Þjóðviljinn - 22.12.1964, Page 4
I
4 SlÐA
ÞIÖÐVILIINN
Þriðjudagur 22. desember 1964
Ctgelandi: Sameiningaxflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
ftitstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartensson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Préttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Siml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl. 90,00 á mánuði
Enginn misskilningur
J^Jorgunblaðið segir í forustugrein í fyrradag að
í sambandi við afgreiðslu söluskattsfrumvarps-
ins hafi komið fram „misskilningur“ af hálfu
verklýðssamtakanna um efni samninga þeirra sem
gerðir voru í vor. Hafi Bjarni Benediktsson nú
rutt þeim misskilningi úr vegi með sanngirni
sinni og sáttfýsi með því að gefa eftir V2%, eða
fimmta hluta af því nýja ráni sem á að koma til
framkvæmda um áramót. Stefán Ögmundsson
hitti naglann á höfuðið á borgarafundi Sósíalista-
félags Reykjavíkur í fyrradag þegar hann spurði
hvort þess væri ef til vill að væn'ta, að þetta at-
ferli ráðherrans yrði til þess að refsilögum í land-
inu yrði breytt, þannig að ósaknæmt væri að ræna
menn, ef skilað væri aftur einum fimmta af þýf-
inu, og hlytu þeir sem fyrir slíkum örlögum yrðu
að bera missi sinn bótalaust.
*
Jgnginn misskilningur getur komið til greina um
efni þeirra samninga sem gerðir voru 1 vor.
Verklýðsfélögin sneru sér til ríkisstjórnarinnar og
kröfðust þess að gerðar yrðu ráðstafanir til þess
áð binda endi á óðaverðbólguna. Buðu álþýðusam-
fökin fulla samvinnu um það mál og reyndust fú's
til þess að fresta augljósum réttlætiskröfum til
þess að ná marki sínu. Samningarnir í vor voru
sáttmáli um stöðvun verðbólgunnar á íslandi og
einmitt þess vegna var þeim fagnað af yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðarinnar. Af- hálfu verklýðs-
hreyfingarinnar hefur verið staðið við samning-
inn í einu og öllu, frá þeirra hlið hefur ekkert
gerzt sem gefið gæti minnsta tilefni 'til aukinnar
skattheimtu og verðbólgu í þjóðfélaginu. Engu að
síður byrjuðu stjórnarvöldin að svíkja samning-
ana um leið og þeir höfðu verið undirritaðir. Þeg-
ar í sumar var kjörum fjölmargra launþega breytt
verulega með drápsklyfjum skatta og útsvara sem
menn hafa verið að sligast uridan allan síðari hluta
ársins. Fyrir skömmu samþykkti borgarstjórn
Reykjavíkur að hækka útsvörin enn um 50 miljón-
ir króna á næsta ári. Hvort tveggja þetta var al-
varlegt brot á anda samkomulagsins, en nú hefur
því einnig verið rift formlega og á blygðunarlaus-
an hátt með þeirri stórfelldu hækkun á söluskatti
sem kemur til framkvæmda um áramótin og
hækkar í verði hverja einustu vörutegund í land-
inu.
*
j sambandi við þessa atburðarás getur ekki orðið
um neinn „misskilning“ að ræða; hins vegar
ættu ýmsir þeir sem trúað hafa áróðri stjórnar-
flokkanna að geta öðlazt nýjan skilning. Ástæðan
til þess að ríkisstjórnin he'fur svikið samningana
frá því í vor er sú og sú ein að hún vill veriðbólgu-
þróun í landinu, af þeirri einföldu ástæðu að verð-
bólgan er sjálf gróðamyndunaraðferðin í íslenzku
þjóðfélagi, hagsmunamál þeirra atvinnurekenda
og fjárplógsmanna sem ríkisstjómin hefur að bak-
hjarli sínum. — m.
TUNGLM YRK VINN
Igærkvöld, þeg’ar von var á
tunglmyrkvanum, var milt
veöur og mikil for á götum.
.af völdum blotans,. og hratt,
skýjafar í hálofti, bar sem
tunglið skein fullt og logabjart,.
og hærra á lofti en ég hef séð
áður svo ég muni. Ýmist dró
frá eða fyrir og við kviðum því
að. tunglið yrði horfið fyrir
ský áður en myrkvinn hæfist,
en svo varð ekki, heldur sveip-
aði öllum skýjum frá. um leið
og vinstri eða eystri rönd
tunglsins sortnaði og voru <§,
markalínur myrkvans óglögg-
ar, líkt og sópazt hefði á rönd-
ina sót eða eldfjallaaska. Síð-
an færðist skugginn yfir kringl-
una hægt og hægt og var
klukkutíma að því, en skýin
hófu aftur sinn hraða feyki-
dans kring um tunglið, huldu
það sjaldan, en skýin drógu
■yfir það léttar slæður og voru
svo á burt.
