Þjóðviljinn - 23.08.1964, Síða 4
I
4 SIÐA
urlnn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnus Kjartansáon (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
- Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðbjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 linur). Áskriftarverð kl- 90,00 á mánuði.
Málstaður íslenzkrar a/þýðu
jyýtt er það ekki eða nýstárlegt að Morgunblað-
ið og Alþýðublaðið birti leiðarastúfa þess efnis
að nú sé róttæk verkalýðshreyfing á íslandi í and-
arslitrunum, nú eigi Sósíalistaflokkurinn sér ekki
viðreisnar von, nú sé Alþýðubandalagið búið að
vera. En slíkar spár hafa svo oft verið fram born-
ar að ekki væri ólíklegt að mönnum kæmi í hug
að þeir lifi lengst sem með orðum eru vegnir.
Róttæk verkalýðshreyfing á íslandi hefur um ára-
tuga skeið haft djúptæk áhrif á verkalýðsmál og
stjórnmálalíf á íslandi, og hvað sem líður ósk-
hyggju Morgunblaðsins og Alþýðublaðsins munu
þau áhrif ekki fara minnkandi heldur vaxa næstu
áratugi, ef að líkum lætur.
JJin róttæka verkalýðshreyfing stendur djúpum
og traustum rótum 1 íslenzkum jarðvegi, ís-
lenzkum menningararfi og íslenzku þjóðlífi. Beztu
menn hennar hafa á undanförnum áratugum lagt
fram stærri skerf en mörgum er enn ljóst fil al-
þýðumálstaðarins, til almennra framfara og reisn-
ar þjóðarinnar, og unnið með því það brautryðj-
endastarf sem sósíalistahreyfing hvers lands hlýt-
ur að vinna eigi hún að verða líf af lífi alþýðunnar
og loks þjóðarinnar allrar. Það er með öllu von-
laust verk fyrir hvern sem er, hvort-sem skrifað
er í Morgunblaðið, Albýðublaðið eða önnur blöð,
að halda því fram að helztu leiðtogar hinnar rót-
tæku verkalýðshreyfingar íslands undanfarna ára-
tugi hafi aldrei haft fyrir því að hugsa sjálfir,
hugsa og rita sem íslendingar, heldur fengið ein-
hvers staðar að hugsunina í s'törf sín og skrif. Eng-
inn íslendingur, sem verið hefur samtíða þessum
mönnum, mönnum eins og Einari Olgeirssyni og
Siefúsi Sigurhjartarsyni, Brynjólfi Bjarnasyni og
Lúðvík Jósepssyni, Eðvarð Sigurðssyni og Birni
Jónssyni og fiölmörgum félögum þeirra, gæti tek-
ið mark á slíku fleipri. Og það hefur vakið sér-
staka athygli víða um heim að hin róttæka verka-
lýðshreyfing hefur náð meira fylgi og haft meiri
áhrif á stjórnmálasviðinu á íslandi en víðast ann-
ars staðar í Vestur-Evrópu.
j^óttæk verkalýðshreyfing á íslandi, í verkalýðs-
félögunum og á stjórnmálasviðinu, verður ekki
vegin með orðum né afmáð vegna óskhyggju and-
s'tæðinganna. Hún á sfóru hlutverki að gegna í
íslenzkum verkalýðsmálum og íslenzku þjóðlífi.
Hver maður sem þar stendur 1 flokki eða félagi
verður að gera sér ljóst hve rík er ábyrgð hans
að halda áfram því starfi sem íslenzkir alþýðu-
menn þúsundum saman hafa unnið til þess að
skapa öfluga og markvissa verkalýðshreyfingu á
íslandi, hve rík er skylda hans áð halda því starfi
áfram og gera betur en frumherjarnir, byggja á
dýrmætri reynslu og starfi fyrstu áratuganna, læra
af mistökum og víxlsporum. Og ástæða er. til að
biðja fólkið, sem fylgir Alþýðuflokknum, að hug-
leiða, hvort framtíð verkalýðshreyfingarinnar á
íslandi muni farsælli með harðnandi tökum aftur-
halds og íhalds á verkalýðssamfökunum — eða
ef málin snerust þannig að alþýðuflokkarnir sem
mótað hafa íslenzka verkalýðshreyfinOT um hálfr-
ar aldar skeið, fyndu leiðir til samstöðu. — s.
