Þjóðviljinn - 23.08.1964, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.08.1964, Blaðsíða 3
Sunmidagur 23. ágúet 1964 ÞfðÐVILnNN SlÐA ^ 1944 23. ágúst 1964 Sum ártöl geymast betur en önnur. Árið 1944 er ls- lendingum minnisstætt, og margar eru þær þjóðir aðrar í Evrópu sem minnast þess og láta það marka tímamót í sögu sinni. Heimsstríðin tvö höfðu þann eina kost að það tók fyrir enda þeirra og í lokin gerðust þau tíðindi í mörgum löndum sem næstu kynslóðir minnast með fögn- uði og þakklæti. Ein þeirra þjóða sem miðar endurreisn sína við árið 1944 er Rúmenar. 24. ágúst það ár var svo frá sagt í Þjóð- viljanum: — 1 gær var lesin upp til- kynning frá Mikael konungi í rúmenska útvarpinu. Kon- ungurinn iýsii því yfir að Rúmenía hefði gengið að vopnahlésskilmálum Sovét- ríkjanna, Bretlands og Banda- ríkjanna. Frá þessari stundu ætli þeir að hætta að berjast gegn Sovétríkjunum og hern- aðarástandinu gagnvart Bret- landi og Bandaríkjunum væri Eftirstríðshverfi í Búkarest, verkamannabústaðir í Floreasca. aflétt. Hefðu Bandamenn á- byrgzt sjálfstæði Rúmeníu. Þessi þáttaskil ui’ðu sem sagt 23. ágúst. fyrir réttum tuttugu árum. Rauði herinn hafði þá aðeins náð fótfestu á rúmensku landi, en öHum var ljóst hvert stefndi, Mikj- áll konungur var þá látinn segja upp stríðsbandalaginu við Þjóðverja, ganga að þeim skilmálum sem Stalín hafði sett og Churchill kallaði ,,göf- ugmannlega”. Hans ..skilmál- ar” voru aðeins þeir að Rúm- enar segðu skilið við hinn þýzka bandamann og hættu stríði á móti rauða hemum. Þeir höfðu fyrir tilverknað misviturra ráðamanna sinna lent í því óláni að fara út í stríð á móti Rússum, en það verður sagt þeim til ævarandi sóma að þeir þóttu heldur lélegir stríðsmenn. Hin skyndilega uppgjöf þeirra kom því ekki neinum á óvart, en hún átti þó sinn aðdrag- anda. Gheorghe, Gheorghiu- Dej, núverandi forseti Rúm- eníu, var þá fangelsaður, en úr tukthúsinu tókst honum að semja við ráðamenn að hætta stríðinu. Tveim dögum eftir uppgjöfina lýstu Rúm- enar svo stríði á hendur bandamönnum sínum fyrri. Þjóðverjum, og vik'u síðar hafði rauði herinn losað land þeirra við hina þýzku óværu. úTævbgké ir Ipróttakaupsýsia heiríður nú basebaEE-íþróttinni 1 Cooperstow. í New York ríki í Bandaríkjunum er að finna eina baseball-safn ver- aldar. Safnið var stofnað árið 1939, þegar haldið var hátíð- legt hundrað ára afmæli íþrótt- arinnar. Safninu var valinn staður í Cooperstown vegna þess að Abner Doubleday, höfundur íþróttarinnar. lét heyja við herskólann þar i borg fyrsta kappleikínn í base- ball. Doubleday lagði til grund- vallar íþróttinni foman al- þýðuleik sem nefndist „old cat“. Hin nýja íþrótt féll Bandaríkjamönnum vel í geð og náði fljótlega mikilli út- breiðslu. Á vorum dögum á nær því sérhver borg, bær eða skóli sitt eigið baseball-lið. Hundruð þúsund manna fylgj- ast með mikilvægustu kapp- leikjunum og sjónvarpsstöðv- ar greiða íþróttafélögum of fjár fyrir að sjónvarpa þeim, hátt í eina miljón dala á stundum. 1 baseball-safninu íCoopers- town getur að líta ýmsar minjar frá hundrað ára ferli íþróttkrinnar. En íþróttin á sér einnig aðra sögu. miður skemmfilega. Hún hefur fyrir löngu lent í klóm gróðamanna, og sú saga er samfelldur ann- áll um fj ármálahneyksii, mút- ur og fyrirfram ákveðin úrslit. 