Þjóðviljinn - 18.10.1964, Page 6

Þjóðviljinn - 18.10.1964, Page 6
g StÐA ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. október 1964 \ i \ ^iiiiajiaa y™ 0$$%$ i w/í'.-y. Tm RHH .. ” r í f!| w/.ýt'/, U.UJ'1 •""■ BERLINARMURINN □ I síðasta mánuði, mjög um sama leyti, lágu leiðir tveggja blaðamanna Þjóðviljans að múrnum fræga í Berlín annar leit múr- inn að vestan verðu, horfði af áhorfenda- palli yfir til austurhluta borgarinnar og hlýddi á skýringar og sjónarmið Vestur- Berlínarbúans; hinn kom að múrnum að austan verðu, steig upp á áhorfendapall þeim megin og sá yfir í vestrið og hlustaði á lýsingu austur-þýzks landamæravarðar á Berlínarmálinu. □ Frásagnir beggja blaðamannanna eru birtar hér í opnunni. Er þar skýrt í stuttu máli frá þeim sjónarmiðum, sem lýst mun að öllum jafnaði fyrir útlendum gestum, er að múrnum koma — svo að austan sem vestan. AD AUSTAN Við vorum samferða fjórtán blaðamenn frá ýmsum löndum heims í austri og vestri og höfðum ferðast um Þýzka al- þýðulýðveldið nokkra daga í boði austur-þýzkra stjómar- valda: fjórir Bretar og meðal þeirra einn af Austur-Evrópu- sérfræðingum Financial Times í London, fjórir Grikkir, Frakki, Bolivíumaður, Finni, Libanonsmaður, Mexíkani og undirritaður frá Islandi Til Berlínar vorum við komnir, það var síðasti áfangi ferðar- innar, og nú skyldi farin skoð- imarferð um höfuðborg Aust- ur-Þýzkalands. Og fyrst átti að líta á múrinn. Tákn Berlínar Áustur-Þjóðverjar sýna gest- um sfnum múrinn við Brand- enborgarhliðið fraega, en þar hefur hjarta Berlínar löngum staðið. því að Brandenborgar- hliðið er tákn Berlínarborgar, reist af Karli arkitekt Gotthard Langhans á árunum 1789 til 1791. Það er ekki löng leið frá Hotel Berolina við Karl Marx Allé, nýjasta og stærsta gisti- húsinu í Austur-Berlín, um Al- exanderplatz og Unter den Linden að hliðinu; leiðin er þó ekki greiðfær því að miklar framkvæmdir eru við síðast- nefndu götuna. stórbyggingar i smiðum og gatnagerð, og ak- brautir lokaðar á köflum af þeim sökum. Þegar að Brand- enborgarhliðinu er komið sjást vinnupallar utan á hliðsúlun- um. það er unnið að viðgerð og endurbótum á þessu fom- fræga mannvirki. Til hliðar við þau, sitt hvor- um megin og áfastir því, eru byggingar, ekki stórar um sig’ og reistar í sama súlnastiln- um og hliðið. Að annarri byggingunni er ekið og þar tekur grannholda maður í ljós- gráum hermannabúningi á móti gestum. Hann segist vera Eb- el höfuðsmaðúr og býður okk- ur inn í fyrmefnt hús og upp á aðra hæð. Þar er lítill sal- ur, 20 til 30 stólum raðað á mitt gólfið, ljósmyndir, teikn- ingar og blaðaúrklippur hanga á þrem veggjum en fjórða vegginn, gegnt sætaröðunum, hylur að mestu gríðarmikið kort af Berlín. Markalínur milli borgarhlutanna í austri og vestri og takmörk hemáms- svæðanna þriggja í vestur- hlutanum eru rækilega færð inn á kortið; á mörkum Austur-Berlínar er þétt röð af raúðum ljósaperum. litl- um. Fjöldinn allur af græn- um perum er sýnilegur á kortinu af Vestur-Berlín og líka bláar perur greyptar í myndir af köngulóm. Það er greinilegt á öllu, að hér er allt það til taks af Austur-Þjóð- verja hálfu sem þarf til grein- argóðrar skýringár þeirra á Berlínarmálinu. Fyrir 13. ágúst 1961 Og Ebel höfuðsmaður tekur sér stöðu við Berlínarkortið stóra og hefur frásögnina. Hann segir frá því fyrst, hvemig Rauði herinn hafi frelsað Berlínarborg úr klóm nazista í aprílmánuði 1945 og minnir á. að hersveitir Banda- ríkjamanna, Breta og Frakka hafi komið til borgarinnar 10 vikum síðar, samkvæmt á- kvæðum Potsdamsáttmálans, sem meðal annars gerði ráð fyrir að Berlín yrði, þrátt fyr- ir skiptinguna í fjögur her- námssvæði, eftir sem áður efnahagsleg heild og að ibúar allra borgarhluta nytu sama réttar. Er fram liðu stundir viku Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar æ meir í framkvæmd- inni frá ákvæðum þessa sam- komulags og þegar sérstakur gjaldmiðill var tekinn í not- kun í Vestur-Berlín að frum- kvæði hemámsyfirvalda