Þjóðviljinn - 11.09.1964, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.09.1964, Blaðsíða 8
8 SIÐA I ÞlðÐVILIINN piére eða sál Despiéres í flokki sálna sem valið var úr af til- viljun þennan morgun eða ein- hvem annan morgun, var óþol- andi. — Ég er búinn að fá nóg, sagði Jack við Carlottu. — Ég bíð eftir þér fyrir utan. Hún hafði staðið þögul við hliðina á honum og starað upp í loftið gegnum gleraugun sín. Hún var alvarleg og áhyggju- full á svipinn. — Ég er líka bú- in að fá nóg, sagði hún. — Ég fer með þér. Hún tók af sér gleraugun og setti þau í tösk- una sína og þau gengu yfir bert gólfið og út saman án þess að segja meira. Það var skýjað þegar þau komu út og torgið var grátt og þunglyndislegt í flötu ljósinu. Þau stóðu fyrir framan gos- brunninn og horfðu á hvolfþak Péturskirkjunnar. — Það greip mig svo undar- leg tilfinning þama inni, sagði Carlotta. Mér fannst einhvern veginn eins og Michelangelo hefði ekki trúað á guð. Jack leit hvasst á hana. Sem snöggvast hélt hann að hann hefði talað upphátt inni i kap- ellunni án þess að vita það. — Hvað er að þér? spurði Carlotta. Af hverju horfirðu svona á mig? — Af því að ég var einmitt að hugsa um það sama þama inni, sagði Jaek. — Það er svona með hjón, sagði C^rlotta. Eftir vissan ára- fjölda fara þau að hugsa sömu hugsanir á sama tíma. Það er hinn æðsti trúnaður. — Við erum ekki hjón. — Fyrirgefðu, sagði Carlotta. Ég gleymdi því. Andartak stóðu þau bæði og horfðu á kirkjuna dálítið miður sín. — Hve marg- ir þeirra sem tóku þátt i að byggja þessa kirkju, heldurðu að hafi trúað á guð í raun og veru? — Kannski flestir þeirra, sagði Jack. Tímabil trúarinnar. . . . — Ég veit ekki, sagði Carl- otta Það er erfitt að sjá það af verkum þeirra. Til dæmis at- riðin úr bibiíunni þarna inni. Botticelli-myndin af Móses sem krýpur fyrir framan logandi HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofu STErNU og DÓDÓ Laugavegi 18, III. h (lyfta) — SÍMI 2 4616 P E R M A Garðsenda 21. — SlMI: 33 9 68 Hárgreiðslu og snyrtistofa. D 0 M V R ! Hárgreiðsla við allra hæfi — TJARNARSTOFAN. - .Tjamar- götu 10 — Vonarstrætismegin — SlMI: 14 6 62. HARGREIÐSLUSTOFA AUSTURB/EJAR — (Maria Guðmundsdóttirt LaugavegJ 13. — SÍMI: 14 6 56. — Nuddstofa á sama stað. runnann. En Botticelli málaði líka Venus, sem reis upp úr öld- unum. Á hvað trúði hann? Kraftaverkið með brennandi runnann eða kraftaverkið um Venus sem stígur alsköpuð upp- úr hafinu? Af hverju fremur eitt en annað? Og á hvað trúir þú? — Meðan við vorum gift, hvað hélztu þá að ég tryði á? sagði hann. — Tja, ég geri víst ráð fyrir að þú héldir, að einhvers konar guð væri til. — Það geri ég kannski enn, sagði Jack hugsandi. — Ein- hvers konar guð sé til. Já, ég held það. En ég held ekki að hann hafi svo mikinn áhuga á okkur. Að minnsta kosti ekki jafnmikinn áhuga og öll trúar- brögðin segja að hann hafi. Ég á við að það komi honum ekki við hvort við myrðum náunga okkar eða heiðrum föður okkar og móður eða girnumst eigin- konu náunga okkar. Ég trúi þvi ekki. að við sjálf séum svo þýð- ingarmikil og mikilvæg. Ef til er guð, þá er hann kannski vis- indamaður og þessi heimur er ein af rannsóknarstofum hans, þar sem hann gerir aðgerðir og fylgist með árangrinum af efna- fræðitilraunum. Því ekki það? Við erum brytjuð niður lifandi, bað er eitrað fyrir okfcur, við deyjum í miljónatali, alveg eins og apar í rannsóknarstofum. Hann talaði ofsalega, gaf