
bíl frá Selfossi til Reykjavíkur
á slysavarðstofuna og er þangað
kom reyndist hann viðbeinsbrot-
inn en heill að öðru leyti. Hon- j
líður nú eftir atvikum vel. j
Minningarsjóður
dr, Rögnvalds
Péturssonar
Á 83. ára afmæli síra Rögn-
valds Pétirssonar D.D. og dr.
phil. stofnuðu frú Hólmfríður
Pétursson, ekkja hans, og dóttir
þeirra, ungfrú Margrét Péturs-
son B.A., sjóð til minningar um
hann.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja kandídata í íslenzkum
fræðum frá Háskóla fslands til
framhaldsnáms og undirbúnings
frekari vxsindastarfa. Ætlunin
er að veita nú í ár i fyrsta
sinn styrk úr sjóði þessum.
Umsóknarfrestur um styrk úr
sjóðnum er til 10. ágúst n.k.
Skal senda umsóknir á skrifstofu
Háskóla fslands, sem veitir frek-
ari upplýsingar um styrk þenn-
an.
(Frá Háskóla fslands).
Maður bráð-
kvaddur um borð
í Akraborg
f gærmorgun varð maður
bráðkvaddur um borð i Akra-
borginni er hún var nýlögð af
stað frá Akranesi til Reykjavík-
ur. Skipið snéri þegar aftur tjl
Akraness og var maðurinn lát-
inn er þangað kom. Hanp hét
Jóhannes Bachmann, til heimilis
að Vesturgötu 63 á Akranesi.
Jéhannes var 62 ára að aldri,
kvæntur Steinunni Ólafsdóttur
og áttu þau einn son.
Bryggjusmíði á Vopnafírði
rt'-
Þeir smíða nýja hafskipabryggju á Vopnafirði og búast þeir við, að skip geti Iagzt upp að henni
næsta haust. Ekki verður hún þó fullsmíðuð þá. Þeir eru búnir að steypa fjögur ker og hafa lagt
þrem á sinn stað. Þá voru þeir að binda járnið í þrjú ker í viðbót. Bryggjuhausinn verður fjörutíu
og fimm metrar á breidd og er bryggjan skammt fyrir utan síldarverksmiðjuna á staðnum. Þessir voru
að vinna við að binda járnið í óateyptu kerin. Þeir heita talið frá vinstri: Kristján Helgason frá
Vopnafirði, Ólafur Leifsson frá sama stað, Sigurður Þorsteinsson frá BlómsturvöIIum í Eyjafirði,
Haraldur Eiríksson, Laugamesveg 100, Reykjavík og Magnús Gautsson frá Akureyri. Þeir vinna 11
og hálfan tíma í sólarhring. (Ljósm. Þjóðv. G. M.).
Síldarsöltun á Bakkafírði
Eitt síldarplan er rekið á Bakkafirði i sumar. Söltunarstöðin heitir Sandvík h.f. og er eign sama
hlutafélagsins, sem rekur síldarverksmiðjuna á staðnum. Tuttugu og fimm stúlkur salta á planinu í
sumar og heitir planformaðurinn Sigurbjörn Jónsson frá Reykjavík. Síldarplanið saltaði þrjú þúsund
tunnur í fyrrasumar og var þá rekið af öðrum eigendum. Voru þeir að sunnan, meðal annars dr.
Jakob Sigurðsson. Hérna eru nokkrar síldarstúlkurá planinu og eru auðvitað ekki i síldargallanum
af því að ckkert var saltað þann daginn. Þær heita Katrín Jónsdóttir frá Akureyri, Svanhildur Þór-
arinsdóttir, Björg Magnúsdóttir, Sólrún Magnúsdó ttir og Jóna Jónasdóttir og eiga allar heima í kaup-
túninu. Þær eru náttúrlega með planformanninn á milli sín. — (Ljósm. Þjóðv. Guðgeir Magnússon).
Maðkar í fóðurmjöli í Brúarfossi
ASTÆÐULAUST AÐ ÓTTAST
SKEMMDIR Á NEYZLUVÖRU
Er Brúarfoss kom til landsins nýverið, kom í l'jós að
skordýr var að finna í fóðurmjöli um borð í skipinu. Ýms-
ar sögur hafa spunnizt um þetta mál og er í flestum
þeirra gert of mikið úr magni skordýranna í mjölinu, að
því er borgarlæknir og forstjóri Eimskipafélagsins tjáðu
blaðinu í gær.