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 22. ágúst 1964
SKÁKÞÁTTURINN
'k ic 1
Ritstjóri: ÖLAFUR BJÖRNSSON
Landskeppnin Sovétríkin - Júgóslavía
Landskeppni Sovétríkjanna
og Júgóslavíu. sem fram fór í
Leningrad um miðjan síðasta
mánuð lauk með sigri Sovét-
ríkjanna, sem hlutu 38V2 vinn-
ing gegn 2U/2. 1 kvennakeppni
hlutu Sovétmenn 7‘/2 en Júgó-
sLavar 4V2 v. 1 unglingaflokki
skildu þeir jafnir hlutu 6 vinn-
inga hvor og karlaflokkinn
unnu Sovétmenn með 25 gegn
11.
Af Sovétmönnum stóðu sig
bezt þeir Taimanof er hlaut 5V2
vinning úr 6 skákum, Kortsjn-
oj 4 af 5, Polugajewski 4 af 6
og Geller 3V2 af 5. Spasskí
tefldi aðeins,. tvær skákir og
urðu þær báðar jafntefli. Af
Júgóslövunum stóðu sig bezt
þeir Ivkof er hlaut 3 vinninga
úr 6 skákum eða 50%> Parma
með 2 úr 6 og Matanovic með
IV2 úr 6. Úrslit einstakra um-
ferða urðu þessi Sovétríkin
talin á undan: 1. I^li'^li, 2.
7:3, 3. 5:5 4. 6%:3V2. 5. 7:3,
6. 5V2:4V2. Enn hafa þættinum
ekki borizt neinar skákir frá
keppninni en væntanlega munu
þær berast innan tíðar.
Clair-Benedict-mótið
Ellefta Clair-Benedict-mótið
fór að þessu sinni fram í Sviss.
6 þjóðir tóku þátt í mótinu og
urðu úrslit þau að V.-Þýzka-
Taimanof stóð sig bezt.
land sigraði eftir jafna og
spennandi keppni.
Röðin varð annars þessi:
V.-Þýzkaland 12 v., Holland
11V2. Austurríki 11, Spánn 10Vj>
Sviss 10 og Italía 5.
Hér kemur svo ein skák frá
mótfnu.
Hvítt: Unzicker, V.-Þýzkai.
Svart: Donner, HoIIand.
FRÖNSK VÖRN.
1 1. ©4 — e6
2. d4 — d5
3. Rc3 — Rf6
4. Bg5 —- Be7
5. eS — Rfd7
6 h4 — Bxg5
(Skákfræðin hefur litið þenn-
an leik fremur óhýru auga og
vsrt verður þessi skák ti! að
auka hróður hans.).
7. hxg5 — Dxg5
8. Rh3 — De7
9. Rf4 — Rc6!
10. Dd2! — Sb6
(Einnig kom fnjög tii gi-eina
að leika 10. — b6, 11. Bb5 —
Bb7, og nú gengur ekki að
fóma á d5, 12. Rxd5? — exd5,
13. Rxd5 — Dd8, 14. Dc3 —
Rdxe5).
11. Rh5 — Hg8(!)
12. Bd3 — Bd7
13. Bxh7 — Hh8
14. Rxg7 — Kd8
(Þótt svartur hafi að vísu
misst hrókunarréttinn hefur
hann talsverða möguleika í
sambandi við hina fram-
hleypnu menn hvíts á kóngs-
væng sem ekki eiga svo auð-
velt með afturkomu og eins
í sambandi við Rc4-Ieikinn).
15. Re2! —
(Hér gat hvítur ekki leikið 15.
b3 vegna f6 og ef hann leikur
15. Hh6 þá má svartur ekki
leika 15. — Rc4 vegna 16. Bd3
en hann getur þá leikið 15. —
Db4).
15. — f6?
(í jafn tvísýnum stöðum er
mjög auðvelt að leika af sér,
mun betra var 15. — Rc4, 16.
Df4 — Rxb2 með tvísýnni
stöðu.)
16. cxf« — Ðxffi
17. Dh6 — Dxh6
18. Hxh6 — Ke7
(Með hótuninni Hag8).
19. Rf4! — Hag8
(Hér átti svartur að reyna 19.
— Rxd4, 20. 0—0—0 — e5. Hér
kemur hugsanlegt framhald
21, Rg6t — Kt7. 22. Rxh8t —
Kxg7, 23. Hg6t — Kxþ8, 24.
