Þjóðviljinn - 02.10.1964, Side 4
I
;
4 SIÐA
ÞlðÐVIUINN
Föstudagur 2. október i964
Otgetandi: Sameiningarfloklcur alþýöu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 linur) Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði
Jafnréttí tíl menntunar
' r\
Jslenzk menning stendur frammi fyrir prófraun,
sem hún verður að standast. Hún er sú, að þjóð-
menning vor verði fær um að tileinka sér nútíma-
þekkingu, eins yfirgripsmikil og hún er orðin. Nú-
tíminn krefst sérmenntunar og vísindalegrar þekk-
ingar. Þjóðfélag vort verður að ala hina ungu kyn-
slóð upp til þess að ráða við allar greinar þekk-
ingarinnar. Til þess er hvorttveggja óhjákvæmi-
legt: að fjöldinn fái aðgang að sérmenntun og að
færasta æskufólkinu sé veitt aðstaða til að afla sér
vísindalegrar þekkingar án tillits til efnahags.
gigi þjóð vor ekki að dragast aftur úr á menn-
ingarsviðinu, er þörf mikilla breytinga á öllu
viðhorfi hins opinbera í þessum málum.
Við eigum hér ekki aðeins við það að þau
hneyksli verði að hætta að ágætir vísindamenn
þjóðarinnar verði ýmist að yfirgefa landið eða
þræla sér út sem stundakennarar og geti ekki
sinnt vísindastörfum vegna þröngsýni og póli-
tískrar hlutdrægni yfirvalda.
Við eigum alveg sérstaklega við viðhorfið gagn-
vart þeim, sem eru að nema; vinna að því að til-
einka þjóðinni þekkingu nútímans á öllum svið-
um og hagnýta hana síðan í þágu þjóðarinnar.
þjóð vor á fjölda ágætra og áhugasamra ungra
manna og kvenna, sem vilja leggja mikið á sig
í þessu skyni, en verða að gefast upp í miðjum
klíðum af efnahagslegum ástæðum. Þorri stúd-
enta af alþýðustétt þrælar sér út í stundakennslu
— og gefst svo með tímanum upp við námið sök-
um efnaskorts. Á sama tíma eru svo máski þeir,
sem næg hafa efnin, að leika sér í háskólanum og
í snatti fyrir Varðbergsklíkur.
Erlendis tíðkast nú meir og meir að koma á full-
komnum námslaunum, er gera dugandi náms-
mönnum kleift að nema án tillits til efnahags.
Einmitt þetta kerfi, sem sérstaklega hefur verið
framkvæmt í sósíalistísku ríkjunum, er talið und-
irrót hinna stórkostlegu framfara Sovétríkjanna
í vísindum og þekkingu, enda skólafyrirkomulag
þeirra nú athugað af miklum áhuga ekki sízt af
Bandarík j amönnum.
j^ýafstaðið 21. þing Æskulýðsfylkingarinnar setti
fram þá kröfu að hér á landi yrði tekið upp
fullkomið námslaunakerfi og í blaði Æskulýðs-
fylkingarinnar, „Neista“, er jafnframt grein um
námslaun, þar sem m.a. er vitnað tíl tillagna
sænskrar stjórnskipaðrar nefndar, sem leggur til
að „allir, sem stunda nám við æðri skóla, fái rétt
til árlegrar fjárupphæðar, sem samsvari áætluð-
um kostnaði nemandans yfir námsárið“.
Jafnrétti til menntunar er krafa allra sósíalista.
Og það jafnrétti er — eins og önnur réttindi — lítið
meira en nafnið á meðan það er ekki efnahagslegt
jafnrétti. Menntun á ekki að verá sérréttindi hinna
ríku. Alþýðan krefst e'fnahagslegs jafnréttis til
menntunar fyrir æsku sína, •— og þar með ’fyrir
alla æsku.
Drengurinn var á gönguferð um Heiðmörkina, þegar hann raksí
á þessa jafnaldra sína, tvö sitkagrenitré.
Þarna er Alaskaöspin að skjóta upp kollinum.
Æskan og skógurinn
Mig langar til að biðja Þjóð-
viljann fyrir nokkrar linur
um nýja bók, sem vert er að
veita athygli. Hún er rituð „til
leiðbeiningar fyrir unglinga,
er vinna að skógraektarstörf-
um.1’ En eins og önnur slík
rit, sem vel er til vandað, er
hún engu síður læsileg full-
orðnum og forvitnileg. Bókin
heitir „Æskan og skógurinn”.
Hún er tekin saman að til-
hlutan Skógræktarfélags fs-
lands af Jóni Jósepi Jóhann-
essyni og Snorra Sigurðssyni;
teikningar eftir Jóhannes Geir
Jónsson. En auk höfunda eiga
ýmsir menn sérfróðir hver um
sitt efni, meiri eða minni hlut
að verki. Útgefandi er Menn-
ingarsjóður
f inngangi, einum fimm blað-
síðum, er sagt frá jarðmynd-
unum og gróðri ísfands, —
brot úr árþúsunda sköpunar-
sögu. Þar skapar mannshönd-
in með höfuðskeppnunum,
eyðandi eða græðandi. Orð,
pappír og prentsverta eiga þar
nú hlut að með ísi og eldi.
