Þjóðviljinn - 13.08.1964, Blaðsíða 6
r
SlÐA
ÞJÖÐVILJINN
Fimmtudagur 13. ágúst 19B4
ffSKJ 1N
011S OSiAUSI m IN
ÚTG.: ÆSKULYÐSFYLKINGIN — RITSTJÓRAR: HRAFN MAGNÚSSON,
RÖGNVALDUR HANNESSON OG SVAVAR GESTSSON.
Vi&fal Wð Gunnar Guttormsson, forsefa ÆF
Sambandsþing ÆskuSýðsfylkingar-
innar haldið í Hafnarfirði 25.-27. sept
Tíðindamaður Æskulýðssíð-
unnar ræddi nýlega við Gunn-
ar Guttormsson, forseta ÆF
og innti hann frétta af undir-
búningi 21. þings ÆF.
— Hvað skal segja. Við er-
um nýbúnir að ákveða að
þingið skuli haldið í Hafnar-
firði dagana 25.-27. september
og erum einmitt núna að senda
út þingboð til sambandsfélag-
anna.
Regluleg þing eru nú haldin
annað hvort ár og sú hefð hef-
ur skapazt að velja þingstaði
til skiptis úti á landi og hér
í nágrenni höfuðborgarinnar
eða i henni sjálfri — við höf-
um alltaí bak við eyrað þetta
með ..jafnvægið í byggð lands-
ins“. — Síðasta þing var hald-
ið á Húsavík 1962. Það er víst
öllum í fersku minni móttökur
og viðurgerningur félaganna
.................... -.— ■ <S>
Frá sjónarhóli æskumannsins
SKATTARNIR
■ Síðustu dagana hefur mikið verið rætt um hinar
svívirðilegu skattaálögur á þegna Reykjavíkurborgar-
Hver einasti launþegi kveinkar sér, en okrarinn og at-
vinnurekandinn eru glaðir á svip og hafa aldrei farið í
eins íburðarmiklar utanreisur né haldið veglegri veizlur.
I ._ \ '• 'ftptRt
■ Annað aðalmálgagn ríkisstjórnarínnar flytur á dégi
hverjum fréttir af hinum hneykslanlegu skattaálögum
og síðast í gær skrifaði Benedikt Gröndal leikrit í einum
þætti, sem ber heitið ,,Fyrirtækið og forstjórinn“ og fjall-
aði „listaverk“ Benedikts um skattana. Hannes á Horn'-
inu ræðst einnig af hörku á skattpíninguna sem félag-
ap hans og Benedikts bera höfuðsökina á.
B En Vísir og Morgunblaðið sitja við sinn keip. Á
hverjum degi halda þau uppi vörnum fvrir kollega sína
í stétt stórkaupmanna og annarra gróðabrallsmanna.
B Það er óálitlegt fyrir æskumanninn að leggja út á
lífsbrautina í því þjóðfélagi þar sem launþeginn er nið-
umíddur í hvert sinn sem skattskráin er útgefin en for-
réttindastéttir þjóðfélagsins fá sérlegar ívilnanir.
B Skattalöggjöfin þarfnast gagngerar endurskoðunar og
það er fleira sem þarf að endurskoða. Gagngerar breyt-
ingar á ríkjandi þjóðfélagskerfi eru óhjákvæmilegar.
Æskulýðsfylkingin— Samtök ungra sósíalista á íslandi —
heitir á æskufólk hvar sem er á landinu og hvar sem er
í starfsgreinum þjóðfélagsins að styðja hana í baráttunni
gegn því þjóðfélagskerfi sem stefnir að því að gera hvem
þegn að skattsvikara.
Gunnar Guttormsson
þar. Við þurfum ekki að bera
kvíðboga fyrir því að þeir í
Firðinum verði síðri heim að
sækja.
