Þjóðviljinn - 18.09.1964, Side 5

Þjóðviljinn - 18.09.1964, Side 5
I -flf" Föstudagur 18. sop'.err.ber 1964 ÞlðÐVILTLNN StÐA FRÉTTIR FRÁ SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM Spennan hættulegust börn- um sem horfa á sjónvarp Það mun vera almennt álit manna, að sjónvarpsdagskrár- liðir sem sýna ofbeldi í ein- hverri mynd séu hættulegir börnum og geti orsakað afbrot aeskufólks. Rannsókn sem gerð hefur verið í Ástralíu, leiðir hins vegar í Ijós, að hin raun- verulega hætta er ekki fólgin í ofbeldinu. Djúptækara og al- varlegra vandamál felst í spennunni og óróleikanum, sem slíkir dagskrárliðir skapa, og viðhorfunum til þjóðfélagsins, sem þeir vekja með börnum. Rannsóknin var gerð að tilhlut- an útvarpsráðs ástralska ríkis- útvarpsins og niðurstöðumar voru gefnar út undir nafninu: <S> ,.Tplevision Programmes”. Sá r rannsóknirnar fram- David Martin, rann- 163 sjónvarpsliði: kú- rtKamyndir, glæpamyndir, leynilögreglumyndir og ævin- týramyndir, segir í „UNESCO Features” Spenna er nauðsynleg til að halda athyglinni, segir höfund- urinn. En spenna sem ekki fær útrás eða fullnægjandi lausn leiðir einung:s til þess, að menn venja sig við spennu. Alltof oft eru þessir sjónvarpsdagskrár- liðir þannig, að þar er ekki nein sannfærandi lausn. Spenn- unni er haldið allt til hins síð- asta, og lausnin er alltof mátt- laus og áhrifalítil í hlutfaili við þá spennu, sem sköpuð hefur verið. Ofbeldisstefið í þessum kvik- myndum hefur ekki breytzt að ráði síðan á sjötta tug aldar- innar. en það er orðið flóknara, ísmeygilegra og innhverfara. segir Martin. Þetta á einnig við um kúrekamyndirnar, sem verða æ keimlíkari hreinum glæpamyndum, þar eð hinar gömlu og hefðbundnu kúreka- myndir vöktu aðeins áhuga yngstu áhorfendanna. Ofbeldi sem lýsir sér í manndrápum með byssum eða öðrum vopn- um vekur engan sérstakan ó- hugnað eða hræðslu hjá böm- um. Stúlkur ere ekki viðkvæm- ari en bræður þeirra gagnvart ofbeldisatriðum á sjónvarps- skerminum. Þjóðfélagið ráðalaust. Martin gagnrýnir harðlega hina neikvæðu afstöðu sem sjónvarps-kvikmyndir hafa til þjóðfélagsins, sem að jafnaði er látið vera hlutlaust eða beinlínis ráðalaus aðili. „Áhrif- in, sem þetta veldur, eru þau. að góðhjartað fólk fái ekki aðra útrás fyrir gæzku sína en þá að skerast í leikinn gagn- vart afbrotamönnum ... Til að það góða fái að njóta sín verður það illa að eiga frum- kvæðið: það á alltaf fyrsta leik.” Þó er afstaðan til kvenna ennþá ískyggilegri. Til að mynda eru konur venjulega sýndar sem ógnun við kari- manninn í kúrekamyndum: þar eru þær ýmist í slagtogi með bófum eða tengdar einhverj- uf öflum sem gætu komið í veg fyrir sigur hins góða. í leynilögreglukvikmyndum er á- standið þó ennþá verra: Þar eru konur nær neingöngu tæli- drósir eða þegar bezt lætur ó- viljug verkfæri í höndum „vondu” mannanna. ,.