Þjóðviljinn - 01.08.1964, Síða 12
Laugardagur 1. ágúst 1964 — 29. árgangur
171. tölublað.
Þeir eru reiðir
á eyrinni
O Reiðialda g'engur nú um bæinn út af álögðum útsvörum og skött-
um frá ríki og bæ og sér nú dagsins ljós þessa dagana.
□ Er þetta í raun ein ósvífnasta árás á efnahag fólks og verður
lengi í minnum höfð. Þjóðviljinn hefur átt viðtöl við fimm .verkamenn
á eyrinni og er fróðlegt að kynnast sjónarmiðum þeirra.
EINAR
^ — til helvítis með allt caman
til helvítis
Þeir eru ekki blíðir á
manninn hjá Togaraafgreiðsl-
unni þessa dagana út af
sköttum og útsvörum og er
varla ofsagt. að þeir séu ras-
andi og reiðir út í allt og
alla.
Þetta er langur og erfiður
vinnutími hjá þeim og vinnu-
launin eru ekki tekin út með
sitjandi sældinni. Hafa þeir
yfirieitt unnið áttatíu tíma í
viku við lestun og losun á
togurunum hér höfninni.
Þetta þjóðfélag má fara til
andskotans fyrir mér, sagði
Einar Guðbjartsson úr Klepps-
holtinu. Þeir sem vinna að
framleiðslustörfunum eru
þrautpíndir áfram og bera
meginbyrðarnar. Hvað væri
sjálfsagðara heldur en sleppa
álaginu á næturvinnuna.
Ég þarf að borga um átta
þúsund krónur á mánuði
fram til áramóta í opinber
gjöld og bætist þetta ofan á
beinharðar greiðslur í allar
áttir í dýrtíðinni. Við höfum
að vísu einn vinnufélaga hér
sem greiðir tuttugu og átta
þúsund krónur í opinber
gjöld, en hann er tólf barna
faðir og verður aldeilis að
halda á sínu. Við hinir erum
þetta með fjörutíu til fimm-
tíu þúsund krónur. Það er
hegningin fyrir hinn langa
vinnutíma. Ég er búinn að
púla þetta í fimmtíu ár og
nú ætla ég að hætta. Þetta
má fara til andskotans fyrir
mér . . .
ÓLI
— hálf miljón á sjötugsaf-
mælinu
glæpurinn mesti
Það er orðinn glæpur í
þjóðfélaginu að vinna of mik-
ið, enda er refsingin eftir því.
Svona er nú hljóðið í þeim
á viðgerðarverkstæðinu hjá
Eimskip niður við höfn.
Þetta er óhagkvæmur glæp-
ur, — verst að geta ekki set-
ið hann af sér í tugthúsinu.
Það gera fjármálamennimir
og er ekki að sökum að
spyrja, hvemig þeim er æv-
inlfega hossað. Alltaf hafa þeir
lag á því að láta okkur borga
brúsann, — fá þarna ókeyp-
is húsavist og fæði, — þetta
kalla ég að verðlauna glæpa-
inn. sagði Valtýr Nikulásson,
Hann á heima í Söriaskjól-
inu.
Þeir sem vinna of miþíð fá
hörðustu refsinguna. Þeir
eiga ekki fyrir mat og húsa-
skjóli. Við unnum fjörutíu
sunnudaga á síðastliðnu ári,
— mig minnir, það séu fimm-
tíu og tveir í árinu, — og
ekki stendur á refsingunni
þessa daga. Þetta er fjörutíu
til sjötíu þús-und á hvem
einstakling hér á verkstæðinu
og erum við ófaglærðir
verkamenn. Einn er að vísu
nýbyrjaöur með tuttugu þús-
und. Hann var líka svo hepp-
inn, að skrifstofan hjá fyrri
vinnuveitanda brann með
öllum skjölunum. Hvílíkur
lukkunnar panfíll.
Þeir éru að ta-la um að
hætta að vinna næturvinnu
hér við höfnina, — ég skil
ekki það sé hægt, — við erum
í vitahring og sleppum ekki
þaðan, ef við viljum viðhalda
lífinu.
Þetta er ekki hægt . . •
hirða húseignirnar
Hann er hafnarverkamaður
og var að' vinna um borð í
GullfoSsi. — heitir Magnús
Guðmundsson til heimilis að
Ásgarði 43 hér í bæ.
Fjörutíu og þrjú þúsund,
karl minn, — beint í hausinn.
Og maður kemst ekki upp
með neitt múður. Ég hef
með æmu erfiði komist yfir
húskofa og á eignarhlut í
bifreið. Þetta missir maður
allt saman og meira til, ef
maður stendur ekki í skilum.
Það hlakkar í mörgum fjár-
málamanninum um þepsar
mundir og eiga þeir áreiðan-
lega eftir að vokra yfir mörg-
um húskofanum hér í bæ á
næstunni og það eru einmitt
mennirnir, sem sleppa oft-
ast við svona gjöld.
