Þjóðviljinn - 02.10.1964, Qupperneq 3
FSstudagur 2. október 1964
ÞlðÐVILIINN
SlÐA
Mikið verkfall
í Bandaríkjunum
þrátt fyrir lögbann
NEW YORK 1/10 — Um 60.000
bandarískir hafnarverkamenn á
austurströnd Bandaríkjanna
lögðu niður vinnu aðfaranótt
fimmtudags, þrátt fyrir lögbann
Johnsons forseta. Verkfallið var
svo algert, að einn forystumaður
Fljótasta járn-
braut í heimi
TÓKÍÓ 1710 — Fljótasta járn-
braut heims, sem fer milli Tókíó
og Ósaka í Japan, var opnuð til
umferðar á fimmtudag. Lestim-
ar komast á sumum hlutum leið-
arinnar upp í 210 km. hraða á
klukkustund, og leiðin, sem er
515 km. löng, verður þá farin
á fjórum timum. Járnbrautin
hefur í byggingu kostað hálfan
annan miljarð dala og verið
fimm ár í smíðum.
4 dagar eftir
Dregið á mánud.
Opið kl. 9 f.h.
til kl. 10 í kvöld
á Týsgötu 3
I gær sóttu flestár deild-
ir fram og eru nú sumar
deildimar að nálgast 100n/'n
en þó nokkrar eru nokkuð
neðarlega og verða þær að
gera nú þegar ráðstafanir
til þess að rétta hlut sinn
þessa 4 daga sem eftir eru.
Við höfum opið í skrif-
stofu happdrættisins Týs-
götu 3 frá kl 9 f.h. til
kl. 10 í kvöld og væntum
við þess að sem flestir líti
inn til okkar fyrir þann
tíma. Þeir sem eru að
starfa í deildunum eru
beðnir að hafa samband
við okkur sem allra fyrst
og nota kvöldið vel. Úti
á landi fara að verða síð-
ustu forvöð að gera skil
til umboðsmanna okkar
eða senda okkur beint því
dregið verður á mánudag-
inn kemur og verða öll skil
að hafa borizt okkur í
hendur þá. Utanáskriftin
er Happdrætti Þjóðviljans
Týsgötu 3.
Röð deildanna er nú
þannig:
1.1 deild, Vesturbær 73%
2.8a deild, Teigar 70—
3.5 deild, Norðurm. 52%
4.10b deild, Vogar 43—
5.11 deild, Háaleiti 43—
6 Norðurland vestra 43—
7.15 deild, Selás 42—
8.4a deild, Þingholt 38—
9.8b deild. Lækir 34—
10.13 deild, Blesugróf 32—
11.2 deild, Skjólin 31—
12. Reykjanes 30—
13. Vesturland 30—
14.6 deild, Hlíðar 28—
15.7 deild Rauðarárh. 27—
16.3 deild, Skerjafj. 26—
17.4b deild, Skuggahv. 26—
18.9 deild, Kleppsholt 24—
19.14 deild, Kringlum. 24—
20. Kópavogur 18—
21.10a deild, Heimar 16—
22. Suðurland 16—
23. Austfirðir 14—
24. Norðurland eystra 14—
25. Vestfirðir 13—
26.12 deild. Sogamýri 10—
verkamanna lét svo um mælt,
að ekki hefði verið unnt að ýta
kænu á flot á öllu félagssvæð-
inu.
Johnson forseti beitti Taft-
Harley lögunum illræmdu er
hann setti lögbann á hið fyrir-
hugaða verkfall, en verkfalls-
menn hafa nú sem fyrr segir
haft það lögbann að engu. Sam-
kvæmt lögúm þessum mega
verkamenn ekki leggja niður
vinnu fyrr en lokið er störfum
nefndar, sem forsetinn skipar til
þess að rannsaka deiluna. Þetta
er í fyrsta sinn á embættisferli
sínum, sem Johnson forseti beit-
ir Taft-Harley lögunum.
Þrír menn sitja í nefnd þeirri,
er Johnson forseti skipaði, og
eiga þeir lögum samkvæmt að
rannsaka það, hvort verkfallið
feli í sér „ógnun við þjóðfélag-
ið“. Komist nefndin að þeirri.
niðurstöðu, að svo sé, getur
dómsmálaráðuneytið — að skip-
un forsetans — bannað það í
áttatíu daga, að af verkfalli
verði.