Þar sést blátt áfram ekki kona,‘ sem sé framtakssamur, skynsamur og sjálfstæður fulltrúi hins góða.” Það virðist ekki vera sér- staklega skynsamlegt eða rök- rænt að yfirvöldin styrki ráð- gjafarstarfsemi í hjúskaparmál- um jafnframt því sem þau leyfa þessa kröftugu og linnu- lausu sókn gegn tilfinninga- legri staðfestu ungra kvenna, segir Martin Niðurstaða hans er þessi: „Margt fólk, sem er órólegt ut af ofbeldisatriðum í sjónvarp- inu, gerir sér þess tæplega grein, að ráðið til úihóta er ekki að klippa burt hin hrotta- legu atriði. Hið róttæka lækn- isráð felst í jákvæðum ráð- stöfunum, sem auka gæði og úrval kvikmynda handa yngri börnum, og í menntun og upp- fræðslu kvikmyndaframleið- enda og sjónvarpsskoðenda varðandi eðli og eiginleika þessa fjöldamiðils.” Hjálparstarf Sameinuðu þjóð- anna og Norðurlandaþjóðirnar Eins og á fyrri árum er Dan- ,mörk í ár það land. sem lagt hefur fram mest fé til tækni- hjálpar Sameinuðu ' þjóðanna miðað við fólksfjölda, segir í yfirliti sem nýlega hefur verið birt. Noregur og Svíþjóð eru líka ofarlega á blaði, en Kuw- ait er komið upp fyrir þau. Einnig án tillits til viðmiðunar við fólksfjölda eru fjárframlög Norðurlanda mjög há. Danmörk er nú komin í fjórða sæti, næst á eftir stórum ríkjum eins og Bandaríkjunum, Bretlandi og V-Þýzkalandi. Svíþjóð er í 6. sæti og Noregur í tíunda sæti. Miðað við fólksfjölda Þau tólf ríki sem mest fé hafa lagt til tæknihjálpar Sam- einuðu þjóðanna eru sem hér segir miðað við fólksf jölda (tölumar tákna bandarísk cent á hvern íbúa): Danmörk 46,7, Kuwait 38,9, Noregur 26,7, Sví- þjóð 26,3 Holland 15.0, Sviss 14.0, Bandaríkin 11,9. Kanada 11,4, Nýja Sjáland 11.0, Bret- land 7.0, Ástralía 6.9, og Belgía 6.8. Án viðmiðunar Tólf efstu ríkin (án viðmið- unar við fólksfjölda) voru sem hér segir (tölumar tákna milj- ónir dollara): Bandaríkin 22,55, Bretland 3,75, Vestur-Þýzka- land 2,65, Danmörk 2.17, Kan- ada 2,15. Svíþjóð 2,00, Sovét- ríkin 2.00, Frakkland 1,85, Hol- land 1,79, Noregur 0,98, Italía 0,90 og Indland 0,85. Finnland hækkaði á árinu 1964 framlag sitt til tæknihjálp- ar Sameinuðu þjóðanna úr 130.000 upp í 150.000, og ísland tvöfaldaði framlag sitt upp í 8.000 dollara. Aðstoð Sameinuðu þjóðanna við vanþróuð lönd hefur átt sér stað síðan um 1950. Hún er fyrst og fremst fólgin í leiðbeiningum sérfræðinga og styrkjum til handa námsfólki til námsdvalar erlendis. Frá upphafi hafa Sameinuðu þjóð- irnar sent 28.871 sérfræðinga á vettvang. En þar sem nokkrir sérfræðinganna hafa dvalizt við verkefni sín árum saman, en miðað er við ársdvöl, þá er hin eiginlega tala sérfræðinganna 12.500. Þeir hafa komið frá 97 löndum og landsvæðum og ver- ið sendir til 133 landa og land- svæða. Fjöldi veittra náms- styrkja var 26.599. Þeir voru veittir námsmönnum frá 165 löndum og landsvæðum. Þess- ir menn hafa farið til náms í 126 löndum. Til þessa hafa 108 lönd heit- ið fjárframlögum fyrir árið 1964, sem nema 51,5 miljónum dollara. Gert er ráð fyrir, að móttökulöndin leggi fram 3,5 miljónir dollara til að kosta ýmsar framkvæmdir heima fyrir í sambandi við tækni- hjálp Sameinuðu þjóðanna. WILLIAM AULD: JASON Skáldverk frumsamin á esperanto eru nú þegar orðin merkilegt framlag til heimsbókmenntanna. Einkum hefur ljóðagerð á alþjóðamálinu náð athyglisverðum þroska. William Auld er meðal fremstu ljóðskálda, sem nú yrkja á esperanto. Hann er skozkur að þióðerni, fæddur 1924, magister -1 enskum bókmenntum og tungu. Hann hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur: Spiro de l’pasio (Andi ástríðunnar. 