Þjóðviljinn - 26.07.1964, Side 1
.Sunnudagur 26. júlí 1964 — 39. árgangur — 166. tölublað.
Torkennilegur sjúkdómur i Jupak
TOiKIO 25/7 — 22 íbúar
í norðurhluta Tókió þar sem
ætlunin er að halda róðrar-
koppnina á Ólympíuleikunum,
hafa tekið undarlegan sjúk-
dóm.
Prófessor við háskóla einn
í Tokíó hefur rannsakað sjúk-
lingana og fullyrðir hann að
þeir þjáist af sama óþekkta
sjúkdómnum og brauzt út á
suðurhluta eyjunnar Hokka-
ido fyrir tveim árum. Sjúk-
dómurinn ( kemur einkum
fram í þjáningum í maga og
í lömun á handleggjum og
fótum. '
Skipulegjendur Ólympíu-
leikanna eru hræddir um að
sjúkdómurinn komi- til með
að Snerta róðrarkeppnina á
Ólympíuleikunum.
ENN ENGIN AKVORÐUN UM
VIRKJUNARFRAMKVÆMDIR
fieð/3 effir samningaviSrœSu m um alúminiumverksmiðju
Q íslendingum hefur verið veitt 20 miljóna
króna framlag úr sérstökum sjóði á vegum Sam-
einuðu þjóðanna sem hefur þann tilgang að stuðla
að rannsóknum á auðlindum. Verður fénu varið
[til þess að rannsaka virkjunarmöguleika á vatna-
svæði Hvítár og Þjórsár og er áætlað að sú rann-
sókn taki tvö ár. Verða m.a. settar upp rannsókn-
arstöðvar við Búrfell ,til að kanna ísmyndanir á
þeim slóðum. Hafa ýmsir íslenzkir sérfræð-
ingar talið að ísmyndanir á því svæði væru
svo alvarlegar að áætlanir bandarísku sérftæðing-
anna um Búrfellsvirkjun stæðust ekki, og norskir
sérfræðingar sem hér hafa dvalizt munu einnig
hafa komizt að þeirri niðurstöðu að ísmyndanir
væru mun alvarlegri en bandarísku sérfræðing-
arnir gerðu ráð fyrir.
Þjóðviljinn hefur snúið sér
til Jakobs Gíslasonar raforku-
málastjóra og spurzt fyrir um
það hvort þessar tveggja ára
rannsóknir táknuðu ekki að á-
Stund milli stríðu á Seyðisfirði
kvörðun ‘um BúrfeUsvirkjun
yrði frestað þar til niðurstöð-
ur rannsóknanna lægju fyrir.
Jakob kvað svo ekki vera.
Hér væri um að ræða heild-
arrannsókn á öUu svæðinu, en
fyrir löngu hefði verið ákveðið
að taka Búrfellsvirkjunina út
úr og ráðast í hana, ef hentugt
þætti. án þess að niðurstöður
af heildarrannsókn á vatna-
svæðinu öllu lægju fyrir. Kvað
Jakob tæknilegri rannsókn á
Búrfellsvirkjun að mestu lok-
ið, en hér væri einnig um
stórféllt fjárhagslegt vandamál
að ræða. þótt sú hlið heyrði
ekki tmdir sig. Hefði virkjun
við Búrfell sem kunnugt er
verið tengd áfommim um alú-
miníumverksmiðju, en athug-
uraum á því máli myndi ekki
enn vera lokið. Hins vegar
biðu yfirmenn raforkumála
þess mánuð frá mánuði að
hægt yrði að taka endanlegar
ákvarðanir.
— En verði ákvörðunum um
Búrfellsvirkjun frestað, hvaða
virkjunarframkvæmdir eru þá
fyrirhugaðar?
— Við höllumst eindregið að
því að ráðizt verði í gufuvirkj-
un í Hveragerði. Eru áætl-
anir um þá virkjun alveg til-
búnar af okkar hálfu, þarmig
að hægt væri að hefja fram-
kvæmdir án tafar.