Enn upp-
reisn í
Saigon?
SAIGON 1/10 — Maxwell
Taylor, sendiherra Bandaríkj-
anna í Suður-Víetnam, ítrek-
aði á fundi með fréttamönn-
um í dag fyrri loforð Banda-
ríkjastjórnar um fullan stuðn-
ingviðstjórn Nguyen Khanhs.
Bandaríska útvarpsstöðin
„Voice of America“ segir, að
það hafi staðizt á endum, að
þegar blaðamannafundinum
lauk hafi frétzt af nýrri upp-
reisnartilraun gegn stjórn
Khanhs, en ekkert er þó enn
vitað um það, hvað í þessu
er hæft.
Rýmkað um
egajasölu
til EBE
BRÚSSEL lr/10 — Nefnd Efna-
hagsbandalags Evrópu samþykkti
á miðvikudag lengi fyrirhugaða
nýskipan, sem auðveldar eggja-
útflutning Danmerkur, Finnlands
og Svíþjóðar til EBE.
Talsmaður nefndarinnar skýrði
svo frá, að þau lönd sem haldi
sér við' nfiri'nsta Iéýfilegt inn-
flutningsverð verði með þessu
framvegis betur sett í samkeppn-
inni við þau lönd sem hafi rík-
iseinkasölu, og sé þá fremur
öðrum átt við Pólland, Kínverska
alþýðulýðveldið og ísrael, en
þau lönd selji á „dumping1-
verði.
Fimm láta lífið
BOSTON 1/10 — Fimm bruna-
Iiðsmenn Iétu lífið er múrvegg-
ur í brennandi verksmiðju í
Boston hrundi fyrri hluta
fimmtudags. Fjórir þeirra létu
samstundis lifið, en einn nokkr-
um klukkustundum síðar á
sjúkrahúsi.
Endanleg úrsfit í Svíþjóð:
Sósíaldemókratar
tapa 1 þingsæti
STOKKHÓLMI 1/10 — Úrslit sænsku kosninganna eru nú end-
anlega kunn og er það markverðast, að Sósíaldemókratar töpuðu
fjórum þingsætum er utankjörstaðaatkvæði voru talin. Áður höfðu
þeir unnið þrjú þingsæti svo lokaútkoman verður sú að þeir
tapa einu. Stjórnarflokkurinn fær því 113 þingsæti í Neðri deild
þingsins á móti 114 áður og er því enn aigjörlega háður stuðningi
kommúnista, en þeir lialda þingsætum þeim, er þeir unnu, og fá
nú átta í stað fimm áður. Borgaraflokkarnir fá nú 112 þingsæti
í dcildinni, en höfðu 113 áður. Eins og búizt var við var það
Hægriflokkurinn og Fólkaflokkurinn, sem mest græddu á utan-
kjörstaðaatkvæðunum. Hægriflokkurinn vann þannig aftur fjög-
ur af þeim ellefu þingsætum, er hann hafði tapað, Fólkaflokkur-
inn vann tvö þingsæti og styrkir aðstöðu sína sem stærsti stjórn-
arandstöðuflokkurinn á þingi. Hann fær nú 42 þingsæti, hafði 40
áður, og þar við bætist einn Fólkaflokksmaður af sameiginlegum
lista borgaraflokkanna á Skáni. — Utankjörstaðaatkvæði í Sví-
þjóð reyndust nú um 180.000 talsins.
Ný
Kjarvalsbók
De Gaulle
í Chile
VALPARISO 1/10 — De Gaulle,
Frakklandsforseti, kom í dag til
Valpariso í Chile og var tekið
þar með kostum og kynjum.
Chile er sjötta rikið, sem de
Gaulle heimsækir á hinni löngu
för sinni til Mið- og Suður-
Ameríku. Til Valpariso kom
Frakklandsforseti á franska her-
skipinu Colbert. Alessandri, for-
seti Chile, tók á móti honum á
hafnarbakkanum.
