Þjóðviljinn - 25.08.1964, Page 4
4 SIÐA
ÞIÖÐVILJINN
Þriðjudagur 25, ágúst 19>M
Otgcfandi:
Ritstjórar;
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. .
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
:Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl- 90,00 á mánuði.
Hvert rennur aukningin?
i ' . ' \ 1 •' ■ '*
fyrra heLmingi þessa árs jókst verðmæti ís-
lenzkra útflutningsafurða um 347 miljónir
króna frá sama tíma í fyrra, eða um því sem næst
20%. Þessar auknu tekjur stafa að nokkru af því
að við höfum flutt út meira magn en í fyrra en
þó fyrst og fremst af hinu að verðlag á afurðum
okkar hefur hækkað mjög verulega. Meðalverð
á ^frystúm fiskflökum hefur þannig hækkað á
þessu eina ári um 11,4% og saltfiskur um hvorki
meira né minna en 21,3%. Vitað er úm enn frekari
hækkanir sem koma munu til framkvæmda á síð-
ari hluta ársins, til að mynda á síld. Varningur
sá sem við flytjum til landsins hefur hins vegar
ekki hækkað neitt í líkingu við þetta, þannig að
viðskiptakjörin hafa ba'tnað til mikilla muna;
hreinar tekjur þjóðarinnar af viðskiptum við um-
heiminn hafa vaxið stórlega.
J£n hvert rennur þessi tekjuaukning? Almenning-
ur fær það eitt af henni að vita að nú hafa
opinber gjöld, sérstaklega í höfuðborginni, verið
hækkuð svo stórlega að oft' er uto margföldun áð
ræða hjá launþegum. í samanburði við ástandið á
fyrra helmingi þessa árs er láunþegum ætlað að
búa við mjög tilfinnanlega kjaraskerðingu á síð-
ari hluta ársins. Þannig bir'tist stórfelld hækkun
á tekjum þjóðarheildarinnar í lækkun á raunveru-
legum tekjum launþega.
Outspan
fyrra helmingi þessa árs fluttu íslendingar inn
vörur frá fasistaríkinu Suður-Afríku fyrir á
fjórðu miljón króna eða nærri því sjöfalt hærri
upphæð en á sama tíma í fyrra. Á sama
tíma hefur útflutningur okkar til Suður-
Afríku nær sexfaldazt. Þessi stórauknu við-
skipti eiga sér stað jafnframt því sem önnur
ríki, ekki sízt frændþjóðir okkar á Norðurlöndum,
takmarka viðskipti sín við Suðúr-Afríku 'til þess
að láta í ljós andúð sína á kynþáttakúgun, ofbeldi
og réttarmorðum valdhafanna þar. Frelsishreyf-
ing Suður-Afríku hefur sjálf lagt áherzlu á nauð-
syn þess að viðskiptabann verði ,sett á fasista-
stjórnina; það gæti á skömmum tíma neytt hana
'til algers undanhalds fyrir lágmarkskröfum þegn-
anna um frelsi og mannréttindi.
gn við íslendingar styðjum kúgunarstjórnina í
verki með stórauknum viðskiptum okkar. Þeg-
ar viðskipti dragast saman í nágrannalöndunum
eru opnaðir markaðir hér;1 íslerizkir kaupsýslu-
menn og íslenzk stjórnarvöld syíkja mannrétt-
indabaráttu annarra í ábataskyni. Og í verzlunum
blasa við auglýsingaspjöldin um Outspan-appel-
sínur sem pönrmn þess hversu lítils mannlegt sið-
gæði' er metið í þjóðfélagi gróðahyggjunnar. — m.
MERKAR UPPG0TVANIR
f BLÓDSEGARANNSÓKN
Með aðstoS nýrrar mæli-
tækni hefur í stofnun þeirri í
Noreg-i, sem annast blóðsega-
rannsóknír, tekizt að einangra
þau efní í fæðunni, .sem stuðla
að myndun þlóðsega í manns-
líkamanum. (Blóðsegi-trom-
bose).