„Við uppskipun úr mjs Brúar-
fossi í dag kom í ljós nokkur
mengun skordýra í fóðurkorni.
Búið var að ílytja verulegt
magn af sekkjavöru úr skipinu
í geymslu. Til öryggis var á-
kveðið að flytja alla vöruna
aftur um borð í skipið og fram-
kvæma síðan eyðingu þar.
Ástæðulaust er að óttast
skemmdir á vörunni vegna eyð-
ingarinnar“.
Þannig hljóðar fréttatilkynn-
ing, sem borgarlæknir lét frá'l
sér fara um ,,maðkað hveiti í
Brúarfossi" eins og Alþýðublað-
ið orðaði það með stóru letri á
forsiðu í gær.
Málavextir eru þeir að Brú-
arfoss kom til Reykjavíkur
hinn 15. þ.m. með mjölvöru
frá New York. Hiti var mjög
mikill í borginni, er mjölinu
var skipað út, og í slíkum til-
fellum er oft hætta á að ein-
hvers konar skordýr taki sér
bólfcstu í mjölvörunni.
Er Brúarfoss kom til Reykja-
víkur og farið var að skipa
upp úr honum kom í Ijós að
eitthvað var af skordýrum í
fóðurmjöli. sem geymt var á
botni skipsins. Ákveðið var þá
að flytja mjölið aftur um borð
í skipið og svæla lestina að
innan unz fullvíst væri að ekk-
ert væri eftir af ófögnuðinum.
Búast má við að eyðingin taki
nokkurn tíma, jafnvel fram
undir helgi. Verðir hafa verið
settir um kornið til að gæta
þess að enginn komist þar að
fyrr en eyðingin er um garð
gengin.
Fréttamað.ur átti í gær tal
við borgarlækni, Jón Sigurðs-
son, og sagði hann að engu
væri við fréttat’lkynninguna að
bæts af sinni hálfu.
Framhald á 3. síðu.
Háifíeikur í sddar-
kapphiaupinu eystra
Neskaupstað, 22/7 — Það virð-
ist standa yfir hálfleikur í
kapphlaupinu um síldina hér
fyrir austan. Mestur hluti flot-
an* hefuf legið í fjörðum inni
og sólað *ig í þeim steikjandi
hita sem hér hefur ríkt síðan
fyrir helgi. Á sumum bátunum
hafa skipstjórarnir, gefið nokk-
urra daga frí og mörg eigin-
konan syðra og vestra fengið ó-
vænta heimsókn af bónda *ín-
um. Þeir kappsömustu hafa þó
reynt að góma síldina þrátt
fyrir bræluno og barst reytings-
afli f Iand fram á daginn í gær.
Til síldarverksmiðjunnar hér
komu frá því á sunnudag 25
bátar með tæp 3000 mál. Fjór-
ir aflahæstu bátarnir voru Guð-
björg GK 635 mál, Andri KE
364 mál, Munni ÍS 258 mál og
Jörundur II. 154 mál. Klukkan
15 í dag þögnuðu vélar síldar-
verksmiðjunnnar eftir að hafa
gengið eins og klukka síðan
bræðsla hófst 6. júní. Verkefni
vantar. Allar þrær tómar. Hafa
þá verið brædd rösklega 140
þúsund mál.
Frá söltunarstöðvunum er
svipaða sögu að segja. Síðast
var saltað á tveim plönum í
gærmorgun. Það var Lómur KE
sem kom með 700 tunnur og
Húni II. með 310 tunnur. Alls
hefur nú verið saltað hér í
8620 tunnur.
Þeir bátar sem fóru út héð-
an í gær og í dag munu hafa
haldið norður fyrir Langanes.
Uposelt er í fyrstu tvœr vetr-
arferðirnar með GULLFOSSI
Mjög mikil eftirspurn er eftir
farþegarúmum í vetrarferðum
m.s, Gullfoss og þegar er upp-
selt í tvær fyrstu ferCJrnar.
Vegna þessarar miklu eftir-
spurnar hefur Eimskipafélagið
ákveðið að skipið fari eina auka-
ferð í desember til Kaupmanna-
hafnar og Leith, sem verði með
sama fyrirkomulagi og aðrar
vetrarferðir. Fer skipið frá
Reykjavík 11. desember og verð-
ur komið aftur til Rcykjavíkur
26. desember og eiga farþegar í
þessari ferð þvi jólahelgina á
hafi úti. Byrjað er að selja far-
miða í þessa ferð.
