Þjóðviljinn - 01.08.1964, Page 3
Laugardagur ágúst 1964
HÖÐVILIINN
SÍÐA 3
iRER cewtnq afric,
SUD4N.
feQUATOREW
•Coquiljialville, \
St'anreyville'
COIMGO
IIIÍeopoirnittJ KASAi A KWU
LEOPOIDVIULE j ýjkabqnia
ílbertviíle
Bakwani
Kamina
AMGOLA
Eíisabeli.* -ípÖ
RHOOEStA dal NORO
BANDARÍSKT GEIMFAR RANGER 7
TÖK NÆRMYNDIR AF TUNGLINU
PASADENA 31/7 — Eftir sex ára tilraunir hefur banda-
rískum vísindamönnum nú tekizt að ná nærmyndum af
tunglinu. Geimfarið Ranger 7. lenti þar í dag, og höfðu öll
tæki þess unnið nákvæmlega eftir áætlun. Mikill fögnuð-
ur ríkir með þennan ágæta árangur, enda hafa fjölmargar
fyrri tilraunir misheppnast. Reiknað er með að tilraunin
hafi kostað sem svarar tæpum 9 miljörðum íslenzkra
króna.
PASADENA 31/7 — Bandaríska
geimfarið Ranger 7. lenti í svo-
nefndu ský.jahafi á björtu hlið
tunglsins kl. 14.25 í dag (ísl.
tími). Allt gekk samkvæmt á-
ætlun: Síðustu rúmar 16 mínút-
urnar sendi geimfarið óslitinn
straum mynda til jarðar, sex
myndavélar voru í gangi og sam-
tals tóku pær um 4000 myndir,
Grikkir o; Tyrkir
efla heri sína
AÞENU 31/7 — í dag kallaði
landvamaráðherra Grikkja ný-
liðana 1964 —1965 til herþjón-
ustu tveim mánuðum fyrr en
vanalegt er. Landvarnaráðherr-
ann segir, að það sé eingöngu
af tæknilegum ástæðum, en
standi ekki í neinu sambandi við
Kýpur-deiluna.
f Istanbul var tilkynnt í dag,
að tyrkneskar flotaeiningar
hefðu hafið heræfingar fyrir
ströndum Suðaustwr-Tyrklands.
Orustuþotur munu einnig taka
þátt í heræfingunum og landher-
inn býr sig sömuleiðis til æfinga.
Heræfingamar eiga að standa
til 16. ágúst.
þær síðustu úr tæplega 600 m.
fjarlægð frá yfirborði tunglsins.
Þar með höfðu menn í hönd-
um fyrstu nærmyndir þess, sem
trúlega verður fyrsti áfanga-
staður manna í sigurför þeirra
um himingeiminn.
Haft er eftir bandarískum vís-
indamönnum, að öll tæki hafi
unnið eins og til var ætlazt og
séu myndgæðin frábær óg verði
þær birtar seinnihluta laugar-
dags.
f Patrick-flugstöðinni við
Kennedyhöfða, þaðan sem geim-
farinu var skotið á loft á þriðju-
dagskvöldið var skýrt frá því.
að geimfarið hefði vegið 365 kg..
og farið með 8000 km. hraða á
klukkustund, þegar það rakst
á tunglið.
f 2.100 km fjarlægð frá mark-
inu fór geimfarið að senda
myndir og hefur Harri Schm-
meier yfirmaður rannsóknar-
stöðvarinnar í Pasadena skýrt
frá því að myndir, sem hafa
verið framkallaðar til reynslu
sýni að þær hafi heppnast ó-
venjuvel. „Ég býst við að hægt
verði að greina hluti, sem eru á
stærð við bifreið, ef myndimar
takast eins og lítur út fyrir”.
sagði hann.
Fjöldi manns fylgdist með
geimfarinu síðasta spölin í stór-
um stjörnukíki, og útvarpað var
frá rannsóknarstöðinni í Pasa-
dena, þar sem tekið var við
merkjum frá geimfarinu.
