Þjóðviljinn - 29.07.1964, Side 4

Þjóðviljinn - 29.07.1964, Side 4
4 SIÐA --------------------------- Otgefandi: • Sameiningarflokktir alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurðnr Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason. Préttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl- 90,Ö0 á mánuði. / Pólland t pólverjar fögnuðu nýlega tvítug'asta frelsisd^gi sínum, og hafa íhaldsblöðin sýnt þá einstæðu smekkvísi að nota frelsun Póllands undan oki nazismans til fáheyrðra sögufalsana og árása á ríkisstjórn Póllands, sem þó er viðurkennd af ís- lenzku ríkisstjórninni sem hin eina löglega stjórn landsins. Þessari aðför er stjórnað af Davíð Ólafs- syni fiskimálastjóra og á hún efalaust traustan sögulegan bakgrunn í pólitískum ferli hans. Sá ferill skal ekki rifjaður upp hér, en það nægir að geta þess, að Davíð Ólafsson er enn náinn sálufé- lagi þeirra stjórnmálaleiðtoga í Vestur-Þýzka- landi, sem ekki viðurkenna núverandi landamæri Póllands og telur Þjóðverja eiga kröfu til mikilla landsvæða í hinu nýja Póllandi. Vafalaust er það sú „frelsisbárátta", sem Vísir segir í leiðara sín- um í fyrradag, að „bíði síns tíma“. Má vera, að Davíð Ólafsson og sálufélagar hans telji sig sjá hilla undir þá fr^lsun, eftir að repúblikanar í Bandaríkjunum útnefndu forsetaefni sitt. En slfk „frelsun“ kynni að leysa bæði hann og aðra und- an öllum frekari áhyggjum af landamærum yfir- leitt. Reiði íhaldsblaðanna yfir frelsun Póllands ekki aðeins undan oki nazismans heldur einnig undan oki auðvalds og gósseigenda, ségir betur en allt annað að Pólland er á réttri leið. Jafnrétti ^töðugar róstur og kynþáttaóeirðir í ýmsum borg- um Bandaríkjanna undanfarna daga hafa vak- ið ugg manna víða um heim. Með öll hin geysi- öflugu áróðurstæki nútímans í höndum sér, hef- ur bandarísku afturhaldi tekizt að fá þorra hvítra manna þar í landi til fylgis við beina og óbeina kynþáttakúgun, og er útmefning Goldwaters sem forsetaefnis repúblikana gleggsta dæmið um styrkleika þessara afla. Opinberlega hafa banda- rísk stjórnarvöld þó reynt að halda uppi heiðri lands síns og viðleitni núverandi valdhafa Banda- ríkjanna til að tryggja svertingjum raunverulegt jafnrétti er mjög lofsverð. Þeim mun undarlegra er það, að Bandaríkjastjórn hefur ekki á neinn hátt viljað styðja mannréttindabaráttu blökku- manna í Suður-Afríku; þrátt fyrir ítrekaðar á- skoranir hafa Bandaríkin, Bretland og Frakkland neitað að setja viðskiptabann á vörur frá S-Afríku, en ekki er vafi á að slíkar ráðstafanir mundu skjótlega bera árangur. Suður-Afríka er eina rík- ið í heiminum, þar sem kynþáttakúgun er lög- fest stefna valdhafamna. Það er því siðferðileg skylda hverrar ríkisstjórnar og sérhvers borgara, sem vill halda í heiðri einföldustu mannréttindi, og leggja fram sinn skerf í baráttunni gegn þeirri stefnu. Leiðtogar Afríkuríkja hafa nýlega ítrekað áskorun sína -um viðskipfabann á Suður-Afríku Það er smá^-’^^ttur á íslenzku þjóðinni, að það sem af er þess i ri hafa viðskipti okkar við Suður- Afríku ’eS' -’-’nzf. Hér ber ríkisstjórminni að grípa í tauma^? begar í stað; afskiptaleysi á þessu sviði jafngildir því að lýsa y’fír fylgi við o'fbeldi og kynþáttakúgun vakihafanna í Suður-Afríku b. ÞIÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. julí 1964 Norræna bændasambandið heldur aðalfund í Reykjavík □ í gær hófst í Bænda- höllinni í Reykjavík aðal- fuhdur norræna bænda- sambandsins, NBC (Nord- ens Bondeorganisationers Centralrád). Veröur fundi þeásum fram haldið í dag, en hann sækja um 85 full- trúar