Þjóðviljinn - 17.12.1964, Page 2

Þjóðviljinn - 17.12.1964, Page 2
2 SIÐA HÓÐVIUINN Flmmtudagur 17. desember 1964 M JTÖLAMARKAÐUE: Kerti, margar gerðir. Spil. Konfekt Kex, ótal tegnndir Brjósísykur. Súkkulaði Valhnetu- kjamar Rúsínnr Sveskjur Jólapappír m Jólabönd p Jólakort Epli Appelsínur Ananas Perur Ferskjur Jarðarber Apríkósur, Ályktanir samþykkt- ar á aðalfundi LÍÚ JSftírfarandi ályktanir voru meðal þeirra, sem samþykkt- ar voru á aðalfundi samtak- anna, sem haldinn var 26. —* 28. nóvember sl.: 1. „Fundurinn bendir á, að verksmiðjukostur á Austur- landi og Norðausturlandi sé ónógur í hlutfalli við þann flota, sem nú stundar sum- arsíldveiðar. Telur því fund- urinn, að auka þurfi afköst verksmiðjanna á Austur- landi og Norðausturlandi, auka þróarrými og byggja vebksmiðjur eða flytja til síldarverksmiðjuvélar milli landshlufg. Þá telur fund- urinn, að tilraun sú, sem gerð var með síldarflutn- inga á tankskipi á sl. sumrl hafi gefið það góðan ár- angur, að stefna beri að því að auka flutninga með slík- um skipum strax á næsta sumri, og skorar fundurinn á alla þá aðila, sem ráða síldarverksmiðjum, sem liggja fjarri veiðisvæðum, að gera sitt ítrasta til þess að flytja síld til verksmiðja í tankskipum, sem hafa út- búnað til að taka síld úr veiðiskipum í hafi. Væntir fundurinn þess, að rfkis- stjórninni sé Ijóst mikilvægi þessara flutninga og veiti nauðsynleg leyfi til þess að málið komist f framkvæmd. Fundurinn þakkar þeim að- ilum, sem gerðu fyrrgreinda tilraun með flutninga á síld í tankskip á sl. sumri, og óskar eftir þvf, að þeim verði gert mögulegt að halda tilrauninni áfram nú f vetur, til þess að sem bezt reynsla fáist við mis- munandi skilyrði". 2. „Fundurinn samþykkir, að með hliðsjón af þeirri miklu þýðingu, sem línuveiðar vél- bátaflotans hafa haft fyrlr útflutningsframleiðslu sjáv- araflans, samþykkir aðal- fundur L.í.tJ. að skora á stjórn samtakanna, að hún beiti sér fyrir að tryggður verði grundvöllur til áfram- haldandi útgerðar með línu. Fundurinn lítur svo á, að gera verði sérstakar ráðstaf- anir í þessum efnum, og einskis megi látiö ófreistað að umræddur reksturs- grundvöllur verði tryggður" 3. „Fundurinn samþykkir að fela stjóm samtakanna að beita sér fyrir því, að bát- um allt að 80 rúmlestir verði veitt heimild til drag- nótaveiða tnnan landhelgi það tímabil árlega, sem dragnótaveiði er Ieyfð“. 4. „Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að beita sér fyrir breytingu á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins nr. 97/1961 þannig, að verð- lag sjávarafla miðist við framleiðslukostnað bæði fiskkaupenda og útvegs- manna og markaðsverð er- lendis í samræmi við þau drög að þreytingum, sem sjávarútvegsmálaráðuneytið sendi til umsagnar samtak- anna og framkvæmdaráðið mælti með. Fundurinn treystir þvf, að fúlltrúar L.Í.Ú. f Verðlags- ráði gæti ítrustu hagsmuna útvegsmanna“. 5. „Fundurinn lýsir ánaegju sinni yfir framkominní þingsályktunartillögu frá Matthíasi Bjarnasyni o. fl. um vigtun á síld, og skorar á Alþingi að samþykkja hana, enda verði geröar til- raunir með vigtun í a. m. k. 2 síldarverksmiðjum á naesta sumri.” 6. „Fundurinn skorar á rík- isstjórnina að leita eftir heimild hjá brezkum yfir- völdum svo fljótt sem auðið er, tíl aukins innflutnings á fsuðum fiski f Bretlandi með tilliti til aukinna afla- möguleika íslenzka báta- flotans.’’ 7. „Fundurinn vill að gefnu tilefni vara útvegsmenn við því að selja ferskfisk eða síld öðru ■ vísi en gegn greiðslu út í hönd, nema skilvís greiðsla sé tryggð með bankaábyrgð.” 8. „Fundurlnn samþykkir að skora á gtjórn samtakanna að vinna að því, að vextir af lánum Fiskveiðasjóðs verði lækkaðir niður í 4%. og lánstíminn verði lengdur úr 15 árum í 20 ár.“ 9. „Fundurinn mótmælir harð- lega launaskattinum, sem lagður var á laun með bráðabirgðalögunum s. L sumar, þar sem hann verk- ar bæði til lækkunar fisk- verðs og hækkar allan inn- lendan tilkoetn að útgerðar- innar, svo og raskar hluta- skiptum útgerðarinnar um Va%. Felur aðalfundurinn Framhald á 9. sfðu. HINIR MARG EFTIRSPURÐ U. G'VJEi N E L A N C A® SOKRAR ERU NÚ ICOMNIR Á MARRADINN. 0VB, H ELANC A* SOKKARNIR ffU SETTIR Á MARKAÐINN AO' UNDANGENGINNI 6 MÁNAÐA PRÓFUM Á ENDINGU (2000 PARA). GVQ, HEIANCA* SOKKARNIR ERU ÓDÝRUSTU CRÉPE SOKKARNIR Á markadinum..OVQ, helanca* 20 DENIfR, MICRQMESH, GOÐ TEYCJA, ÞUNNIR, STERKIR, FALLEGIR.r SVEFNSTÓLAR — SVEFNBEKKIR — SÓFASETT — SÓFABORÐ — VEGGHÚSGÖGN. BÓLSTRARINN Hverfisgötu 74. — Símj 15102. Liitix* Stærdir mánada pró fun a endingu 4 4 Þunnir Sterkir Fallegir NÝ SENDING KULDAHÚFUR, HÁLSKLÚTAR og HÖFUÐKLÚTAR. GLUGGINN Laugavegi 30. Ulpur — Kuldajakkar og gallonblússur í úrvali. VERILUN Ó.L. Traðai'kotssundi 3. (á'möti Þjóðleikhúsimi)' í

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.