Þjóðviljinn - 18.09.1964, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 18.09.1964, Qupperneq 1
Nýr viðskiptasamningur milli íslands og Póllands andirritaður í Varsjá 12. þ.m. Föstudagur 18. september 1964 — 29. árgangur — 211. tölublað. Hinn 12. septembcr var undir- I ritað í Varsjá samkomulag um ■ viðskipti milli íslands og Pól- ' lands fyrir tímabilið 1. októ- ber 1964 til 30. september 1965. 1 Samkvæmt vörulistum, sem samið var um, er gert ráð fyrir,' að ísland selji eins og áður saltsíld, frysta síld, fiskimjöl. lýsi, saltaðar gærur auk fleiri vara. Frá Póllandi er m.a. gert ráð fyrir að kaupa kol, timbur, járn og stálvörur. vefnaðarvör- ur, efnavörur. sykur, vélar og verkfæri, búsáhöld, skófatnað. kartöflur auk fleiri vara. Af íslands hálfu undirritaði samkomulagið dr. Oddur Guð- jónsson, en af hálfu Pólverja Stanislaw Stanislawski, foTstjóri. (Frá utanríkisráðuneytinu). Islendingar eiga bezta hráefni til sildariSnacSar: Hægt með vinnslu að tífalda út- flutningsverðmæti síldarinnar □ Að undanförnu hefur mikið verið rætt í blöðum um sölu á niðurlagðri síld til Sovétríkj- anna og þá möguleika sem trygg sala á þessari framleiðsluvöru okkar þangað gæfi fiskiðnaði okk- ar í heild en fullvinnsla síldarafurða okkar í landinu sjálfu myndi tífalda útflutningsverðmæti hráefnisins miðað við að setja það í bræðslu. f] Það er ekki vanzalaust fyrir okkur íslendinga, sem eigum bezta hráefnið sem fáanlegt er í heiminum, að vinna það ekki sjálfir í stað þess að flytja það út óunnið eða hálfunnið, en með fullvinnslu síldarinnar myndum við ekki aðeins margfalda útflutningsverðmæti hennar heldur og skapa næga atvinnu á.þeim stöðum á landinu þar sem nú ríkir atvinnuleysi langan tíma úr árinu. e- Rœff vi8 Ægi Ólafsson um vinnslu og sölu á sild Dómur í máli brezka togarans í fyrradag féll dómur í máli brezka togarans Dragoon frá Fleetwood,- sem tekinn var að ó- löglegum veiðum út af Barða s. 1. þriðjudag. Jóhann Gunnar Ól- afsson kvað dóminn upp, og hlaut skipstjórinn 260 þús. króna sekt og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Skipstjórinn viðurkenndi, að hafa verið að veiðum innan 12 mílna markanna, er varðskipið tók hann. Dómnum var áfrýjað, en togarinn hélt frá ísafirði í gær. Aðalfundur h.f. Miðgarðs í kvöld H.f. Miðgarður heldur aðal- fund sinn í kvöld kl. 20.30 Fundarstaður er í húsakynnum félagsins að Skólavörðustíg 19. Æskilegt væri, að sem allra flestir hluthafar mættu á fund- inum. Stjómin. Ægir Ólafsson Almennur skiladagur. Opið til kl. 7 I kvöld I dag höfum við almenn- an skiladag í hapdrættinu og verður opið hjá okkur frá kl. 9—12 f.h. og 1—7 e.h. Það eru eindregin til- mæli til ykkar allra sem hafið fengið senda miða hér í Reykjavík og ná- grenni að þið lítið inn til okkar sem flest í dag og gerið skil. Úti á landinu geta menn gert skil hjá urnboðsmönnum happdrætt- isins eða sent beint til okk- ar . skrifstofuna. ■ Utaná- skrift: Happdrætti Þjóðvilj- ans, Týsgata 3. Við birtum hér á eftir umboðsmenn okkar í Aust- urlandi og Norðurlandi eystra. Egilss taðakauptún: Sveinn Árnason. Eskif jörður: Jóhann Klausen. Neskaupstaður: Öm Scheving. Seyðisfjörður: Jóhann Sveinbjörnsson Höfn Hornafirði: Bene- dikt Þorsteinsson. Akureyri: Þorsteinn Jón- atansson. Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson. Húsavík: Gunnar Valdi- marsson. Raufarhöfn: Guðmundur Lúðvíksson. Næstu daga munum við birta skrá yfir umbo.ðs- menn okkar I öðrum kjör- dæmum. Á morgun birt- um við svo samkeppnina. Herðum sóknina. Gerum skil I dag, Opið til kl. 7 í kvöld í framhaldi af því sem skrif- að hefur verið hér í Þjóðvilj- ann um þessi mál snéri blað- ið sér í gær til þess manns, sem þessum málum öllum er einna bezt kunnugur en það er Ægir Ólafsson, framkvæmda- stjóri Mars Trading Co. h.f. er á undanförnum árum hefur haft með höndum sölu á allri þeirri síld sem við höfum selt niður- lagða til Sovétríkjanna og átti blaðið viðtal við hann um þetta mál og fer það hér á eftir. — Hvað höfum við selt mik- ið af niðurlagðri síld til Sov- étríkjanna síðustu árin? — Undanfarin þrjú ár hafa Sovétríkin keypt af okkur nið- urlagða síld, gaffalbita, fyrir um 7 miljónir króna árlega og er sú framleiðsla öll frá Niður- suðuverksmiðju Kristjáns Jóns- sonar og Co. á Akureyri. Þessi vara hefur líkað ágætlega og engar kvartanir komið fram vegna hennar og sama máli gegnir um það sem flutt hefur verið til Tékkóslóvakíu. Fram- leiðendurnir hafa einnig verið ánægðir með það verð sem þeir