— Hvað viltu segja mér
Gunnar um verkefni þingsins? **•
— Það er af nógu að taka
þar um. Tíminn. sem við ætl-
um til þinghaldsins er ekki
langur og við verðum að sníða
dagskránni stakk eftir því. 1
tillögu þeirri að dagskrá þings-
ins, sem framkvæmdanefnd
sambandsstjórnar sendir aðild-
arfélögunum er m. a. gert ráð
fyrir umræðum um: stjóm-
málaviðhorfið. herstöðvamálið,
almenn æskulýðsmál, útgáfu-
mál sambandsins og skipulags-
mál. Ég geri ráð fyrir, að lengst-
ur tími fari í að ræða fyrstu
þrjá liðina, sem ég gat um.
Síðustu vikur og mánuði hafa
ýmsir alvarlegir atburðir gerzt
bæði hér heima og erlendis,
sem ástæða er til að staldra
við. Mér þykir t.d. ekki ó-
sennilegt, að bera muni á góma
hin nýju viðhorf. sem skapazt
hafa i herstöðvamálinu með
framboði Goldwaters.
— Segðu mér eitthvað um
skattana. og hvemig slík mál
verða rædd á þinginu. Held-
urðu ekki að þessar síðustu á-
lögur snerti unga fólkið líka?
Þórsmerkurferð á vegum
ÆFR og ÆFH um helginu
Síðasta helgarferð ÆF á þessu sumri verður farin nú á laugardaginn kl. 2
eftir hádegi. Ekið verður sem leið liggur í Mörkina, með viðdvöl á Hvols-
vglli. Farnar verða gönguferðir um Þórsmörk undir leiðsögn kunnugra.
A heimleið verður komið í Stakkholtsgjá, að Jökullóni og Merkurkeri. Á
laugardagskvöldið verður kvöldvaka að venju.
Mikil þátttaka er fyrirsjáanleg, enda eru síðsumarferðir ÆF í Mörkina vin-
sælar. Verður lokaferð sumarsins án efa góð.
Farmiðasala á skrifstofu ÆFR á föstudagskvöld. — Pantanir mótteknar í
símum 17513, 22890 og 50308. __
ÆFR — Ferðaklúbbur — ÆFH
— Minnztu ekki á þann
fjanda. En ég veit ekki
hvort þetta er nokkursstaðar
eins hábölvað og hér í höfuð-
staðnum. Annars er ég því
mótfallinn að ræða það atriði
út áf fyrir sig. Það vandamál,
sem krefst úrlausnar er hve-
nær og hvemig við getum
breytt þannig pólitíkinni i
landinu að slík stjóm eða
stjómarstefna sé óhugsandi. Ég
hugsa að þingið muni ræða
viðhorfin frá þessu sjónarmiði.
— Þú minntist á almenn
æskulýðsmál.
— Jú, það er vintaíilega dá-
lítið teygjanlegt. Undir þennan
lið fellur svo margt að of
langt yrði að telja. Ég nefni
aðeins mál. sem snerta uppeldi
æskunnar og aðstöðu hennar
til heilbrigðs skemmtanalífs og
íþrótta. Eða nægir henni
kannski að horfa á dátasjón-
varpið!
Skólamál og málefni iðn-
nema munu rædd undir þess-
um lið og að lokum má geta
Framhald á 9. stðu
■4 ,rr^y
Fréttir frá ÆFG nj-
stofnaðri ÆF-deití
Æskulýðssíðu Þjóðviljans barst kærkomið bréf nýver-
ið. Kristján Guðmundsson formaður Fylkingardeildarinn-
ar í Grafamesi sendi okkur línu um starf deildarinnar
þar og næstu verkefni Birtum við bréf Kristjáns í heild.
Grafarnesi 5/8 1964. V
Kæru félagar.