1 stuttu máli sagt er baseball eins og annað í Bandaríkjun- um orðið verzlunarvara. Frá þessari hlið málsins skýrir Bandaríkjamaðurinn James Patrick Brosnan í maí- hefti „Saturday Evning Post“. Grein sína nefnir Brosnan „Fjárplógsmenn eru að eyði- leggja baseball-íþróttina”. Brosnan ætti að vita hvað hann segir, því hann hefur til skamms tíma verið i baseball- liðinu „Chicago White Sox”, sem er eitt helzta atvinnulið Bandaríkjanna. Brosnan var einn fremsti leikmaöur liðsins. en helgaði sig jafnframt bók- menntum og komst í andstöðu við „íþróttafrömuði” þá er öllu réðu. 1959 gaf hann út skáldsögu sína, „A Long Season”, þar sem hann lýsir sem bezt hann þekkir erfiðu lífi atvinnumannsins í baseball. Og skáldsagan hafði áhrif, en ekki þó í þá átt að bæta kjör leikmanna. Brosnan var fyrir- skipað að hætta með öllu slík- um skrifum. og fyrirliði félags- ins sagði við hann stutt og laggott: „Skrifirðu áfram ertu rek- inn”. Brosnan lét sér ekki segjast, hann var fyrir bragðið rekinn úr liðinu og fær í ekkert lið inngöngu síðan. „Iþróttafröm- uðimir” sjá fyrir því. Brosnan telur það, að base- ball-íþróttin eigi sér reisn og persónuleika, líkt og aðrar f- þróttir. En svo sé íþróttakaup- sýslunni um að kenna, að hún sé nú eyðilögð með öllu. Fjöl- margir unnendur íþróttarinnar séu nú löngu hættir að telja hana til íþrótta yfirleitt. Brosnan lýsir því síðan. hvernig með atvinnuleikmenn sé farið. þeir séu meðhöndlaðir Hkara dýrum en mönnum og níðzt á þeim í launagreiðslum sem mest má verða — og það á sama tíma og íþróttin skili gífurlegum gróða. Sérhver leikmaður sé múlbundinn, enda sé samningur hans endumýj- aður á árs fresti og eitt atriðið í þeim samningi sé það, að honum sé bannað að láta til sín heyra í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi nema með fullu sam- þykki íþróttaleiðtoga liðsins, sem hann keppir fyrir. Sjálfur er Brosnan eitt bezta dæmi þess, hver verða örlög þeirra leikmanna, sem dirfast að gagnrýna þá niðurlægingu, sem orðið hefur hlutskipti bassball-íþróttarinnar. En hann er hvergi nærri eina dæmið. Fjöldi þekktra leikmanna hef-' ur mátt sæta sömu örlögum. Hér á íslandi heyrast nú æ oftar raddir um það, að öll áhugamennska í íþrótt- um sé löngu úrelt, árangur ná- ist sem enginn með því mót- inu og er gjaman knattspyrn- an nefnd sem dæmi. Hér skal ekki endanlegur dómur á slíkt lagður. En dæmið af þjóðarí- þrótt Bandaríkjamanna — base- ball — ætti þó að geta orðið víti til vamaðar og sýnt í- þróttaunnendum, hvað ber að varast í því þjóðfélagi, s,em allt metur til fjár, líka í- þróttir. Skagfírðingar — Húnvetningar Fornbókaverzlunin á Sauðárkróki kaupir ávallt gamlar og nýjar bækur og bókasöfn. Einnig gömul tímarit. Útvega ýmsar upp- seldar bækur. — Reynið viðskiptin. BALDVIN SIGVALDASON. Iðnskólinn í Reykjavík Prentnám — Forskóli \ Verklegt forskólanám í prentiðnum hefst í Iðnskól- anum í Reykjavík hinn 1. september n.k. — Um- sóknir um námsvist þurfa að berast fyrir 27. ágúst. Umsóknareyðublöð fyrir námsvist og nánari upp- lýsingar verða látnar í té í skrifstofu skólans til 27. ágúst á venjulegum skrifstofutíma. Iðnskólinn í Reykjavík. Félag íslenzkra prentsmiðjueigenda. Skrifstofustúlka óskast á bæjarfógetaskrifstofuna í Kópavogi. Laun samkvæmt 9. flokki. Upplýsingar daglega kl. 10 til 12 í bæjarfógetaskrifstofunni, Álfhólsvegi 32,, sími 41206. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Kópavogur bkðhurður Tvö útburðarhverfi laus í Hringið í síma 40319. ÞJÓÐVILJINN. Vesturbænum. Auglýsið í Þjóðviijanum 14. FLOKKSÞIM Sameiningurflokks alþýðu Sósíaiistu- fíokksins verður haldið í Reykjavík í síðari hluta nóvembermánaðar 1964. Nánar auglýst síðar. Miðstjórn Sósíalistaflokksins Knattspyrnusnillingurinn ÞÓRÓLFUR BECK leikur með íslenzka liðinu. I. S. I. í DAG KL. 4 LANDSLEiKURINN K. S. I. ISLAND - FSNNLAND fer fram á Laugardalsvellinum í dag, sunnud. 23. ágúst og he'fst klukkan 4. Dómari: P. J. Graham frá DUBLIN. Línuverðir: Bald- ur Þórðarson og Grétar Norðfjörð. — Lúðrasveitin Svanur leikur undir sfjórn Jóns G. Þórarinssonar frá kl. 3,15. Komið og sjáið síðasta stórleik ársins KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS. ☆ Forsala aðgöngumiða við tJtvegsbankann frá kl. 9 til 13. ☆ Aðgöngumiðar seldir við Laugardalsvöllinn frá kl. 13,00. ☆ ☆ ☆ KAUPIÐ MIÐA TÍMANLEGA FORÐIZT BIÐRAÐIR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.