Þjóðviljinn - 18.10.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.10.1964, Blaðsíða 1
Búlgaríuvika Fylkingarínnar ■ ÆFR gengst fyrir Búlg- aríuviku í félagsheimili sínu að Tjarnargötu 20 og hefst hún á næstkomandi mánudagskvöldi og stend- ur til sunnudagskvölds- ■ Sýndar verða myndir, listmunir og bækur frá Búlgaríu og þrjú þessara kvölda verður sitthvað til skemmtunar og fróðleiks um Búlgaríu, land, þjóð og menningu. Þau atriði verða nánar tilkynnt síðar. ■ Sýningin er opin frá kl. 21—23.30 á hverju kvöldi og . er öllum heimill að- gangur. TILLAGA ÞINGMANNA ALÞÝÐUBANDALAGSINS: RÍKIBIÁTIBYC6JA 500 LlKUiBÚBIR ÁRIÐ 1965 JVIyndin er tekm á æfingu á „Forsetaefninu": Kúrik Haraldsson, Valdimar Lárusson os Róbert Arnfinnsson í hlutverkum sínum. Forsetaef ni5 f rum- sýnt á miðvikudag Næsta miðvikudagskvöld verff- ur frumsýnt nýtt íslenzkt leik- rit í Þjóðleikhúsinu, „Forseta- efnið“, eftir Guðmund Stelns- son, rithöfund. Leikritið fjallar um nútíma stjórnmálabaráttu og er ekki staðbundið við neitt ákvcðið land. Þjóðleikhússtjói'i segir, að þetta sé komedía og eiginlega orð í tima töluð og ekki er hægt að hugsa sér betri sýning- artíma með nýliðnar og yfir- standandi kosningabaráttu í ná- grannalöndum í huga. Leikstj. er Benedikt Árnason og leiktjöld hefur Gunnar Bjamason gert og eru þau einföld að allri gerð, — pallar og aftur pallar og einhversstaðar sést myndastytta af stjórnmálaforingja. Þá eru hljómbrigði eftir Þorkel Sigur- björnsson, tónskáld. Tveir stjómmálaforingjar eru aðalhlutverkin og heitir annar Úlfur Úlfars leikinn af Róbert Arnfinnssyni og Bjarkar leik- inn af Rúrik Haraldssyni. Þá koma við sögu tveir ungir og rr.etnaðargjamir stjómmála- menn og heita þeir Stefnir og Frami leiknir af Gísla Alfreðs- syni og Gunnari Eyjólfssyni. Fyrrverandi fegurðardís vinnur á skrifstofu Úlfs og nefnist hún Bea. Hún er leikin af Kristbjörgu Kjeld. Þá má nefna þama aðra leikara eins og Guðbjörgu Þorbjamardóttur, Lárus Pálsson, Val Gíslason, Ævar Kvaran og Arnar Jóns- son af nítján leikendum í leik- ritinu. Þetta er 30. felenzka leikrit- ið, sem Þjóðleikhúsið tekur til sýningar. Höfundur var við- staddur þessa kynningu leikrits- ins fyrir blaðamönnum og vildi litið tala um efni leiksins Hann sasðist hafa gert fimm uppköst að leikritinu og það hefði ver- ir breytingum háð fram á þenn- an dag. Eiginlega væri leikritið ennþá í smíðum. Leikritið er þó aðallega sam- ið seinast á árinp 1961 og lop- ann ár árinu 1962. Guðmundur Steinsson hefur skrifað annað leikrit og nefnist það „Móðir mín í kví“, en það hefur ekki enn verið sýnt á leiksviði. Væntanlega mun þó Leikflokk- urinn Gríma taka það til sýn- ingar síðar í vetur. □ Þrír þingmenn Alþýðubandalagsins, Einar Ol- geirsson, Ragnar Arnalds og Eðvarð Sigurðs- son, flytja á Alþingi frumvarp til laga um byggingu leiguhúsnæðis. □ Það er aðalefni frumvarpsins að ríkisstjórn- inni heimilast að láta byggja á næsta ári, 1965, fimm hundruð leiguíbúðir til að bæta úr hinum brýna skorti á leiguhúsnæði. □ í frumvarpinu eru reglur um byggingu hús- anna og með