— En er ekki hætta á alvar-
legum rafmagnsskorti á Suð-
vesturlandi eftir nokkur ár, ef
ákvarðanir dragast lengi enn?
— Við teljum að endar nái
saman, ef næsta virkjun verð-
ur komin í gagnið 1968.
/
Eftir öðrum heimildum hef-
ur Þjóðviljinn fregnir af því
að hér hafi verið miklar
mannaferðir að undanförnu í
sambandi við áformin um al-
úminíumverksmiðju. Banda-
ríski yfirverkfræðingurinn sem
f jallaði um áætlunina um Búr-
fellsvirkjun hefur komið hing-
að aftur. FuIItrúar frá svissn-
eska alúminíumhringnum
dvöldust þér fyrir skemmstu.
Og fyrir hálfri annarri viku
komu hingað fulltrúar frá Al-
þjóðabankanum, en ríkisstjórn-
in hefur sem kunnugt er lagt
áformin um Búrfellsvirkjun og
alúminíumverksmiðju fyrir
hann. I viðræðunum mun það
m.a. hafa komið fram að ráða-
menn alúminíumhringsins vilja
, velja hugsanlegri verksmiðju
stað skammt frá Straumi fyr-
ir sunnan Hafnarfjörð, en alls
ekki við Eyjafjörð eins og
Morgunblaðið beitti sér fyrir
í vor.
Saltað á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN 25/7 — í gær
var talsvert saltað á Raufarhöfn
eða alls í 1739 tunnur. 1 dag er
saltað á tveim stöðvum, Haf-,
silfri og Björgu. Heildarsöltun
á Raufarhöfn nemur nú 28.637
tunnum og er Óðinn hæsta stöð-
in með 6.639 tunnur, þá kemur
söltunarstoðin Hafsilfur.
— H. R.
Mótmæla uppþotínu
/ Suður- Víetnam
'te Mesta strákaparadís á land- *'
inu er líklega á Seyðisfirði og
eru héma til dæmis nokkrir
strákar að veiðum á brúnni í
kaupstaðnum.
■jr Þarna fiska þeir silunginn og
kolann á bryggjunum og horfa
út á lygnan pollinn. Strákarnir
heita talið frá vinstri að ofan:
Heigi Ágústsson, Þráinn Víking-
ur og Sigurður Gíslason. Að
neðan eru Friðmar, Rúnar og
Guðmundur Hafsteins.
-Ar Þetta er eiginlega stund milli
stríða og selur Helgi Tímann
og S gurður Þj4?viijann og segj-
ast þeir hafa samvinnu sfn á
milli af þvi að þeir eru i stjórn-
arandstöðunni.
■if Sigurður er raunar skráður
umboðsmaður Þjóðviljans á
Seyðisfirð' og er níu ára og seg-
ist vera liærri í tigninni en
Tímastrákurinn, og er hann þó
orðinn ellefu ára. — fLjósm.
Þjóðv. G. M.).
SAIGON 25/7 — Ríkisstjórnin i
N orður-V ietnam gaf í dag út
tilkynningu. þar sem hún ber
Heimatílbúin síldarflokkunarvél
tekin í notkun á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN 25/7 — Flestar
söltunarstöðvar hafa nú tekið í
þjónustu sína flokkunarvélar.
Söltunarstöðin Björg hefur nú
reynt heimatilbúna flokkunar-
vél. sem er miklum mun fljót-
virkari en hinar er algengastar
Steinar Steinarsson, sem er
verksmiðjustjóri á Raufarhöfn
og eigandi í Björgu teiknaði
vélina. Hlutirnir í hana voru
smíðaðir í Héðni en Steinar
setti hana saman.
Helzti munurinn er fólginr. í
því að þessi vél hefur átta rás-
ir fyrir smærri síldina en venju-
legu vélarnar aðeins fjórar.
