Þjóðviljinn - 02.10.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 02.10.1964, Page 12
Tuttugu kennarar eru ráðnir að Sjómannaskólanum í vetur. Hér sitja nokkrir í fremstu röð. Talið frá vinstri; Helgi J. Halldórs- son, magister, nýkominn heim sem háseti á Jóni Kjartanssyni SU í sumar (íslenzka og enska), Þorsteinn Gíslason, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU (danska, íslenzka, reikningur og siglingafraeði), Ingólfur Þórðarson, skipstjóri á Hval (siglingafræði, stærð- fræði og sjómennska), Jónas Þorsteinsson, stýrimaður (sömu fög), Karl Guðmundsson (sömu fög, líka eðlisfræði og veðurfræði), Benedikt Alfonsson, (sömu fög að undanskildri eðlisfræði) og Þorsteinn Valdemarsson, skáld, (ísl. og danska). (Ljm. Þjóðv. G.M.). „Þar mátti grill a marga aflakló" □ Sjómannaskólinn var settur í gærmorgun í hátíðakapellu skólans og var þar fríð- ur hópur samankominn. Þarna mátti grilla marga þekkta aflakló á bekk og verða þeir nú skólastrákar í vetur. 0 Þá duldist ekki margt gott mannsefnið af yngri mönnum þama. □ í vetur verða 214 nemendur í skólanum og þar af 97 nýsveinar. | [ Tuttugu kennarar eru ráðnir að skólanum og þar á meðal Þorsteinn Gíslason, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni og sveiflar hann nú skólapriki yfir mörgum hættulegum keppinaut í vetur- | | Jónas Sigurðsson, skólastjóri, flutti setningairæðu og bauð nemendur velkomna. Honum fórust meðal annars svo orð: „1 vetur verða 11 kennslu- deildir við skólann. Ein deild fyrir hið minna fiskimannapróf, tvær deildir fyrir 1. bekk fiski- mannadeildar, tvær deildir fyrir 2. bekk fiskimannadeildar og tvær • deildir fyrir þá, sem áður hafa lokið hinu minna fiski- mannaprófi. Þá eru þrír bekkir farmannadeildar og deild fyrir ekipstjóraefni á varðskipunum. Tvö námskeið fyrir minna fiski- mannapróf verða haldin á ísa- firði og Neskaupstað í vetur. Að þessu sinni hafa 97 nem- endur fengið loforð um skóla- vist í vetur. Af þessum nýsvein- um ætla 29 að lesa undir far- mannapróf, 55 undir fiski- mannapróf og 13 undir hið minna fiskimannapróf. Eldri nemendur frá síðasta skólaári og halda nú áfram í skólanum eru 117. Þar af lesa 35 undir farmannapróf. 78 und- ir fiskimannapróf og fjórir und- ir skipstjórnarpróf á varðskip- um. • ■ ■ «wi CSoiin Samtals verða 214 nemendur í skólanum í vetur. Tuttugu kennarar eru ráðnir til skólans í vetur. Á kennara- íiði skólans verður sú breyting, að Þorsteinn Gíslason, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni. kennir nú aftur í vetur. Þá kennir Sigur- björn Arnason, skipstjóri fyrir Þorvald Ingibergsson, kennara, sem dvelur í Danmörku við framhaldsnám, en er væntanleg- ur í bv iun j tvei ber os iu: þá aftur taka við kennslu í skólanum. Gunnar Engilbertsson. háskólanemi kennir bókhald í fiskimannadeild og tungumál. Gunnar Bergsteinsson, sjómæl- ingamaður, Kristján Júlíusson, loftskeytamaður og Sigurður Þorsteinsson,- varðstjóri hjá Lög- reglu Keykjavíkur.“ Og Jónas kom víðar við: „Þá , vil ég geta þess að fyrir nokkru barst Sjómannaskólanum tilkynning frá borgarstjóra Reykjavíkur, að ákveðin hefðu verið lóðamörk skólans og jafn- framt hver þau yrðu. Hefur ver- ið beðið eftir þessu i nítján ár síðan skólinn hóf starfsemi sína.‘ Og Jónas heldur enn áfram: „Hin mikla aðsókn að skólan- um ber gleðilegan vott um góða afkomumöguleika á sjónum. Vel- Svona sitja þeir í 2. bekk d í velur. Þarna fremst sitja þeir saman Benedikt á Hafrúnu og Gu3- björn á Árna Magnússyni. Fyrir aftan sitja saman Hávarður á Hcgrunu og Ásgeir Sölvason á Ásgeiri Torfasyni. Þar fyrir aftan situr ennþá einn við borð, Sigurður á Náttfara, og svona mætti halda áfram að telja upp aflaklærnar. Flestir eru þeir fjölskyldumenn og hefur til dæmis Ásgeir Sölvason sex börn á framfæri og ferming í vor á því elzta. Hann telur framfærslu hér í Reykj- vík ekki undir hundrað þúsund krónum yfir skólatímann. Skattstofan veitir þcssum köppum tíu þúsund krónur í skólafrádrátt samkvæmt lögum. (Ljósm. Þjóðv. G.M.). Jónas Sigurðsson, skólastj. Sjó- mannaskólans var skipstjóri á cinum hvalbátnum í sumar. Jón- as er nú ekki hér í tunnunni á þessari mynd. Er afi flytja setn- ingarræðuna í gær. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.). ferð þjóðfélags okkar hlýtur líka að miklu leyti að byggjast á því, að aflað sé úr sjónum og kaup- skipum okkar sé haldið úti. á- samt þeim skipum, sem eiga að verja fiskimið okkar. Skipaflot- inn er nú þegar orðinn hinn glæsilegasti og stöðugt bætast vð ný skip. Þá hefur og þróun- in orðið sú, að sérstaklega fiski- skipin stækka jafnhliða nýrri veiðitækni. Hefur þetta orðið til þess, að margir af okkar ágætu afla- mönnum, sem aðeins hafa rétt- indi til skipstjórnar á skipum allt að 120 rúmlestir hafa, þegar þeim hefur boðizt stærri skip til að stjóma. orðið, annaðhvort, að neita þeim eða leita á náðir stjórnarvaldanna til þess að fá undanþágu til skipstjómar. Hvorttveggja er illt. Hvað und- anþágum viðvíkur hljóta þær alltaf að verða tímabundnar og ekki til frambúðar. Til þess að ráða bót á þessu ástandi, var ákveðið að halda sérstaka deild hér við skólann í vetur fyrir þá sem hafa hið minna fiskimanna- próf. Námsefni verður hið sama og krafizt er fyrir fiskimanna- prófið, en skipting námsefnis á kennslustundir nokkuð önnur en í öðrum bekk fiskimannadeildar. Verður höfð hliðsjón af því sem kennt hefur verið fyrir hið minna fiskimannapróf. Aðsókn að þessari deild er það mikil, að tvískipta verður henni að þessu Framhald á 9. síðu. 2. bekkur D Margir hinna þekktu skipstjóra verða settir í sérstakan bekk í vetur og heitir hann 2. bekkur d. Svona Iítur bekkj- arskráin út og eiga þeir eftir að kjósa sér umsjónarmann: Aðalbjörn Haraldsson, stýrimaður á Gullver; Ársæll Eyj- ólfsson, skipstjóri á Sæúlfi BA; Ásgeir Sölvason, skipstjóri á Ásgeiri Torfasyni IS; Benedikt Ágústsson, skipstjóri á Hafrúnu IS; Einar Árnason, skipstjóri á Sigurði AK; Guð- bjöm Þorsteinsson, skipstj. á Árna Magnússyni og sl. vetur á Gróttu RE; Hávarður Olgeirsson, skipstj. á Hugrúnu IS; Helgi Aðalgeirsson, skipstj. á Sigfúsi Bergmann GK; Hörð- ur Guðbjartsson, skipstj. á Guðbjarti IS; Jóhann Adolf Oddgeirsson, skipstjóri á Oddgeiri frá Grenivík; Krist- bjöm Þór Ámason, skipstjóri á Engey RE; (Jli Sigurður Jónsson, skipstjóri á Guðbjörgu GK; Páll Gunnarsson, skipstjóri á Jóni Gunnlaugs GK; Sigurður Bjarnason, skipstjóri á Jóni Oddssyni GK, Sigurður Sigurðsson, skjp- stjóri á Náttfara ÞH; Svavar Sigurjónsson, skipstjóri á Gylfa II. frá Rauðuvík; Valdimar Jónsson, skipstjóri á Áma Geir KE; Víðir Friðgeirsson, skipstjóri á Hadd SU og Þórarinn Ólafsson, skipstjóri á Þorbirni II. GK. Sex af þessum skipstjórum eru ennþá á veiðum fyrir austan, en þeir koma næstu daga — eða skrópa þeir úr skólanum? Berklavarnardag- urinn á sunnudag Fréttamenn ræddu í gær við forystumenn SÍBS í tilefni Berklavarnardagsins, sem er á sunnudaginn. Þá verða til sölu merki dagsins og hlað samtak- anna Reykjalundur. Samband íslenzkra berkla- sjúklinga rekur nú vinnuheim- ili að Reykjalundi í Mosfells- sveit. Reykjalundur var stofn- settur 1945 og þar eru nú um 100 vistmenn, þar af berkla- sjúklingar að einum þriðja. Þá rekur SÍBS öryrkjavinnustofur að Múlalundi í Reykjavík. Múla- lundur var stofnsettur 1959 og eru þar nú við vinnu 50—70 ör- yrkjar jafnaðarlega. Og loks eru vinnustofur SÍBS að Kristnes- Framhald á 3 síðu. KOSIÐ TiL ASÍ-ÞINGS Skjaldborg kýs á ASÍ-þing Félagið Skjaldborg í Reykja- vík kaus í gærkvöld á fundi fulltrúa á Alþýðusambandsþing. Var Helgi Þorkelsson kosinn aðalfulltrúi og Margrét Sigurð- ardóttir varafulltrúi félagsins. Verkakvennafélagið Snót Vestmannaeyjum, 1/10. — í fyrrakvöld voru kjörnir þrír fulltrúar á Alþýðusambandsþing á fjölmennum fundir í Verka- kvennafélaginu Snót í Vest- mannaeyjum. Aðalfulltrúar fé- lagsins verða þessar konur: Guð- munda Gunnarsdóttir, Vilborg Sigurðardóttir og Ólafía Sigur- jónsdóttir. Varafulltrúar: Mar- grét Þorgeirsdóttir, Margrét Sveinsdóttir og Margrét Ólafs- dóttir. Félag kjötiðnaðarmanna Félag kjötiðnaðarmanna kaus I fulltrúa á Alþýðusambandsþing, Kristján Guðmundsson aðal- og Geir Jónsson varafulltrúa. Verzlunarmannafélag Árnessýslu Verzlunarmannafélag Árnes-1 Jónsson og varafulltrúi Svan sýslu kaus aðalfulltrúa Óskar I Kristinsson. BLAÐBURÐUR Þjóðviljann vantar nú þegar fólk til blaðburðar í þessi hverfi: VESTURBÆR: Skjólin. AUSTURBÆR: Laufásvegur — Bergþórugata — Freyjugata — Háteigsvegur — Meðalholt — Sig- tún — Brúnir — Vogar — Langahlíð — Bústaða- hverfi. KÓPAVOGUR: Laus hverfi í austur- og vesturbæ.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.