Þjóðviljinn - 21.04.1965, Blaðsíða 4
4 SIÐA
HÖDVIIIINN
Miðvifcudagur 21. apríl 1965
Otgefandi: Sameiningarflokfcur alþýðu — Sósíalistaflakk-
urinn. —
Bitstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavöröust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuðl.
Varan/egar kjarabætur
ályktun miðstjórnar Sósíalistaflokksins um
kjarasamningana í vor, sem birt var í skírdags-
blaði Þjóðviljans, er gripið á meginþáttum varð-
andi samningana sem framundan eru milli verka-
lýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda og ef til
vill einnig milli ríkisstjórnar og verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þar er sýnt fram á að „kröfur
alþýðusamtakanna um stórbætt kjör verkafólks
hafa aldrei verið studdar jafnaugljósum og ómót-
mælanlegum rökum og nú, og aldrei hefur verið
greinilegra að varanlegir samningar geta því að-
eins tekizt, að gerbreytt verði um stjórnar-
stefnu í landinu“.
50. Víðavangshlaup
ÍR háð á morgun
Fimmtugasta Víðavangs-
hlaup ÍR fer fram hér í
Reykjavík á morgun, fyrsta
sumardag.
vikudag, við hljómskálann til
að kynna sér hlaupaleiðina. Á
morgun eiga þeir að mæta kL
1.15 síðdegis á fþróttavellinum.
Frá keppni FH og danska liðsins
„GULLFOSS“. Hafnfirðingur
Hlaupið hefst í Hljómskála-
garðinum kl. 2,15 síðdegis og
lýfcur í Lækjargötunni á móts
við hús menntaskólans.
Keppendur eru að þessu sinni
skráðir 37 frá 7 félögum.
Keppt er um 4 verðlauna-
bikara. Sigurvegarinn í þessu
hátíðarhlaupi hlýtur einn bik-
arinn til eignar, þá vinnur sú
10 manna sveitin sem sigrar
bikar til eignar og loks er
keppt um verðlaunagripi 3ja
og 5 manna sveita.
Keppendur eru beðnir að
mæta kl. 7 síðdegis í dag, mið-
er þama í góðu skotfæri. — (Ljósm. Bjamleifur Bjarnleifsson).^
Bent er á staðreyndir því til sönnunar að þjóðfé-
lagslegt ranglæti hafi aukizt á íslandi á undan-
förnum árum, því fari fjarri að verkafólk hafi
fengið í sinn hlut réttmætan skerf af sívaxandi
þjóðartekjum. „Sósíalistaflokkurinn leggur á-
herzlu á að verkalýðshreyfingin getur ekki unað
þessu ástandi lengur“, segir í ávarpinu. „í kjara-
samningum þeim sem nú eru framundan verður
að fást mjög veruleg leiðrétting á kaupgjaldi og
vinnutíma og þá verða jafnframt að verða þátta-
skil í stjórn efnahagsmála sem tryggja það, að
markvisst verði stefnt að því á sem allra skemmst-
um tíma að verkafólk fái viðunandi árstekjur fyr-
ir eðlilega dagvinnu eina saman. Því marki verð-
ur aðeins náð með nýrri stjómarstefnu“.
gósíalistaflokkurinn undirstrikaði í ávarpi sínu
um kjaramál fyrir samningana í fyrravor nauð-
syn þess, að verðbólgan yrði stöðvuð, og það var
forsenda verkalýðshreyfingarinnar fyrir júnísam-
komulaginu. Ríkisstjómin hefur hins vegar vit-
andi vits svikið fyrirheitin um stöðvun verðbólg-
unnar. Enda telur miðstjórn Sósíalistaflokksins nú
meginatriði, að gengið verði tryggilega frá nýjum
samningum, einnig stjórnmálahlið þeirra. í ávarp-
inu er hamrað á þessu: „Miðsfjóm Sósíalista-
flokksins leggur áherzlu á það að í vor verður að
gera raunverulega samninga sem standast. Þar
verður að vera um að ræða raunvemlega tilfærslu
á fjármunum; kauphækkanir og kjarabætur til
verkafólks verður að taka af öðrum þáttum í þjóð-
arbúskapnum, með því að skerða gróða fjárplógs-
manna, binda endi á þjóðhagslega sóun og tryggja
skynsamlega hagnýtingu á þjóðartekjunum, en
koma í veg fyrir að samningarnir verði aðeins á-
vísun á nýja óðaverðbólguþróun sem myndi ógilda
þá á svipstundu. Þar skiptir meginmáli að tekin
verði upp heildarstjóm á þjóðarbúskapnum til
langs tíma með skynsamlegri og arobærri fjárfest-
ingu, hagræðingu á skipulagi a'tvinnuveganna og
öruggri stjórn á öllum þáttúm efnahagskerfisins“.
