Þjóðviljinn - 26.07.1964, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.07.1964, Blaðsíða 4
4 SIÐA MðÐVILIINN Sunnudagur 26. júlí 1964 SKÁKÞÁTTURINN Otgefandi: Samemmgarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19, Sími 17-500 (5 líriur). Áskriftarverð kl- 90,00 á máriuði. Togararnir þrátt fyrir geysimiklar framfarir í veiðifækni og öllum útbúnaði íslenzka bátaflotans, verður því naumast mótmælt að togararnir eru enn sem fyrr einhver afkastamestu framleiðslutæki okk- ar. Veiðar bátaflotans eru að mestu leyti bundnar við ákveðin veiðisvæði vissa tíma ársins; þeir flytja sig til eftir landshlutum og landa afla sín- um eðlilega þar sem skemmst er til og frá á mið- in. Af þessu leiðir að enn er tímabuodið atvinnu- leysi alltof algengt á sumum stöðum á landinu, þótt fáir landshlutar muni hafa orðið verr úti en Norðurland vestra af þessum sökum síðustu árin. Togararnir sækja afla sinn hins vegar á fjarlæg mið, og oft er það einmitt afli þeirra, sem haldið hefur uppi atvinnulífi bæjarfélaganna, þegar báta- flotinn hefur haldið til annarra landshluta. Það er því vissulega varhugavert, þegar því er haldið fram, að okkur beri að leggja togaraútgerðina niður. þótt h'ún hafi átt við ýmsa örðugleika að stríða undanfarið. Jjað er mikil blekking þegar útgerðarmenn halda því fram, að erfiðleikar togaraútgerðarinnar! eigi að mestu rætur sínar að rekja til of fjöl- mennra áhafna á togurunum, og launagreiðslur séu því alltof hár liður í útgerðarkostnaðinum. Þessa firru útgerðarmanna tók Vísir upp í leið- ara sinn í fyrradag og krafðist þriðjungs fækkun- ar sjómanna á togurunum. Útgerðarmenn styðja máí sitt þeim rökum, að brezkir og þýzkir tog- arar komist af með mun færri menn en þeir ís- lenzku. í síðasta hefti sjómannablaðsins Víkingsi er merk grein um þessi efni. Þar er sýnt fram á, að launagreiðslur brezkra togaraeigenda eru litlu lægri en á íslenzkum togurum, svo að þessi uppáhaldsröksemd íslenzkra togaraeigenda fær með engu staðizt. En auk þess er á það bent, að ís- lenzkir togarasjómenn eru látnir vinna um'borð í togurunum f jölmörg störf við endurnýjun og við- hald veiðarfæra og útbúnað allan fyrir nýja veiði- ferð, en sambærileg störf hjá brezkum togaraeig- endum eru öll innt af hendi af starfsmönnum út- gerðarinnar í landi. Væri það fyrirkomulag tekið upp hér, mætti e.t.v. tala um fækkun áhafnar, en óvíst er hvort það reyndist útgerðarmönnum sú lyftistöng sem þeir vilja vera láta. yandamál togaraútgerðarinnar verða ekki leyst með árásum á sjómenn og réttindi þeirra. Áratuga reynzla ætti að hafa gert útgerðarmönn- um 'þau sannindi ljós, að með því að vega þar ávallt í sama knérunn, jafnskjótt og eitthvað bját- > ar á, vinna þeir einungis að því að enginn maður fáizt til að stunda þessi mikilvægu störf. Með því er verið að reka naglana í kistu togaraútgerðar