Þjóðviljinn - 15.08.1964, Síða 3

Þjóðviljinn - 15.08.1964, Síða 3
Laugardagur 15. ágúst 1964 - Enn óeirðir í Paterson PATERSON 14/8 — Yfirvöldin í Paterson í New Jersey skýrðu svo frá í dag, að svo virðist sem kynþáttaóeirðimar í borginni séu í rénun. Á fimmtudags- kvöld var þó lögreglubíll skemmdur allmikið og 36 manns voru handteknir. Meðal þeirra voru 12 unglingar og einn hvítur maður. Allmargar rúður voru brotnar og eldur kom upp á einum stað. 1 Elizabeth, sem er bær um þrjá km fyrir sunnan Paterson, voru einnig óeirðir aðfaranótt föstudags og lögreglan ruddi göt- umar fólki. H6ÐVI1IINN StDA Kosmos 37. er kominn á loft MOSKVU 14/8 Sovéifeir vís- indamenn sendu á föstudag á loft nýjan gervihnött, Kosmos 37. og er honum ætlað að afla vísindalegra upplýsinga úr há- loftunum. Jafnframt þessu er uppi í Moskvu hávær orðrómur þess efnis, að innan skamms muni Sovétríkin senda á loft mannað geimfar. Kosmos 37. notar 90 mínútur til hringfarar sinnar umhverf- is jörðu og er mesta jarðnánd hans 300 km. Tass-fréttastofan skýrir svo frá, að öll tæki gervi- hnattarins starfi sem bezt verði á kosið Flugslys Eramhald af 1. síðu. stóru svæði í nágrenni Þrengsla- vegarins þar sem síðast heyrðist til vélarinnar af vegagerðar- mönnum. 1 gœrmorgun snemma fór þokunni heldur að létta og skömmu síðar fannst flugvélar- fíakiðr eins og áður segir sunri- anvert í Litla-Meitli. Hafði vél- in'‘tTæfð^s'undur við áreksturinn ög *er talið að flugmaðurinn hafi látizt strax. Eldur hafði komið upp í flakinu og var það mik- ið brunnið. Flugmaðurinn sem fórst hét Elmer Robert Daniels kunnur knattspyrnumaður í Þrótti, var hann 21 árs að aldri. Hann var sonur Steinþóru Steinþórsdótt. ur og Elmer Roberts. Er móðir hans búsett í Minneapolis í Bandarikjunum en hér dvaldist hann hjá ömmu sinni, Hafði hann lokið einkaflugmanns- prófi úr flugskóla Flugsýnar í vor. Hafði hann fengið flugvél- ina leigða hjá Flugsýn í þessa Vestmannaeyjaferð. Var þetta tveggja sæta vél af gerðinni Cessna 140. Palmiro Togliatti liggur nú alvarlega sjúkur á Krím MOSKYU 14/8 — Palmiro Togliatti, leiðtogi ítalskra kommúnista, er nú alvarlega veikur og hefur fengið heilablóðfall. Togliatti er um þessar mundir staddur á Krím, en þar hefur hann dval- izt undanfarið sér til heilsubótar. Mario Spalloni, einkalæknir Togliattis, hefur flogið frá Róm til Sovétríkjanna til þess að annast sjúklinginn. í Moskvu er uppi orðrómur þess efnis, að Krústj- off, forsætisráðherra Sovétríkjanna, muni snúa heim úr ferð sinni til landbúnaðarhéraða Sovétríkj- anna og halda til funda við hinn ítalska kommún- istaleiðtoga. Það var seint á fimmtudag, sem fyrstu fréttir bárust af veik- indum Togliattis og þá frá Róm. Á föstudag gaf svo utanríkis- ráðuneyti Sovétrikjanna út til- kynningu þar sem frá því var skýrt, að Togliatti hefði fengið heilablóðfall og væri þungt haldinn. Togliatti var i heim- sókn í ungherjabúðum í nánd við Jalta þegar veikindi hans bar að höndum. Lömun Fremstu læknar Sovétríkj- anna héldu þegar til Krím er fréttin barst um veikindi Togli- attis. Einkalæknir hans flaug þegar til Sovétríkjanna, svo sem fyrr var sagt. Var í för með hon- um Luigi Longo, ritari Komm- únistaflokks Italíu, og hafði vamarmálaráðuneyti ftalíu lát- ið þeim í té flugvél til fararinn- ar. Síðari hluta föstudags til- kynnti utanríkisráðuneyti Sov- étríkjanna, að líðan Togliattis væri öilu betri, Talsmaður Kommúnistaflokks Ítalíu sagði hinsvegar, að líðan hans væri óbreytt og hefðu fréttir borizt af því, að Togliatti lægi