Eins og ykkur mun kunnugt
var Æskulýðsfylkingin i Grund-
arfirði stofnuð 17. júni síðast-
liðinn. Stofnendur félagsins
voru reyndar aðeins níu en
síöan hafa allmargir bætzt í
hópinn og er von á enn fleir-
um svo að búast má við að
félagatalan verði komin í þrjá-
tíu með haustinu.
Nokkur deyfð hefur ríkt i
félagsmálum hér í Grundar-
firði að undanfömu og var ætl-
un okkar sem að stofnun þess-
ara samtaka stóðu. að hressa1
dálítið upp á félagslífið. Einnig,
sem reyndar er eitt aðalat-
riðið, að gefa ungmennum hér
fræðslu um sósialismann og
þær hugsjónir sem hann er
byggöur úr.
Það hefur hindrað töluvert
fundarhöld hjá okkur í félag-
inu að félagsmenn eru önnum
kafnir við ýmiskonar störf og
þvi erfitt að ná mönnum sam-
an til furidar. Nokkrir félags-
manna fóru líka norður á sild
rétt eftir stofnfundinn. Það
hefur háð starfsemi okkar tölu-
vert, að við höfum ekki eigið
i húsnæði til afnota, en hefðum
við það. gætum við stfgið stórt
skref fram á við í félagsmál-
um og um leið eflt félagíð til
mikilla muna. Grafames er
ungur staður i örum vexti. Hér
er mjög mikið um ný hús og
byggingar en ákaflega lítið um
gamalt húsnæði. Eina ráðið til
lausnar húsnæðisvandamálum
okkar er þvi að koma okkur
upp nýju húsi. Slíkt hús mundi
kosta töluvert fé og höfum við
þvi stofnað byggingarsjóð. Þann
sjóð hyggjumst við efla með
Fylkingarfréttir
Um verzlunarmannahelgina
lögðu Fylkingardeildirnar í
Reykjavík og Hafnarfirði leið
sína austur að Kirkjubæjar-
klaustri. Stór langferðabifreið
full af glaðlyndu æskufólki,
hélt af stað kl. 2 stundvíslega
á laugardag frá Reykjavík og
áður en komið var austur á
Selfoss mátti heyra á röddum
ferðalanga, að engin „dauði og
djöfuls nauð” átti að ríkja í
þessari ferð.
Er komið var yfir Markar-
fljótsbrú skildu leiðir við
Bakkus og hélt vínguðinn í
hófi inn í Þórsmörk, en vinlaus
ferðahópur Æskulýðsfylkingar-
innar fór úr skarkala borgar-
búa i friðsæla fegurð Skafta-
fellssýslu. ■
Siveitin skartaði sínu feg-
ursta í ágústsól. Langt var á
áfangastað og því lítil viðdvöl
höfð. Um kvöldið var tjaldað
á fögrum árbakka í nágrenni
Systrastapa. Fram eftir nóttu
var sungið og farið í leik, auk
gönguferða. Var góðstemmning
á þessari kvöldvöku þetta kyrr-
láta kvöld i nágrenní Klaust-
urs.
Á sunudag var gengið á
Systrastapa, . sagan um nunn-
urnar sögð, síðan nágrenni
Klausturs skoðað. Einnig var
ekið austur yfrir Lómagnúp.
Um kvöldið var farið á „sveita-
ball”. Deyfð var yfir dans-
leiknum er komið var, en fjör
íerðahópsins kom „galsa í
mannskapinn”. Að dansleiknum
loknum mátti heyra óminn á
hlaðinu af t.d. lögum eins og:
Go, home, Ami, Ami go home.
Troð ei Fjallkonunnar fald
o.s.frv.
Á mánudag var haldið heim
á leið. Vík, Dyrhólaey, Skóga-
foss, Paradísarhellir og Selja-
landsfoss urðu helztir merkis-
staðir á vegi okkar. Söngur-
inn hélt áfram að óma, þótt á
þriðja dag, væri liðið. Ferða-
langar sneru heim eftir erfiða
en skemmtilega ferð syngjandi
allt frá baráttusöngvum til
bítilslaga. Og þegar ekið var
gegnum bæinn var enn sungið
af krafti og mikilli sigurvissu:
Heyr, stormurinn þýtur, stund-
in er komin,
stormur, sem boðar oss frelsis-
ins vor,
Æskunttar hetjur með hrynj-
andi söngva, o.s.frv.