Þar sátu 150 vísindamenn og
verkfræðingar grafkyrrir er
stundin nálgaðist, þegar skyndi-
lega gaus upp hvitt ský á tungl-
inu og sendistöðin i Ranger 7.
þagnaði stukku vísindamennirn-
Rúmenar semja
við Frakkland
PARfS 31/7 — Frakkland og.
Rúmenía hafa orðið sammála i
um að auka viðskipti sin og
ætla að hefja samninga um nýj-
an verzlunarsamning.
Frá þessu var skýrt í sameig-
inlegri yfirlýsingu, sem gefin
var út að lokinni opinberri
heimsókn rúmenska forsætisráð-
herrans Maurers í París í dag.
f yfirlýsingunni var einnig
skýrt frá því að þessir aðilar
hefðu í dag skrifað undir samn-
ing um samstarf á sviði tækni
og vísinda. enn fremur muni
löndin hefja samninga um skipti
á ræðismönnum í haust svo og
samninga um menningarskipti.
Annars telja fréttamenn mik-
ilvægasta árangur af heimsókn
Maurers vera á stjórnmálasvið-
inu. Þeir eru sammála um að
þetta beina samband milli al-
þýðulýðveldis og vestræns ríkis
-sé til fyrirmyndar.
ir á fætur, hrópuðu og döns-
uðu.
Bandarískir vísindamenn hafa
í sex ár unnið að tilraunum til
að ná nærmyndum af tunglinu.
Kostnaður við þessa síðustu og
árangursríku tilrauna er u.þ.b.
200 miljónir dollara þ.e. tæplega
9 miljarðar íslenzkra króna.
Ranger 7. er fjórði hluturinn
frá jörðu, sem kemst til tungls-
ins.
Fyrsta geimfarið sem lenti
þar, var sovézka farið Lunik II.,
sem lenti á tunglinu 14. des-
ember 1959.
Johnson forseti lýsti því yfir
í dag, að geimskotið væri skín-
andi afrek og langt skref í átt
til mannaferða til mánans.
Svörtu örvamar á kortinu sýna hvar uppreisnarmenn í Kongó
sækja mest á.
Búizt við nýjum sigrum
uppreisnarmanna í Kongo
Fullvíst að bjarga megi
námumönnunum innilokuðu
CHAMPAGNOLE 31/7 — Björgunarmennirnir, sem vinna
allt hvað af tekur að því að bjarga námumönnunum, sem
eru lokaðir niðri í kalksteinsnámu í Chamagnole í Aust-
ur-Frakklandi lýstu því yfir í dag, að þeir væru næStum
fullvissir að einn eða fleiri námuverkamenn séu á lífi
í 30—40 metra fjarlægð frá hinum níu, sem sambaiid hef-
ur verið haft við í marga daga.
Jafnframt var sagt frá því, að
hinir níu væru hinir hressustu,
þó þeim finnist eðlilega þiðtím-
inn langur. 1 dag var vínflasica
send niður til þeirra með þeim
matvælum, sem þeir eru vanir
að fá í gegnum rörið, sem er
eini tengiliður þeirra við um-
heiminn. Það voru 14 námu-
verkamenn sem lokuðust niður i
námunni er steinhrun varð í
henni fyrir nokkrum dögum.
Níu verkamenn fundust fljótt og
hægt var að bora gat niður til
þeirra, koma þar fyrir röri og í
gegnum það síðan haft síma-
samband við þá og matvæli send
þeim.
1 morgun heyrðu björgunar-
mennirnir ný högg úr öðrum
stað og þá vaknaði von um að
fleiri kynnu enn að vera á lífi
Franskur sérfræðingur í björg-
unarmálum, sem tók þátt í
i björgunarstarfinu í Skoplje í
Júgóslavíu eftir jarðskjálftana
þar f fyrra, sagði að fullvist
væri að högg þessi bærust frá
lifandi mönnum.
Hingað til höfðu menn óttast
að þrír hinna fjórtán hefðu
farizt í hruninu á mánudag.
