Þjóðviljinn - 23.08.1964, Side 2
Mi 1 C"11 on \icl hrærivélin eróska-
draumur hverrar húsmódur. Vélin fæst hjá
Dráttarvélum h.f. og kaupfélögum landsins
<ji| Véladeild
SlDA
HÓÐVHIINN
Smmudagttr 23. ágúst 1964
í»að er ótrúlegt en satt að fyrir 6000 árum stóð skipulag hreinlætismála í borg-
um helztu menningarlanda þess tíma, sízt að baki því sem við þekkjum í þeim efn-
um. Með lestri fornra heimildarrita og fomleifauppgreftri hefur tekizt að fá allná-
kvæma og athyglisverða vitneskju um hreinlætismál fyrri tíma. Við uppgröft 5—6
þús. ára borgarrústa á Indlandi fundust vel gerðar vatns- og skolpleiðslur, skolpræsi,
baðherbergi og vatnssalerni. í Peru hafa fundizt frá svipuðum tíma, vatnsleiðslur
sem voru allt að 650 km- langar. — í hallarrústum á Krít fannst marmarabaðker —
22 metra steypt skolpræsi á Kýpur — og í Egyptalandi hinu forna höfðu þeir niður-
grafnar skolp- og vatnsleiðslur úr kopar.
Skipuíag hreinlætismála á
1 París ern slaufur nú mest I tízku. Skulu þær vera f hnakkanum og skiptir þá Iitlu máli hvort
hárið er stutt eða sítt einungis ef hægt er að koma þeim fyrir. Hér á myndinni sjást þrjár út-
gáfur af þessari nýju og kvenlegu tízku, sem mun án efa verða vinsæl hjá kvenþjóðinni hér
heima innan tíðar.
RENNILÁSINN
FIMMT/U ÁRA
Það eru aðeins 50 ár síðan
rennilásinn var fundinn upp.
Sá sem á heiðurinn af uppfinn-
ingu þessa þarfaþings var
sænskur verkfræðingur, Gideon
Sundbéck að nafni. Árið 1903
fluttist hann til Bandaríkjanna
og þar kom hann hugmynd
sinni á framfæri.
Til að byrjá með var renni-
lásnum fálega tekið og það var
fyrst árið 1917 að augu al-
mennings opnuðust fyrir ágæti
þessa hlutar og sala hófst að
nokkru marki.
Rennilásinn er nú orðinn ó-
missandi og má segja að
þann sé notaður í flestar flík-
ur, svo og töskur, púða, dýnur,
hanzka, skjalamöppur og ótelj-
andi aðra hluti.
Hinn sænski hugvitsmaður
andaðist árið 1954 og var þá
margfaldur miljónamæringur.
Síðasta verkefni hans voru vel-
Framhald á 9 síðu
---------------------------
f Evrópu urðu Grikkir fyrst-
ir til að koma á hjá sér skipu-
lögðu hreinlætiskerfi. Þeir
lögðu vatns- og skolpleiðslur og
spöruðu ekkert til framkvæmd-
anna. í hallarrústum hafa
meira að segja fundizt vatns-
kranar úr silftí!
Fróðir menn hafa reiknað út
að þegar Rómaborg stóð á há-
tindi frægðár og valda, hafi
hver einstaklingur notað að
meðaltali 500 lítra af vatni á
sólarhring! Á þessum tíma
voru í Rómaborg um 1000 op-
inberir baðstaðir. risastórar
sundlaugar og íburðarmikil
baðhús.
Árið 305 lét Díokletíanus
keisari reisa baðstað þar sem
18r>í)0 manns gátu baðað sig í
einu og auk þess var áhorf-
endasvæði fyrif 6000 manns!
Sundlaugin var umgirt marm-
arahöllum sem skreyttar voru
fögrum mósaikmyndum. Al-
menningur átti greiðan aðgang
að þessum baðstöðum og var
aðgangseyri mjög í hóf stillt.
