Þjóðviljinn - 15.09.1964, Qupperneq 10
Hér er skipshöfnin á Sæfaxa. Skipstjórinn Gunnar Jóhannsson ste ndur lengst til vinstri. Þeir hafa fengið tæp 13 þús. mái það sem
af er vertíðinn i. — (Ljósm. H. G.)
Saltað í 10000. tunnuna hjá Drífu
ÞriSjudagur 15. september 1964 — 29. árgangur — 208. tölublað.
Nokkrir síldarbátar hættir
Seyffisfirði, 14/9 — Nokkrir |
bátar eru nú farnir heim af
síldveiðum og er minnsta kosti j
vitað um þessa: Jón á Stapa,
Eldhorgina, Helgu RE, Sigur-
karfa. Halldór Jónsson ÓF, Jón
Jónsson ÓF, Steinunni ÓF og
eina fimm Akranesbáta. Helga ‘
er á leið til Noregs til viðgerð- '
ar og hafði hún aflað1 25 þús-
und mál.
Eins og sjá má af þessu eru
allir bátar Halldórs Jónssonar
í Ólafsvík hættir. Bátarnir fyr-
ir austan og norðan eru harðir
af sér ennþá og hyggja á síld-
veiðar þangað til í október
Hagyrðingar gera víðreist
NESKAUPSTAÐ 13/9 — Enn er saltað af kappi á söltunar-
stöðvum á Austfjörðum, þegar silfurfiskurinn næst á ann-
að borð úr sjó, en óblíð veðrátta hefur gert flotanum erfitt
fyrir um veiðar langtímum saman síðari hluta sumarsins.
Sæmilegur afli fékkst þó seinni hluta vikunnar sem leið,
og austur í-Neskaupstað gerðust þau ánægjulegu tíðindi,
að þrjár söltunarstöðvar, Drífa, Máni og Sæsilfur, náðu
10 þús. uppsöltuðum tunnum hver.
Fulltrúar 4ra
þjóðfaöfðingja
- við ntförina
Þjóðhöfðingjar Svíþjóðar,
Norfeþs' og Danmerkur hafa
falið ambassadorum sínum
hér að vera persónulegir
fulltrúar sínir við útför
forsetafrúar Dóru Þórhalls-
dóttur.
Ennfremur hefur forsæt-
isráðheiTa Bretlands falið
sendifulltrúa Bretlands hér
að vera persónulegur full-
trúi sinn við útförina.
Jafnframt mun brezki
sendifulltrúinn mæta sem
fulltrúi fyrir utanríkisherra
Bretlands.
(Frá skrifstofu forseta
Islands)
Sigurvegari f þessu tvísýna
kapphlaupi varð annars söltun-
arstöðin DRÍFA og var þar
mikið um dýrðir af þessu til-
efni. Það var um kl. 11 fyrir
hádegi sl, sunnudag og frétta-
ritari blaðsins msettur niðrá
piani til að ná í mynd af þeim
stúlkum, sem höfðu heppnina
með sér þennan dag. Fyrir
tunnu nr. 10.000 skyldu veitt
1000.— kr. verðlaun og 500.—
kr. á tunnu 9999 og 10001, fyrir
svo utan ,.kók“ og vindlinga
á allan mannskapinn.
Annars var þetta óvenju góð-
ur dagur hjá Drífu. Guðrún
Jónsdóttir IS kom með 280
tunnur, verðlaunatunnan kom
upp úr Sæfaxa NK, sem var
með 400 t.. og síðar um daginn
var von á Björgu NK með 800
t., Þráni NK með 900 og Gull-
faxa NK með 500. Sem sagt
góður dagur hjá Norðfjarðar-
bátum. — 1 fyrra var saltað í
14 þús. tunnur alls hjá Drífu,
og lauk söltun með lagaboði 2.
sept. En nú er enn mikið ósalt-
Iðnþingi íslands slitið
26. Iðnþingi íslendinga var
slitið í Sjálfstæðishúsinu á Ak-
ureyri laugardaginn 12 sept. sl.
Iðnþingið samþykkti að gera
þá Sveinbjörn Jónsson forstjóra
Ofnasmiðjunnar h.f. í Reykja-
vík og Indriða Helgason raf-
virkjameistara á Akureyri að
heiðursfélögum Landssambands
iðnaðarmanna. Ennfremur voru
þeir Sveinn Tómasson slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri. sem ver-
ið hefur formaður Iðriaðar-
mannafélags Akureyrar í 10 ár
og Jóhann Frímann fyrrv. skóla-
stjóri Iðnskólans á Akureyri
sæmdir gullheiðursmerki iðn-
aðarmanna.