Ferðaáætlun m.s. Gullfoss fyr-
ir árið 1965 kemur út á næst-
unni og verður fyrirkomulag
ferða hið sama og undanfarin
ár. Er byrjað að taka á móti
farmiðapöntunum í vetrarferðir
eftir áramótin.
Eftirspum eftir farþegarúm-
um er jafnan mikið með m.s.
Gullfoss á sumrin og hefuT
stundum farið langt fram úr þvi
sem unnt hefur verið að anna.
Hins vegar hefur farið í vöxt,
að fólk láti taka frá fyrir sig
farmiða með skipinu, sem það
síðar notfærir sér ekki, en fyrir
vikið hefur öðrum verið neitað
um farþegarúm sem stendur ó-
notað. Þetta hefur að vonum
mælst illa fyrir og til þess að
ráða bót hér á mun ‘Eimskipá-
félagið framvegis hafa þann
hátt á að þeir sem óska eftir að
farþegarúm sé tekið f^ágreiða
kr. 500f,00 upp í andvirði far-
miðans sem tryggingu fyrir því
að hann verði notaður. Nokkr-
ir farmiðar sem ekki hafa ver-
ið sóttir eru nú fáanlegir í ferð-
um Gullfoss í ágúst og sept-
ember.
Landsýn efnir til
Borgarfjarðarferðar
Um næstu helgi efnir ferðaskrifatofan Landsýn til
tveggja daga ferðar um Borgarfjörð. Verður lagt af stað
frá Týsgötu 3 kl. 9 á laúgardagsmorgun og komið í bæ-
inn aftur á sunnudagskvöld. Fararstjóri verður Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur sem er manna kunnugastur á þess-
um slóðum.
Þjóðviljinn átti í gær stutt
tal við Pál um ferðina. Sagði
hann að þetta væri ein af feg-
urstu leiðum í þessum lands-
hluta og yrði farið bæði um
fjölbreytt fjalllendi og eyðistaði
og blómlegar byggðir. ■
Ekið verður um Þingvelli og
norður Kaldadal en þar verður
stanzað norðan til á dalnum þar
sem vel sést til jökla og norð-
ur yfir fjöllin ofan við Borg-
arfjörð en Þórisjökull og Geit-
landsjökull gnæfa yfir austan
Kaldadal j næsta nágrenni.
Þá verður förinni haldið áfram
að Bamafossi þar sem snætt
verður nesti i skjólsælu og fögru
hrauninu. Því næst verður farið
um Húsafell og geta þeir sem
það vilja reynt við kvíahellu
séra Snorra. Þar skammt frá
er einnig draugaréttin þar sem
séra Snorri setti niður sendi-
ingar, þó ekki allar því að sum-
um kom hann fyrir í Surtshelli
og segir sagan að eitt sinn er
hann var á leið þangað með
sendingu hafi hann bundið
drauginn við ístaðið á meðan
hann þáði beina í Kalmanns-
tungu.
Næst verður farið í Víðgelmi
í Hallmundarhrauni en þar sjást
m.a. merki um mannavist, senni-
legr, frá útilegumannabyggð. Að
kvöldi verður haldið niður Hvit-
ársíðu og snæddur kvöldverður
að Varmalandi en tekin gisting
að Logalandi i Reykholtsdal.
Á sunudagsmorgun verður
Reykholtsstaður skoðaður, m.a.
Snorralaug og aðrar fommenj-
ar en síðan verður ekið að
Varmalandi aftur og snæddur
þar hádegisverður.
Eftir mat verður haldið upp
í Norðurárdal að Hreðavatni og
skoðuð paradís Vigfúsar, hraun,
skógur og vatn. Frá Hreðavatni
verður haldið he'mleiðis sem
leið liggur en komið verður við
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
og kirkjan skoðuð en þar hefur
nýverið verið sett upp ný altar-
istafla, freskómálverk eftir
f nnskan listamann, og er ný-
búið að opna kirkjuna aftur til
sýnis fyrir ferðamenn.
Fólk þarf að hafa með sér
svefnpoka og nesti a.m.k. að
nokkru leyti, en nánari upplýs-
ingar um ferðina ve:tir skrif-
stofa Landsýnar, Týsgötu 3,