á íslar.di Væri það nærtækara verkefni, að huga að því að bæta sameiginlega hagsmuni sjómanna og útgerðarinnar með hærra fiskverði, þegar fyrir liggja dæmi um það, að fyrirtæki fiskkaupenda leika sér að því að greiða árlega milljónafúlgur umfram þarfir i farmgjöld á útfluttum fiski. — b. ★ ★★★★★»• ★~lrl Ritstjóri: ÖLAFUR BJÖRNSSON JAFNTEFUSKÓNGUR I VÍGAHUG I síðasta þætti minntumst við nokkuð á mót það er hald- ið var í Sarajevo og skoðuö- um eina skák úr því. 1 þessutn þætti skulum við skoða aðra skák frá þessu sama móti, en í henni sigrar jjafnteflakóngur- inn, Jugóslafinn Trifunovic, (hann gerði 13 skákir jafntef.i af 16!) hinn unga tékkneska meistara Hort í allfjörugri skák. Hvítt HORT. Svart: TRIFUNOVIC. SKOZKUR LEIKUR. 1. e4 — e5 2. Rf3 — Rf6 (Þetta er hinn svokallaði rússn- eski leikur, en brátt fellur þó skákin í annan farveg). 3. Rc3 — Rc6 4. d4 — Bb4 (Algengara er 3. — exd4). 5. d5!? Leiðir til skaripra átaka. önn- ur leið var 5. Rxe5 — Rxe4. 6. Dg4! — Rxc3 7. Dxg7 — Hf8 8. a3 — Ba5 9. Rxc6 — dxc6 10.' De5 — De7 11. DJ?e7t — Kxe7 12 Bd2 — Bf5 13. bxc3 — Bxc2 14 c4!). 5. — Re7 6. Rxe5 — d6 7. Bb5t — Kf8! (Svartur nvátti ekki leika hér 7. — c6 8. dxc6 — O—O þvi þá leikur hvítur ekki 9. cxb7? —Bxb7, sem gefur svörtum góða stöðu, heldur 9. Rd7!). 8. Rd3(?) (Betra hefði verið að leika riddaranum til f3, t.d. 8. Rf3 — Rxe4 9. Dd4 — Bxc3 10. bxc3 — Rf6 11. Bc4 og hvítur getur bundið nokkrar vonir við hina opnu e-línu). 8. — Bxc3 9. bxc3 — Bxe4 10. Df3 — Rf6 (Ef 10. — Rxc3 þá 11. Bc4 — b5 12. Bb3 — Bb7 13. Rf4 og hótar Re6 og Dxc3) 11. c4? (Ónákvæmni, rétt var 11. Bc4. Hinsvegar mátti hvítur ekki leika 11, Bg5 vegna 11. — Rexd5 12. Dxd5 — De7 ásamt Rxd5). 11. — Bg4! (Ónákvæmara var 11. — c6 43. Hxh4 — h5 vegna 12. bxc6 — bxc6 13. 44. g4 — Hf8! Bxc6 — Bg4 14. Bxa8 — Bxf3 45. gxh5 — gxh5 15. Bxf3 og þótt hvítur hafi að- 46. Hxh5 — Hxf3 eins tvo menn fyrir drottning- 47v Hh6f — Kd5 una hefur hann nokkrar von- 48. Ha6 ir sökum þess hve svörtu (Annars lfeikúr svartur mennirnir eru lítt virkir). 48. — Hf2t 12. Df4 — c6 49. Kdl — Hf7 13. dxc6 — bxc6 50. Ha5 — Kc4 14. Bb2 — 51. Ha3 — Hg7 (Hvítur ætlar nú auðsjáanlega 52. Kd2 — Hh7 að hefja sókn fen .. .) 53. Ke2 — a6 14. — Rg6!! 54, Kd2 — (Glæsilegur varnarleikur.) 15. Bxf6 — «Da5 16. Dd2 — He8 17. Be5 (Eftir 17. Re5 — Rxe5 18. Dxa5 — Rc4t 19. Kfl — Rxa5 tapar hvítur manni). 17. — Rxe5 (Kjarni fljtturinar). 18. Dxa5 — Rxc4t 19. Kfl — Rxa5 20. Ba6 — Hb8 21. f3 — Be6 22. Ke2 — Ke7 23. Hhbl — Kd7 24. Rf4 — Bc4t 25 Bxc4 — Rxc4 26. Kd3 — Rb2t 27. Kd2? — d5 (Tilgangurinn er næsta aug- Ijós; Kd6 og c5)., 28. Hel — g6 (Lakara hefði verið 28. — Kd6 29. Rh5 — g6 30. Rf6). 29. h4 — Kd6 30. Rh3 — h6 31. Rf2 — Hhe8 32. h5 — gxh5 33. Rh3 (Ef 33. Hhl þá Rc4). 