meðvit- undarlaus og virtist vera um lömun að ræða. Mikilvæg för Palmiro Togliatti er Sem kunnugt er leiðtogi stærsta kommúnistaflokks hinna borg- aralegu landa og hefur um ára- tugi verið einn helzti forustu- maður hinnar alþjóðlegu verka- lýðshreyfingar. Enda þótt svo væri ákveðið, að hann færi til Sovétríkjanna í orlofi sínu og sér til heilsubótar, hefur það verið almennt álit, að hann hygðist um leið ræða við leið- toga Sovétríkjanna um heims- ráðstefnu kommúnista, sem fyr- irhuguð er á miðju næsta ári. Hefur margt reynt Togliatti er nú 71 árs að aldri og hefur oftlega áður sloppið naumlega úr dauð^ns greipum. Refsivert að ferðast til Kúbu WASHINGTON 14/8 — Bandariska utanríkisráðai- neytið hefur ákveðið að svipta 84 bandaríska stúd- enta vegabréfi sinu er þeir snúa heim frá Kúbu. Bandaríska stjórnin hefur neitað öllum þegnum sín- um að ferðast til eyjarinn- ar, en stúdentarnir hlýðn- uðust ekki því banni og héldu til Kúbu í boði stjórnarinnar þar, með fyrr- greindum afleiðingum. Ekki er enn kunnugt, hvort gripið verður til annarra refsiaðgerða gegn stúd- entunum. Bermuda-Akureyri Framhald af 4. síðu. ig góður og miðherjinn Phlpobt var alltaf hættulegur, og eins og fyrr segir hefur þetta ef tíl vill verið bezti leikur þeirra í þessari heimsókn. Það var Mka athyglisvert að ekki sá á þeim þreytumerki nema síður væri, og þó höfðu þeir leikið tvo erfiða leiki í röð. Dómari var Magnús Péturs- son og gerði það vel, enda létt- ur leikur við að fást. Þama voru áhorfend'ur frá Akureyri auðvitað og öllum nærliggjandi héruðum. Þess má geta að flug lokaðist þetta kvöld og fór liðið þá þegar um kvöldið með lang- ferðabifreið til Reykjavíkur. og var það glaður hópur sem lagði af stað, en smátt og smátt hljóðnaði söngurinn, og þegar maður litaðist um í bifreiðinni sátu hlið við hlið hvítir og svartir, engar kynþáttaerjur, allt hljótt. bara sofið! Frímann. Bikarkeppni KSÍ var haldið áfram í fyrrakvöld og léku þá FH og Breiðablik suður í Hafn- arfirði. Breiðablik sigraði eftir jafnan leik með þrem mörkum gegn tveimur, í hálfleik stóð 1:1. Eru þá bæði Hafnarfjarð- arfélögin Haukar og FH fallin úr keppninni. Næsti leikur í bikarkeppninni verður í dag í Vestmannaeyjum, þar keppa IBV og 1A — b. STJÖRNUBlÖ Maðurinn með andlitin tvö Robert Louis Stevenson var rómantískur maður og hafði gaman af ,,gátum sál- arlífsins". Hann skrifaði söguna um Dr. Jekyll og Mr. Hyde. Hún var að sjálf- sögðu ekki merkasta framlag þeirra tíma til lýsingar á klofnum persónleika, til tví- faratímans, en Stevenson var fjörlegur frásögumaður og sagan hefur verið vinsæl og hún hefur nokkrum sinnum verið kvikmynduð. Nýtt tilbrigði við þessa sögu er sýnt í Stjörnubíói. Dr. Jekyll er hér ákaflega þrúgaður maður og misskil- inn og misnotaður. Það virð- ist því ósköp nærtækt fyrir hann að breytast í Hr. Hyde svo sem í sjálfsvarnarskyni. Hyde er, sem kunnugt er. algjört illmenni. en það er í rauninni sáralíti'll munur á honum og öðru fólki sem fram kemur í myndinni, og það á í raun og veru ekki betri félagsskap skilinn. En það versta við allt sam- an er, að algjör illmenni eru enn leiðinlegri en dýrlingar, þótt undirlegt megi virðast. Höfundar þessarar mjmdar leggja sig mjög fram um að terrorisera mannfólkið: gleðikonur stíga san-san af miklum hamagangi, í næsta herbergi er Jekyll-Hydé að nauðga eiginkonu sinni og þar rétt hjá er eiturslanga að drepa elskhuga konunnar. Það vantar ekki krydd í súp- una. Myndin er gerð af miklum fyrirgangi og fátækt. Á.B. Ath.: — 1 auglýsingu