Vélin hefur við að flokka fyr-
ir allt að fjörutíu söltunarstúlk-
Sænska síldarkaupmenn bar
að í morgun er verið var að
reyna hina nýju vél og gátu
þeir í hvorugan fótinn stigið af
hrifningu.
Einnig kom þarna Þprgeir
Þorgeirsson kvikmyndatökumað-
ur sem tekið hefur eitthvað af
myndum á Raufarhöfn og bjó
hann sig undir að mynda grip-
inn — H.R.
fram ákærur vegna uppþotsins
við franska sendiráðið í Saigon
fyrr í vikunni. Ríkisstjórnin
bauðst til að leggja fram skaða-
bætur vegna skemmdanna, sem
unnar voru.
Tilkynningin var afhent
franska sendiherranum, Georges
Peruche, og er svar við mót-
mælum Frakklands vegna að-
gerðanna í Saigon 19. og 21.
júlí.
Utanríkisráðuneytið í Suður-
Víetnam fullyrðir að eyðilegg-
ingin í uppþotinu sé að kenna
æstum uppreisnarmönnum sem
skipuleggjendur mótspyrnunn-
ar hafi ekki tangarhald á.
Utanríkisráðuneytið segir enn-
fremur að atburðirnir hafi gerzt
á þeim tíma, þegar yfirmaður
Frakka, de Gaulle hafði lýst
yfir stuðningi sínum við tillög-
una um að Víetnam yrði hlut-
laust og það væri skoðun, sem
. almenningsálitið í Vietnam
hefði alltaf talið ósamræmanlega
hagsnHmum landsins.
Myndirnar hér fyrir ofan
eru af tveim kunnum for-
ystumönnum í grískum-
stjórnmálum. þeim Kara-
manlis og Papandreú og
þær eru birtar hér á for-
síðunni til að vekja at-
hygli á frásögn á 6. síðu
af nýafstöðnum kosningum
til bæjar- og sveitastjórna
i Grikklandi. I þcim kosn-
ingum vann hinn róttæki
vinstriflokkur EDA mikinn
sigur. en flokkar Kara-
manlis og Papandreús töp-
uðu.
— Af öðru efni í blað-
inu í dag nefnum við þetta:
Skúli Guðjónsson á Ljót-
unnarstöðum skrifar um
útvarpsdagskrána á 2.
síðu og víkur þá m.a. að
listahátíð, þjóðhátíð, Gylfa
og ýmsu fleiru. Þriðja síð-
an er helguð kvikmyndum;
þar eru frásagnir og frétt-
ir af ýmsum nýjum erlend-
um kvikmyndum ásamt
myndum úr þcim. Auk leið-
arans á 4. síðu er þar að
firana skákþátt Ólafs
Björnssonar og Skuggsjá
Skafta. 5. síðan er að venju
íþróttasíða og þar veltir
Frímann Helgason m.a.
fyrir sér möguleikum ís-
lendinga á sigri í lands-
leiknum við Skota annað
kvöld. Enn er að geta
myndasögu Kjartans Guð-
jónssonar ^ftir Haralds
sögu harðráða og ýmislegs
annars efnis á 7. síðu —
og landshornasyrpu og
fleiri frétta á 12. síðu. —
Og að Goldwater hinum
bandaríska er vikið á 6.
síðu.
UNNT AÐ GRÆÐA
UPP ÖRÆFIN — dr. Sturla
Friðriksson segir frá land-
græðslutilraunum.
SUMARFRl 1 HEIÐINNI
— eftir Ilalldór Pétursson.
ÞJÓÐHÖFÐINGI VEIÐu
IR LAX — ævintýri eftir
Elliða.
AÐ SJÁ MYNDIRGEGN-
UM ÞYKKAR BÆKUR —
athyglisverð frásögn.
SJÖ ÁR A SANDRIFI.
Þá er að geta mynda
Bidstrups, krossgátu og síð-
asta áfanga verðlaunaget-
raunarinnar að þessu sinni.
í Óskastundinni, barna-
blaði Þjóðviljans, er að
finna margvíslegt efni við
hæfi hinna ungu lesenda.