hverjum kjörum þau verði leigð. Ríkisstjóminni er heimilað að taka 200 milj- óna króna lán vegna þessara byggingarfram- kvæmda, og ennfremur að fela húsnæðismála- stjóm ríkisins framkvæmdir allar í þessum málum fyrir sína hönd. Frumvarpið verður birt í heild síðar, 1 greinargerð lýsa flutningsmenn þannig efni frum- varpsins og nauðsyninni, sem er á slíkum athöfnum: „Skortur á leiguhúsnæði, sér- staklega í Reykjavik og ná- grenni, en einnig víðar á land- inu, er nú orðinn svo mikill, að við neyðarástandi liggur. Er óhjákvæmilegt, að hið opin- bera láti það til sín taka, þegar skortur þrengir að almenningi á brýnustu lífsnauðsynjum, eins og húsnæði. Tillögur þær, sem felast í þessu frv., eiga því ekkert skylt við varanlega framtlðarlausn á húsnæðisvandamálunum. Slík framtíðarlausn þyrfti að vera byggð á félagslegu átaki al- mennings, er ríkið aðstoðaði með því að veita lán, er nemi helzt 75—90% byggingarkostnað- ar, til langs tíma, 60—80 ára, og með lágum vöxtum, 2—4%, enda þyrfti þá að vera tryggt stöðugt verðgildi krónunnar og útrýming alls brasks með ibúð- ir. Tillögur um framtiðarlausn húsnasðisvandamála munu þing- menn Alþýðubandalagsins leggja fram óháð þessu frumvarpi. Þetta frv. miðar að því að lina nokkuð neyðarástand, sem nú ríkir, með því að ríkið byggi sjálft eða láti húsnæðismála- stofnun ríkisins annast það fyr- ir sig í samráði við viðkomandi bæjarfélög og eigi síðan þess- ar íbúðir með kostnaðarverði. Er þá nauðsynlegt, að ríkið kapp- (to&ti að komast að sem bezt- um kjörum um lán. Nauðsyn- legt er að reyna að knýja það fram með einu eða öðru móti, að vextir verði ekki hærri en 4—6%. Jafnvel hefur ríkið í Aendi sér að fkylda bankanna, þar með talinn Seðlabankann, með lögum til að lána ríkinu slika upphæð með slíkum vöxt- um, ef erfitt skyldi vera að semja við bankana um slíkt. 1 frv. eru allströng fyrirmæli um fyrirkomulag og byggingu þessa leiguhúsnæðis. Eru þau sett í því skyni, að íbúðir þess- ar megi verða sem ódýrastar, en þó hentugar og í samræmi við kröfur nútímans Ætti kostnað- Framhald á 12. síðu. Fundahöld i Sovétríkjunum um valdaafsal Krústjofís LONDON 17/10 — Fréttaritari brezka útvarpsins í Moskvu skýrði í dag frá þvi að nú væru haldnir fundir á vegum komm- únistaflokksins um öli Sovétrík- in til að skýra aðdraganda og á- stæður þess að Krústjoff lét af völdum. Það fylgdi fréttinni að búizt væri við því að á mánudag yrði nánar sagt frá atvikum sem leiddu til mannaskiptanna í æðstu embættum Sovétríkjanna. Á mánudag verða mikil hátíða- höld í Moskvu til að fagna síð- ustu sovézku geimförunum. Ekki er vitað með vissu hvar Krústjoff er nú niður kominn, en sagt er að hann dveljist á sveitasetri skammt frá Moskvu. Gomulka, leiðtogi póiskra kommúnista, sagði í Varsjá í dag að fréttin um mannaskiptin í Moskvu hefði ekki komið sér á óvart. Krústjoff hefði sagt sér fyrir einu ári að hann hyggðist segja af sér. Gomulka taldi eng- an vafa á að stefna sovétstjórn- arinnar myndi verða óbreytt, þrátt fyrir mannaskiptin. Enn er barizt á „Rauða torginu Ágæt síldveiði var á „Rauða