útrás þeirri beiskju sém hann fann til yfir ótímabærum dauða Despi- éres. — Apinn, sem deyr vegna þess að hann er notaður við til- raunir og ekki fær bóluefni, er áreiðanlega ekki meiri synd- ari en apinn sem hlíft hefur verið og aðeins hefur haft hita í nokkra daga. Kannski erum við apar guðs og þjáumst og deyjum til þess að hann megi fræðast af. Og sektarkenndin sem við finnum stundum til þeg- ar við brjótum það sem við höldum að séu lögmál hans, er kannski ekki annað en einhver veira sem honum hefur tekizt að hreinrækta og stjóma. Og trúin er kannski bara aukaverk- un eða einkenni sektarveirunn- ar. alveg eins og sumt fólk fser útbrot af penicillíni. Carlotta hrukkaði ennið. — Mér leiðist að heyra þig tala svona, sagði hún. Þetta er svo óhugnanlegt. — Þetta er eiginlega ekkert óhugnanlegra en kristindómur- inn sjálfur, sagði Jack. Þú trú- ir sjálf á kvikuskurði, er það ekki? — Það er ég ekki viss um. — Auðvitað gerirðu það. Ef hægt er að bjarga einu barni með dauða miljóna apa, þá finnst þér það rétt, er það ekki? — Jú, það er víst, sagði Carlotta hikandi. — Jasja, en er það ekki gleði- 'legra að trúa því, en að við sé- um dæmd til eilífrar glötunar fyrir skapgerðareinkenni sem við getum enga stjóm haft á og hafa orðið til hjá manndýr- inu alveg á sama hátt og aug- un og eyrun og skilningarvitin fimm? Á þann hátt getum við að minnsta kosti trúað því að allt hafi einhvern tilgang, að einhvers staðar í alheiminum sjáist ávöxtur af þrautum okk- ar. Alveg til þessa höfum við getað trúað því, að tilraunir vís- indamannanna þjónuðu ákveðn- um, skapandi tilgangi. En við tilkomu vetnissprengjunnar og sýklahemaðar og annars slíks, erum við ekki lengur viss í okk- ar sök. f dag er vísindamaður undir grun. Og ekki að ástæðu- lausu Ef við ættum að dæma vísindamennina af öllu þvi illa sem þeir hafa gert mannkyn- inu, þá myndi stór hluti þeirra verða lokaður inni sem geðveik- ir glæpamenn. En við getum ennþá vonað að guð sé fyrir- stríðs vísindamaður, sem hafi farið ögn útaf sporinu, en gangi ekki nema gott eitt til. En auð- vitað má ekki blanda skynsem- isástæðum guðs saman við okk- ar — ekki fremur en rugla má saman ástæðum vísindamannsins og apans sem hlutaður er sund- ur á skurðarborðinu. Það fór hrollur um Carlottu. — Mér leiðist þetta tal, sagði hún. Við skulum koma aftur inn í bílinn. 67 Jack tók í handlegginn á henni og þau gengu af stað þangað sem bíllinn stóð. — Hefur þér alltaf fundizt þetta? spurði Carlotta. — Líka meðan ég þekkti þig? — Nei, sagði Jack. Bara síð- ustu tólf-fjórtán dagana. Siðan ég kom til Rómar. Ég er að byrja nýtt æviskeið. Undarleg- ustu hlutir hafa komið fyrir mig síðan ég kom hingað. — I þínum sporum. sagði hún, myndi ég forðast þessa borg. — Kannski geri ég það líka, sagði hann. Kannski geri ég það. Áður en þau komu að bíln- um, þar sem Guido stóð vökull og kurteis og hélt dyrunum opnum, sneri Carlotta sér við og leit í síðasta sinn á Péturs- kirkjuna —Svoija margar kirfcj- ur, sagði hún, um allan heim, og allt til einskis. Fyrir lygi, draum ... Hvílík sóun. Jack hristi höfuðið. — Það er ekki sóun, sagði hann. — Já, en þú varst að segja rétt áðan — — — Ég veit vel hvað ég var að segja áðan. En það er ekki sóun samt. Þótt ekki væri fyr- ir annað en þetta... Jack benti á bygginguna. Þótt ekkert hefði nokkum tíma fengizt i aðra hönd nema það sem Micelang- elo hefði gert, þá væri það þess virði. Og auðvitað er um miklu