Or stjóm Landssambands iðn-
aðarmanna áttu að ganga þeir
Vigfús Sigurðsson húsasmíða-
meistari í Hafnarfirði og Gunn-
ar Björnsson bifreiðasmiður i
Reykjavík. Gunnar Björnsson
baðst eindregið undan endur-
kosningu en Vigfús Sigurðsson
var endurkjörinn, og ennfremur
var kjörinn í stjómina Ingólfur
Finnbogason húsasmíðameistari i
Réykjavík,
að upp í samninga og ætla
stöðvamar að halda söltun á-
fram jafnlengi og bátaflotinn
heldur það út á miðunum. —
Fyrir utan þessar þrjár sölt-
unarstöðvar með 10 þús. tunn-
ur er Ás með um 7.177 og
Nípa um 1400 tunnur, þannig
að heildarsöltun hér er nú 38.600
uppsaltaðar tunnur.
Þá hefur SÚN fryst 5200
tunnur. Síldarverksmiðjan hef-
ur nú brætt 270 þúsund mál
og hefur þar með náð bræðslu-
magninu í fyrrasumar, en þá
lauk bræðslu í öndverðum októ-
ber. — H.G.
Samúðarkveðjur tíl
forseta íslands
Forseta Islands hefur borizt
mikill fjöldi samúðarkveðja
vegna andláts forsctafrúar Dóru
Þórhallsdóttur. Auk kveðja frá
fulltrúum erlendra ríkja á Is-
landi, sendiherrum og ræðis-
mönnum Islands erlendis. bæj-
arstjórnum og hreppsnefndum,
eiristaklingum og félagssamtök-
um utan lands og innan hafa
borizt samúðarkvcðjur frá eft-
irtöldum þjóðhöfðingjum:
Konungshjónum Svíþjóðar,
Oiav V. Noregskonungi,
Urho Kekkonen. forseta Finn-
lands,
Knud erfðaprins, ríkisstjóra
Danmerkur,
Elizabeth II.. drottningu Bret-
lands,
Lyndon B. Johnson, forseta
Bandaríkjanna,
Anastas Mikoyan, forseta Ráð-
stjórnarríkjanna,
Cesare Merzagora varaforseta
Italíu,
Istvan Dobi, forseta Ungverja-
lands.
Americo Thomas, forseta
Portúgal,
Zalman Shazar, forseta ísrael.
Georg Diederichs, forseta sam-
bandsráðs Sambandslýðveldisins
Þýzkalands. fyrir hönd forseta
-Sambandslýðveldisins,
Georges P. Vonier, landsstjóra
Kanada.
Ennfremtrr hafa borizt sam-
BLAÐBURÐUR
Þjóðviljann vantar nú þegar fólk til blaðburðar í þessi hverfi.
SKJÖL — KVISTHAGA — LÖNGUHLÍÐ — SKULA-
GÖTU — TEIGA — BRÚNIR.
ÞJÖÐVILJINN
KÓPAVOGUR - KÓPAVOGUR
Laus útburðarhverfi í vesturbænum. Hringið í síma 40319.
ÞJÖÐVILJINN
úðarkveðjur frá forsætisráðherr-
um Danmerkur. Noregs, Svíþjóð-
ar og Bretlands og frá utan-
ríkisráðherra Noregs.
Loks hafa nær tvö þúsund
manns komið á skrifstofu for-
seta íslands og vottað hluttekn-
ingu sína með því að rita nöfn
sín þar.
Skrifstofa forseta íslands mun
verðá opin kl. 9—12 f.h. og eft-
ir kl. 14 þriðjudaginn 15. sept-
ember fyrir þá, sem óska að
votta hluttekningu sína með því
að rita nöfn sín þar.
(Frá skrifstofu forséta íslands).
Búðardal. 11/9 — Haustlitir
eru nú að færast yfir foldu enda
hefur brugðið til heiðríkju með
næfcurfrostum. Sólskrn og góð-
viðri er á daginn. Heyskapur
bænda er orðinn mikill að magni
en tæplega eins að gæðum.
Heygeymslur eru allar fullar og
víða má sjá heyfúlgur við úti-
hús.
Nýlega er afstaðin bændasam-
kcma í Saurbænum. Þar var
samankomið allt að fjögur
hundruð manns enda veður á-
kjósanlegt.
Hefur ekki áður komið sam-
an svo margt fólk á bænda-
samkomu hér. Guðsþjónusta vai'
í Staðarhólskirkju og prédikáði
sóknarpresturinn sr. Ingiberg
Hannesson. Að henni lokinni
var samkoma sett í Tjamar-
lundi af Bjarna F. Finnboga-
syni, héraðsráðunaut.
Ræður fluttu Ásgeir Bjama-
son, alþingismaður og Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda. Þá flutti prest-
urinn minni kvenna og frú
Kristín Tómasdóttir minni karla.
Haggaðist þar ekki hlutur kynj-
anna.
Norðan úr Þingeyjarsýslu
komu ljóðsnillingar til þess að
skemmta. Það voru þeir Baldur
Baldvinsson á Ófeigsstöðum. Eg-
ill Jónasson á Húsavík, Karl
Sigtryggsson á Húsavik og Stein-
grímur Baldvinsson í Nesi.
Kváðust þeir á um hríð og
veitti ýmsum betur. Stefán
Yngvi Finnbogason, tannlæknir
á Húsavík stjómaði þessum
þætti skáldmæringanna Að lok-
um var stiginn dans.