Forsendur jarðræktar eru vís-
indi og verkleg kunnátta.
Frumatriðum þeirra vísinda
og einkum þeim er að skóg-
rækt lúta, kynnist lesandinn
í næstu köflum, fyrst í ótil-
teknum skólagarði og síðan í
Hallormsstaðaskógi og ræktun-
arstöðinni þar. Furðu mikla
vitneskju er þar að fá af
stuttu máli um allt gróðurlíf;
um gerð og vöxt og helztu
tegundir trjáa; uppeldi þeirra
í gróðrarstöðvum og síðan
gróðursetningu og verktækni
við hana; friðun skóga, grisj-
un og aðra umhirðu; marg-
víslega nytsemi þeirra, beint
og óbeint; og um staðreynd
og nauðsyn skógræktar á ís-
landi.
Það er nýtt, sém sjaldan
verður, að íslenzkir unglingar
fái í hendur fræðirit, sem ber
þess glögg merki, að kapp
hafi verið lagt á að gera efn-
ið hugtækt, ljóst og auðnumið
í senn, einá og hér er raun á.
Stuttar setningar og vafn*
ingalausar og tíð málsgreina-
skii; skipting letarsíðna í tvo
dálka; miJIifyrirsagndr og ská-
letranir hvarvetna til glöggv-
unar; fjöldi góðna ljósmynda
og ágætra teikninga, — allt
stuðlar þetta mjög að læsileik
hverskyns og stingur í stúf við
margt lesmál af svipuðu tagL
Það er sannleikur, þó ekki
sé hann leiðarljós í fræðslu-
málum hérlendis, að kennslu-
bók verður aldrei nógu vel
úr garði gerð né of miklu til
þess kostað. Það mun eiga við
um þetta kver og vera höfund-
um sjálfum Ijósast. En samt
hafa þeir unnið verk, sem er
fengur að fýrir æsku fánds-
ins og gróður
Þorsteinn Valdimarsson.
hvarf í Hafnarfirði
Á dagskrá síðasta fundar í
bæjarstjóm Hafnarfjarðar var
að ósk Kristjáns Andrésson-
ar umræða um hafnarmál.
1 framsöguræðu sinni réðst
Kristján harkalega á meiri-
hluta bæjarstjórnar fyrir
vinnubrögðin við höfnina i
sumar. Hann nefndi sem dæmi
um það, að Hafsteinn Bald-
vinsson bæjarstjóri, sem jafn-
framt gegndi hafnarstjórastarfi
hafi í sumar tekið þá ákvörð-
un að leysa vanda trilluþáta-
eigenda og byggja fyrir þá
smábátaþryggju.
Hafsteinn hefði valið bryggj-
unni stað beint fyrir framan
ráðhús bæjarins, vafalaust til
þess að hann gæti fylgzt með
verkinu út um skrifstofu-
glugga sinn og víst þó öllu
frekar i þeim tilgangi að
trillubátaeigendur gætu litið
upp til hans i hvert sinn er
þeir færu að eða frá bryggju.
Bygging bryggjunnar gekk
vel enda ekkert til sparað
hvorki efni né stórvirkar
vinnuvélar. Var bryggjan vigð
og afhent til notkunar af
bæjarstjóranum sjálfum, sem
síðan hélt sérfræðingum sín-
um í hafnarmálum veizlu.
Bátaeigtndur skírðu bryggj-
una að gömlum hafnfirzkum
sið í höfuðið á athafnamann-
inum og nefndu Hafsteins
bryggju. — En vart var vika
liðin frá vígsluathöfninni, er
hryggjan var algerlega horfin.
Sunnanalda og straumurinn úr
bæjarlæknum höfðu borið
Hafsteinsbryggju út að hafn-
arbakkanum og skipabryggjun-
um, því hún hafði aðeins ver-
ið byggð úr mold og rauðamöl!
Kristján sagði að þessi endi-
leysa hefði kostað hafnarsjóð
hundrað þús. króna og myndi
margfaldast, þegar búið væri
að grafa upp rauðamelinn á
ný, sem væri mjög aðkallandi,
ef nægilegt dýpi ætti að vera
fyrir stór skip við hafnarbakk-
ann og skipabryggjuna.
Öfremdarástand ríkjandi í
hafnarmálum Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Bryggja er byggð, en hverfur.
Á að byggja slipp á kostnað bæjarbúa fyrir
foringja íhalds og krata?