frá Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð. Auk þess eru konur nokk- urra erlendu fulltrúanna með í förinni, þannig að hinir erlendu gestir verða um 100 talsins. íslenzku fulltrúamir eru um 26 talsins, en þeir eru stjóm-^ ir Búnaðarfél. fslands og Stéttarsambands bænda, Framleiðsluráð landbún- aðarins, forystumenn hinna ýmsu sölufélaga og nokkrir fleiri. gáfp tímaritsins Nordisk Land- ökonomisk Tidsskrift o.fl. Fundinum sjálfum lýkur svo þennan dag. Um hádegisleytið þiggja fundarmenn hádegis- verðarboð hjá Mjólkursamsöl- unni, en um kvöldið býður Ingólfur Jónsson landbúnaðar- ráðherra til kvöldverðar að Hótel Sögu. Næsta dag verður farið í ferðalag um Suðurlandsundir- lendið. Viðkomustaðir verða Hveragerði. Selfoss, Laugar- dælir, Hreppshólar, Gullfoss. Aratunga og Skálholt. í Hvera- gerði verður ullarþvottarstöð S.I.S. skoðuð og á Selfossi og Laugardælum verður skoðað Flóabúið og tilraunastöðin. Samband ísl. Samvinnufélaga býður til hádegisverðar í Sel- fossbíó. í Aratungu verður drukkið kaffi og sjá konur í' Biskupstungum um þær veit- ingar. 1 Skálholtskirkju flytur sóknarpresturinn bæn og sálm- ar verða sungnir. Verður athöfnin í Skálholti einskonar lokastund, því flest- ir hinna erlendu gesta fara ut- an næsta dag. Þó verða nokkr- 1 ir þeirra eftir og taka þátt i fundi landbúnaðarráðherra Norðurlandanna sem halda á hér laugardaginn 1. ágúst. Búnaðarfélag Islands og Stéttarsambandið gekk í sam- bandið 1950, en Búnaðarfélag- ð 1959.' Stjóm Islandsdeildar NBC skipa: Sveinn Tryggva- I son, formaður, Þorsteinn- Sig- 1 urðsson, form. Búnaðarfélags Islands, Ölafur E. Stefánsson, settur búnaðarmálastjóri, Gunnar Guðbjartsson, forrru Stéttarsambands bænda og Sæmundur Friðriksson, fram- kvæmdastjóri. Aðalritari deild- arinnar er Agnar Guðnason, ráðunautur. Afmæfísvísa Fögur snót frá fögrum bæ fagnar tlegi sinum. Bóttir Haralds, sonar sæ; sómi er að Stínum. Halibjörn. 132 íslenzkir skátar til Osló, tveir minni hópar til Englands og USA □ Forseti norræna bænda- sambandsins. þetta árið er Sveinn Tryggvason fram- kvæmdastjóri Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins og stjómar hann fundinum, en aðalritari sambandsins er Agnar Guðnason ráðu- nautur. > Fundurinn hófst sem fyrr segir kl. 9.30 í gærmorgun og stóð allan þann dag til kl. 5 með matarhléi milli 12 og 2. Helztu dagskrárliðir í gær voru: Setningarræða forseta NBC. Erindi um íslenzkan land- búnað, sem Hjalti Gestsson, ráðunautur flutti. Skýrsla stjómarinnar um starfsemma á sl. ári flutt af Agnari Guðnasyni. Aðalmál fundarins í gær voru samt skýrslur sölufélag- anna um samstarfið á árinu og urðu um það mál að veniu miklar umræður. Þessu til skýringar skal þess getið að t.d. mjólkuriðnaðurinn á Norð- urlöndum hefur mjög ná:ð samband sín á' milli um sölu mjólfcurafurða til annarra landa. Það sama er að segja um sláturhúsin o.s.frv. Það er um þetta samstarf sem aðal- lega er rætt undir þessum dagskrárlið. 1 Annað aðalmál fundarins f gær var erindi sem finnski rílcisdagsmaðurinn Lindh flutti um fjárhagsástand í landbún- aði Norðurlanda. Var þetta er- indi samið af prófessor Niels Westermarck, sem einnig er finnskur. Hefur Westermarck flutt slík yfirlitserindi á öll- um aðalfundum NBC og eru þau hin fróðlegustu, enda verða ávallt um þau miklar umræður á fundunum. Um hádegisleytið í gær þáðu fulltrúarnir og konur þeirra hádegisverðarboð hjá Sláturfé- lagi Suðurlands, en um kvöld- ið bauð íslenzka deildin í NBC til kyöldverðar að Hótel Sögu 1 dag, miðvikudag, stendur yfir fundur frá því kl. 9.30 til kl. 