Þjóðviljinn - 15.08.1964, Síða 8

Þjóðviljinn - 15.08.1964, Síða 8
Á þessari mynd sést hluli þátttakcnda mótsins í hinum glæsilegu salarkynnum Hagaskólans í Kvík. 4. Norræna vatnafræðinga mótinu lýkur í Rvík í dag fl í gasr var boðaður fundur með blaðamönnum á veg- um forystumanna 4. norræna vatnafræðingamótsins, sem áð þessu sinni er haldið í Reykjavík. Þrjú síðustu mótin hafa verið haldin á hinum Norðurlöndunum á þriggja árá fresti, síðast í Víborg, Danmörku 1961. Fulltrúi íslands á þessum ráðstefnum hefur verið Sigurjón Rist vatna- mælingamaður raforkumálastjórnarinnar og á Víborgar- ráðstefnunni flutti hann hinum norrænu vatnafræðingum boð raforkumálaráðherra og raforkumálastjóra að halda mótið 1964 á íslandi. Laugardagur 15. ágúst 1964 — 29. árgangur — 182. tölublað. Fjölskyldubætur ekki dregnar frá — Álagningarvillurnar verða leiðréttar, ef kvartanir berast ★ Sú slæma villa slæddist inn í frásögn Þjóðviljans í gær af því hvaða bætur væru frádráttarbærar við álagningu útsvara, að fjölskyldubætur voru taldar þar með. Þetta, er ekki rétt. Frá- dráttarbærar eru m.a. eUilífeyrir, örorkubætur, en fjölskyldu- bætur eru reiknaðar með tekjum manna. ★ Eru lesendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. ★ Skattstjóri hefur tjáð Þjóðviljanum, að þar sem svo standi á, að álagning sé röng vegna þess að frádráttarbærar bætur hafa ekki verið dregnar frá, verði það að sjálfsögðu leiðrétt, enda þótt kærufrestur sé útrunninn, ef kvartanir berast til skattstof- unnar um slíkt. Er fólk hvatt til þess að athuga framtöl sín með tilliti til þess og fara fram á leiðréttingu við skattstof- una, ef ástæða er til. Þjálfar skátaforingja og flytur fyrírlestra 35.150 má/ og tunnur í gærkvöld fékk Þjóðviljinn þaer upplýsingar hjá Síldarleit- inni á Dalatanga að síðastliðinn sólarhring hefði afli 78 skipa verið um 35.150 mál og tunnur. í gærkvöld var norðan kaldi þar eystra en þó sæmilegt veiðiveð- ur, og voru skipin farin að kasta á sömu slóðum og áður. Dm 11 leytið höfðu engir bát- ar tilkynnt Síldarleitinni komu sína, en vitað var að nokkrir bátar höfðu fengið sæmileg köst. DMINI Það er unnið af kappl þessa dagana að breytingunum á húsi Þjóðviljans, Skólavörðu- stíg 19, en eins og lesendum blaðsins er kunnugt á að end- urbyggja rishæð hússins, rífa núverandi þak og þakhæð og reisa nýja inndregna hæð í staðinn. Þsssum miklu breytingum fylg- ir óhjákvæmilega talsvert rask og umrót, einkum meðan ver- ið er að rífa það gamla nið- , ur, skjóta styrktarbitum und- ir gömlu gólfin og ganga frá undirstöðum o.fl. Þetta allt veldur því að und- anfarna tvo daga hefur ekki verið unnt að vinna af full- um krafti í ritstjórnarskrif- stofum blaðsins eða prent- smiðju og þessvegna reynzt ó- hjákvæmilegt að minnka blað- ið, í gær í 10 síður, í dag 8 síður. Efnisröskun verður að sjálfsögðu talsverð vegna þessa t.d. verða Erlend tíð- indi Magnúsar Torfa Ólafs- sonar að bíða morgundags- ins, sunnudagsins, en þá verð_ ur