Þjóðviljinn - 17.10.1964, Page 2
2 SfÐA
HÖÐVIIIINN
m LdKSTJÓRN
OC LEIKRITUN
Reiknivélin fér aftur á svið
Sá viðburður sérn hvað mést-
um tíðindum sastti á síð-
asta leikári v»r sýning leik-
flokksins Grimu á nýju verki
eftir Erling E. Halldórsson.
sem nefnist Reiknivélin — ný-
stárlegt verk og vel unnið og
sjálfsagt stórhættulegt fyrir
þjóðfélagið.
Erlingur bæði samdi verkiðog
setti það á svið Og er að mörgu
leyti ágætlega vel undir slík
störf búinn. Hann lærði á leik-
listard. Svartaskóla í Paris 1952
—53 og 1956—58, var við hlið-
stætt nám í Vín árin 1953—54
og 1958—59. Auk þess varð
hann fyrir því láni 1962 að
geta dvalið þrjá mánuði við
eitt ágætasta leikhús veraldar.
Berliner Ensemble i Austur-
Berlín. leikhúsið sem Brecht
stofnaði og stjórnaði meðan
honum entist aldur til.
Nú er Gríma aftur að æfa
Reiknivélina og hefur sýning-
ar á ný innan skamms og það
er því ekki illa til fallið að
spyrja höfundinn nokkurra
spurninga um ieikstjórn og
leikritun.
★
— Frá þvi ég kom heim frá
námi hef ég unnið á vegum
Bandalags íslenzkra leikfélaga
með áhuaaleikfólki úti á landi.
allt þar til Reiknivéliq var sett
upp. Ég hef verið á Seyðis-
firði, Reyðarfirði. Norðfirði
vík; ég hef frékar viljað vera
á smástöðunum, þar sem fólk-
ið er ómótað.
Erfiðleikar í slíku starfi eru
auðvitað margir. Til að mynda
s.iálft leikritavalið — það er
gert allt of lítið af því að leita
uppi sómasamleg leikrit. sem
ekki eru of erfið fyrir smáa
flokka og lítt vana. Það virðist
mjög erfitt að vinna bug á
bessum tilbúna smekk fyrir
Iandi, þar sem til eru hæfi-
legar týpur í það verk.
Og yfirleitt finnst mér það
sé gert alltof lítið tii að
uppfylla þessa þörf fyrir leik-
list sem tvímælalaust er til —
í flestum þessum smáþorpum
er sýnt eitt leikrit á vetri;
sumstaðar tvö. Fjárstyrkir tii
starfsenoinnar hafa verið rýr-
Erlingur E. Halldórsson.
leikrit á skýran hátt, heldur
en sá sem við eigum að venj-
ast. Það er erfitt að svara því
hvort hann á við um öll leikrit
— en honum má beita að ein-
hverju leyti í öllum leikritum.
fcað sem við minntumst á
núna. kemur ekki alveg
Rœtt við ERLING E. HALLDÓRSSON
brezkum gamanleikjum, sem
maður rekur sig viðast á úti
á landi, Sumpart eru menn
hræddir við að missa áhorfend-
ur, sumpart eru menn feimn-
ir við nýbreytni.
En ég hef til að mynda sett
á svið Páska eftir Strindberg
í Ólafsvík og ég má segja að
það hafi verið ánæg.iuleg sýn-
ing. Svo setti ég upp Georges
Dandin eftir Moliére á Reyðar-
firði — en þar gerðust furðu-
leg tíðindi: leikritið þótti
mjög vont Leikurunum þótti
samt ákaflega gaman að vinna
að þvi Nú bef ég hug á að
setja Biederman og brennu-
j-ixui n.eyueuLiiiui. nuiuiuui nci-.jíi iachihi-
Flateyri, Stykkishólmi, Ólafs- vargana á svið í vetur úti á
LandssambanJ líf-
eyrissjóða stofnað
Hinn 3n. september s.l, var
haldinn i Reykjavík stofnfundur
Landssambands lífeyrissjóða Að
stofnun þessara samtaka stóðu
31 lífeyrissjóður, sem fulltrúa
áttu á stofnfundinum eða höfðu
tllkynnt þátttöku í sambandinu.