Á undanförftum árum hafa
orðið breytingar á mataræði í
Danmörku. sem því valda að:
almenningur fær miklu minna
magn af línólensýru í matn-
um ,en áður var. Að öllum
líkindum mundi oft takast að
kcma í veg fyrir þennan sjúk-
dóm með því að bæta línólen-
sýru í smjörlíki,' matarolíu,,
smjör og jafnvel mjólk
Það er formaður norsku
blóðsegarannsóknarstofnunar-
innar. Paul A. Owren, sem
birtir þess fregn í tímariti.
norska læknafélagsins, og P.
From-Hansen yfirlæknir við
amtssjúkrahúsið í Glostrup
hefur farið mjög lofsamlegum
orðum um raftnsóknir þessar,
sem enn- eru á döfinni í Nor-
egi.
Árum saman hefur það ver-
ið til gaumgæfilegrar athugun-
ar, hvort ómettaðar fitusýrur
gætu komið að gagni við að
varna blóðsega. Þegar gerð
var í þessu skyni tilraun með
línólénsýru, fór árangurinn
fram úr öilum vonum.
Skammtur, sem ekki nam
nema tveimur matskeiðum,
nægði til að breyta horfunum
algerlega til batnaðar á hálf-
um sólarhring. og- sami ár-
angur náðist með því að gefa
fimm millígrömm á dag i viku
Það er línólensýran, sem
þessu veldur. ' Af henni þarf
1—3 gr. á dag til að draga
úr hættunni af blóðs^gamynd-
un. Sumir menn þurfa senni-
lega meira, aðrir minna, en
svo míkið er víst, að skortur
á þessu efni eykur verulega
á hættun. Á síðustu fimmtíu
árum hefur mataræðið breytzt
þannig, að nú fá menn ekki
nema helming þess sem áður
var. Það er minna borðað af
brauði og megnið af því er
úr fínna mjöli. og þær ómett-
uðu fitusýrur. sem línólensýrán
er í, eru m a. í hrati korns.
Efnin, sem höfð eru í smjör-
líki, eru öðruvísi samsett en
áður var. Það fer eftir þvi,
á hverju fóðrað er, hve mikið
af linólensýru er í kjöti og
fleski. Mikið kapp hefur ver-
ið lagt á að auka geymslu-
þol þessara matvæla. en það
verður því meira sem minna
; er af línólensýru í kjötinu.
■ Langmest er af línólensýru í
hrossakjöti, og það svo, að
allt að því 14% af fitunni er
línólensýra.
Próf. Owren og samstarfs-
menn hans hafa fundið að
hættan á blóðsegamyndun er
háð ástandi blóðkornanna, og
það hefur gert þeim unnt að
framkvæma þessar rannsóknir,
að auðvelt er að sjá hvernig
mismunandi efni orka k sega-
myndanir blóðkornanna.
Auk þess hefur tekizt að
einangra efni nokkurt í blóð-
inu, sem stuðlar að blóðsega-
myndun, óg með því að flytja
efni þetta milli manna. hefur
tekizt að sanna að svo sé.
Þannig hafa menn fundið að
til eru efni sem beinlínis valda
þessum sjúkdómi. og getað
sagt til um hver þau eru.
Ekki ber að skilja þetta svo.
að búið sé að finna orsakir
til æðakölkunar. Próf. Owren
ætlar nú að reyna línólensýr-
una við ýmsa sjúkdóma, sem
aukin hætta á blóðsegamynd-
un fylgir. Hann ætlar að
reyna aukið magn af línólen-
sýru í fæðu sjúklinga, vegna
þess að blóðsegarnir gera æðo,-
kölkunina miklu hættulegri en
annars væri. hvort sem hún
er í hjarta. heila eða fótum
(Cr Politiken).
Aer Lingus og Sabena bæta við sig
■ Á fáum sviðum viðskiptalífsins er auglýsinga-
tæknin jafn vel skipulögð og kynningarstarfið
meira en hjá flugfélögunum um heim allan, ekki
hvað sízt hjá hinum stærri félögum sem halda
uppi reglubundnum ferðum á alþjóðlegum flug-
leiðum. Samkeppni félaganna er hörð og miklu
fé varið af þeirra hálfu til auglýsinga- og kynn-
ingarstarfsins.
