Þjóðviljinn - 18.10.1964, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.10.1964, Blaðsíða 3
Sumnudagur 18, oktöber 1964 MÓÐVILIINN SlÐA 3 Ályktanir fjórða þings Sjómannasamb. Islands Hér eru birtar ályktanir þær er þing Sjó- mannasamband Islands gerði, varðandi hags- muná- og öryggismál sjómanna. — Þingið var háð í Reykjavík, dagana 3.—4 október. Um löndun síldar 4. þing Sjómannasambands Islands skorar á stjómir allra sfldarverksmiðja á landinu. að afnema það löndunarfyrir- komulag, sem nú er búið að vera lengi, þar sem það er orðið úrelt og langt á eftir þeirri tækni sem nú er orðin á flestum sviðum. Þingið vill benda á, að lönd- un síldar í bræðslu er orðin sú erfiðasta og sóðalegasta vinna sem þekkist á landinu. Þar sem vel hefur aflazt og hagur verk- smiðjanna því góður, krefjast sjómenn þess, að þær geri átak í þessu efni, og yfirleitt í öllum þeim atriðum, er gætu orðið til að bæta löndunarskilyrði ásfld. Þingið vill benda á, að í Noregi þekkist ekki að sjó- menn landi sfldinni sjálfir og hefur svo verið lengi. Verk- smiðjumar annast það sjálfar, og munu þó geta borgað mun hærra verð fyrir hráefnið en hér er gert. Um vigtun síldar 4. þing Sjómannasambands íslands telur, að ekki megi dragast, að komið verði á þeirri reglu, að sfld til vinnslu og verkunar verð seld eftir vigt en ekki eftir máli, eins og verið hefur fyrir norðan og austan. Þingið felur væntanlegri sam- bandsstjóm, að leita samstarfs við önnur samtök sjómanna og samtök útvegsmanna um að hrinda þvi máli í framkvæmd að sfld verði vegin en ekki mæld. enda verði verð sfldar- innar við það miðað, af hendi Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Náist ekki samkomulag við vinnslustöðvamar um skjóta framkvæmd í þessu máli, telur þingið, að ekki verði hjá því komizt, að samtökin beiti sér fyrr því. að lög verð sett um að sfld sé keypt af hálfu vinnslustöðvanna eftir vigt, svo sem gildir um allan annan fisk. Um bætta aðstöðu til móttöku og bræðslu síldar 4. þing Sjómannasambands Islands telur, að nauðsynlegt sé, að bætt verði aðstaða til móttöku og bræðslu sfldar svo veiðiskipin þurfi ekki að bíða langtímum saman eftir þvi að hægt sé að losna við aflann. Þingið beinir því þó til réttra stjómaraðila, hvort ekki sé hagkvæmara og réttara að stefnt sé að því, að leysa vand- ann með auknu þróarrými og auknum flutningum í stað þess sem ráðgert er, að byggja nýj- ar vverksmiðjur og auka afköst þeirra sem fyrir eru, og vill í því sambandi benda á, að afkastageta verksmiðja þeirra sem til eru á Norður- og Aust- urlandi er slík. að bræðslusfld- araflinn sem fengizt hefur i sumar, hefði ekki verið nema 30 daga vinnsla fyrr verk- smiðjumar, ef þær hefðu all- ar verið i fullri vinnslu. Um bætta aðstöðu til ferskfisksmats Þingið telur að bæta verði mjög alla aðstöðu til fersk- <S>- fisksmats þannig, að matið fari fram í sérstökum húsakynnum er staðsett séu sem næst þeim stað, sem fiskinum er landað. Þá telur þingið nauðsynlegt, að' matið sé framkvæmt um leið og fiski er landað og gerir kröfu til. að matið fari fram í affermingarhöfn. Þingið beinir því tifl. aðildarfélaga sambands- ins, að þau hvert á sínum stað vinni að bættri aðstöðu mats- Skatta- og útsvars- frádráttur Þingið felur væntanlegri stjóm sambandsins að vinna að því að fiskimenn fái aukinn frádrátt við álagningu skatts og útsvars og bendir á, í því sambandi, að eðlilegast sé að skattar verði teknir jafnóðum af tekjum, og er meiri nauð- syn á því fyrir fiskimenn en^, aðrar atvinnustéttir, þar sem tekjur þeirra geta verið mjög misjafnar frá ári til árs. Um netafjölda o.fl. Þingið beinir því til aðildar- félaga sambandsins að beita sér . fyrir því að reglugerð um fjölda þorskaneta sé haldin og sé það lágmarkskrafa að eng- inn bátur sé með fleiri iiet í sjó en hægt er að öllum jafn- aði að draga í hverri sjóferð. Þá telur þingið að leggja beri niður þá venju er tekin hefur verið upp af einstökum bátum að vera með tvennskon- ar eða fleiri tegundir veiði- tækja í einu eða í sömu sjó- ferð. Um bátakjarasamninga Þingið telur að ekki verði hjá því komizt, að