hafa fengið fyrir vöruna í Sov- étríkjunum. Cóður afíi Eyjaháta í sumar Vcstmannaeyjar, 17/9 — Þrir bátar stunda nú síldveiðar frá Eyjum og héldu út á miðin i gærkvöld. Það eru Gullborgin, Reynir og Kári og hafa þeir allir gert það gott i sumar. Þannig er til dæmis Gullborgin komin með nítján þúsund mál. Svona er Binni I Gröf orðinn aflamaður á síld. Þá stunda nokkrir Eyjabátar síldveiðar í Jökuldjúpinu og hafa sumir þeirra legið í Reykjavíkurhöfn núna í bræl- unni. Það eru bátar eins og Ófeigur og Hugrún. Framan af sumri voru þeir á Eyjamiðum. Þeir hafa einnig gert það gott. Már. Eftirbátar — Hvar stöndum við Islend- ingar eiginlega í fiskiðnaði sam- anborið við nágrannaþjóðir okk- ar og keppinauta á Norðurlönd- unum? — fslendingar eru sem kunn- ugt er mikil fiskveiðiþjóð en samt höfum við alltaf verið eft- irbátar hinna Norðurlandaþjóð- anna í vinnslu fiskafurðanna, við höfum nánast verið hráefn- isfor'ðabúr þeirra. Norðmenn flytja út árlega 35 þúsund tonn af ýmis konar niðursoðnum og niðurlögðiun fiski cn við fs- Icndingar höfum ekki flutt út nema 400 tonn af niðursoðinni og niðurlagðri síld á ári eða aðeins cinn nítugasta hluta þess sem Norðmenn flyjta út. Einnig n>á benda á það að saaiska fyr- irtækið Abba Fyrtánet leggur árlcga niður úr 45 þúsund tunn- um af fslandssíld en það gerir 225 þúsund kassa af niðurlagðri síld. Ekkert iand hefur hins veg- ar bctri möguleika hvað sncrtir gæði hrácfnisins, til niðursuðu og niðurlagningar síldar heldur en við, og er það m.a. staðfest af norska fiskiðnaðarsérfræðingnum Carl Sund-Ilansen er kynnti sér þessi mál hér á landi fyrir fá- um árum. Samkeppnisgrund- völlur — En hvað heldur þú um markaðshorfurnar? — Það er ákaflega erfitt fyr- ir nýjan iðnað að ryðja sér braut inn á vestræna markaði þar sem gamalgróin fyrirtæki Svía og Norðmanna eru búin að vinna markaði með ærnum tilkostnaði. Hjá okkur hefur þessi iðnaður átt ákaflega erfitt með að þróast og allt verið af vanefnum gert, enda hefur ekki verið unnið neitt skipulega að þessum málum, hvorki að því er varðar niðursetningu verk- smiðjanna eða öflun markaða — Hvaða leið telur þú að við eigum að fara í sambandi við öflun markaða? — Eini möguleikinn til þess að skapa h‘ér öra þróun á sviði þessa iðnaðar er að komast inn á örmactnp stóran markað hjá Framhald á 3. síðu. Hér sjást nokkrir fulltrúar á þingi B.S.R.B. í gærdag. (Ljósm. Þjóðv. G.M.). 117 fulltrúar á 23. þingi BSRB er hófst í Rvík / gær ■ Klukkan 5 síðdegis í gær hófst í Hagaskólanum í Reykjavík 23. þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og sitja þingið 117 fulltrúar frá 28 bandalagsfélögum. For- maður bandalagsins, Kristján Thorlacius, setti þingið og minntist í upphafi máls síns hinnar nýlátnu forsetafrúar. Dóru Þórhallsdóttur, og reis þingheimur úr sætum í virð- ingarskyni við hina látnu. Er þingheimur hafði minnzt forsetafrúarinnar bauð forseti velkomna gesti þingsins frá inn- lendum stéttasamböndum svo og fulltrúa frá bandalögum opin- berra starfsmanna á Norðurlönd- um er boðið hafði verið að sitja þingið. Þá minntist forseti Karls Halldórssonar tollvarðar og ann- arra félaga úr samtökunum, er látizt hafa frá því síðasta þing var haldið. Að lokum rakti for- maður nokkur meginatriði í starfi stjórnar bandalagsins og hvatti þingfulltrúa til einingar um þau málefni er framundan væru. Þessu næst skýrði Magnús Um hádegisbilið í gær var ekið á kind á veginum hjá Straumi og var hún mjög illa útleikin eftir. Lögreglan í Hafnarfirði biður sjónarvotta að þessu að hafa ———a við sig hið fyrsta. Eggertsson framsögumaður kjör- bréfanefndar frá áliti nefndar- innar en hún lagði til að sam- þykkt væru kjörbréf 117 fulltrúa frá 28 sambandsfélögum og var það samþykkt einróma. Þá fór fram kosning starfs- manna þingsins og voru þeir allir kjörnir einróma. Forseti þingsins var kjörinn Júlíus Björnsson frá Starfsmannafél. Reykjavíkurborgar. 1. varafor- seti Teitur Þorleifsson frá Sam- bandi íslenzkra barnakennara op 2. varaforseti Eiríkur Pálsson frá Starfsmannafélagi ríkisstofn- ana. Einnig var kjöriu einróma 7 manna nefndanefnd. Að kosningum loknum var þingfundi frestað til kl. 8.30 * gærkvöld en þá átti formaður bandalagsins, Kristján Thorlaci- us að flytja skýrslu stjórnarinn- ar og gjaldkerinn, Einar Ólafs- son, að lesa reikninga banda- lagsinn, Kristján Thorlacius, formaður B. S.R.B. setti þingið og er þessi mynd tekin við þa* — (Ljósm. Þjóðv G.M.). t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.