stend- ur, að myndin sé „um hinn fræga dr. Jekyll“ og sé ,,Ein af hans mest spennandi myndurn". Halda menn að hér sé einhverskonar Tarzan á ferð? Vatnafræðingar orði á framkvæmd mótsins í heild. Sameíginlegt vandamál Finnski fulltrúinn, sem talaði á blaðamannafundinum var AIl- an Sirén. Sagði hann að sam- starf á þessu sviði á milli Norð- urlandanna væri afar mikilvægt einkum fyrir þær sakir, að þau ættu við svipuð vandamál að stríða svo sem vetrarkuldann ,og ísinn. Norðmaðurinn sem hafði orð fyrir félögum sínum var Jakob Otnes. Sagði hann að koman til Islands væri mjög ánægjuleg og einkum fyrir Norðmenn. sem ættu margt líkt með Islending- um. Jörgen Lundagcr Jensen hafði orð fyrir Dönunum og sagði hann, að Danir ættu við ýmis vandamál að etja sem ekki þekktust á hinum Norðurlönd- unum. Væri þar einkum að nefna, að hjá Dönum væri enga vatnsorku að finna og ennfrem- ur væru allstór svæði í Dan- mörku þar sem ekki væri unnt að ná í vatn nema með borun- um eftir neðanjarðarvatni. Svíinn Gunnar Nybrant lýsti yfir ánægju sinni með komuna til Islands og skýrði svo frá því. sem helzt er á döfinni í þessum málum í Sviþjóð. Tilgangur vatnafræðinnar Sigurjón Rist skýrði fyrir blaðamönnum tilgang vatnafræð- innar og viðfangsefni. Sigurjón sagði að vatnafræðin væri fyrst og fremst rannsókn á hringrás vatnsins, þegar það fellur til jarðarinnar, gufar upp og fell- ur aftur o.s.frv. Einnig væri í verkahring vatnafræðinnar allt, sem viðkemur daglegri notkun vatnsins. Blaðamaður ræddi við full- trúa ráðstefnunnar í gær og tuku þeir allir miklu lofsorði á framkvæmd hennar og móttök- ur. íslenzku fulltrúamir lýstu sérstakri ánægju sinni með hina ómetanlegu þýðingu, sem slík ráðstefna hefði fyrir þá. Þarna væru til umræðu vinnuaðferðir fyrir rannsóknir á sviðum vatna- fræðinnar, sem yrðu þeim síðan stuðningur og jafnvél tilsögn í starfinu. Palmiro Togliatti. Hann komst nauðuglega undan byssukúlum ‘fasista á Ítalíu og slapp frá Madrid aðeins fáum klukkustundum áður en her- sveitir Francos tóku borgina. Stúdent einn hæfði hann þrem kúlurn árið 1948, en Togliatti lifði skotin af og einnig bif- reiðarslys, sem hann lenti í tveim árum seinna. Einnig hef- ur Togliatti gengizt undir heila- uppskurð. Samúðarskeyti AFP-fréttastofan skýrir svo frá, að Saragat, utanríkisráð- herra Ítalíu, hafi fyrirskipað italska sendiráðinu í Moskvu að veita Togliat.ti alla hugsanlega aðstoð. Þá hefur forseti ftalíu sent Kommúnistaflokki ftalíu skeyti þar sem hann lætur í ljós þá von, að Togliatti nái heilsu sinni aftur. Þessi kúlu- penni er nýjung á heims- markaðnum Seldur um allt land epoca Með einu símtali í dag getiö þér tryggt framtíö yðar - á morgun getur það verið of seint. Hringíð f síma 17700 og ræðið viö „Almennar” um tryggingar. ALMENNAR TRYGGINGARf PÓSTHÚSSTRÆTI 3 SlMI 17700 HOFUM OPNAÐ BUKKSMIÐJU að Múla við Suðurlandsbraut. Sími 32960. Framkvæmum alla blikksmiðjuvinnu. — Allt unn- ið af fagmönnum. H.F. BORGARBLIKKSMIÐJAN. Sími 32960. Frá Sjúkrasamlagi Reykjavikur Frá 1. september, næstkomandi, hættir Eggert Steinþórsson, læknir, störfum sem heimilislæknir, þar sem hann hefir verið ráðinn trúnaðarlæknir samlagsins frá þeim tíma. Þá hefir Friðrik Bjömsson, læknir, látið af störfum sem heimilislæknir og háls- nef- og eyrnalæknir. Samlagsmenn þessara lækna þurfa að snúa sér til afgreiðslu samlagsins hið fyrsta, hafa samlagsskír- teini sín með sér og velja sér lækna í þeirra stað- Sjúkrasamlag Reykjavíkur. á

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.