Þjóðviljinn - 13.08.1964, Blaðsíða 6
SlÐA
MÓÐVIUINN
Fimmtudagur 13. ágúst 19M
OTG.: ÆSKULVÐSFYLKINGIN — RITSTJÖRAR: HRAFN MAGNÚSSON,
RÖGNVALDUR HANNESSON OG SVAVAR GESTSSON.
ViSfal vi& Gunnar Guftormsson, forsefa ÆF
Sambands|iing Æskulýðsfylkingar-
innar haldið í Haf narf irði 25.-27. sept
Tíðindamaður Æskulýðssíð-
unnar ræddi nýlega vift Gunn-
ar Guttormsson, forseta ÆF
og innti hann frétta af undir-
búningi 21. þings ÆF.
— Hvað skal segja. Við er-
um nýbúnir að ákveða að
þingið skuli haldið í Hafnar-
firði dagana 25.-27. september
og erum einmitt núna að senda
út þingboð til sambandsfélag-
anna.
Regluleg þing eru nú haldin
annað hvort ár og sú hefð hef-
ur skapazt að velja þingstaði
til skiptis úti á landi og hér
í nágrenni hðfuðborgarinnar
eða í henni sjálfri — við höf-
um alltai bak við eyrað þetta
með ..jafnvægið í byggð lands-
ins". — Síðasta þing var hald-
ið á Húsavík 1962. Það er víst
öllum í fersku minni móttökur
og viðurgerningur félaganna
-<S>
Frá sjónarhóli æskumannsins
SKATTARNIR
¦ Síðustu dagana hefur mikið verið rætt um hinar
svívirðilegu skattaálögur á þegna Reykjavíkurborgar-
Hver einasti launþegi kveinkar sér, en okrarinn og at-
vinnurekandinn eru glaðir á svip og hafa aldrei farið í
eins íburðarmiklar utanreisur né haldið veglegri veizlur.
\ ; '¦
¦ Annað aðalmálgagn ríkisstjórnarinnár flytuf á degi
hverjum fréttir af hinum hneykslanlegu skattaálögum
og síðast í gær skrifaði Benedikt Gröndal leikrit í einum
þætti, sem ber hei.tið ,,Fyrirtækið og forstjórinn" og fjall-
aði „listaverk" Benedikts um skattana. Hannes á Horri-
inu ræðst einnig af hörku á skattpíninguna sem félag-
ar hans og Benedikts bera höfuðsökina á.
¦ En Vísir og Morgunblaðið sitja við sinn keip. Á
hverjum degi halda þau uppi vörnum fyrir kollega sína
í stétt stórkaupmanna og annarra gróðabrallsmanna.
¦ Það er óálitlegt fyrir æskumanninn að leggja út á
lífsbrautina í því þjóðfélagi þar sem launþeginn er nið-
urníddur í hvert sinn sem skattskráin er útgefin en for-
réttindastéttir þjóðfélagsins fá sérlegar ívilnanir.
i
¦ Skattalöggjöfin þarfnast gagngerar endurskoðunar og
það er fleira sem þarf að endurskoða. Gagngerar breyt-
ingar á ríkjandi þjóðfélagskerfi eru óhjákvæmilegar.
Æskulýðsfylkingin — Samtök ungra sósíalista á íslandi —
heitir á æskufólk hvar sem er á landinu og hvar sem er
í starfsgreinum þjóðfélagsins að styðja hana í baráttunni
gegn því þjóðfélagskerfi sem stefnir að því að gera hvern
þegn að skattsvikara.
Gunnar Guttormason
þar. Við þurfum ekki að bera
kvíðboga fyrir því aö þeir í
Firðinum verði síðri heim að
sækja.