Krústjoff hafnaði
Bandaríkjatilbo&i
beint gegn Kína
WASHINGTON 1/10 — Það var
haft eftir áreiðanlegum heimild-
um í Washington í dag, að Sov-
étríkin hafi hafnað tilmælum
Bandaríkjanna þess efnis, að
Vísindastofnun
sem rannsakar
milliríkjadeilur
KAUPMANNAHÖFN 1/0 — Á-
ætlun um norræna vísindastofn-
un, er rannsaki milliríkjadeilur,
eðli þeirra og orsakir, verður
sennilega lögð fram á fundi
Norræna ráðsins í Reykjavík í
febrúar. Það er Helveg Peter-
sen, fyrrum kennslumálaráð-
herra í Danmörk, sem frá þessu
skýrir í dag.
LONDON 1/10 — Hlutabréf í
stáliðnaðinum enska stigu mjög
í verði á fimmtudag, en þá upp-
hófust mikil kaup vegna þess að
síðasta skoðanakönnun sýndi
auknar líkur fyrir sigri íhalds-
flokksins í þingkosningunum 15.
okt. n.k.
bæði ríkin kæmu sér saman um
sameiginlegar aðgerðir til þess
að hindra að Kínverska alþýðu-
lýðveldið öðlaðist kjarnorku-
vopn.
Það var Averell Harriman,
varautanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem persónulega vakti
máls á þessu við Krústjoff, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna, er
hann var í heimsókn í Moskvu
í fyrra til að ræða um bann við
kjarnorkuvopnatilraunum. Það
fylgir fréttinni frá Washington,
að Krústjoff hafi engan áhuga
haft á málinu og Harriman þá
strax látið það niður falla.
til Pakistan
NEW DELHI 1/10 — Lal Baha-
dur Shastri, forsætisráðherra
Indlands, tilkynnti það í New
Delhi í dag. að hann muni heim-
sækja Ayub Khan, forseta Pak-
istans, er hann snýr heim frá
fundi þjóðhöfðingja hinna hlut-
lausu landa sem innan skamms
hefst í Kairó.
Kongó
ám s
#
1
Mikift um dýrðir
í Peking í gær
PEKING 1/10 — Meir en hálf
miljón manns tók þátt í mikilli
skrúðgöngu í Peking í dag í til-
Tómasar Jénsson-
ar minnzt
í borgarstjórn
Áður en gengið var til dag-
skrár í upphafi fundar borg-
arstjómar' Reykjavikur í gær
minntist forseti Tómasar Jóns-
s.onar, borgarlögm:.nns, sem
lézt í síðustu viku Risu borg-
arfulltrúar úr sætu^ í virð-
ingarskyni við hinn látna
borgarstarfsmann
efni þess, að Kínverska alþýðu-
lýðveldið er nú fimmtán ára
gamalt. Maó tse-túng og aðrir
háttsettir leiðtogar kínverskra
kommúnista horfðu á skrúðgöng-
una ásamt um þrjú þúsund cr-
lendum gestum.
Meðal heiðursgesta voru þrír
þjóðhöfðingjar Aslu- og Afríku-
riikja, þeir Shianúk prir.s, frá
Kambodja, Keita forseti frá
Malí og Massamba Febat, forseti
alþýðulýðveldisins, sem upp-
reisnarmenn í Kongó hafa stofn-
að.
Blöð á vesturlöndum hafa
mjög getið þess, að Kínverjar
muni nota fimmtán ára afmæli
alþýðulýðveldisins til þess að
sprengja fyrstu kjarnorku-
sprengju sína, en ekkert slíkt
hefur verið nefnt í Peking.
Sovétaðstoð
til Kýpur
NICOSIA 1/10 — í sameigin-
legri yfirlýsingu Kýpurstjórnar
og Sovétstjórnarinnar á fimmtu-
dag segir, að Ráðstjórnarríkin
muni veita Kýpur aðstoð. Ekki
er frá því skýrt, í hverju sú að-
stoð verði fólgin. Hinsvegar seg-
ir í tilkynningunni, að náðst
hafi samkomulag um Sovétað-
stoð sem tryggja eigi frelsi og
sjálfstæði Kýpur. Þetta sam-
komulag var undirritað í
Moskvu á miðvikudag.
LEOPOLDVILLE 1/10 — Stjórn-
arhersveitir í Kongó hafa hrund-
ið árás um það bil 280ÍI upp-
reisnarmanna á borgina Buka-t
vu, sem er höfuðborgin í Kivu-
héraðinu, segir í útvapstilkynn-
ingu, sem barst til Leopoldville
á miðvikudag.