Nei, — þetta er alveg
makalaust.
Og þetta bætist ofan á
dýrtíðarölduna á síðastliðnu
ári. Ég hitti kunningja minn
í morgun, sem þarf að borga
þrjú hundruð og tuttugu
krónur á mánuði með laun-
um sínum til þess að standa
í skilum til áramóta.
Það er hægt að búa til svo-
leiðis efnahagslegan ramma
kringum hvem einstakling,
að hann gefist hreinlega upp
og líti á það sem tilgangs-
laust að puða svona allt ár-
ið um kring.
Þetta kemur einna harðast
niður á fólki, s,em vinnur
heiðarlegustu störfin eins og
að framleiðslunni. Hinsvegar
er ömurlegt að horfa upp á
fjöldan allan af svokölluð-
um fjármálamönnum og bis-
nesmönnum, sem sleppa við
sjálfsagðar byrðar sínar.
Það er óréttlætið í niður-
jöfnun opinberra gjalda sem
VALTÝR
— fjörutíu sunnudagar
svíður líka undan. Það er
líklega mesta svívirðan . . .
á uppleið
Hann vinnur á smumings-
verkstæði hjá Eimskip niður
við höfn og lá hann undir
einum vörubílnum og var
tæpast í kallfæri þá stund-
ina.
Hann heitir Óli Matthíasson
til heimilis að Miklubraut 42
hér í bæ og er séxtíu og sex
ára gamall, — ættaður úr
Dalasýslu og sjómaður fram-
an af árum, — hefur unnið
við höfnina síðastiiðin átta
ár.
Finnst þér skattamir háir
í ár, spurði ég hann, — kall-
aði þetta undir bílinn til
hans. Hvorki heyrðist stuna
né hósti fyrst í stað. Svo
byrjaði hann að tala eins og
við sjálfan sig.
Skattamir háir, — skatt-
amir lágir, — hvar stöndum
við. Mér finnst ,þeir háir. —
þetta eru víst sjötíu og tvö
þúsund með öllu saman.
Hvað ætlarðu að gera?
Ja, — hvað getur mað-ur
gert. Þeir heirnta þetta á
borðið fyrir áramót. Nú mað-
ur verður víst að rölta með
tíu þúsund í mánuði handa
þeim, — ég er hinsvegar ekki
búinn að gera mér grein fyr-
ir, hvernig það er hægt, —
þarf að athuga málið betur.
Ætli maður verði, ekki að
stíga í botn næstu mánuði og
vinna dag og nótt, — ég er
að vísu orðinn gamall mað-
ur. — þetta hefði ekki ver'ð
neitt á yngri árum. En svo
tekur við nýr sprettur vegna
hærri gjalda næsta ár og svo
koll af kolli, — maður verð-
ur kominn þetta í hálfa milj-
ón á sjötugsafmælinu . . .
hvíldin eina
Hún er búin að hanga of
lengi við völd þessi borgar-
stjóm, — orðin of örugg um
sig og er nú farin að fram-
kvæma óhæfuverk.
Svona er að láta einn flokk
stjóma þessu of lengi, —
þeir þurfa að fara að fá
hvíld na, sagði Konráð Matth-
íasson.
Hann er lagermaður á við-
gerðarverkstæðinu hjá Eim-
skip og hefur unnið félaginu'
í tuttugu og sex ár.
Ég kann ekki annað ráð
gegn þessari ósvlnnu en
skipta um valdhafa og reyna
nýja menn til þess að stjórna
þessum málum.
Nú þari maður að labba
með tíu þúsund á mánuði
til þeirra. Ég fékk í hausinn
sextíu og þrjú þúsund. Þetta
var nógu erfitt í þessari dýr-
tíðarholskeflu á síðastliðnu
ári, — maður leiddist út i
lengri vinnutíma til þess að
fæta þeim ósköpum. — svo
kemur þetta eins og þruma
úr heiðskíru lofti, — þeir
taka af manni þriðju hverja
krónu í opinber gjöld.
Þetta er orðið vonlaust og
þegar voninni sleppir — þá
leggur maður upp laupana,
— það er kannski ódýr lausn
fyrir þá.
En helvíti er þetta skitinn
endir ... \
konrAð
i— of lengi við völd
mjög reiðir
\
Tímarit Máls og Menningar komið út
Þórbergur vegur að
Hulldórí Luxness
...Út er komið nýtt hefti af
tímariti Máls og menningar og
merkilega fullt af góðu efni á
þessum tiðindalitlu dögum.