Hhl — fte2t, 25. Kdl — Rf4,
26. Hg5 og vinnur.
20. R7xe6 —
(Slæmt væri 20. Rg6ý — Kf7.
21. Rxh8 — Kxg7. 22, Bxg3 —
Kxh6 og hvítur glatar manni
þar eð biskupinn sleppur ekki
út.)
20. — Hg4
21. f3 — Bxe6
22. Hxc6f — Kd7
23. fxg4 — Hxh7
24. O—O—O — Hf7
25. g3 _ Hxfl
26. Hxc6 — Hxg4
27. Hc3 — Rc4
28. Hhl. Og svartur
gafst upp.
Sextugur
EyjóHur Krístjánsson
Brúarósi
Þegar ég stend andspænis
þeirri staðreynd, að Eyjólfur
Kristjánsson bóndi og verk-
stjóri. að Brúarósi er orðinn
sextugur, eða verður það á
morgun, mánudag. 24 ágúst og
samtímis að áratugur er síðan
kynni okkar og samstarf hófst
fyrir alvöru á félagsmálasvið-
inu. gerast minningamar frá
þessum árum svo áleitnar, að
ég get ekki á mér setið að
stinga niður penna. minnast
afmælisbamsins með örfáum
fátæklegum orðum. Þakka bvi
samstarfið og viðkynninguna.
Eyjólfur á Brúarósi er í hópi
þeirra, sem fyrstir tóku búsetu
í Kópavogi, Hann stendur einn-
ig framarlega í flokki þeirra,
sem frá öndverðu hafað mótað
þróun þessa unga bæjarfélags
og sett svip á bæinn.
Eyjólfur er að vísu hlédræg-
ur m'aður. en mannkostir hans,
drengskapur, hófsemi og traust-
ir vitsmunir, ásamt mikilli
festu og sjálfstæði í skoðunum,
hafa reynzt svo happasælir við
úrlausnir vandamála að ékki
gat fram hjá samborgurunum
farið hver maður hann er, þótt
enginn væri hávaðinn.
Hann hefur því verið kvadd-
ur til margra starfa í þjónustu
bæjarfélagsins, var t.d. kjör-
inn f fyrstu bæjarstjórn Kópa-
vogs og forseti hennar og
gengdi því starfi tvö kjörtlma-
bil, eða þar til hann, að eigin
ósk hvarf úr bæjarstjóm sem
aðalmaður. en varabæjarfull-
trúi er hann enn. Hann hefir
átt sæti í fræðsluráði frá upp-
hafi og á þar að baki mikið
starf og farsælt.
Æskulýðsstarfsemi öll f bæn-
um, unglingavinna og skóla-
garðar hafa og notið starfs-
krafta Eyjólfs og umhyggju,
enda er hann jafnt ræktunar-
maður lýðs og Lands og merkur
fulltrúi þeirra 'dyggða, sem dug-
að hafa þjóðinni bezt frá fomu
fari til farsældar og sóma.
Eyjólfur er ekki í flokki póli-
tískra vígamanna, vinnubrögð
hans eru friðsöm og láta lítið
yfir sér, en íj, slóð hans fer
jafnan gróður og grózka.
Það er því von mín að við
Kópavogsbúar eigum enn eftir
að njóta starfskrafta hans um
langa tíð.
Ég færi Eyjólfi og fjölskyldu
Börn úr sumardvöl
Böm sem dvöldu á vegum Sjómannadagsráðs að
Laugalandi í Holtum, koma til bæjarins að Hrafn-
istu, þriðjudaginn 25. ágúst kl. 11,30 til 12.
Tekið verður við greiðslu dvalarkostnaðar á skrif-
stofu ráðsins sama dag kl. 10 til 12-
Sjómannadagsráð.
Járríðnaðarmenn—
Aðstoðarmenn
Okkur vantar nú þegar nokkra járniðnað-
armenn og aðstoðarmenn.
VÉLSMIÐJA MJARÐVÍKUR H.F.
Mjarðvík, sími 1750, Keflavík.
hans einlægar heillaóskir á
þessum tímamótum með alúðar-
þökk fyrir viðkynninguna og
ég veit að undir þau orð mín
taka margir í dag. Þ.P.
FERÐIZT
MED ,
LANDSYN
# Seljum farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar Loftleiða:
# FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
# Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
LAND SVN 1-
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK.
UMBOÐ LOFTLEIÐA.
4
4