Á miðvikudag á svo aftur ailt
að hafa verið með kyrrum kjör-
um í Bukavu. Vestur af bænum
var hinsvegar enn barizt við
minni hópa uppreisnarmanna.
Sovétríkin semja
við Englendinga
um landhelgi
MOSKVU 1/10 — Enska sendi-
ráðið í Moskvu tilkynnti það í
dagí að England og Sovétríkin
hafi gert með sér samning, sem
heimili sovézkum fiskiskipum að
nokkru leyti að athafna sig inn-
an hinnar nýju fiskveiðilögsögu
Breta. Samkvæmt samningnum
mega sovézk fiskiskip sigla inn
í hina nýju tólf mílna landhelgi,
kasta þar akkerum og umskipa
afla, en mega ekki veiða innan
takmarkanna.
Ellefu falla
KARACHI 1/10 — Allt bendir
til þess, að ellefn indverskir
hermenn hafi fallið og þrír
særzt í bardögunum á landamær-
um Indlands og Pakistan.
Berklavörn
Framhald af 12. síðu.
hæli.
Þegar Samband íslenzkra
berklasjúklinga var stofnað 1938
var ástandið í þessum málum
mjög slæmt á íslandi. Fyrir
þann tíma og þá einkum 1930
var dánartala berklasjúklinga
hér hærri en í nokkru öðru
landi. Nú er svo komið eftir 25
ára starf að á íslandi eru færri
dauðdagar af völdum berkla á
100.000 en í nokkru öðru landi.
„Þrátt fyrir þennan glæsilega
árangur er varhugavert að slaka
á. Við verðum stöðugt að vera
á verði gegn þessum hættulega
sjúkdómi, sem enn þann dag í
dag er í sumum löndum hættu-
legastur allra sjúkdóma" sagði
Þórður Benediktsson í viðtalinu
við fréttamenn í gær.
Merki Berklavarnardagsins er
jafnframt happdrættismiði og er
bifreið í vinning. Málgagn SÍBS,
sem kemur út á sunnudag eins
og áður segrn flytur margvísleg-
an fróðleik. Þar má nefna svör
tveggja merkismanna, Steindórs
Steindórssonar frá Hlöðum og
Sverris Þorbjörnssonar forstjóra
Tryggingarstofnunarinnar, við
spurningunni „Hefur SÍBS lokið
hlutverki sinu“. Þá ritar Oddur
Ólafsson, yfirlæknir, grein um
för sína á 17. þing Alþjóðasam-
bands berklavarnafélaga í Róm
1963. Þá eru fjölmargar myndir
og frásögn af starfinu í Múla-
lundi. Viðtal við Eirík Smith.
listmálara, smásagan Snúið við
úr róðri eftir Friðjón Stefáns-
son, barnaþáttur, þýddar grein-
ar og smásögur, ljóð, og margt
fleira.
Fyrsta
jólabókin
1964
Það er fyrir löngu sjálfsagð-
ur hlutur að dásama mamn-
inn og snillinginn
JÓHANNES KJARVAfc
og drekka í sig list hans.
Svo erum við annað veifið
minnt á það hressilega í er-
lendum blöðum, að á meðal
okkar búi einn af höfuðsniU-
ingum norrænnar myndlistar.
Það fylgir því ekkert sér-
stakt yfirlæti lengur er við
fullyrðum án hiks, að ísland
eigi í dag annan höfuðsnill-
ing heimslistarinnar,
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Fyrsta jólabók Helgafells er
að koma út, ný Kjarvalsbók,
prýdd um 100 myndum þar
af 20 litmyndasíður, frá
ýmsum tímum ævi lista-
mannsins. En bókin er Hka
ævisaga þessa stórbrotna og
sérstæða listamanns og vold-
uga persónuleika, færð í lit-
ríkt og töfrum magnað mál
eins okkar færasta rithöfund-
ar, Thors Vilhjálmssonar.
Höfum nú fyrirliggjandi 15
af fegurstu málverkum Kjar-
vals í framúrskarandi eftir-
prentunum, að prýða heimili
yðar og til gjafa vinum og
vandafólki Sendum gegn
kröfu um allt land. bækur
og myndir.
HELGAFELL. Unuhúsi,
Veghúsastíg 7.
t