Landssamband lífeyrissjóða
hvggst gæta hagsmuna lífeyris-
sjóða á sviði löggjafar og vinna
að því, að ríkisvaldið taki rétt-
mætt tillit til starfsemi og þarfa
lífeyrissjóðanna m.a. með þvi
að fulltrúar þeirra séu til kvadd-
ir. þegar ákvarðanir eru tekn-
ar um málefni. er sérstaklega
varða lífeyrissjóðina. Enn frem-
ur er það tllgangur sambands-
ins að vinna að samræmingu
reglna um þau málefni. sem
varða samskipti lífeyrissjóðanna
innbyrðis, og loks er ætlunin að
hafa handbærar upplýsingar
um löggjöf og reglur um líf-
eyrissjóði, reglugerðir og starfs-
reglur þeirra lífeyrissjóða, sem
i sambandinu eru. svo og tölu-
legar upplýsingar um starfsemi
beirra o fl.
Hver lífeyrissjóður, sem öðl-
azt hefur viðurkenningu fjár-
málaráðuneytisins samkvæmt
löeum um tekjuskatt og eigna-
skatt, getur gerzt meðlimur sam-
bandsins.
Stjórn sambandsins fram til
næsta aðalfundar skipa eftir-
taldir menn:
Guðjón Hansen, trygginga-
fræðingur Gísli Ólafsson, for-
stjóri. Guðmundur Árnason, for-
stjóri. Hermann Þorsteinsson,
fulltrúi. Ingólfur Finnbogason,
húsasmíðameistari.
Til vara:
Kjartan Ólafsson, prentari.
Tómas Guðjónsson, vélstjóri.
FRAMKVÆMDASTJÓRINN
NC'TAR FJÁRDRÁTTAR-
ÁBURÐI MEÐEIGENDA
★ Á dögunum var kært yfir fjárdrætti framkvæmdastjóra Al-
menna verzlunarfélagsins h.f. að Laugavegi 168 hér i bæ.
★ Framkvæmdastjórinn er búsettur í Hafnarfirði og fiallar þess-
vegna bæjarfógetaembættið þar um málið Hefur Gunnar Sæ-
mundsson, fulltrúi bæiarfógeta málið til rannsóknar.
Þjóðviljinn hafði samband við Gunnar Sæmundsson i gærdag
og kvað hann kæru hafa borizt frá tveim eigendum áðumefnds
verzlunarfyrirtækis um fjárdrátt er næmi samtals kr. 265.938,00.
+ Væri framkvæmdastjórinn valdur að þessum fjárdrætti.
ir Framkvæmdastjórinn neitaði hinsvegar þessum áburði og stæði
þannig fullyrðing gegn fullyrðingu. Færl nú fram bókhalds-
rannsókn hjá fyrirtækinu í tilefni af hessari kæru.
ir. Og mikið skort á, að nokkur
reisn væri yfir annarri aðstoð
— við leikritaval, útvegun
búninga o.s.frv.
Maður minnist þess þá oft, hve
Austur-Þjóðverjum tekst að
gera mikið fyrir sína áhuga-
hópa. Þar er það t. d. til siðs,
að s.kylda atvinnuleikhúsin tii
að hafa áhugamannaflokk und-
ir sínum vemdarvæng (Berlin-
er Ensemble hefur t.d, leik-
flokk f verksmiðju) — sjá þeim
fyrir leikstjóra og, veita þeim
hverskonar aðstoð.
Ég hef haft mikið yndi af
því að vinna með fólki úti á
landi, þótt ég væri ekki allt-
af ánægður með leikritavalið
Áhuginn er mikill, og bætist
bar við góð samvinna, góður
félagsandi, þá er mikið feng-
ið. Menn eru auðvitað mis-
iafnlega reyndir. en náist sam-
starf. þá jafnast sá munur
mikið af sjálfu sér En auð-
vitað þýðir ekki að heimta af
óvönu fólki, það sem það get-
ur ekki, þýðir ekki fyrir leik-
stjóra að koma með fyririram
ákveðnar hugmyndir og ætla
að knýja þær fram. Ég hef
ekki trú á hörku í leikstjórn
— og hún er áreiðanlega skað-
leg fyrir áhugaleikara.