— Hvað viitu . seg.ia mér
Gunnar um verkefni þingsins? P
— Það er af nógu að taka
þar um. Tíminn. sem við ætl-
um til þinghaldsins er ekki
langur og við verðum að sníða
dagskránni stakk eftir þv£. I
tillögu þeirri að dagskrá þings-
ins, sem framkvæmdanefnd
sambandsstjórnar sendir aðild-
arfélögunum er m. a. gert ráð
fyrir umræðum um: stjórn-
málaviðhorfið. herstöðvamálið,
almenn æskulýðsmál, útgáfu-
mál sambandsins og skipulags-
mál. Ég geri ráð fyrir, að lengst-
ur tími fari í að ræða fyrstu
þrjá liðina, sem ég gat um.
Síðustu vikur og mánuði hafa
ýmsir alvarlegir atburðir gerzt
bæði hér heima og erlendis,
sem ástæða er til að steldra
við. Mér þykir t.d. ekki ó-
sennilegt, að bera muni á góma
hin nýju viðhorf. sem skapazt
hafa í herstöðvamálinu með
framboði Goldwaters.
— Segðu V mér eitthvað um
skattana. og hvernig slík mál
verða raedd á þinginu. Held-
urðu ekki að þessar síðustu á-
lögur snerti unga fólkið Hka?
— Minnztu ekki á þann
fjanda. En ég veit ekki
hvort þetta er nokkursstaðar
eins hábölvað og hér í höfuð-
staðnum. Annars er ég því
mótfallinn að rseða það atriði
út af fyrir sig. Það vandamál,
sem krefst úrlausnar er hve-
nær og hvernig við getum
breytt þannig pólitíkinni i
landinu að slík stjórn eða
stjórnarstefna sé óhugsandí. Ég
hugsa að þingið muni ræða
viðhorfin frá þessu s.iónarmiði.
— Þú minntist á almenn
æskulýösmál.
— Jií, það er vintanlega dá-
litið teygjanlegt. Undir þennan
lið fellur svo margt að of
langt yrði að telja. Ég nefni
aðeins mál, sem snerta uppeldi
æskunnar og aðstöðu hennar
til heilbrifJðs skemmtanalífs og
íþrótta. Eða nægir henni
kannski að horfa á dátasjón-
varpið!
Skólamál og málefni iðn-
nema munu rædd undir þess-
um lið og að lokum má geta
Framhald á 9. síðu
Fréttir frá ÆFS ný-
stofnaðrí ÆF-deild
Æskulýðssíðu Þjóðviljans barst kærkomið bréf nýver-
ið. Kristján Guðmundsson formaður Fylkingardeildarinn-
ar í Grafarnesi sendi okkur línu um starf deildarinnar
þar og næstu verkefni Birtum við bréf Kristjáns í heild.
Grafamesi 5/8 1864.
Kæru félagar.
Eins og ykkur mun kunnugt
var Æskulýðsfylkingin í Grund-
arfirði stofnuð 17. júní síðast-
liðinn. Stofnendur félagslns
voru reyndar aðeins níu en
síðan hafa allmargir bætzt í
hópinn og er von á enn fleir-
um svo að búast má við að
félagatalan verði komin i þrjá-
tíu rneð haustinu.
Nokkur deyfð hefur ríkt í
félagsmálum hér í Grundar-
firði að undanförnu og var ætl-
un okkar sem að stofnun þess-
ara samtaka stóðu. að hressa'
dálítið upp á félagslífið. Einnig,
sem reyndar er eitt aðalat-
riðið, ;að gefa ungmennum hér
fræðslu um sósfalismann og
þær hugsjónir sem hann er
byggður úr.