Þjóðviljinn aftur í sinni fullu stærð, 12 síður. Úrslifaleikir og verðlaun afhent Handknattleiksmótinu verð- ur haldið áfram í Hafnarfirði kl. 3 í dag. Fyrst verður úr- slitaleikur í öðrum riðli i mfl. kvenna: FH — Vikingur og Fram — Breiðablik, þá keppa Valur — KR í 2. fl. kvenna og loks berjast Haukar 0:g Ár- mann um 2. sáeti í mfl. karla. Að loknum þessum leikjum verður sigurvegurum í mfl. karla FH afhentur bikar sá sem Álafoss gaf fyrir nokkrum árum og keppa á um f 50 ár. Mótið hófst þann 10. ágúst. Jakob Gíslason raforkumála- stjóri setti mótið í Hagaskólan- um og þá voru flutt erindi af íslendingum. en það er jafnan liður í þessum ráðstefnum að gefa yfirlit yfir vatnafræði þess lands. sem þær eru haldnar í. Islenzk erindi Þessir Islendingar hafa haldið erindi á mótinu: Sigurjón Rist um vatnsrennsli í ám, Adda Bára Sigfúsdóttir um úrkomu og hita. Guðmundur Kjartansson um jarðfræðilegar skýringar á mismun lindáa og dragáa, Jón Eyþórsson um jökla og mæling- ar þeirra og Sigurður Þórarins- son um jökulhlaup og mælingar þeirra. Jón Jónsson flutti er- indi um grunnvatn og sprungu- myndanir í nágrenni Reykjavík- ur og Hafnarfjarðar. Guðmundur Pálmason um heita vatnið og Páll Theodórsson, Bragi Árna- son og Sigurjón Rist fluttu er- indi um notkun geislavirkra efna við mælingar og rennsiii i ám. Auk hinna íslenzku erinda fluttu hinir er'lendu fulltrúar 18 erindi um ýmis efni varðandi nútima vatnarannsóknir. Þriggja manna nefnd frá Raf- orkumálaskrifstofunni og Veður- stofunni sá um undirbúning mótsins, en í nefndinni áttu sæti Sigurjón Rist. sem var formaður, Adda Bára Sigfúsdóttir og Guð- mundur Pálmason. Árni Þ. Ámason cand. oecon er fram- kvæmdastjóri mótsins. Þátttakendumir eru 65 talsins. Ferðalög þátttakenda. Þátttakendur ráðstefnunnar hafa* ferðazt nokkuð. t.d. skoð- uðu þeir Reykjavík á mánudag. Þá sátu gestirnir boð Jóhannesar Zoéga á Hótel Sögu en síðan skoðuðu þeir Hitaveitu Reykja- víkur og Jóhannes veitt full- trúunum upplýsingar um hita- veituna, starf og skipulagningu. 13. ágúst héldu gestirnir í ferðalag austur fyrir fjall. Litið var á hveri og gróðurhús í Hveragerði og síðan ekið sem leið liggur að Þjórsá og Skál- holti. Sogið og Þingvellir voru skoðuð í heimleiðinni. I gær var mótinu slitið af Sigurjón Rist. Jakob Gíslasyni raforkumála- stjóra. Á blaðamannafundinum í gær skýrðu nokkrir fulltrúar Norður- landanna frá viðhorfum í heima- löndum sínum og viðhorfum til ráðstefnu sem þessarar. Lýstu þeir allir mikilli ánægju sinni með komuna til íslands, sér- staklega þeirri nýlundu sem þeim er að sjá jarðhitann á Is- landi og einnig luku þeir lofs- Framhald á bls. 3. Um þessar mundir dvelst hér á Iandi í boði Bandalags ís- Ienzkra skáta, Margareta Broon. en hún hefur um árabil gegnt þýðingarmiklum störfum fyrir sænska skátabandalagið. Hingað til lands kemur Margarcta Broon fyrst og fremst til að annast þjálfun Ijósálfaforingja cn hún mun einnig halda fyrirlestra um ýmis þau mál sem varða