Námumennirnir níu fengu aft-
ur í dag að tala við eiginkonur
sínar og systur. Björgunarsveit-
írnar höfðu gefið konunum fyr-
irmæli um að láta sem þær
væru glaðar og bjartsýnar, en
niargar þeirra brustu í grút og
urðu menn þeirra neðanjarðar
að hughreysta þær. Til þess að
andleg áreynsla verði ekki allt-
of mikil fá þær ekki að tala
við mennina nema einu sinni á
dag
Björgunarsveitimar hafa nú
fengið lánaða nýja bandaríska
bori frá stóru olíufélagi og eru
þessir borar þrisvar til fjórum
sinnum fljótvirkari en þeir, sem
hingað til hafa verið í notkun.
Þar að auki bora þeir strax 80
cm. breiða holu, en það nægir
til bess að hægt verði að senda
björgunarhylkin niður. Gömlu
borarnir boruðu mjórri holu,
sem síðan þurfti að víkka.
Annar nýju boranna var
strax settur upp yfir þeim hluta
kalknámunnar, þar sem hinir
níu hýrast, en hinn þar yfir
sem nýju barsmíðarnar heyrð-
ust. Áætlað var að byrja að
bora með þeim í kvöld eða að-
faranótt laugardags.
Námuverkamennirnir níu, sem
dúsa 68 metrum undir yfirborði
jarðar hafa nú samið sig að
sömu matmáls- og hvíldartím-
um sem þeir voru vanir í venju-
legu lífi sínu. Þeir eru vel
haldnir. kvarta aðeins um kulda,
enda ekki nema 12 gráðu hiti í
námunni þeirra.
LEOPOLDVILLE 31/7 — Her-
menn ríkisstjórnar Kongó náðu
aftur á sitt vald í gær bænum
Bolobo, án nokkurra vopnavið-
skipta. Þeir eru nú teknir til
við leit að hóp brezkra og kana-
dískra trúboða, sem er saknað í
Bolobo-héraði.
Bolobo er u.þ.b. 280 km norð-
austur af Leopoldville, nærri
landamærum fyrrverandi franska
Kongó, og hertóku uppreisnar-
menn hann á iaugardag. Þeir
héldu bænum áðeins ví nokkra
daga, þar til þeir héldu áfram
sókn sinni í átt til höfuðstaðar-
ins. Þegar hcrsveitir stjórnar-
innar komu til bæjarins í gær
var þar engan uppreisnarmann
að finna.
Moise Tsjombe forsætisráð-
herra sendi hersveitunum, sem
tóku bæinn heillaóskir sínar í
dag og þakkaði jafnframt íbúum
bæjarins fyrir afstöðu þeirra til
framsóknar uppreisnarmanna.
Það er brezka sendiráðið í
Leöpoldville, sem hefur beðið
Kóngóher að leita að hinum
horfnu trúboðum. Það eru sex
brezkir trúboðar og einn kanad-
ískur, sem er með fjögurra
manna fjölskyldu, sem er sakn-
að.
Ekki er búizt við að þeir séu
í neinni hættu, þar sem hingað
til hafa ekki borizt neinar frétt-
ir af árásum á hvíta menn í
framsókn uppreisnarmanna í
þessu héraði.
Adouard Bulundwe fulltr. rík-
isstj. Kongó í Katanga skýrði frá
því í dag, að hann hefði beðið
Tsjombe forsætisráðherra um
leyfi til að leggja strax til at-
lögu við uppreisnarmenn í Kat-
anga án þess að sækja áður um
leyfi frá ríkisstjóminni í Leo-
poldville.
Jafnframt er sagt frá því í El-
isabethville að herstöðin við
Kamina yrði liklega yfirgefin,
en uppreisnarherinn sækir að
henni.
Á laugardag á flugvéi að fara
þangað og sækja u.þ.b. 200 ó-
breytta borgara.
é>-
Reynt að draga úr
viðsjám í N-York
NEW YORK 31/7 — Prestur-
inn Martin Luther King, sem er
einn helzti leiðtogi blökkumanna
í Bandaríkjunum gagnrýndi
Murphy lögreglustjóra í New
York harðlega í gær og kvað
hann mjög skilningssljóan á
kröfur og vonir þeldökkra íbúa
borgarinnar.