Það hefur hindrað töluvert
fundarhöld hjá okkur í félag-
inu að félagsmenn eru önnum
kafnir við ýmiskonar störf og
því erfitt að ná mönnum sam-
an til furidar. Nokkrir félags-
manna fóru líka norður á sfld
rétt eftir stofnfundinn. Það
hefur háð starfsemi okkar tölu-
vert, að við höfum ekki eigið
húsnæði til afnota, en hefðum
við það. gaetum við stígið stórt
skref fram á við f félagsmál-
um og um leið eflt félagíð til
mikilla muna. Grafarnes er
ungur staður í örum vexti. Hér
er mjög mikið um ný hús og
byggingar en ákaflega h'tið um
gamalt húsnæði. Eina ráðið til
lausnar húsnæðisvandamálum
okkar er því að koma okkur
upp nýju húsi. Slíkt hús mundi
kosta töluvert fé og höfum við
því stofnað byggingarsjóð. Þann
sjóð hyggjumst' við efla með
----------------------------------------------------------------------------------$>
Þórsmerkurferð á vegum
ÆFR og ÆFH um helgina
Síðasta helgarferð ÆF á þessu sumri verður farin nú á laugardaginn kl. 2
eftir hádegi. Ekið verður sem leið liggur í Mörkina, með viðdvöl á Hvols-
vqlli. Famar verða gönguferðir um Þórsmörk undir leiðsögn kunnugra.
A heimleið verður komið i Stakkholtsgjá, að Jökullóni og Merkurkeri. Á
laugardagskvöldið verður kvöldvaka að venju.
Mikil þátttaka er fyrirsjáanleg, enda eru síðsumarferðir ÆF í Mörkina vin-
sælar. Verður lokaferð sumarsins án efa góð.
Farmiðasala á skrifstofu ÆFR á föstudagskvöld. — Pantanir mótteknar í
símum 17513, 22890 og 50308.
ÆFR — Ferðaklúbbur — ÆFH
Fylkingarfréttir
Um verzlunarmannahelgina
lögðu Fylkingardeildirnar í
Reykjavík og Hafnarfirði leið
sína austur að Kirkjubæ.iar-
klaustri. Stór langferðabifreið
full af glaðlyndu æskufólki,
hélt af stað kl. 2 stundvíslega
á laugardag frá Reykjavík og
áður en komið var austur á
Selfoss mátti heyra á röddum
ferðalanga, að engin „dauði og
djöfuls nauð" átti að ríkja í
þessari ferð.
Er komið var yfir Markar-
fljótsbrú skildu leiðir við
Bakkus og ' hélt vínguðinn í
hófi inn í Þórsmörk, en vínlaus
ferðahópur Æskulýðsfylkingar-
innar fór úr skarkala borgar-
búa í friðsæla fegurð Skafta-
fellssýslu. x
Sveitin skartaði sínu feg-
ursta í ágústsól. Langt var á
áfangastað og því lítil viðdvöl
höfð. Um kvöldið var tjaldað
á fögrum árbakka i nágrenni
Systrastapa. Fram eftir nóttu
var sungið og farið í leik, auk
gönguferða. Var góðstemmning
á þessari kvöldvöku þetta kyrr-
láta kvöld í nágrennl Klaust-
urs.
Á sunudag var gengið á
Systrastapa, , sagán um nunn-
urnar sögð, síðan nágrenni
Klausturs skoðað. Einnig var
ekið austur yfrir Lómagnúp.
Um kvöldið var farið á .^veita-
ball". Deyfð var yfir dans-
leiknum er komið var, en fjör
ferðahópsins kom „galsa í
mannskapinn". Að dansleiknum
loknum mátti heyra óminn á
hlaðinu af t.d. lögum eins o%:
Go, home, Ami, Ami go home.
Troð ei Fjallkcnunnar fald
o.s.frv,
Á mánudag var haldið heim
á leið. Vík, Dyrhólaey, Skóga-
foss, jParadísarhellir og Selja-
landsfoss urðu helztir merkis-
staðir á Vegi okkar. Söngur-
inn hélt áfram að óma, þótt á
þriðja dagiværi liðið. Ferða-
langar sneru heim eftir erfiða
en skemmtilega ferð syngjandi
allt frá bar.átt'jsðngvum til
bítilslaga. Og þegar ekið var
gegnum bæinn var enn sunglð
af krafti og mikilli sigurvissu:
Heyr, stormurinn þýtur, stund-
in er komin,
stormur, sem bbðar oss frelsis-
ins vor,
Æskuntiar hetjur með hrynj-
andi söngva, o.s.frv.