torginu" í fyrrinótt og fengu 27 skip samtals 28300 mál og tunnur. Þessi skip fengu yfir þúsund mál. Guðmundur Þórðarson 1000, Guðrún 1700, Hannes Haf- HEIMSMET 0G 0 L-MET í HVERRI EINUSTU GREIN FRJÁLSÍÞRÓTTA CD Keppt var til úrslita í 5 greinum frjálsra íþrótta á olympíuleikjunum í Tokíó í gær. Met voru sett í öllum greinunum, ýmist heimsmet eða olympíumet. í 200 metra hlaupi sigraði Bandaríkjamaðurinn Henry Garr á 20.3 sek. sem er nýtt OL-met. Dallas Long. Annar varð landi hans Drayton á 20.5, 3. Roberts frá Trinidad á 20.6, 4. Jerome Kanada 20.7, 5. Berutti Italíu 20.8, 6. Foik Póllandi 20.8, 7. Robbins Band. 20.8 og 9. Ottolina ítalíu 20.9 sek. Belgíumaðurinn Gaston Roel- ants vann gullið eins og búizt hafði verið við í 3000 metra hindrunanhlaupi á nýju OL-meti 8.30.8 mín. Annar varð Maurice Herriott frá Bretlandi á 8.32,4. i þriðji Belíaéf Sovétríkjunum á l 8.38.8 4. Oliveira Portúgal 8.36.2, 5 Young Bandar. 8.38,2 og 6. Texereau Frakkl. 8.38.3. Svíinn Gustafsson varð áttundi á 8.41.8 mín. | Irina Press, Sovétríkjunum, sigraði á fimmtarþraut kvenna og setti nýtt heimsmet. hlaut j 5246 stig. Mary Rand Bretlandi varð önnur með 5036 stig, 3. Bystrova Sovétr. 4956 st. 4. Pet- j ers Bretlandi 4797, 5. Stamejcic , Júgóslavíu 4790 og 6. Hoffmann Þýzkalandi 4737. Nina Hansen frá Danmörku varð níunda í röðinni með 4611 stig og Oddrún Hokland frá Noregi varð í 16. sæti með 4428 stig. I 400 metra hlaupi kvenna sigraði Betty Cuthbert frá Astr- alíu á 52.0 sek. sem er nýtt OL-met; Packar Bretlandi varð önnur á 52.2 sek., 3. Amoorp Ástralíu 53.4, Munkacsi Ung- verjalandi fimmta á 54.4 og sjötta Itkina Sovétríkjunum á 54.4 sek. 1 stangarstökki varð heims- methafinn Fred Hansen frá Bandaríkjunum hlutskarpastur, en Þjóðverjar skipuðu næstu þrjú sætin. Hansen stökk 5.10 metra sem er nýtt heimsmet, steinn 1600, Guðrún Þorkels- dóttir 1000, Héðinn 1000, Ingi- ber Ól&fsson II 1500, Sigur- von 1750, Þorbjöm II 1200, Engey 1050, Súlan 1000, Snæ- fell 1500, Bára SU 1100, Sigurð- ur Bjamason 1200, Huginn II 1200, Bjarmi II 1500, Vonin 1400 (tunnur) og Víðir II 1200 mál. Oddgeir frá Grenivík lenti í kasti við sovézkan reknetabát í fyrxánótt, og rifnaði nótin hjá honum. Islenzku sjómennimir eru óánægðir yfir því að fá ekki varðskip eða eftirlitsskip til að- gæzlu á þessum miðum og er mikið kapp við veiðarnar hjá báðum aðilum. Ástæða er til þess að spyrja bvort bíða eigi eftir slysum. Gaston Roelants. Wolfgang Reinhardt 5.05, Klaus Lehnert 5.00, Manfred Prauss- ger sömu hæð, fimmtí. varð Blinznetsoff Sovétríkjunum 4.95 og Tomasek Tékkólsóvakíu sjötti með 4.90 m. Fríðvænlegt Eitthvað virðist heims- friðurinn tryggari nú en í fyrra, ef marka má fjár- lagafrumvarpið fyrir árið 1965, sem nú liggur fyrir Alþingi. Á fjárlögum 1964 var áætlað til almannavama 4 milj. en skv. frumvarpinu fyrir 1965 er hún 2.728.000 kr., þ.e. Iækkunin nemur 1.271.000 kr. Þar af eru áætlaðar skv. frumvarp- inu 172.880 kr. í laun handa forstöðumanni al- mannavarna. en annað er ósundurliðað

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.