jyjiðstjórn Sósíalistaflokksins segir það afdráttar-
1 laust í ávarpi sínu, að þverskallist stjórnarvöld
landsins og atvinnurekendur hins vegar við því
að skapa nokkur skilyrði til varanlegra kjara-
samninga verði þau að bera ábyrgð á afleiðingum
þess. Launþegasamtökin eigi þá þann einn kost,
að beita samningamætti sínum og verkfallsvopni
og muni ekki letjasí né láta hræða sig frá því með
neins konar hótunum og aðgerðum.
jr
Islandsmeistarar FH „burst-
uðu" lið Gullfoss með 31:16
■ Hinir nýbökuðu íslandsmeistarar FH gerðu að
engu vonir dönsku handknattleiksmannanna um
að ná betri árangri á löglegum velli en í þrengsl-
unum í Hálogalandi. FH sigraði Gullfoss í íþrótta-
húsinu á Keflavíkurflugvelli sl. fimmtudag með
meiri markamun en dæmi eru til um í keppni
gegn útlendu liði. Munaði þar mestu um frábæra
frammistöðu Ragnars Jónssonax, og kom fyrir
ekki þótt Danirnir reyndu að „taka hann úr um-
ferð“ með því að höfuðsetja hann sérstaklega.
Eftir fyrsta Ieik Gullfoss hér
var sagt í Þjóðviljanum, að
þetta danska 1. deildarlið stæði
okkar beztu liðum langt að
baki, og það sannáðíst í leik
þess gegn FH s.l. fimmtudag.
FH-ingar ná strax forystu á
3:0. Dönum tókst að vísu að
jafna .4:4,, en það var aldrei
nokkur vafi hvort liðið var
betra og er 20 mín. voru liðn-
ar af leik var staðan 11:5 fyr-
ir FH. Ragnar Jónsson sýndi
nú sinn bezta leik um lang-
an tíma, hann skoraði 7 af
þessum 11 mÖrkum, ýmist með
óvæntum skotum eða bann
smeygði sér inn á línu með
boltann.
Þeir Gullfossmenn voru ekki
á því að gefast upp þótt ó-
vænlega horfði og brugðust rétt
við, settu mann til að gæta
Ragnars sérstafclega og vék
hann ekki frá honum meðan
FH-ingar höfðu boltann. FH-
ingar virtust þessu óviðbún-
ir, og var sem þetta fangaráð
ætlaði að heppnast, því .að
Danir söxuðu á forskotið og í
hálfleik stóðu leikar 12:10 fyr-
ir FH.
Eftir leikhlé fóru FH-ingar
að átta sig betur og höfðu nú
öíl ráð í hendi sér, meðan
Ragnar var í gæzlunni tóku
aðrir leikmenn að skora og ef
Mathisen missti af Ragnari var
ekki að sökum að spyrja, og
skoraði hann nokkur mörk,
sum við hinar ótrúlegustu að-
stæður óg nótaði hann gólfið
og markstangimar svo helzt
minnti á leikinn billardspilara.
Um miðjan hálfleik höfðu
FH-ingar skorað 10 mörk með-
an Danirnir skoruðu aðeins
einu sinni og var staðan þá
22:11, þá náðu Gullfossmenn
sér á strik um sfcund, en und-
ir lokin breikkaði bilið enn
og var sem um hreina sýn-
ingu væri að ræða og skildu
15 mörk er dómari flautaði nf,
31 mark gegn 16.