Á kveðjustund kvað aðeins
við: „Sjáumst í Þórsmörk um
aðra helgi”. Og nú er sú helgi
óðum að nálgast.
B Að kvöldi sunnudagsins
9. ágúst hélt Æskulýðsfylk-
ingin í Reykjavík félagsfund.
Til .umræðu voru ýmis merki-
leg mál. Skal þar fyrst nefnt
„Goldwater, kynþáttavanda-
málið og afstaða fslands”.
Miklar umræður spunnust
um þetta mál eftir framsögu
Gísla Gunnarssonar, sem
fjallaði um hið þjóðfélagslega
baksvið Goldwaterframboðs-
ins og siðan þaer afleiðingar
sem kjörið gæti af .sér ieitt
fvrir okkar hernumda land.
Áiyktun um þetta mál var
birt í Þjóðviljanum í gær.
Næsta mal á dagskrá voru
félagsmál almennt og hélt
Hrafn Magnússon, varafor-
maður ÆFR framsöguerindi
um málið. Eftir erindi Hrafns
hófust umræður, sem ein-
kenndust af framsýni og
baráttugleði í senn.
Veitingar voru framreidd-
ar milli framsöguerindanna
og umræður undir borðum.
Allmargir nýir féiagar
s gengu í féiagið.
Kristján Guðmundsson
formaður ÆFG
frjálsri framlagningu félags-
manna og með því að halda
skemmtanir til ágóða fyrir
hann. Hefur komið til umræðu
að Æskulýðsfylkingin og Al-
þýðubandalagið á staðnum
standi að byggingunni sam-
eiginlega. Slíkt væri mjög
æskilegt bæði upp á samstarf
þessara tveggja félaga og
möguleikana að þetta mætti
takast.
Eitt af því, sem nokkuð ber
á- í fari íslenzkra ungmenna er
þekkingarleysi þeirra á sögu-
legum og pólitískum fræðum.
Sumir eru gegnsýrðir af göml-
um kennisetningum og upp-
hrópunum sem íhaldið hefur
í áratugi tuggið í foreldra
þeirra og þeir af þekking-
arleysi og einfeldni apað eftir.
Þeir hafa ekki minnstu hug-
mynd um, að mikið af. þessum
kennisetningum eða upphróp-
unum, sem þeir gaspra með
fá alls ekki staðizt. Það er því
eitt aðalatriðið i framtíðar-
stefnuskrá okkar að auka
fræðslu ungmenna hér í þess-
um efnum.
Æskulýðsfylkingin í Grund-
arfirði er sú eina hér á Snæ-
féllsnesi en það er ætlun okk-
ar að stuðla að því að deild-
um verði komið á fót í hin-
um kauptúnunum hér á nes-
inu innan skamms. Náið sam-
starf slíkra deilda í sókn. væri
mjög heppilegt og gæti stuðlað
að heillaríkari árangri í starfi
okkar.
Við erum bjartsýn á fram-
tíðina og um leið og við send-
um félögum okkar baráttu-
kveðjur. vonum við að þeir
taki undir þær kveðjúr með
vaxandi dug og þori.
Frá ÆFR
SIgur3veinn D. Kristinsson
1 kvöld klukkan 20.30 kemur
góðúr gestur í heimsókn í Tjarn-
argötu 20. Sigursveinn D. Krist-
insson ætlar að athuga með fé-
lögum Rauöu söngbókina, og
eru ferðafélagar sérstaklega
hvattir til að koma og taka lag-
ið. Leikið undir á píanó.
ÆFR
> i