Auk hinna stóru opinberu bað-
staða voru i pómaborg á þess-
um tíma fjölmörg og stór al-
menningssalerni. Það er sagt
að árið 315 hafi þau verið
144. Mikið vatn þurfti að sjálf-
sögðu að leiða til allra þessara
staða og var því veitt til bcrrg-
arinnar eftir 13 risastórum
leiðslum. Enn þann dag í dag
má sjá leifar af þesum vatns-
leiðslum utan við Róm.
Þegar valdatíma rómverska
ríkisins lauk, kom afturkippur
í þróun hreinjætismála sem
varaði í margar aldir. Stærst-
an þátt i þvi átti kaþólska
kirkjan, það samræmdist ekki
trúarbrögðum hennar að menn
böðuðu sig. Enn þann dag í
dag eimir eftir af þessum
hégiljum í kaþólskum trúar-
brögðum. Meðal vissra trú-
flokka á Spáni þykir ósæmilegt
að konur þvoi líkama sinn!
Böð fóru að tíðka^t á Norð-
urlöndum á miðöldum. Var sá
háttur hafður á að steinhnull-
ungar voru hitaðir í stórum
Framhald á 9. síðu.
ÞRISVAR SINNUM SÆTARI
SYKUR OG EKKIFITANDI
Ekki alls fyrir löngu hófu Svíar framleiðslu á nýrri
tegund strásykurs. Er hér um að ræða svonefndan „Sunco-
strásykur”, en hann er þrisvar sinnum sætari en venju-
legur sykur og það sem betrá er, hann er ekki fitandi!
Þessari nýjung hefur verið
tekið með fögnuði af þeim
stóra hópi fólks sem á í stöð-
ugu stríði með „Hnumar” án
þess þó að geta haldið sig frá
sætindum og öðru því sem
inniheldur of mikinn fjölda
hitaeininga. Sunco-sykurinn,
sem uppfundinn er í tilrauna-
stofu Astra-verksmiðjanna er
að 97.5 prósentum hreinn syk-
ur en 2.5 prósent er natrium-
cyklamat en það er gerviefni
án hitaeininga. Arangurinn af
þessari blöndun er sá að syk-
ur þessi verður þrisvar sinnum
sætari en venjulegur sykur og
þar af leiðandi verður magnið
sem notað er. aðeins einn
þriðji af því sem það annars
mundi vera.
Sérstök mælitæki
Sunco-strásykur lítur ná-
kvæmlega eins út og venjuleg-
ur strásykur og hann er notað-
ur á sama hátt Eini mismun-
urinn er sá að af Sunco sykri
er aðeins notaður þriðju hluti
þess magns sem notaður væri
af venjulegum sykri. Til að
auðvelda húsmæðrum notkun
Suncosykurs hafa verið gerð
sérstök mælitæki sem taka l/3
dl., */a matsk., og V3 tesk. og
fást þau í öllum verzlunum
sem selja þessa framleiðslu.
ÞRJU ORD
Þegar við kaupum fatnað
fylgja oftast miðar sem segja
til um gæði og meðferð við-
komandi flíkur. Því miður eru
þessir lappar fjaldnast á ís-
lenzku svo við erum litlu nær
eftir lestur þeirra. Tlér á eft-
ir eru skýringar á þrem orð-
um sem gott er að kunna skil
á.
Þegar sagt er að varan sé
sanforisert merkir það að hún
krumpist mjög lítið. Orðið lin-
finish táknar sérstaka með-
höndlun á bómullarvörum
þannig að þær líkjast lérefti.
Mercirisering er einnig notað
um meðhöndlun á bómullar-
vörum sem þá fá glansandi á-
ferð og verða endingarbetri.
Kostirnir yfir-
gnæfandi
Tvær konur hafa veri<
fengnar til að gera margskon
ar tilraunir með Sunco-sykur
inn. Báðar eru þessar konu
húsmæðraskólakennarar o.
hafa þær komizt að þeirri nið
urstöðu að við matreiðslu oj
bakstur hafi Sunco-syku
marga kosti fram yfir venju
legra sykur, en enga teljand
galla.
háu stigi fyrir 6000 árum
í