endurskoða bátakjarasamninga félaganna, og felur væntanlegri stjórn sambandsins að beita sér fyr- ir því, að kölluð verði saman ráðstefna fulltrúa frá þeim fé- lögum innan Alþýðusambands- ins sem aðild eiga að báta- kjarasamningum og verði sú ráðstefna haldin eigi síðar en um miðjan þennan mánuð, þar sem segja verður upp samn- ingum fyrir 1. nóvember n.k. ef til uppsagnar þarf að koma. Um lífeyrissjóð bátamanna Þingið telur, að nauðsynlegt sé, að bátasjómenn fái aðild að lífeyrissjóði togaramanna og undirmanna á farskipum og felur væntanlegri sambands- stjóm að vinna áfram að því máli. Um öryggismál 4. þing S.S.l. fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar að verða við höfuðkröfu efðastá þings Sjómannasambands Is- lands, að fá mann sem starfi að skipaeftírliti og geti fram- kvæmt skyndiskoðanir á örygg- istækjum og útbúnaði skipa. Þingið skorar á stjóm S.S.I. að beita sér fyrir þvi að kom- ið verði upp trúnaðarmanna- kerfi samtakanna í sem Ðest- um verstöðvum og á sem flest- um skipum sem verði eftírlits- manni þessum til aðstoðar. 4. þing S.S.I. skorar á milli- þinganefndir þær er nú fjalla um öryggismál sjófarenda að flýta störfum sínum sem mest og ítrekar í því sambandi fyrri samþykktir um ráðstafanir til þess að samband megi hafa við íslenzk fiskveiði- og flutninga- skip á ákveðnum tíma sólar- hringsins. svo fylgzt verði með hvar þau eru stödd hverju sinni, svo hjálp megi berast hið fyrsta, ef slys ber að hönd- um eða skipi hlekkist á. Þingið harmar það sleifarlag sem orðið hefur hjá Landssíma Islands á því að útvega opnum skipum og minni vélbátum hentugar og ódýrar talstöðvar og endurtekur fyrri kröfur um að úrbætur á þessu sviði verði gerðar hið fyrsta. Sameiginleg ÁRSHÁTÍÐ Félags blikksmiða — Félags járniðn- aðarmanna og Sveinafélags skipasmiða verður haldin í Sigtúni laugardaginn 31. okt. 1964 og hefst með kvöldverði kl. 7.00 e.h. — Góð skemmtiatriði — Aðgöngumiðar afhentir í skrifstofu Félags jámiðn- aðarmanna að Skipholti 19. Skemmtinefndin SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS ÍSLENZK-AMERÍSKA FÉLAGIÐ TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitarinnar í Pittsburg verða haldnir í Há- skólabíói laugardaginn 31. okt. kl. 5. Áskrifendur Sinfóníu'hljómsveitar íslands hafa forkaups- rétt að aðgðngumiðum dagana 19. og 20. þ.m. (án trygg- ingar fyrir sætum á sömu þekkjum og venjulega) og ber að sækja þá í bókaverzlanir Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal gegn framvísun skírteina þessa árs. Verð aðgöngumiða er kr. 100,00, 125,90 og 150,00. Méðlimum Íslenzk-ameríska félagsins er tryggður viss fjöldi miða, sem verða seldir hjá Konráð Axelssyni, Vesturgötu 10 A á sama tíma og að ofan getur. Miðar, sem af kunna að ganga, verða seldir í bóka- verzlunum Sigfúear Eymundssonar og Lárusar Blöndal þann 21. þ.m. Lausarstöður Tvær stöður yfirbað- og klefavarða í Sundhöll Reykjavíkur eru lausar til umsóknar. Umsóknar- frestur er til 26. október. Umsóknir sendist. til Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12. MERKJASALA Blindravinafélags íslands verður sunnudaginn 18. okt. og hefst kl. 10 f.h. Sölubörn, komið og seljið merki til hjálpar blindum. — Gróð sölulaun. Merkin verða afhent í anddyrum þessara skóla. Austurbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Hlíða- skóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla, Laugar- nesskóla, Melaskóla, Miðbæj arskóla, Mýrarhúsa- skóla, Vogaskóla, Öldugötuskóla, Kársnesskóla, Kópavogsskóla og í Ingólfsstræti 16. — Hjálpið blindum og kaupið merki dagsins. Merkið gildir sem happdrættismiði BLINDRAVINAFÉLAG ÍSLANDS. CHEVY 11 3if) Mest seldur uf öllum ameríshum smábílum — hentar sem einkabíll og einnig setn leigubíll — 4 strokha vél auk hinna vinsœlu 6 strokka véla 7 mismunandi gerðir, hefur, eins og allir Chevroletbílar, öryggishemía og sérstaklega stcrkbyggt rafkerfi ásamt hinum vinsaslu ryðvarnarm hlífum í brettum — Leitið upplýsinga um þennan vinsœla bíl hjá Bíladeild SÍS. <r. •-Yvtn. BtLADEiLD ■" 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.