FH-liðið lék mjög vel' sem
heild og þött Ragnar hafi bor-
ið nokkuð af, þá skyldi því
ekki gleymt, að slíka frammi-
stöðu gefcur enginn sýnt hversu
snjall sem hann er, nema með
góðu liði og stuðningi félaga
sinna. Hjalti í markinu lét
ekki sitt eftir liggja og átti
góðan þátt í þessum yfirburða-
sigri liðsins.
Danimir notuðu lítið sinn
bezta skotmann Böving í þess-
um leik fyrr en langt var lið-
ið á leik og kom hann aðeins
inn á til að taka vítaköst.
Yngstu menn liðsins nutu sln
nú betur en í fyrri leikjum
og léku oft laglega á línu.
Dómari var Karl Jóhannsson,
áhorfendur voru mjög margir.
Handknattleiksmenn búnir
að fá nóg í síðasta leiknum
■ Síðasti leikur danska handknattleiksliðsins Gullfoss í
þessari heimsókn var gegn úrvalsliði HSÍ sl. laugardag í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflúgvelli. Þetta var jafnframt
síðasti leikur íslenzkra handknattleiksmanna á vetrinum
og bar hann þess nokkur merki að þeir eru þegar búnir
að fá nóg, þreyta og áhugaleysi einkenndi flesta leikmenn.
Einkum var áberandi, að
þéir leikmenn sem beztir em
taldir stóðu sig illa í þessum
leik, sýndu alls ekki það sem
af þeim verður krafizt, og á
þetta einkum við um þá Ragn-
ar, Gunnlaug og Hjalta. Ragn-
ar skoraði aðe ns tvö mörk,
annað úr vítakasti og hitt nán-
ast fyrir tiiviljun, þar sem
boltinn hrökk til hans úr
stöng. Gunnlaugur skoraði
ekkert mark og gerði varla
tilraun til að skjóta — svo
vitnað sé til hinna snjöllu orða
l leikskrá xnótsins: ,,Gunn-
laugur hefur skapað um nafn
sitt sama Ijóma og fornkappar
þessa lands“, þá dettur manni
í hug hvort Agii gamla á Borg€>
hefði ekki þótt heldur klént
að skora ekki eitt mark a.m.k.
í þessum knattleik. Hér er
ekki verið að mæla bót of
mikilli markgræðgi einstakrs
leikmanna, en hitt er of langt
gengið þegar menn erú bein-
línis hættir að gera tilraun til
að skora, því að mörkin ráða
þó altént úrslitum.
Af gangi leiksins er það að
ssgja, að úrvaiLo skorar 3
fyrstu mörkin og heldur for-
ystu fram yfir miðjan hálfleik
er Danir jafna og ná marki
yfir er 20 mín. eru liðnar 7:6,
og það sem eftir er hálfleiks-
ins eru aðeins skoruð tvö mörk
og voru Islendingar að verki
í bæði skiptin.
1 síðari hálfleik kom Þor-
steinn í markið og stóð sig
betur en Hjaiti og fór úrval-
inu þá að ganga betur, og eftir
10 mín. var staðan 13 Æ og um
miðjan hálfleikinn 16:11. Ur-
slit voru nú ráðin og varð leik-
urinn undarlega lítið s.penn-
andi þótt Danir tækju að
vinna á svo að munaði aðeins
einu marki er leiknum lauk,
20:19 fyrir úrvalið.
Danimir léku prúðmannlega
eins og í fyrri lelkjum og
hafa þeir haft sóma af þess-
ari komu sinni hingað, þótt
ekki tækist þeim að sigra.
1 liði Islendinga var Hörð-
ur drýgstur að skora, en ann-
ars verður varla gerður mun-
ur á frammistöðu leikmanna.
Dómari var Hannes Þ. Sig-
urðsson, áhorfendur voru ekM
eins margir og í leiknum á
fimmtudag.
Nælonstyrktar gallabuxur
i öllum staerðum. Molskinnsbuxur í stærðunum
4 til 16 og m.fl.
Mjög hagstætt verð.
Verzlunin ö. L.
Traðarkotssundi (á móti Þjóðleikhúsinu).