Vest- urveldanna vorið 1948 var borginni í rauninni skipt í tvennt. Upp frá því urðu her- námssvæði þríveldanna í borg- inni miðstöðvar njósna, undir- róðurs og skemmdarverka. Berlín varð einskonar útvörð- ur kalda stíðsins í austri. Og nú styður Ebel höfuðs- maður á hnapp við hliðina á Berlínarkortinu og það kvikna blá Ijós á bökunum á fjölmörg- um köngulóm víðsvegar í vest- urhlutanum. Höfuðsmaðurinn segir jafnframt. að um 100 njósnarmiðstöðvar hafi verið starfræktar víðsvegar í Vestur- Berlín; þar hafi verið um að ræða njósnarstofnanir og hringi allt frá CIA hinu bandaríska til njósnarkerfis Gehlens, þess sem lét sem mest að sér kveða á velmekt- ardögum nazista en gekk í þjónustu Vesturveldanna í stríðslok. Næst kvikna mörg græn ljós í vesturborginni og Ebel gefur þá skýringu, að þar sé finna helztu herstöðvar veldanna í þeim borgav Hann segir að 14.500 NAiO- hermenn dveljist þar að jafn- aði, þar af 7000 Bandaríkja- menn. 4500 Bretar og 3000 Frakkar; þar við bætist vopn- uð lögregla Vestur-Berlínar, tollverðir og varalið vestur- þýzka hersins — herstyrkur sem nemur tugum þúsunda. Ebel segir sem dæmi um hinn gífurlega vígbúnað Vesturveld- anna í Vestur-Berlín, að her- styrkurinn þar og herbúnaður- inn sé meiri en í allri Svfþjóð. Agentar og undirróðursmenn þessara fjölmörgu njósna- stofnana færðu sér óspart i nyt frelsi til hindrunarlausra ferða milli borgarhlutanna; þeim reyndist auðvelt að leyn- ast í hinum mikla fjölda sem lagði leið sína yfir austur-vest- ur mörkin, en fyrir 13. ágúst 1961 fóru meira en 100 þúsund manns yfir markalínumar. — Og mörkum borgarhlut- anna var lokað fyrmefndan dag til þess að stöðva þennan mikla straum njósnara og und- irróðursmanna, segir Ebel höf- uðsmaður, — stöðva það nið- urrifsstarf sem agentar Vestur- veldanna unnu innan landa- mæra Þýzka alþýðulýðveldis- ins og varð æ meiri ógnun friöi í Evrópu eftir þvi sem fram liðu stundir. Landamærin og múrinn Síðan gerir höfuðsmaðurinn nokkra grein fyrir borgarmörk- unum, landamærum Þýzka al- þýðulýðveldisins á þessum slóðum. Þau eru samtals 164 kíló- metrar að lengd. þ.e. mörkin milli Vestur-Berlínar og DDR, Austur-Þýzkalands. Mahnvirki verður þetta ekki kallað nema í miðborginni, á 45 kílómetra löngum kafla, og þar af eru aðeins 17 km múrveggur — þ.e. hinn eiginlegi múr. Þessi Múrinn skiptir Bcrlínarborg í tvo hluta. Myndin er tekijn þar sem mannvirki þetta er hvað viðamest, vestan við Brandenborg- a.rhliðið. Þar hefur vcrið komið fyrir áhorfendapöllum begg.ja vegna múrsins — og húparnir sem pallana fylla oft á dag horfa hvor á annan. veggur er 1.60—1.80 m að hæð, breidd hans er mest hálfur annar metri í háifhrignum vestan við Brandenborgarhlið- ið. Nú kveikir Ebel á öllum rauðu ljósunum sem sýna borgarmörkin á kortinu og bendir á þá sjö staði. þar ssm umferð er heimil milli aust- Svona byggja þeir í Austur-Berlín. Stórhýsið á miðri myndinni er bygging auctur-þýzku kennarasamtakanna, nýlega tckin í notkun. ur og vestur hlutanna þeim sem fararleyfi hafa, en í þeirra hópi eru fyrst og fremst allir útlendingar sem hafa í hönd- um gild vegabréf með nauð- synlegum stimplum. Otlending- ar komast þó einungis yfir mörkin í Friedrichstrasse og næstu brautarstöð (Bretar og Bandaríkjamenn kalla þennan stað Check Point Charlie), en Vestur-Þjóðverjar, sem nauð- synleg skilríki hafa, leggja leið sína um hliðin í Bom- holmerstrasse eða Heinrich- Heine-Strasse, auk þess staðar sem áður var getið. I framhaldi af þessu minnir höfuðsmaðurinn á að 1.3 milj- ón Vestur-Berlín arbúa hafi um síðustu jól farið yfir borgar- mörkin f heimsókn til ætt- 'ngja, vina og venzlamanna í ^ustur-Berlín, en sem kunn- ’gt er voru þessar heimsókn- ’’ árangur samninga, sem tók- 'st á sínum tíma milli ríkis- ’iórnar Þýzka alþýðulýðveld- ms og senatsins í Vestur-Ber- n — Annars segir Ebel, leggja ^ jafnaði á fjórða þúsund nanns leið sína yfir borgar- -nörkin dag hvern

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.