skáta og skátaforingja og þátt skáta- starfs í æskulýðsstarfi og al- mennu uppeldi. í heimalandi sínu, Svíþjóð, hefur Margareta Broon fyrst og fremst fengizt við þjálfun for- ingja fyrir öll aldursskeið sem skátastarfið nær yfir, ljósálfa. sþáta, dróttskáta og svanna, en hún hefur einnig verið framar- lega í norrænni samvinnu um foringjaþjálfun. Hérlendis mun Margareta Broon dveljast í 3—4 vikur. Fyrstu viku septembermánaðar heldur hún námskeið fyrir Ijós- álfaforingja við ' Úlfljótsvatn. Samtimis þessu námskeiði verður annað námskeið fyrir ylfingja- foringja og mun Björgvin Magn- ússon annast stjóm þess. 1 þessu sambandi má geta þess að for- ingjaþjálfun á vegum Bandalags íslenzkra skáta hefur aukizt mjög á síðari árum. Námskeið sem haldin hafa verið í þessu skyni hafa verið vel sótt. Margai-eta Broon sagði á fundi með blaðamönnum í gær að í Svíþjóð væri mikið gert til að efla áhuga unglinga fyrir skáta- stai*finu. Hún lagði rika áherzlu á að mikilvægt væri“ ‘áð "’fífxHa starfssvið sem hæfði aldursflokki di’óttskáta, sem eru unglingar frá 15—18 ára. 1 Svíþjóð hafa margar nýjungar verið teknar upp í starfi dróttskáta og hefur það gefizt vel. Einnig skýrði Margareta frá merkri nýjxmg í skátastarfinu í Svíþjóð en það eru hinir svokölluðu stflskólar. Skátahreyfingin annast kennslu í skólum þessum en kostnað greiða hin ýmsu iðnfyrirtæki. Þarna fá unglingar sem starfa hjá viðkomandi iðnfyrirtæki, fi’æðslu og aðstoð við þau vanda- mál sem allir unglingar eiga við að stríða. Á námskeiðum þessum er víða komið við og miðar fi'æðsla þessi að því að veita unglingunum sjálfsöryggi og góða framkomu. 20 „UACNÚSAR vv ■ Ekki hafa þeir Vísismenn treyst sér að færa sönnur á fyrri fullyrðingu sína, að samanburður Þjóðviljans væri falsaður. og sitja þeir nú uppi með sínar eigin fals- anir. Visir sagðí m.a. að birta mætti nöfn „10 Magnúsa og tölur sem sýndu, að skattar þeirra allra hefðu lækkað” En Vísir hefur ekki einu sinni treyst sér til þess að koma með þessa „10 Magnúsa” Við tökum því það ráð að birta nú nöfn 20 Magnúsa, og til þess að gleðja Vísi sérstak- lega tókum við með alla kaupmenn í skattskránni. sem bera það nafn. Og þótt ótrúlegt sé, eru þeir allir með heldur hærri giöld en i fyrra, svo það er eðlilegt að Vísir sé seinn að koma með þessa 10. sem skat.tar hafa lækkað á. En engu að síður er býsna fróðlegt að bera hækkanirnar á kaupmönn- unum saman við hækkanir á nöfnum þeirra í öðrum starfsstéttum. Og hér kemur svo samanburðurinn; OPINBER GJÖLD: 1963 1964 Magnús sjómaður 21.997,00 45.471,00 hækkun 23.474,00 Magnús verkamaður 30.986,00 58.440,00 hækkun 27.454,00 Magnús lögregluþjónn 21.940,00 •41.672,00 hækkun 19.732,00 Magnús póstmaður 5.830.00 39.933,00 hækkun 34.103,00 Magnús kennari 29.488.00 52.322,00 hækkun 22.834,00 Magnús prentari 11.559.8« 20.657,00 hækkun 9.098,00 Magnús fulltrúi 13.411,00 29.460,00 hækkun 16.049,00 Magnús kennari 25.059,00 33.827,00 hækkun 8.768,00 Magnús símamaður 7.554,00 