Leikaðferðir, segirðu, vissu-
lega eru til mismunandi
leikaðferðir. Tökum til dæm-
is þá aðferð, sem Breeht hefur
notað. þá hefur hann áreiðan-
lega sér til fyrirmyndar þann
frásagnarhátt. sem við yfir-
leitt notum, þegar við segj-
um frá einhverjum atburðum.
Það er ekki um innlifun að
ræða nema að takmörkuðu
leyti, við hermum orð persón-
unnar eins og leikari, og leggj-
um um leið dóm á hana. Ég
held að innlifunin geti orðið
leikara fjötur um fót, geti
jafnvel spillt þeim texta sem
hann á að fara með. Ef leik-
ari er gagntekinn af þeim til-
finningum, sem hann á að láta
í Ijós, þá hlýtur hanri að eiga
erfitt með að sýna þær, þvi
hann lætur truflast af þeim.
Og annað sem skiptir miklu
máli: að einangra tilfinnin2-
arnar og sýna þær í ákveð-
inni og vel útfærðri mynd. Ég
man til dæmis eftir einu at-
riði í Túskildingsóperunni, sem
ég sá í Berlín. Mackie og
Polly eru á sviðinu og það er
einhver nautnalegasta mynd
sem ég hef séð Hann kyssir
hana standandi og hún lætur
sig um Ieið síga í hnjáliðun-
um og þetta segir miklu meira
en þó þau hefðu verið að daðra
allan tímann.
Ég held að þessi leikmáti sá
miklu hæfari til að flytja
heim við Reiknivélina. Því
Reiknivélin er ekki frásögn —
eins og leikrit Brechts eru.
Þegar ég fór að vinna að
sviðsetningunni setti ég mér
það boðorð fyrst, a-ö
það þyi'fti að leika hægt og
áreynsíulaust. Leikararnir
höfðu yfir hverja setningu aft-
ur og aftur; ég vildi slíta á
þráðinn, ef svo má segja, fá
þá til að staldra við, forða
þeim frá því að taka.st á flug.
Þegar þannig er leikið ætti
áhorfandinn að skoða leikritið
eins og hann virði fyrir sér
atburði t.d. út um, glugga. Það
er mikilsvert. að leikarinn láti
ekki persónuna ná tökum á
sér, heldur nái hann tökum á
henni.
Annar vandj i sambandi við
Reiknivélina var að koma því
til skila að í henni er ákveð-
in atburðarás, hlutimir eru
það sem þeir eru — en um
leið eru þeir annað. Og ég
held að hlutirnir verði ekki
leikrænir nema þeir séu þann-
ig. Goethe gamli hefur minnzt
á þetta, svo enginn skyldi
halda að það sé ný bóla.
— Og svo var það stíllinn.
Það er stundum verið að tala
um nauðsyn þess að hér komi
fram leikhússtíll. En ég er
hræddur um að stíll verði ekki
til með því einu að taka upp
einhver nýstárleg brögð í sam-
bandi við leiktjöld eða lýs-
ingu. Stíll er tengdur leikstjór-
anum, hans heimsmynd, af-
stöðu. Stíll sprettur af því, að
leikstjóri tekur ákveðna af-
stöðu til hlutanna. Það er af-
staða hans, sem mótar svið-
setninguna.
0
g nú fer Reiknivélin
upp aftur?
— Já, við erum að æfa
núna, og gerum um leið nokkr-
ar smávægilegar breytingar
— Og þú ert með eitthvað
nýtt á prjónunum?
— Ég lauk i sumar við leik-
rit, sem heitir Minkar. Þetta
er nútímaleikrit í tíu myndum.