meira að ræða. Ekki aðeins 4" þreifanlega hluti, steinana, stytt- umar, gluggana, málverkin, heldur líka þá hughreystingu sem þetta allt hefur veitt hin- um trúuðu .. . — Hinum trúuðu, sagði Carl- otta. Flæktum í net lyganna .. . — Ekki flæktum í net, sagði Jack. Göfguðum af lygi. Ég öf- unda þá, ég öfunda hvem ein- asta sanntrúaðan af öllu hjarta. -*■ Já, en af hverju trúirðu þá ekki sjálfur? spurði Carlotta. Þarfnastu ekki sjálfur dálítillar hughreystingar? — Af hverju ég trúi ekki? Jack yppti öxlum. „Þú skalt trúa“, segja þeir. Það er eins og að segja: „Þú skalt vera fal- legur“ Ég vildi líka gjaman vera fallegur ... Þau stóðu andartak enn og horfðu yfir torgið. Vindur var napur og ónotalegur og fáeinar nunnur sem hröðuðu sér að tröppunum virtust bornar yfir steinlagða stéttina á bylgjandi pilsum sínum. — Það fer að rigna, sagði Jack. — Mér þykir leitt að við skyldum fara hingað. Þetta er rangsnúinn morgunn. Við skul- um koma aftur til Rómar. 1 bilnum á heimleiðinni þögðu þau lengst af. Carlotta sat í hominu, alvarleg og hugsi Qg leit ekkert á Jack. Eftir nokkr- ar mínútur rauf hún þögnina. — Veiztu hvers vegna ég hef aldrei fyrr talað við þig um trú- mál? sagði hún. Vegna þess að í mínum augum eru trúmál tengd dauðanum. Og ég get ekki afborið að hugsa um dauðann. Hugsar þú mikið um hann? — Á stríðsárunum gerði ég það — býsna mikið, sagði Jack. Og nú upp á síðkastið, eftir að ég kom til Rómar. Carlotta tók af sér hanzkana. Hún horfði á berar hendurnar og strauk þeim háegt saman. — Þetta hold, sagði hún hljóð- lega, og Jack vissi við hvað hún átti með þessari athöfn og hvers vegna hún hafði sagt þetta. Hún rétti út vinstri höndina og greip um hönd hans og hélt fast i hana. — Jaek, viltu bjóða mér í kvöldmat í kvöld? Ég vil ekki vera ein í kvöld. — Ég er hræddur um að það sé ekki góð hugmynd, sagði Jack eins vingjamlega og hann gat. Hann hefði getað sagt að hann væri upptekinn, en hann vildi að hún vissi, að hann hafnaði henni viljandi. Hún dró höndina að sér í skyndi. — Fyrirgefðu, sagði hún. Hún fós aftur í hanzkana og strauk vandlega úr hrukkunum. Hversu oft, hugsaði Jack, hef FERDIZT MED LANDSÝN ( • Selfum farseðla með fíugvélum og skipum Greiðsluskilmáfar Loftleiða: • FLOGIÐ STRAX — FARGJALD GREITT SÍÐAR 9 Skipuíeggjum hópferðir og ein- staklingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN LAN EJ SVN nr TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK. (JMBOÐ LOFTLEIÐA Föstudagur 11. september lAál SKIPATRYGGINGAR Tpyggingar á vörum í flutningi á eigum skipverjja Heimistrygging hentar yður Áhafnasiysa Ábyrgðar Veiðarfæra Aflatryggingár TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf LINDARGATA 9 REYKJAVIK SlMI 2 1 260 SlMNEFNI t SURETY Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó. KRGN - bú'ðirnar. Flugsýn kf. sími 18823 FLUGSKÓLl Kennsla fyrir einkafiugpróf — atvinnuflugpróf. Kennsla i NÆTURFLUG1 FFIRLANDSFLUGI BLINDFLUGI. Bókleg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar i nóvembeT og er dagskóli. — Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf, vor og haust. FLUGSÝN h.f. sími 18823. FERÐABÍLAR 9 til 17 farþega Mercedes-Benz hópferðabílar af nýjustu gerð, til leigu i lengri og skenunri ferðir. — Afgreiðsla alla virka daga, kvöld og um helgar 1 síma 20969 Sendisveinn éskust strax, bæði fyrir og eftir hádegi. Sími 17-500. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.