22.783,00 hækkun 15.229,00 Magnús skipstjóri 10.278,00 26.362,00 hækkun 16.084,00 Magnús trésmiður 10.098,00 35.945,00 hækkun 25.847,00 Magnús tollþjónn 23.199,00 32.737,00 hækkun 9.538,00 Magnús forstjóri 67.080,00 62.651,00 lækkun 4.429,00 Magnús heildsali (I) 57.496,00 72.324,00 hækkun 14.828,00 Magnús kaupmaður (I) 62.148,00 68.340,00 hækkun 6.192,00 Magnús kaupmaður (II) 64.763,00 91.895,00 hækkun 27.129,00 Magnús kaupm. (III) Magnús kaupm. (IV) Magnús kaupm. (V) Magnús heildsali (II) 44.162,00 14.423,00 54.764,00 101.403,00 45.494,00 16.593,00 79.398,00 124.064,00 hækkun hækkun hækkun hækkun 1.330,00 2.170,00 24.634,00 22.661,00 Minnsta hækkun opinberra gjalda fær Magnús kaupmað- ur (III) 1.330,00 krónur, nafni hans (IV) í kaupmannastétt fær 2.170,00 króna hækkun, og kaupmaður (II) kemst meira að segja upp í 27.129,00 króna hækkun. Aftur á móti fær Magnús verkamaður 27.454,00, króna hækkun, sem er 345,00 krónum meira en hækkunin á þeim kaupmanni, sem „verst verður” úti varð- andi opinber gjöld í ár. Hækkanir á öðrum launa- mönnum nema frá 8.768,00 krónum allt upp í 34.103,00 krónur; það er að segja Magnús póstmaður fær 6.974,00 krónum meiri hækk_ un en sá þeirra nafnanna í kaupmannastétt, scm fékk mesta hækkun. Eini Magnús- inn af þeim sem við tökum til samanburðar í dag og fær lækkun, er Magnús forstjóri og nemur hún 6.192,00 krón- um. í tilefni af skattalækkun forstjórans birtum við hér örlitla glefsu úr „lífi for- stjóra”, eins og Alþýðublað- ið segir að það gerist nú til dags. Við látum forstjórann hafa orðið: . . . „Já, ég á gott hús, en Fyrirtækið hefur leigt helminginn af því af mér fyrir geymslur o;g fleira. . . . Fyrirtækinu er hagstætt að sjá mér fyrir bíl . . . ég fer í erindum Fyrirtækisins (til útlanda) í kynnisferð og á þess kostnað. Það eru eðlileg útgjöld nú á dögum. Konan er gömul skrifstofu- stúlka og fer mér til aðstoð- ar . . . maður hefur fasta dagpeninga á ferðum eins og aðrir. Ef ekki er eytt miklu má ,kaupa utan á sig af ferðakostnaðinum . . . Svo til árlega koma hingað erlendir forstjórar í heimsókn til Fyr- % irtækisips, og hefur því reynzt óhjákvæmilegt, að fyrirtækið ætti veiðiréttindi í góðri á og veiðihús. Svo notum við þetta á milli . . . Það hvílir á mér sem for- stjóra að taka á móti gestum Fyrirtækisins. Stundum er farið með þá á skemmtistaði borgarinnar, en oft er ódýr- ara að hafa smáboð heima - hjá mér. Auðvitað greiðir Fyrirtækið þetta. Nú á dög- um er óhjákvæmilegt að hafa dálitla risnu . . . Ég þarf ekki nð kæra“. Og svo er rétt að taka það fram, ef Vísir kemur nokk- urn tima með þessa „10 Magnúsa” sína og tölur sem sýndu að skattar þeirra allra hefðu lækkað”, þá getur Þjóðviljinn birt nöfn 10 Magnúsa, sem bera stórhækk- aða skatta, á móti hverjum einum, sem Vísir bendir á að hafi lægri skatta. Og þetta á ekki bara við Magnúsa, heldur yfirleitt öll þau nöfn, sem fyrirfinnast á skatt- skránni. > l ]

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.