Þjóðviljinn - 08.09.1964, Blaðsíða 1
árgangur — 202, tölublað.
Þriðiudagur 8. september 1964
Söltunin 190 þús. tunnum minni en í fyrru
Samkvæmt skýrslu Fiskifé-
lags Islands um síldveiðarnar
nordanlands og austan nam
síldarsöltunin á miðnætti s.l.
laugardag 270.579 tunnum og
er það rösklega 190 þúsund
tunnum minna en á sama
tíma í fyrra en þá hafði ver-
ið saltað í 462.867 tunnur.
í hitteðfyrra sem var metár
í síldve'ði var söltunin þó
talsvert minni um þetta leyti
en í fyrra eða 372.906 tunnur
og var veiðitímanum þá að
ljúka. Er því ekki vonlaust
um að söltunin nú verði svip-
uð og í hitteðfyrra ef veiði
heldur enn áfram því síldin
virðlst heldur fara batnandi
til söltunar.
GLÆSILEGUM LANDSFUNDI
LAUK Á SUNNUDAGINN
'
□ Landsfundur Samtaka hernámsandatæðinga
sem haldinn var í Mývatnssveit um sl. helgi
var mjög fjölsóttur og ánægjulegur og voru
fundarmenn einhuga um að brýnasta verk-
efni samtakanna væri að hvetja landsmenn
til virkrar þátttöku í sókninni fyrir brottför
hersins og hlutleysi íslands.
A landsfundi hernámsandstæOinga i Mývatnssveit var margt um góðan manninn. Hér sjáum við
hvorki meira né minna en tólf skáld fyrir durum úti í Skjólbrekku. Skáldin eru, talið frá vinstri:
jónas Svafár, Einar Kristjánsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Guðmundur Böðvarsson, Jón
frá Pálmholti, Þorsteinn frá Hamri, Haildóra B. Björnsson, Sverrir Haraldsson, Þóroddur Guð-
mundsson, Jakobina Sigurðardóttir, Jóhannes úr Kötlum og Einar Bragi Sigurðsson. Nokkur
skáld vantar á myndina, þeirra á meðal Rósberg G. Snædal og Steingrím i Nesi. (Ejósm. J. Th. H.)
Enn vantar 340 þúsund mál upp á aflametið:
Síidaraflinn orHinn rúm-
lega 2 miij. mál og tunnur
□ Samkvæmt yfirlitsskýrslu Fiskifélags ís-
lands nam heildarsíldaraflinn á miðnætti sl. laug-
ardag 2.034.512 málum og tunnum en var á sama
tíma í fyrra 1.374.414 mál og tunnur.
f~~| Um þetta leyti í hitt-
eðfyrra var heildaraflinn
hins vegar 2.320.023 mál og
tunnur eða nálega 300 þús-
und málum og tunnum meiri
en nú. Vertíðinni var þá að
ljúka og varð lokatala sum-
arsins 2.370.066 mál og tunn-
Blaðburður
Enn vantar fólk til blað-
burðar í eftirtalin hverfi:
MELA
SKJÓL
KVISTHAG^
GRUNNA
BRtJNIR
ALFHEIMA.
Talið við afgreiðsluna
sími 17-590.
ur og er það aflamet á síld-
veiðum hér við land.
0 í fyrra lauk síldarver-
tíðinni ekki fyrr en seint í
september og varð heildar-
aflinn rösklega 1.6 milj. mál
og tunnur.
1 skýrslu Fiskifélagsins segir
svo um veiðina í siðustu viku.
Góð síldveiði. var síðustu vikll
og veður sasmilegt.
Aðalveiðin var austur af
Langanesi um 60—85 mílur und-
an landi. Einnig var nokkur
veiði um 50 mílur út af Dala-
tanga.
Vikuaflinn var 199.740 mál og
tunnur, en í sömu viku í fyrra
195.043 mál og tunnur. Heild-
araflinn á miðnætti laugardags
5. sept. sL var orðinn 2.034,512
mál og tunnur, en 1.374.414 mál
og tunnur á sama tíma í fyrra.
Aflínn hefur verið hagnýttur
þannig:
1 salt (upps. tu.) 270.579, í fyrra
462.867- I frystingu (uppm. tu.)
31.619, í fyrra 31.273. 1 bræðslu
(mál) 1.732.214, í fyrra 880.274.
Helztu löndunarhafnir eru
þessar:
Siðastliðinn sunnudag Iauk
lamlsfxíndi hernámsandstæðinga
sem haldinn var í félagsheimil-
inu Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Fnndinn sótti f jöldi manns, bæði
fulltrúar og gestir víðsvegar að
af Iandinu. Um kvöldið var svo
sameiginlegt borðhald í Hótel
Reynihlíð. og þar sleit Þóroddur
Guðmundsson, skáld frá Sandi.
landsfundinum með snjallri
ræðu. Allur var þessi lands-
fundur glæsilegur vottur þess,
að enn fór utanríkisráðherra,
Guðmundur I. Guðmundsson,
með staðlausa stafi er hann héit
því að Norðmönnum, að and-
staða gegn hernáminu væri með
öllu hjöðnuð á fslandi.
