Þjóðviljinn - 08.04.1965, Síða 1
Hér sjást myndir af radíófónunum tveimur sem stolið var úr Búslóð.
Radíófónum og viðtækjum að
verðmætí 40 þús. kr: stolið
Ályktun almenns fundar Búnaðarsambands S.-Þing.:
ENGIN SÉRRÉTTINDI
FYRIR
ERLENT FJÁRMA GN
□ Sl. sunnudag var haldinn mjög fjölmennur kjósendafundur að
Breiðumýri í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og gekkst Búnað-
arsamband Suður-Þingeyinga fyrir fundinum. Þar var borin fram og j
samþykkt einróma eftirfarandi ályktun um uppbyggingu íslenzks j
atvinnulífs. Var samstaða fundarmanna alger í þessu máli og mik- j
ill áhugi á því að reyna að vekja menn til andstöðu við hið ískyggi-
lega leynimakk við erlent auðmagn sem nú á sér s-tað að forgöngu I
íslenzkra stjórnarvalda.
5Ef erlendum atvinnu- ■
• rekstri verða veitt toll- :
fríðindi verði landbúnaður, j
sjávarútvegur og íslenzkur •
iðnaður látnir njóta sama ■
réttar. :
■ -
■.
ÓSkipulag atvinnulifs í ■
• framtíðinni miðist við j
það, að fsland sé allt byggt“ j
■
■
Eins og áður segir var til- ;
lagan samþykkt í einu hljóði ;
en hún var samin af Inga j
Tryggvasyni, Steingrími Bald- ■
vinss. og Glúmi Hólmgeirss. |
Ályktun fundarins um þetla
mál er svohljóðandi:
„Almennur fundur í Bún-
aðarsambandi Suður-Þingey-
inga, haldinn á Breiðumýri
4. apríl 1965, leggur áherzlu
á nauðsyn þess, að full sam-
staða náist milli allra ís-
lendinga um uppbyggingu
íslenzks atvinnulífs, sem fái
að þróast án óeðlilegrar í-
hlutunar i erlendis frá, þvi
skorar fundurinn á alla Is-
lendinga að sameinast um
að:
Ifslenzkur iðnaður bygg-
• ist á íslenzkum hráefn-
um.
Stóríðja miðist við hags-
• muni íslendinga.
3Rafmagnsmálin verði
• leyst án þess að fórna
rétti til fallvatna í framtíð-
inni.
Erlendu fjármagni verði
• ekki veitt fríðindi við
uppbyggingu né rekstur stór-
iðju á íslandi.
■ í fyrrinótt var framið
innbrot í húsgagnaverzlunina
Búslóð að Skipholti 19 og
stolið þaðan tveim radíófón-
um, tveim útvarpsviðtækjum
og ferðaritvél. Nemur verð-
mæti alls þýfisins a.m.k. um
40 þúsund krónum.
Tsekin sem stolið var voru
Luxor Oktav stereo radíófónn,
sem kostar kr. 12.550, Luxor Pi-
onár radíófónn að verðmæti
10.495 kr. og Luxor symfoni
stereo viðtæki sem kostar kr.
8.630. Einnig var stolið úr skrif-
stofu fyrirtækisins notuðu út-
varpstæki og. ferðaritvél.
Ljóst þykir að hér hafi fleiri
en einn maður verið að verki
og haft bíl til umráða, því að
öðru vísi hefðu þeir ekki getað
komizt burt með svona stór og
þung tæki. Inngangurinn £ verzl-
unina er frá Nóatúni og má
það kallast furðuleg bíræfni að
ráðast í jafn umfangsmikið inn-
brot við svo fjölfama götu.
Rannsóknarlögreglan biður þá
sem kynnu að hafa orðið vara
við grunsamlegar mannaferðir
við verzlunina í fyrrinótt að
gefa sig fram.
Svipað og í fyrra
Þjóðviljinn fékk þær fréttir
frá Fatreksfirði £ gær, að afli
bátanna, sem þaðan eru gerðir
út, sé mjög svipaður nú £ vetur
og i fyrra. Aflahæsti báturinn
er Helga Guðmundsdóttir
með rúm 1000 tonn, en næstu
bátar eru með 800—900 lesta
afla.
§»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ ■
!
Þingevingar j
ndita 3Í gre'ða j
ntvarpsgiaM ]
Á almennum fundi sem- :
Búnaðarsamband S.-Þing. j
gekkst fyrir að Breiðumýri j
i Reykjadal sl. sunnudag ■
var m.a. samþykkt tillaga j
þess efnis að skora á eig- j
endur útvarpsviðtækja i j
Suður-Þingeyjarsýslu að i
greiða ekki afnotagjöld af j
viðtækjum sínum fyrr en j
ráðin hefði verið bót á j
þeim óviðunandi hlustun- j
arskilyrðum sem nú eru i 5
héraðinu.
in■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
’.'.t’-;,. ’' ■ -*,:t
Luxorviðtæki eins og það sem stolið var.
Nýjasta fiskiskipið komst
ekki ti/ hafnar vegna iss
■ í gær bárust þær fréttir helztar frá Seyðisfirði, að
fjörðurinn væri alveg fullur af ís, allt út undir Skálanes.