Fór samkoman hið bezta fram
og góður rómur gerður að öll-
um skemmtiatriðum. — B.F.F.
Kartöfluuppskeran rýr
21 þúsund krón-
um stolið
Aðfaranótt sunnudagsjns var
brotist inn í Goðaborg og Hljóð-
færahúsið að Hafnarstræti 1 hér
í bæ. Tekið var þama ófrjálsri
hendi 20 þúsund krónur í Ss-
lenzkum og erlendum peningum.
Þarna var áður til húsa veið-
færaverzlun Geysis, þar til Níels
Jörgensen hóf verzlunarrekstur
þarna, fyrir skömmu.
" Þjófnaðurinn
á Eyrarbakka
upplýstur
Lögreglan á Selfossi hefur nú
upplýst þjófnaðinn á hrepps-
skrifstofunni á Eyrai'bakka, en
þar var stolið 20 til 30 þúsund
krónum um fyrri helgi.'
Þrír ungir piltar voru hér
að verki og er sá yngsti þeirra
tæpra sextán ára.
Þeir höfðu sóað miklu af fénu
í skemmtanir og bílferðir, áttu
þó eftir sjö þúsund krónur af
þýfinu.
Við yfirheyrslu játuðu piltarn-
ir á sig þjófnaðinn. Kváðust
hafa fundið lykil að skrifstofu
hreppsins og fóru svo inn að
nóttu til og hirtu peningana.
Játning piltanna lá Ijós fyrir
og var þeim sleppt iir cæzlu-
varðhaldi.
Selfossi, 14/9 — Nú líður að
kartöfluuppskeru í 'Árnesssýslú
og er búist við lélegri uppskeru
viðast hvar.
Nokkrar frostnætur komu
kringum tuttugasta ágúst og féll
kartöflugras víðast hvar i görð-
unum. Þannig er búist við nær
engri uppskeru í ofanverðum
héruðum, en nær sjávarsiðunni,
þar sem beztar horfur eru á
uppskeru. má búast við sextíu
prósent af því sem fengizt hefði,
ef grösin hefðu staðið fram um
miðjan september.
Er þetta mikið tjón í sýsl-
unni.
Þeir bræða ennþá á Bakkafirði
Bakkafirði, 14/9 — Síldarverk-
smiðjan á Bakkafirði hefur nú
brætt 22 þúsund mál í sumar
og hefur bræðsla yfirleitt geng-
ið með ágætum. Þeir taka enn-
þá á móti síld.
Þá hefur verið saltað í 800
tunnur og þykir það heldur lé-
leg útkomav Þó er ekki öll von
úti ennþá. Aðkomufóik við sölt-
un er þó farið af staðnum.
1 haust ljúka þeir við að
smíða þrær við verksmiðjuna
f túni hreppstjórans og verður
þá þróarpláss fyrir 6 þúsund
mál.
Þar er reiknað með lýsis-
tanknum. \
Heyskapur hefur gengið vel.
Seinni sláttur þó ver. — M.J.
Nestisskrínur teknar fram
Selfossi, 14/9 — Skeiðarréttir
verða átjánda þessa mánaðar. Er
nú farið að taka fram nestis-
skrínur. Fimmtíu manns verða
sendir í fyrstu leit, átján manns
i eftirsafn og fjórir menn í eftir-
leit.
Skeiðamenn fara allt að Arn-
arfelli undir Hofsjökli.
1 Önnur Iöng leitarferð er svo-
kölluð Norðurleit. Er þá farið
um svæðið milli Kisu og Dals-
ár vcstur af Kerlingarfjöllum.
Þrettán þúsund lógað
Þórshöfn, 14/7 — Slátrun hefst
hér næsta mánudag og verður
13 þúsund fjár slátrað. Unnið
er að undirbúningi af fullum
krafti. Jafnframt verður hægt
að hafa fiskmóttöku og vinna
úr fiskinum um Ieið. Gæftir
hafa hinsvegar verið afleitar
undanfarið Þrír róðrar "voru
fyrir helgi og aflaðist þá sæmi-
lesa, Stutt er á miðin.
Nýr kaupfélagsstjóri í Vík
Selfossi, 14/9 — Kaupfélags-
stjóraskipti hafa orðið við Kaup-
félag Skaftfellinga í Vík. Odd-
ur Sigurbergsson lætur nú af
störfum eftir sextán ára þjón-
ustu og tckur við forstöðn k-ag-
deildar StS, en starfssvíð hag—
deildarinnar vcrður aukið og er
henni ætlað að hafa eftirlit með
rekstri aúra kaupfélaga í. lond-
inu.
Við kaupfélagsstjórastöðunni f
Vík tekur Guðmundur A. Böðv-
arsson. en hann hefur verið
forstöðumaóur fyrir bílaverk-
stæðum K.Á. á Se!f<v=“: 1 mtt-
ugu og fimm ár
Við starfi Guömundar tekur
Magnús Hallfreðsson, tækni-
fræðingur.
>