Hann sagði þetta eftir þriðja
fund sinn með Wagner borgar-
stjóra New York nú á nokkrum
dögum. þar sem þeir ræddu um
leiðir til þess að draga úr við-
sjám milli kynþátta í borginni.
Murphy er sagður mótfallinn
kröfum blökkumanna um að
borgaranefnd verði skipuð til að
rannsaka staðhæfingar um, að
lögreglan hafi sýnt ruddaskap í
viðureign sinni við blökkumenn.
Hann hefur einnig vísað frá
kröfunni um að hvíta lögreglu-
þjóninum, sem skaut blökkupilt-
inn í Harlem, verði tafarlaust
vikið úr starfi. Það var sá at-
burður, sem leiddi til hinna
ofsafengnu kynþáttaóeirða í
borginni.
Dropi í hafið
41 prestur lögðu í gær fram
atvinnubótaáætlun fyrir unga
atvinnulausa blökkumenn í Har-
lem og Bedford-Stuyvesant
hverfi í Brooklyn í New York.
Samkvæmt áætluninni á að
greiða 600 blökkur piltum og
stúlkum hálfan annan dollara
á tímann í hreingerningavinnu
í kirkjum og á leikvöllum.
Þar að auki á að senda 100
unga blökkumenn upp í sveit til
að þeir komizt úr andrúmslofti
eymdar og innilokunar í heim-
kynnum sínum.
Þegúr hafa 100.000 dollarar
verið lagðir fram í þessu skyni
og ýmsir söfnuðir ætla að leggja
fram 150.000 dollara í viðbót.
Hafnarfjörður
Dag og nótt er björgunarstarfinu haldið áfram í Champagnole í Frakklandi, þar sem fjórtán verka-
menn lcntu í ná mustysj á mánudag.
Framhald af 1. síðu.
lsegri upphæð en áður. Jafn-
framt þessu hefur orðið sú
breyting að lítið sem ekkert er
um framkvæmdir í bænum.
Helztu framkvæmdir sem bæj-
arbúar hefðu orðið varir við
að undanförnu væru þær að
bæjarstjórn lét moka rauðamöl
frá hafnarbakkanum vestur við
Svendfeorg og víðar, mölimi
hefði síðan skolað inn undir
bryggjuna og þyrfti nú að fara
að moka henni upp aftur. Ekki
hefði verið malbikaður einn
götuspotti eða ráðizt í aðrar
framkvæmdir að talizt gæti.
Það væii því eðlilegt að
almenningur spyrði: Hvað verð-
ur af öllu því fé sem bærinn
hrifsar af okkur í sívaxandi
mæli? Þar við bættist að bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar vaeri hin
eina í landinu sem ekki gæfi
m innihlu tamim kost á að fá
kosinn endurskoðanda reikn-
áwga, swo að ekfcr, er a6 fusða
þótt tortryggni vakni um með-
ferð á fénu.
Vilhjáhnur Sveinsson, baejar-
fulltrúi Framsóknar, sagði að
þessi hækkun væri eins og rot-
högg framan í almenning, eftir
þá stöðvunarstefnu sem tekin
var upp fyrir tilstilli verkalýðs-
hreyfingarinnar í vor. Væri það
af litlum heilindum unnið ef
bæjarstjórn ætlaði nú að ganga
undan með hækkanir eftir að
verkafólk hefði tekið á sig hóta-
Iaust þær verðhækkanir sem
orðið hafa að undanförnu í von
um að verðbólgan yrði stöðv-
uð. Nú standa fyrir dyrum við-
ræður við Starfmannafélag
Hafnarfjarðar, ætlaði bæjar-
stjórnin þá að samþykkja þessa
hækkun nú og segja svo við
starfsmennina á eftir að í sam-
ræmi við stöðvunarstefnuna
megi alls ekki hækka kaupið.
Það er ekki víst að þeir taki
gild. íáík vinnubrögð.