Var ísmn mjög þéttur. Nýr stálbátur, mb. Gullver, smíðað-
ur í Austur-Þýzkalandi, var væntanlegur til Seyðisfjarð-
ar í gærdag. Um kl. 2 síðdegis var báturinn kominn í fjarð-
armynnið, en komst þá ekkí lengra vegna íssins.
ER ÆTLUNIN AÐ VÍSITÖLUBINDA
ÖLL LÁN VEITT TIL LANGS TÍMA?
Alfreð Gíslason rekur í nefndaráliti ráðleysið í
húsnæðismálum og bendir á sitthvað til úrbóta
I Á fundi efri deildar Alþingis í fyrradag við umræður
um frumvarpið um Húsnæðismálastofnun ríkisins kom
fram í ræðu Emils Jónssonar, félagsmálaráðherra, að ríkis-
stjórnin hefði það nú í athugun að vísitölubinda öll löng
lán. Myndi frumvarps um þetta að vænta á hausti kom-
anda.
I í ræðu sinni var ráðherrann einkum að svara þeim
atriðum úr ræðu Alfreðs Gíslasonar, sem sagði, að
verðbólgugróðinn kæmi nú til allra þeirra, er breiðust
hefðu bökin á meðan þeir fátæku yrðu að taka vísitölu-
tryggð lán hjá Húsnæðismálastjóm.
Snarpar umræður uröu í efri
deild síðdegis í fyrradag um
húsnæðismálin. Félagsmálanefnd
deildarinnar klofnaði £ afstöðu
sinni til málsins og hafði Þor-
valdur Garðar Kristjánsson
framsögu fyrir meiri hluta
nefndarinnar, Karl Kristjáns-
son fyrir fyrri minnihluta, en
Alfreð Gíslason fyrir síðari
minnihluta nefndarinnar. I
nefndaráliti gerir Alfreð grein
fyrir afstöðu sinni til málsins og
breytingartillögum sínum. Fer
hluti þess hér á eftir:
„Samkomulag það, sem varð
með Alþýðusambandi fslands og
ríkisstjóminni 5. júní 1964, var
byggt á yfirlýstum vilja aðila til
að stöðva verðbólgu og bæta
kjör verkafólks. Einn þáttur
þess var húsnæðismál. Hét rík-
isstjórnin því, að beita sér fyrir
ráðstöfunum til úrlausnar í hús-
næðismálunum, er hafl þann tll-
gang annars vegar að létta
efnalitlum fjölskyldum að eign-
ast íbúðir, en hins vegar að
tryggja nægar og stöðugar f-
búðabyggingar í landinu.“ Einn-
ig lofaði hún að lækka vexti af
lánum og haga lánskjörum í
samræmi við greiðslugetu al-
þýðufjölskyldna.
Á þeim 10 mánuðum, sem
liðnir eru síðan samkomulagið
varrj hefur dýrtíð aukizt til
muna og verðbólgan síður en
svo stöðvazt. Eiga ríkisstjómin
og flokkar hennar óneitanlega
mikla sök á þeirri framvindu
sbr. söluskattshækkunina i vet-
ur, og að því leyti hefur hún
ekki til fulls staðið við gefin
lofor^,
1 júní 1964 var ákveðið, að
lán til íbúðabygginga skyldu
hækka í 280 þúsund kr., og
vextir af þeim lækka niður i
4%. Þetta sýndist þá veruleg
kjarabót, jafnvel þótt sá bögg-
ull fylgdi skammrifi, að afborg-
anir og vextir áttu að breytast
samkvæmt vísitölu. En nú — í
apríl 1965 — horfir málið nokk-
uð öðru visi við. Dýrtiðin hefur
ekki stöðvazt, og vísitalan hækk-
að þrátt fyrir vilyrðin um
stöðvun.
fbúðalán, sem á s.I. vori
var metið rétt aðeins hæfi-
legt, næmi það 280 þús. kr.,
getur ekki talizt hæfilegt
lengur. A þessu tímabili hef-
ur vísitala byggingarkostnað-
Framhald á 9. siðu.
Jozzkynning
■ í kvöld klúkkan 20,30
verður jazz-kynning í Tjarn-
argötu 20 þar sem Vernharð-
ur Linnet kynnir tenór saxó-
fónleikarann Sonnie Rolings.
■ Félagar! Fjölmennið og
mætið stundvíslega.
Kínverskir mat-
reiðslnmenn •
-A'i Þessir brosandi karlar á
myndinni hér fyrir ofan eru ætt-
aðir frá Hong Kong og eru
komnir hingað til Iands frá
Englandi, til að matreiða ofan
í Reykvikinga. Þeir heita Cheing
og Lee og hefur annar þeirra
Lee starfað áður hér á landi.
ir Þeir eru ráðnir hjá hinn
nýja kínverska veitingahúsi, sem
tekur til starfa I dag f húsar
kynnum Hábæjar við Skóla-
vörðustíg.
★ Þar verður á boðstólum km,-
verskur matur, auk allra ann-
arra algengra rétta. Húsakynni
hafa verið innréttuð á kínversk-
an máta. Frú Sigrún Jónsdóttir
listakona hefur gert skemmti-
Iegar veggskreytingar úr batik.
★ Veitingahúsið verður opið
frá 11 f.h. — 22,30 alla daga.
Rekstur hússins annast Hreiðar
S'vra.va.rssrtn.