Almennar umræður
Eins og frá hefur verið skýrt
í blaðinu, hófst landsfundurinn
kl. 2 e.h. á laugardag, og setti
Steingrímnr Baldvinsson, bóndt
<5>í Nesi. fundinn. Voru síðan
kjörnir starfBmenn fundarins,
forsetar og ritarar og skipað í
nefndir, en þá flutti Ragnar
Arnalds skýrslu um störf sam-
takanna á Kðnu ári. Þeir Guð-
mundur Ingi Kristjánsson, skáld
frá Kirkjubóli, Þórarinn Har-
aldsson í Laufási og Þorsteinn
skáld frá Hamri fluttu fram-
söguerindi um þjóðfrelsismál,
en síðan hófust almennar um-
ræður. Stóðu þær fram eftir
kvöldi og verða ræðumenn ekki
taldir hér. Allar einkenndust
ræðurnar af sóknarhug og þeim
vilja fundarmanna að hefja
sókn til styrktar samtökunum
gegn hemáminu og spillingará-
hrifum þess.
Siglufjörður 260.530 mál og tu.
Bakkafjörður 21.463. Hjalteyri
42.487. Krossanes á6.160. Húsavík
34.812. Raufarhöfn 404.219.
Vopnafjörður 193.538. Ölafsfjörð-
ur 21.311, Borgarfjörður eystri
22.102. Seyðisfjörður 317.250.
Neskaupstaður 281.917. Eskifjörð-
ur 142.168. Reyðarfjörður 100.667.
Fáskrúðsfjörður, 65.460. Breið-
dalsvík 18.869.
í Vestmannaeyjum hefur ver-
ið landað frá júitíbyrjun
159.502 málum.
þykkt í einu hljóði. Er verk-
efnaályktunin birt annarsstaðar
í blaðinu. Þá voru lagðir fram
reikningar samtakanna og kos-
ið í miðnefnd og landsnefnd.
Er annarsstaðar í blaðinu skýrt
frá því, hverjir skipa miðnefnd-
ina.
Hóf í Reynihlíð
Síðdegis var svo sameiginlegt
borðhald í Hótel Reynihlið og
stjórnaði Eirikur Pálsson hófinu
af glæsibrag. Jóhannes skáid úr
Kötlum las úr Sóleyjarijóðum
sínum, Ragnar Helgason á Kópa-
skeri flutti frumort minrtí kvenna
og Halidóra B. Björnsson flutti
frumort Ijóð. Þóroddur Guð-
mundsson sleit síðan fundinum
með éldheitri hvatningarræðu.
Þóroddur hefur manna mest og
bezt, að öðrum ólöstuðum, starf-
að fyrir samtökin, og undanfarin
fimm ár hefur hann verið ó-
Framhald á 10. síðu.
Vurð fyrir
voðaskoti
Rétt fyrir helgi varð reykvísfc-
xu- vörubílstjóri fyrir voðaskoti
á ferð með tveim félögum sinnm
í bifreið austur í Arnessýslu og
lézt hann samstundis. Maðurinn
hét Sverrir Ingólfsson til heim-
ilis að Vesturgötn 20 I Reykja-
vík.
Þeir félagar voru á tóð til
laxveiða austur í Stóru Laxá í
Hreppum og ætluðu líka að huga
að gæsum.
Sverrir heitinn sat í aftursæti
bifreiðarinnar og var rifffU
skorðaður í framsætinu miUi fé-
laga hans.
Þeir voru fyrir skömmu búnir
að beygja inn á Skeiðaveginn,
þegar slysaskotið reið af.
Bðrinn niðnr í
Pósthússtræti
Aðfaranótt sunnudags var ráð-
izt að manni með barsmíðum
fyrir utan Hótel Borg og þótti
það heldnr grár leikur í haust-
húminu fyrir utan þetta þekkta
gleöihús hér í borg.
Var maðurinn barinn niður í
götuna og jafnvel sparkað í and-
lit honum og er hann iila
skrámaður í andliti.
Árásarmaðurinn hafði flokk
manna með sér og héldu þeir
aðvífandi mönnum í skefjum,
sem hugðust ganga á nuffi til
sátta.
Seinni hluta dags í gær gaf
árásarmaðurinn sig fram við
rannsóknarlögregluna og skýrði
málsatvik séð frá hans bæjar-
dyrum.
Hinn slasaðl hefur hinsvegar
átt erfitt nm mál fram að
þessu.
Miðnefnd kjörin
Klukkan tíu árdegis á sunnu-
dag hófst fundur að nýju. og
flutti þá Magnús Torfi Ólafsson
ýtarlegt framsöguerindi um
breytt viðhorf í alþjóðamálum.
Nefndir höfðu starfað fram eft-
ir nóttu og skiluðu áliti. Urðu
miklar umræður um nefndará-
litin og hernámsmálin almennt.
Síðan var lagt fram ávarp fund-
arins og verkefnaálit samtak-
anna og var hvort tveggja sam-
Mikill ekfur / norsku sild-
veiðiskipi út uf Dulutungu
Syðisfirði 5/9 — I gær kom
upp eldur í norska sildveiðiskip-
inu Vaago, statt 75 sjómílur
undan Dalatanga.
Norska síldveiðiskipið Andoy
kom að Vaago, þegár það var
brennandi og skipshöfnin að
fara í bátana.
Tókst skipverjum á Andoy að
slökkva eldinn í hinu brennandi
skipi og tók það síðan í tog til
Seyðisfjarðar.
Lagðist Vaago utan á Val-
kyrien, norskt hjálparskip inn
á höfninni á Seyðisfirði.
Hinsvegar blossaði eldurinn
upp öðru sinni í skipinu í gær-
kvöld og var unnið síðastliðna
nótt við að slökkva hann og
fram eftir degi. í dag.
Hefur skipið skemmst illa, eh
engin slys urðu á mönnum.
Fögnuður að unnum sigri
Tveir ungir aðdáendur fagna Rúnari er hann gengur af ieikvelli
eftir góða frammistöðu gegn Val sl. laugardag.
Sjá síðu Q
■i