Þegar tunglmyrkvi er á jörðu
er sólmyrkvi á tungli en jörðin
ósýnileg þar, því hún snýr
dimmu hliðinni að. Þar. skín .þá
ekki annað l.iós en stjömuljós,
ög er að vfsu miklu bjartara
hér, því tunglið er bert og ó-
hjúpað f geimnum, Þegar
kvartélasfdpti eru á tungli
héðán áð sjá, má gloggt greina
þann hluta tunglslns, sem sól
skín ekki á, og hef ég gizk-
að á, að það sé jarðljós, sem
þannig endurvarpast hingað.
En nú var sól sortnuð á mikl-
um hluta tunglsins, en jörðin
almyrkva, eins og tungl er
milli tpngla. Samt glórði hinn
myrkvaði hluti þess í föskvuð-
um rauð-myrkum bjarma,
draugalegum, sem skýrðist þvi
meir sem meira myrkvaðist.
HVaða ljós var það? Ég gizk-
aði á stjöfnuljós, en þessu geta
fróðari menn svarað betur.
Þegár eftir var örmjó skín-
andi rönd til hægri, þustu ský-
in að, röndin myrkvaðist, skein
svo aftur snöggvast, huldist að
fullu, en síþykknandi skýjakaf
huldi háloftið, og fengum við
ekki að sjá meira. Ég gat því
ekki skorið úr því, hvort tungl-
ið hefði orðið ósýnilegt meðan
það var almyrkvað. Myrkvinn
mun hafa staðið í tyo tima.
Hann byrjaði klukkan tólf á
miðnætti, eða um það bil, stóð
hæst h.u.b. tvær mínútur yfir
eitt, mundi hafa verið lokið
kl. tvö. Bandarískur stjömu-
fræðingur sagði þetta hafa
verið einn fegursta tungl-
myrkva sem sézt hefði.
M. E. 19/12.
Styrkir tíl Noregs og USA
^ Eins og mörg undanfarin ár
hefur Islenzk-ameríska félagið
milligöngu um útvegun náms-
styrkja fyrir íslenzka stúdenta
til náms við bandaríska há-
skóla, á vegum Institute of Int-
ernational Education. Styrkir
þessir eru veittir af ýmsum há-
skólum í Bandaríkjunum, og
eru mismunandi. Nema þeir
skólagjöldum og 7 eða húsnæði
og fæði o.s. frv. Styrkimir eru
eingöngu ætlaðir námsmönnum,
er Ijúka stúdentsprófi á vori
komanda og hyggjast hefja
háskólanám næsta haust er
heimilt að sækja um þessa
styrki, en hámarksaldur um-
sækjenda er 22 ár.
Norsk stjómarvöld hafa á-
kyeðið að veita íslerizkum
stúdent styrk til háskólanáms
í Noregi næsta skólaár, þ. e.
tímabilið 1. september 1965 til
1. júní 1966. Styrkurinn nemur
700 norskum krónum á mánuði
og er ætlazt til, að sú fjárhæð
nægi fyrir fæði og húsnæði en
auk þess greiðast 400 norskar
krónur vegna bókakaupa o.fl.
Umsækjendur skulu vera á
aldrinum 20—30 ára og hafa
stundað nám a.m.k. tvö ár við
Háskóla íslands eða annan há-
skóla utan Noregs. Þá ganga
þeir fyrir um styrkveitingu,
sem ætla að leggja stund á
námsgreinar, er einkum varða
Noreg, svo sem norska tungu,
bókmenntir, réttarfar, sögu
Noregs, norska þjóðmenningar-
og . þjóðminjafræði, dýra-,
grasa- og jarðfrseði Noregs,
kynna sér norskt atvinnulíf
o. s. frv.
Gerið þvottadaginn
að hvíidardegi
Veljið
Q
OMEGA
Seamaster
Þetta er úrið, sem þolir
bókstaflega hvaða meðferð
sem er — þetta er úrið
handa íþróttamanninum,
fjallagarpinum og sjósókn-
aranum. Þetta er i'irið, sem
karlmenni geta treyst.
SEAMASTER er sterkt,
fallegt og nákvæmt — sama
á hverju gengur.
Gjöf, sem
karlmaSur
gleymir ekki
SÍS VÉLADEILD
NOKKRARÚRVALS
UNGLINGABÆKUR
LOTTA
leikur sér.
SIGGA
á fljúgandi ferð.
KALLI
flugmaður.
•
UPPREISNIN
Á CAPELLU
TARZAN
og gullna borgin.
•
TARZAJJ
og gimsteinar Opar.
Á FLÓTTA
Indíánasaga.
Saumavélaviðp-erðir
* iðcr»v.rniriavéla-
rt’ð<rerðir
FLJÖT APGREIÐSLA
SYLCJA
Laufasvegi 1W (bakhús)
simi 12656