33. — Rc4t 34. Kd3 — He5 35. Hxe5 — Rxé5t 36. Kc3 — c5 27. Rf4 — d4t 38. Kd2 — Rc4t 39. Kd3 — Re5t 40. Kd2 — h4? (Sterkara hefði verið 41. — c4 42. Rxh5 — c3 43. Kcl — Hb2 44 Rg3 — Rc4 45. Rf3 — Kc5 46. Rh6 — Re3 og hótar hxc2). 41. Hhl — Rg6 42. Rxg6 — fxg6 (Ef 54. Hxa6 — Kc3 55. Hc6 c4 56. Kdl — Hhl 57. Ke2 Hh2 ásamt Hxc2). 54. — Hh2 55. Kdl — IIh6 56. Kd2 — Hg6 57. Ke2 — a5 (Hvítur kemst nú brátt í leik- þröng). 58. Kd2 — Hg2 59. Kcl — Kb4 60. Hh3 — e4 61. a3 — Ka4 62. Hh5 — c,3 63. Kbl — Hgl 64. Ka2 — d3 65. He5 — d2 66. Hd5 (Ef 66. Hel þá dxelB) 66. — Hcl 67. Hd8 — Hxc2 68. Kbl — Hb2 — og hvítur gafst upp. Arne Zwaíg skókmeistarí Noregs Noregsmeistaramótinu í skák er nýlokið með sigri hins 17 ára gamla Ame Zwaig og skaut hann m.a. aftur fyrir ?ig kunnasta skákmanni Nor- egs síðustu ár, Svein Johann- essen. Zwaig hlaut 9 vinninga úr 11 skákum en næstur var Johannessen með 8 vinninga og þriðji Ragnar Hoen með 7.5 vinninga. Þessi árangur Zwaigs er mjög glæsilegur og á hann vafalaust eftir að ná langt i skákinni ef hann helgar sig henni, en hann leggur nú stund á nám í menntaskóla og hyggst leggja fyrir sig verk- fræði en stærðfræði er uppá- halds námsgrein hans. Zwaig tefldi mjög vel í mótinu og þótti einkum sýna mikla kunn- áttu í byrjunum. j ■ Farmgjöld og styrkir Farmgjaldastríð Eimskipafé- lagsins og Jökla h.f. um út- flutning á frystum fiski hefur opnað augu margra fyrir því, hvers eðlis hið margrómaða fi'elsi viðreisnarinnar er, Þetta stolt viðreisnarinnar, hin ..frjálsa samkeppni”, ,,heil- brigð verðlagsmyndun” og hvað það nú kallast allt sam- an, stendur nú allt í einu af- hjúpað sem skálkaskjól ósvíf- inna fjárplógsmanna; þegar samkeppnin fer að verða ó- þægileg er ekki lengur hugsað um það, hvað sé ódýrast og hagkvæmast fyrir framleiðslu- atvinnuvegi þjóðarinnar. Þá skiptir sem sé „mestu máli. að maður græði "á því”; Þá hefur t.d. Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna efni á því að greiða Jöklum h.f. farmgjöld sem eru allt að þriðjungi hærri en þau sem Eimskipa- félagið býður hinum aðþrcngdu hraðfrystihúsum. En reyndar eru það nú ekki nema skitnar 27 miljónir króna, sem þessi farmgjaldalækkuri hjá Eim- skip gæti sparað hraðfrysti- húsunum á einu ári eftir því sem Morgunblaðið upplýsti s.l. fimmtudag. Það er ekki nema rúmlega helmingur þeirrar upphæðar. sem hraðfrystihús- in töldu sér nauðsynlegt að fá í styrk frá ríkinu eftir kaup- hækkanirnar . í des . i fyrra. Það voru víst 43 miljónir króna, sem þau íóru fram á — og fengu. Auðvitað verður Sölumiðstöðin að halda sig við háu farmgjöldin hjá Jöklum til’ þess að geta sýnt fram á nauð- syn þess að fá áframhaldandi styrk úr ríkissjóði. ■ Klökkvi En þessi mál eru eitthvað ó- þægileg fyrir íhaldsblöðin. Vís-. ir stundi því upp, að það væri „þýðingarlaust að mæra kosti frjálsrar samkeppni, ef menn notfæra sér þá ekki”. Þau eru mörg þrautasporin, sem Visis- menn verða