Ég má segja. að í því sé skýr
atburðarás, en ég hef reynd-
ar ekki alltaf verið á þeirri
skoðun að það sé nauðsynlegt.
Ég nota í þvi alltannan frá-
sagnarhátt en i Reiknivélinni.
Mér er annars lífsins ómögu-
legt að rekja efni þessa leik-
rits. En ég hefði gjarna viljað
setja það á svið — og mér
hefur lengi þótt að það stæði
engum nær að frumsýna ný
íslenzk leikrit en einmitt á-
hugaleikfélögunum.
A.B.
---------------------------Laugardagur 17. október 1964
Oskar Þorgils Pálsson
Örfá kveðjuorð
Að morgni 9. þm. lézt að
heimili sínu Óskar Þ. Pálsson.
Það er ekki æflunin hér að
rek-ja ýtarlega æviferil Óskars.
Hann var fæddur í Ólafsvík
22.5 1902 og ólst þar upp. Ár-
ið 1922 kvæntist hann Lovísu
Kristjánsdóttur. Þau eignuðust
4 börn og lézt eitt þeirra í
bemsku. Þau sem upp komust
eru: Skarphéðinn, Kristín og
Guðmundur. Mér er jafnan
minnisstætt hver kona Lovísa
var. ekki sfzt vegna þeirrar
óbilandi festu, sem hún sýndi
f þeim veikindum, sem hún átti
við að búa. Hún gekk aldrei
heil til skógar. Þau stofnuðu
heimili á Hellissandi. en flutt-
ust til Reykjavíkur uppúr 1930
og áttu hér heima þar til Lov-
ísa lézt 7.1 1954. /
Seinni kona Óskars var
Guðný Vigfúsdóttir og lifir
húri mann sinn. Vil ég með
þessum línum senda henni
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Þau áttu heima í
Sandgerði síðustu árin.
Eitt helzta áhugamál Óskars
var verkalýðssamtökin og störf
þeirra. Hann átti sæti í trún-
aðarráði Dagsbrúnar um ára-
bil og mun hafa setið flest þing
Alþýðusambandsins sem full-
trúi þess félags frá 1942 og
þar til hann flytur til Sand-
gerðis. Það má segja að það
sé ekki frásagnarvert, að
verkamaður sé verkalýðssinni.
Menn hljóta að standa með
stétt sinni. En á árum krepp-
unnar, með öllu sem henni
Tannlækningastofa
Hef opnað tannlækningastofu að Hverfisgötu 57.
Viðtalstími kl. 9—12 og 1,30—5 daglega, nema
laugardaga, frá kl. 9—11 Sími 21140.
Kristján H. Ingólfsson, tannlæknir.
Eftirspurðu
Sænsku stálvörurnar
frá Guldsmeds A.B.
eru komnar.
G. B. Silfurbúðin
Laugavegi 55. — Sími 11066.
Tann/ækningastofa
Hef opnað tannlækningastofu að Hverfisgötu 57.
Viðtalstími kl. 9—12 og 1,30-—5 daglega, nema
laugardaga frá 9—11. Sími 21717.
Jóhann G. Möller, tannlæknir.
Frcmtíðarstarf
Staða gjaldkera og bókara (karl eða kona) við
embættið er laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi ríkisins og samkomulagi. Þeir sem vildu
sinna þessu hafi samband við undirritaðan sem
fyrst.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 10/10 1964.
Jón ísberg.
fylgdi var slíkt vissulega meira
en orðið verkamaður, sem
þurfti til þess að vera góður
verkalýðssinni.
Menn koma og fara. Verka-
lýðssamtökin standa. Baráttan
heldur áfram. En til þess að
við getum staðið okkur vel
megum við ekki gleyma þeim
sem stóðust þau átök, sem
þurfti til að leggja grunninn
að þvi sem við byggjum á í
dag.
Um leið og ég þakka Óskari
fyrir persónulega kynningu þá
vil ég þó sérílagi þakka honum
fyrir góða stéttarlega baráttu.
Guðm. Valgeirs.