17.30. Aðalmál þess fundar verður yfirlit, sem Dan- inn Nils Kjærgaard flytur um stefnur í verzlunarmálum land- búnaðarins. Þá flytur prófess- or K. F. Svárdström, frá Sví- bjóð, erindi um samstarf Norð- urlandanna á sviði verzlunar með landbúnaðarvörur. Hafa bessi mál mikið verið rædd á undanförnum aðalfundum og verður nú reynt að samræma sjónarmiðin, e*tir því sem unnt er. Þennan dag verða einnig rædd ýms smærri mál, sem snerta sjálft sambandið s.s. ráðstöfun á styrkjum úr hin- um svokallaða NBC-sjóði, út- Á mánudag og í gær héldu 132 íslenzkir skátar til Noregs. Hópurinn fer með flugvéi til 0«ló og dvelst þar í nokkra daga og skoðar borgina. Mót- taka verður fyrir þá í ráðhúsi Oslóborgar og einnig munu þeir halda lslandskvöld fyrir norska skáta. Að lokinni dvöl í Osló skilj- ast leiðir Piltarnir, sem eru 91 og undir forystu þeirra Guð- mundar Ástráðssonar og Birg- is Þórðarsonar munu halda rakleitt norður til BoVld og taka þar þátt i landsmóti norskra drengjaskáta, ásamt 7—8000 öðrum piltum. Þetta mót er hið fyrsta. sem haldið er norðan heimskautsbaugs og er dagskrá þess hin fjölbreytt- asta. Stúlkurnar, sem eru 37 og undir stjórn frú Hrefnu Tyn- es og Sigrúnar Sigurgestsdótt- ur munu hins vegar ferðast þvert yfir Noreg og síðan víða um vesturströndina. Tilgangur ferðar þessarar er tvíþættur, annars vegar að kynnast landi forfeðranna og hins vegar að endurgjalda heimSókn norskra skáta hing- að til lands árið 1962, en þá héldu íslenzkir skátar 50 ára afmæli sitt hátfðlegt með landsmóti á Þingvöllum. Þátttakendur eru frá 13 ára upp, undir 60 ára aldur og mjög víða af landinu. Þetta er stærsti b skátahópurina sem halr’ o . út fyrir land- steinana. Hópurmn mún fljúga heim frá Þi’ándheimi hinn 17. ágúst. Auk Noregsfaranna eru fleiri íslenzkir skátar á útleið eða þegar farnir. 10 manna hópur undir stjórn Grétars Marínós- sonar er á förum til Englands til að taka þátt í skátamóti í Devon, 7 manna hópur er í Bandaríkjunum í boði þar- lendra drengjaskáta. Forystu- maður þeirra er Arnfinnur Jónsson. Og í alþjóðaskála kvenskáta í Sviss eru staddár tvær íslenzkar skótastúlkur í boði erlendra kvenskáta. A garðbrotí Þrándar í Götu I dag, 29. júlí, er Ölafs- vökudagur, þjóðhátíð Fær- eyinga. Af því tilefni flytur Rfkisútvarpið í kvöld sér- staka 50 mínútna dagskrá, sem byggð er á færeyskum sðgnum, kvæðum og þjóðsög- um. ☆ ☆ ☆ Stefán Jónsson fréttamað- ur tók þessa Ölafsvökudag- skrá saman og naut við það starf aðstoðar Pouls Kar- bech-Mouritzens ritstjóra frá Thórshavu. Stefán var í hópi nokkurra íslenzkra blaða- manna sem Flugfélag Islands bauð til Færeyja í lok maí- mánaðar síðastliðinn og við- aði þá að sér efni í kvöld- dagskrá, ráeddi við allmarga Færeyinga og fékk að Iáni hjá færeyska útvarpinu upp- tökur á þjóðkvæðum og dans- Iögum. Sncmma í þessum mánuði kom Karbech-Mour- itzen híngað til Reykjavíkur og aðstoðaði Stefán við frá- iang á útvarpsþættinum. Potd Karbech er ritstjóri blaðsin' síosialurinn í Thórshavr málgagns sósíaldemókrata * Færeyjum, og hefur látið að sér kveða á sviði féiagsmála og þjóðmála þar á eyjunum. — Myndin hér fyrir ofan var tekin í Færeyjum í maí sl. Stefán Jónsson fréttamað- ur hefur haft hljóðnemann með sér til Austurcyjar. Þeir sitja þarna saman á garðbroti í Norður-Götu, einmitt á beim stað sem sá frægi Þrándur í Götu á að hafa búið, og spjalla saman Stef- án lengst til vinstri, Lías í Rættará, einn af cldri kyn- slóðinni í Götu,' og Poul Kar- bech-Mouritzen ritstjóri. — (Ljósm. Sveinn Sæmundsson).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.