að ganga. Fyrst var það nú þetta með verð- bólguna, og svo er bessi frjálsa samkeppni farin í hund og kött; máttarstólpar hennar troða hver öðrum um tær með allskonar bolabrögðum. eins og Einar ríki hefur lýst af mik- illi reynslu og þekkingu í Morgunblaðinu. Það er hreint ekki furða þó nokkurs klökkva kenni í skrifum ritstjóra Vísis. Ekki verður það þó ráðiö af skrifum r'tstjórans að hann dragi neinar aðrar ályktanir en tilgangsleysi mærðarinnar af þessu, og gæti hann því tekið undir með Christine Kee- ler, sem einmitt skartar á næstu síðu við hugleiðingar ritstjórans og lætur hafa eftir sér: ,,Eg iðrast ekki, — en ég hef margt lœrt”. Þó er tekið fram að ungfrú Keeler hafi mikinn hug á bvi að byrja nýtt líf, eftir þessa lærdóma sína, en einskis áhuga í þá átt verð- ur hins vegar vart hjá rit- stjóra Vísis. Kippir í Morgunblaðinu lagði Einar ríki undir sig hálfa þriðju síðu til þess að sýna fram á. að það væri fylliléga eðlilegt, að Jöklar sætu fyrir flutning- um á framleiðslu hraðfrysti- húsanna, jafnvel þótt það kost- aði þau tugmiljóriir á ári auka- lega. Það eina sem vantaði upp á að þessár upplýsingar Ein- ars mættu teljast fullkomnar, var að það kom hvergi fram í grein hans., að hann er siálf- ur hekti ráðamaður í Sölu- rriiðstöð hraðfrystihúsanna og , iafnframt einn af aðaleigend- um Jöklp hf. I inngangi að bessum 10 dálka langhundi sínum tekur Einar það fram. að hann k:ppir sér hreint ekki upp við árásir „kommúnista” — .,hað eru frekar meðmæli með heiðarlegum! mönnum” að hnns srjgn. En bótt undarlegt megi virðast, þá er Einar sí og æ að tönnlast á skrifum Þjóðvilians um eitt .og annað sém við kemur þessum málum. Kannski skrifar Einar nýja grein um þessa stöðugu kippi sípa, þótt harm annars ,,kippi sér ekki upp“ við neina smá- muni, ■ Lýst kostum „frjálsrar sam- keppni“ í Ekki getur það heldur talizt mikið uppörvandi fyrir for- mælendur hinnar „frjálsu samkeppni” að lesa grein Ein- ars ríka. Þessu fyrirbæri lýs- ir Einar r*.a. svo: ..Skefjalaus samkeppni innbyrðis hjá ein- hverri þjóð getur vart annað en rýrt þjóðartekjurnar”. Um sölu saltsíldarinnar, áður en síldarútvegsnefnd, tók til starfa segir Einar: „Þar var hin frjálsa samkeppni búirf að koma öllu í kaldakol . . jafnvel .hálffrjálst’ fyrirkomu- lag á sölu skreiðar lítur þann- ig út í augum Einars: ,.En betta hálffrjálsa fyrirkomulag hefur valdið truflunum á rpörkuðunum, bæði of miklu framboði í einu, sem hefur stofnað þeim í hættu (Italíu) og valdið jafnvel tjóni til frambúðar og orsakað verð- lækkanir”. Þó er ekkert jafn- mikið eitur í beinum E'nars Sigurðssonar og .afskipti ríkis- 'ns af þessum málum; það frelsi serp hann þráir er sams konar og það sem hann skammtar Sölumiðstöð hrað- fryst'húsanna í skiptum henn- ar við skipafélögin. — Skafti. »

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.