Sigfús Daðason skrifar giæin
um stöðu -bókmennta og lista
á tuttugu ára afrrjæli lýðveldis-
ins, Þorgeir Þorgeirsson skrifar
um kvikmyndalist og ungur
Bandaríkjamaður, Peter Carlet-
on, skrifar um ljóðaflokk Steins
Steinarrs, Tíminn og vatnið. Birt
er grein um Shakespeare eftir
ungverska bókmenntafrömuðinn
Georg Lukacs. Jóhannes úr
Kötlum og Þorsteinn frá Hamri
eiga ljóð í heftinu. Steinar Sig-
urjónsson, Ingólfur Pálmason og
Eyvindur Eiríksson sögur.
En þá er ótalin sú grein sem
flestum mun líklega mestum tíð-
indum sæta af því, sem rúmast
í þessu tímaritshefti. Þórbergur
Þórðarson skrifar grein sem
hann nefnir Rangsnúin mannúð.
Þar ræðir hann þann kafla í
Skáldatíma Halldórs Laxness
sem lýsir Erlendi í Unuhúsi, lífi
i Unuhúsi og viðhorfum Erlend-
ar til ýmissa mála, ekki sízt
stjórnmála
Er þar skemmst frá að segja,
að Þórbergi þykir Halldóri hafa
orðið meira en lítið á í mess-
unni orðið „fótaskortur á gljá-
bóni frásagnargleöinnar" eins og
hann kemst að orði. Of langt
yrði að telja upp öll þau atriði
sem Þórbergur finnur ýkjur í
eða rangfærslur. En einkum er
honum uppsigað við tvennt.
Annað er að Halldór lýsir m. a.
svo umburðarlyndi Erlendar og
húmanisma, að hann hafi svo
til á hverjum degi gefið drykkju-
mönnum fyrir brennivíni, og
ennfremur sagt sig reiðubúinn
að lána mönnum peninga fyrir
eitri til að drepa sig á ef þeir
vildu það endilega sjálfir. Þór-
bergur tilfærir ýmislegan vitn-
isburð gegn þessari lýsingu og
segir m.a.: ,,En það virðist falið
fyrir Halldóri í ryki áróðursins,
að það á ekkert skylt við sann-
an húmanisma að lána manni
peninga fyrir eitri til að drepa
sig á, né að ausa fé í róná til
þess að gera þá ennþá meiri
róna, þó að einhverjir auðvalds-
heimspekingar hafi verið með
einhverjar vangaveltur um svip-
að „frelsi“. Þetta er ekki húm-
anismi: Þetta miðar ekki í átt
til frelsis né manngöfgunar.
Þetta er afglapaskapur, sem
Halldór hefur óvart komið upp
á þann vitra mann, son Guð-
mundar heitins í apótekinu".
Hitt er, að Þórbergi finnst
Halldór draga mjög úr ákveð-
ínni samstöðu Eriendar með
málstað sésíalisma. Hann seg-
ir m.a.: „En hvernig má það
vera, að Halldór skuli festa á
pappír þau ósannindi um látinn
vin og velgerðarmann: „Ég veit
ekki nákvæmlega hver áritun
hans var í stjórnmálum ef af-
staða hans hefði verið skilgreind
út í æsar?“ Hér er aðeins tvennt
til: Annað hvort hefur Halldór
ekkert botnað í Erlendi sem
pólitísku fyrirbrigði, þrátt fyrir
langar samvistir, og þá eru ó-
sannindin að nokkru leyti af-
sakanleg, eða hann er að leitast
við að falsa pólitíska afstöðu
hans vísvitandi og þá sennilega
í því skyni að draga þennan vin-
Framhald á 9. síðu.
/
3 skip með söltun-
arsíld til Húsav.
HÚSAVIK, 31'/7 — Til Húsavík-
ur komu í gær Engey með 550
tunnur og ögri með 500 tunnur.
Síldin af þessum skipum var
fryst og söltuð. I dag kom Helgi
Flóventsson með 500 tunnur i
salt. — AK.
Tveir hitiar frá Kefiavík
í landsliðið í knattspyrnu
í gær valdi landsliðsnefnd
landslið í knattspyrnu sem á að
keppa við ,,pressulið” n.k. mið-
vikudag. Lið landsliðsnefndar er
þannig skipað talið frá mark-
manni: Heimir Guðjónsson KR,
Hreiðar Ársælsson KR. Jón
Stefánsson IBA, Sveinn Teits-
son lA, Högni Gunnlaugsson
Keflavík, Jón Leóssou ÍA, Ey-
leifur Hafsteinsson ÍA, Rík-
arður Jónsson IA, Rúnar Júlíus-
son Keflavík, Ellert Schram KR
og Karl Hermannsson Keflavík.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu hefur nefndin aðeins
gert tvær breytingar á landslið-
inu frá því það keppti við Skot-
ana um daginn. Gunnar Guð-
mannsson KR og Kári Ámason
ÍBA hafa verið settir út en í
stað þeirra koma bítlarnir tveir
fi'á Keflavík, P.únar og Karl.
<