Á kveðjustund kvað aðeins
við: „Sjáumst í Þórsmörk una
aðra helgi". Og nú er sú helgi
óðum að nálgast.
¦ Að kvöldi sunnudagsins
9. ágúst hélt Æskulýðsfylk-
ingin í Reykjavík félagsfund.
Til ,umræðu voru ýmis merki-
leg mál. Skal þar fyrst nefnt
„Goldwater, kynþáttavanda-
málið og afstaða fslands".
Miklar umræður spunnust
um þetta mál eftir framsögu
Gísla Gunnarssonar, sem
fjallaði um hið þjóðfélagslega
baksvið Goldwaterframboðs-
ins Og siðan þær afleiðingar
sem kjörið gæti af .sér leitt
fyrir okkar hernumda land.
Ályktun um " þétta mál var
birt í Þjóðviljanum í gær.
Næsta mal á dagskrá voru
félagsmál almennt og hélt
Hrafn Magnússon, varafor-
maður ÆFR framsöguerindi
um málið. Eftir erindi Hrafns
hófust umræður, sem ein-
kenndust af framsýni og
baráttugleði í senn.
Veitingar voru framreidd-
ar milli framsöguerindanna
og umræður' undir borðum.
Allmargir nýir fétagar
. gengu i íéiagið.
Kristján Guðmundsson
formaður ÆFG
frjálsri framlagningu félags-
manna og með því að halda
skemmtanir til ágóða fyrir
hann. Hefur komið til umræðu
að Æskulýðsfylkingin og ¦ Al-
þýðubandalagið á staðnum
standi að byggingunni sam-
eiginlega. Slíkt væri m.iög
æskilegt bæði upp á samstarf
þessara tveggja félaga og
möguleikana að þetta mætti
takast.
Eitt af því. sem nokkuð ber
á- í fari íslenzkra ungmenna er
þekkingarleysi þeirra á sögu-
legum og pólitískum fræðum.
Sumir eru gegnsýrðir af göml-
um kennisetningum og upp-
hrópunum sem íhaldið hefur
í áratugi tuggið í foreldra
þeirra og þeir af þekking-
arleysi og einfeldni apað eftir.
Þeir hafa ekki minnstu hug-
mynd um, að mikið af.þessum
kennisetningum eða upphróp-
unum, sem þeir- gaspra með
fá alls ekki staðizt. Það er því
eitt aðalatriðið i framtíðar-
stefnuskrá okkar að auka
fræðslu ungmenna hér í þess-
um efnum.
Æskulýðsfylkingin í Grund-
arfirði er sú eina hér á Snæ-
fellsnesi en.það er ætlun okk-
ar að stuðla að því að deild-
um verði komið á fót í hin-
um kauptúnunum hér á ries-
inu innan skamms. Náið sam-
starf slíkra deilda í sókn, væri
mjög heppilegt og gæti stuðlað
að heillaríkari árangri í starfi
okkar.
Við erum bjartsýn á fram-
tíðina og um leið og við send-
um félögum okkar.. baráttu-
kveðjur. vonum við að þeir
taki undir þær kveðjur með
vaxandi dug og þori.
Siguraveinn D. Kristinsson
¦ 1 kvöld klukkan 20.30 kemur
góðUr gestur í heimsókn í Tjarn-
argötu 20. Sigursveinn D. Krist-
insson ætlar að athuga með fé-
lögum Rauðu Söngbókina, og
eru ferðafélagar' sérs.taklega
hvattir til að komá og taka lag-
ið. Leíkið undir á píanó.
ÆFR
(