I þau 36 ár, sem íhaldið
var útilokað frá stjómaráhrif-
um í Hafnarfirði átti það að-
eins eitt baráttumál - hafnarmál-
ið. — Eftir tveggja ára stjóm
íhaldsins nú, er eina afrek
þess í hafnarmálum Hafsteins-
bryggja. Undanskilin eru þó,
leigusalan á vöruskemmulóð-
inni, sem afhent var Norður-
stjörnunni. Og sú samþykkt
bæjarstjórnar, er Alþýðublað-
ið og Morgunblaðið hafa þag-
að dyggilega yfir, að hafnar-
sjóður skuli byggja 20 miljón
króna slipp. Slippinn skal
hafnarsjóður ekki reka heldur
framleigja. Væntanlegir leigj-
endur eru skipasmíðastöðin
Dröfn h f. (í eigu meirihluta
bæjarráðs þeirra Páls V.
Daníelssonar og Vigfúsar Sig-
urðssonar) og Vélsmiðja Hafn-
arfjarðar (eigandi: forseti bæj-
arstjómar Stefán Jónsson). Sú
ráðstöfun bæjarstjómar að
láta hafnarsjóð byggja slipp,
en framleigja hann síðan for-
ystumönnum íhaldsins og krata
í bæjarstjóm er sýnilega að-
eins gerð til þess að láta
rikissjóð gorga 40% í bygging-
unni og miða svo leiguna við
fjárfestingu hafnarsjóðs eins.
Að því fengnu, gætu þeir sýnt
ágæti sitt og stjómarhæfileika
fram yfir aðra slippforstjóra
i landinu og ættu jafnvel
möguleika á að hagnast eitt-
hvað sjálfir. Bæjarbúar vilja
eflaust fá stærri slipp í bæ-
inn, en telja þó önnur hafn-
armál meira aðkallandi, svo
sem framhald á byggingu
hafnarbakkans og byggingu
vöruskemmu, sem örva myndu
komu verzlunarskipa til Hafn-
arfjarðar.
1 lok ræðunnar lýsti Krist-
ján tillögu til bæjarstjómar
undirritaðri af honum og full-
trúa Framsóknarflokksins Vil-
hjálmi Sveinssyni og var hún
svohljóðandi:
„Bæjarstjórn samþykkir að
fela hafnarstjóra og hafnar-
nefnd að vinna að því svo
fljótt sem auðið er að kaupa
járnþil til framhalds bygging-
ar hafnarbakkans til norðurs.
Jafnframt samþykkir bæjar-
stjóm að stöðva þegar í stað
hin handahófskenndu vinnu-
brögð, sem höfð hafa verið
við höfnina í sumar. Svo sem
uppfyllingu, án framlerigingar
á holræsum og akstri á rauða-
möl og sandi í höfnina, sem
bei-st hindrunarlaust að
bryggjunum og hafharbakkan-
um og verður að mokast fljót-
lega brott ,ef nægjanlegt dýpi
á að vera í höfninni”.
Meirihluti bæjarstjómar kom
með frávísunartillögu' þess
efnis að þar sem í tillögu
þessari væru aðdróttanir og
móðganir í garð hafnarriefnd-
ar og hafnarstjóra leggðu þeir
til að enn væri vísáð frá.
Var það gert með 7 atkvæð-
um . gegn 2. Og lýsti. meiri-
hlutinn með þessu því enn
einu sinni yfir að hafnarmála-
framkvæmdir skuli miðast við
hagsmuni forystumanna bæjar-
stjómarmeirirlutans, en " ékki'
við hag almennings i Hafnar-
firði.
500nemendur stunda nám í
Verzlunarskólanum / vetur
Verzlunarskóli ísland* hefur
nú starfað í hálfan mánuð,
þegar aðrir skólar eru rétt að
hefja vetrarstarfið, en hann
var scttur 16 *cptember síð-
astliðinn.
Sú venja hefur haldizt um
hríð, að 4. bekkur og lær-
dómsdeild byrjuðu um miðj-
an september en nú var ákveð-
ið að allur skólinn kæmi sam-
an á þessum tíma. Meginor-
sökin var ný reglugerð frá
Menntamálaráðuneytinu um frí-
tíma í skólum og til að fram-
fylgja henni urðu Verz’unar-
skólamenn að prjóna framan-
við kennslutímann til þess að
hið langa jólafrí mætti verða
áfram.
Alls eru nemendur Verzlun-
arskólans um 500 talsins. Þar
af eru 52 í lærdómsdéild og
þar af eru aftur 24 í sjötta
bekk, sem ljúka. munu stú-
dentsprófi á næsta vori.
Þær breytimgar eru helztar
á kennaraliði skólans, að Þor-
steinn Bjamason bókfærslu-
kennari lætur af störfum fyr-
ir aldurssakir , en aðalbók-
fræðslukennari nð er Þorsteinn
Magnússon. Þá hefur Magnús
Guðmundsson íslenzkukennari
látið af störfum við Verzlun-
arskólann og kennir fvar
Bjömsson íslenzkuna, Þá hef-
ur Valdimar Hergeirsson ver-
ið ráðinn yfirkennari við s.kól-
ann, Alls eru kennarar 7erzl-
unarskólans nú 33.
v
I