1952), La Infana Raso (Hið bernska kyn, 1956), Unufingraj melodioj (Lög leikin einum fingri, 1960) Hann hefur margt þýtt úr enskum og skozkum bókmenntum og ritstýrt tímaritum. Eftirfarandi ljóð er þýtt úr síðustu bók hans. Það styðst við fomgríska goðsögn; Jason var hetja, sem hélt með völdu liði á skipinu Argo til þess að komast yfir gullreifi hrúts nokkurs; er þar af saga mikil og ævintýraleg, sem hér verður ekki rakin. Ljóðið segir frá atburði einum úr ferð kappanna. Austur á bóginn rérum við liðlangan dag með Líbíuströndum, gulhvítum, auðnarvíðum; veröldin mókti hljóð, aðeins árablakið rauf þessa kyrru háttbundið, venjuþétt; hitinn frá himni koparkynjuðum slævði viljastyrk okkar, tifugjálfrið við kinnung deyfði í síbylju þráa vökunnar jafnt. Enginn var nú, að burtgengnum Orfeusi, sem lengur tvistraði leiðindum okkar með söngvum; sloppnir frá hættum hins voðalegasta flótta reyndum við kyrrðina svo sem hún ógnaði brátt að firra okkur viti. Nakinn á lágri strönd stundaði sandurinn þrotlaust til ómælisfjarskans. í fyrsta skipti kenndum við glöggt á þjóum þóftanna hörku . . . En þá, er að kvöldi leið, lifgaði vindur skútunnar þurru segl, og innan stundar risu pálmar í augsýn: óasi, vin, en hvorki hilling né draumur. Við renndum þar að og stigum stæltir á land, allshugarfegnir að mega nú vænta vatns. íbúarnir báru sannmildan svip, en þar réðu konur, sem vildu ckki láta i té hið langþráða jarðvatn nema við hefðum legið þær áður í mjúku grasinu þar við brunninn. Fúslega gegndum við þeirri kröfu með lyst (því ófagrar vor alls eigi konur þessar) samt báðum við þess að þær sendu áður brott eiginmenn sína afbrýðilausa með öllu, sem umhverfis höfðu safnazt til að sjá forvitnilegar byltur á þéttum sverði. BALDUR RAGNARSSON. \ (» (» \ (> (» \ 67. DAGUR. En er Haraldur konungur var búinn og byr gaf, sigldi hann út á haf og kom af hafi viö Hjaltland, en sumt liö hans kom viö Orkneýjar. Lá Haraldur konungur þar litla hríö, áður hann sigldi til Orkneyja, og hafði þaðan með sér lið mikið og jarl- ana Pál og Erlend, syni Þorfinns jarls, en lét þar eftir Ellisif drottningu og dætur þeirra, Maríu og Ingigerði. Þaðan sigldi ' hann suður fyi'ir Skotland og svo fyrir England og kom þar við land, sem heita Kliflönd. Þar gekk hann á land og herj- aði þegar og lagði landið undir sig, fékk enga mótstöðu. Síðan lagði Haraldur konungur til Skarðaborgar og barð- ist þar við borgarmenn. Hann gekk upp á bergið, það sem þar er cg lét þar gera bál mikið og leggja í eld. En er bálið log- aði, tóku þeir forka stóra og skutu bálinu ofan í borgina. Tók þá að brenna hvert hús af öðru. Eyddist þá af eldi allur staðurinn. Drápu þá Norðmenn þar margt manna, en tóku fé allt, það er þeir fengu. Var enskum mönnum þá enginn kostur fyrir höndum, ef þeir skyldu halda lífinu, nema ganga til handa Haraldi konungi. Lagði hann þá undir sig land allt, þar sem hann fór. Síðan lagði Haraldur konungur með allan herinn suður með landi og lagði að við Hellornes. Kom þar safnaður í mót honum, og átti Haraldur konungur þar orr- ustu og fékk sigur. Síðan fór Haraldur konungur til Humbru og upp eftir ánni og lagði þar við land. Þá voru jarlarnir uppi í Jórvík, Möru- kári og Valþjófur jarl, bróðir hans, og höfðu óvígan her. Þá lá Haraldur konungur í Osu, er her jarla sótti ofan. Þá gekk Haraldur konungur á land og tók að fylkja liði sínu. Stóð fylkingararmurinn annar frarn á árbakkann, en annar vissi upp á landið að diki nokkru. é

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.