■ Þjöðviljinn fær til dæmis reglulega fréttátil
kynningar og upplýsingapésa frá mörgum af
kunnustu flugfélögum heims, efni sem dreift er
til fjölmargra blaða og fréttastofnana víðsvegar
um heim. Við höfum farið í bunkann sem nýj-
astur er og rákumst þá á það sem hér fer á
eftir.
Fréttir frá írlandi herma að þessu ári á flutníngum Aer
mikil aukning hafi orðið á Lingus. írska flugfélagsins.
bæði farþega. og vöruflutning-
um.
Farþegaflutningar félagsins
til Bretlands og meginlands
Evrópu jukust t.d. á fyrsta
fjórðungi þessa árs um 12 af
hundraðf, og tíl bess að mæta
áætlaðri aukningu farþega-
fjöldans um aðalferðatímann
jók félagið mjög flugvélakost
sinn, bæði með nýjum eigin
vélum og leiguvélum.
Mest hefur aukningin orðið
á þessu ári í farþegaflutningum
Aer Lingus á flugleiðum yfir
Atlanzhafið, en þar jókst far-
þegafjöldinn um 64 af hundr-
aði, en jafnframt hefur orðið
aukning á, vöruflutningum sem
nemur 58% 1 maí-mánuði var
sætanýtingin í flugvélum írska
félagsins á flugleiðinni austur
yfir Atlanzhafið 77% og hin
hæsta hjá þeim félögum sem
halda uppi áætlunarferðum á
þessari leið og eru innan Al-
þjóðasamtaka flugfélaga, IATA.
Telja forráðamenn Aer Lingus
þessa aukningu að þakka mik-
illi og vandlega skiplagðri
auglýsingaherferð um gjörvöll
Bandaríkin og Kanada fyrr á
þessu ári. f þessari auglýsinga-
herferð var. lögð áherzla á að
kynna Irland sem ferðamanna-
land og jafnframt boðið upp
á lægri fargjöld fyrir túrista.
Tilkynnt hefur verið að ,tvær
nýjar þotur af gerðinni Cara-
velle VI bætist á næsta ári
í flota belgíska flugfélagsins
SABENA. en átta slíkar þotur
átti félagið fyrir. Fyrri þot-
una fær félagið afhenta í jan-
úar n.k. en þá síðari í apríl-
mánuði.
Sabena tók fyrstu þotuna af
gerðinni Caravelle VI í notkun
fyrir þremur árum á flugleið-
um í Evrópu og til hinn ná-
lægari austurlanda.
@niinental hjólbarðarnir
eru sterkir og endingurgóðir
Útsölusta ir-
Ólafsvík:
Bíldudal:
fsafirði:
Blönduósi:
Akureyri:
Húsavík:
Raufarhöfn:
Breiðdalsvík:
HomaörðS:
Vestmannaeyjum:
Þykkvabæ:
Seyðisfirði:
Hreðavatni:
Keflavík:
Hafnarfirði:
Sauðárkróki:
Búðardal:
Marteinn Karlsson
Gunnar Valdimarsson
Bjöm Guðmundsson, Brunng. 14
Zóphónías Zóphóníasson
Stefnir hf. flutningadeild
Jón Þorgrímsson, bifreiðaverkst.
Friðgeir Steingrímsson
Elías P. Sigurðsson
Kristján Imsland kaupmaður
Guðmundur Kristjánsson Faxa-
stíg 27, hjólbarðaverkstæði.
Friðrik Friðriksson
Gunnar Skúlason, Oddagötu 6
Leopold Jóhannesson
Hjólbarðaverkstæði
Ármanns Björnssonar
Vörubílastöð Hafnarfjarðar
Verzl. Haraldar Júlíussonar
Jóhann Guðlaugsson.
GÚMMÍ V/NNUS TOFAN
Skipholti 35. — Sími 18955
»
4