Þjóðviljinn - 21.04.1965, Blaðsíða 10
Fógetinn í Kópavogi athafnasamur á páskadag:
Lét innsigla Blómaskálann og
bera út köttinn og steikina!
I gærmorgun átti Þórður
fyrrverandi hreppstjóri á Sæ-
bóli í Kópavogi viðtal við
fréttamenn og sagði sínar far-
ir ekki sléttar í viðskiptum
við bæjarfógetann í Kópavogi
um páskana, en Þórður rekur
sem kunnugt er Blómaskálann
við Nýbýlaveg og hefur gert
það um árabil.
Þórður skýrði svo frá að
hann hefði nú stundað blóma-
sölu um 36 ára skeið og hefði
hann eins og aðrir blómasalar
jafnan haft þann hátt á að
selja blóm fram að hádegi á
stórhátíðum. svo sem á föstu-
daginn langa og páskadag.
Lét Sigurgeir Jónsson bæjar-
fógeti þetta átölulaust þar til
í fyrra, en hann hefur verið
fógeti í Kópavogi frá því bær-
inn fékk kaupstaðaréttindi
eða í ein 10 ár.
í fyrra brá hins vegar svo
við að hann kærði Þórð fyr-
ir þessa helgidagasölu, en
fulltrúí við bæjarfógetaemb-
ættið felldi þann úrskurð að
komin væri orðin hefð á
þessa blómasölu á stórhátíð-
um og því væri hún fyllilega
lögmæt.
Gerist síðan ekkert í mál-
inu fyrr en núna á föstudag-
inn langa en þá koma lög-
regluþjónar til Þórðar með
þau fyrirmæli frá Sigurgeiri
bæjarfógeta að loka skálan-
um og innsigluðu þeir dyr
hans. Brá Þórður hart við og
hringdi til Jóhanns Hafstein
dómsmálaráðherra og skýrði
honum frá málavöxtum.
Kvaðst ráðherrann skyldi tala
við bæjarfógeta og litlu síð-
ar komu lögregluþjónamir
aftur og' brutu upp innsiglin.
Á páskadagsmorgun kl. 10
komu Þórður og kona hans í
Blómaskálann og tók Þórður
að afgreiða nokkra menn sem
komnir voru til þess að fá
blóm. Eftir stutta stund koma
fimm lögregluþjónar og skipa
Þórði í nafni bæjarfógeta að
hætta sölunni þegar í stað.
Gerði Þórður það en gaf þeim
sem komnir voru að kaupa
blóm þau, sem þeir vildu.
Þórður hefur eldhúskompu
í skálanum og borða þau
hjónin þar alltaf, jafnt helga
daga sem virka. Var kona
Þórðar að byrja að steikja
kjöt í ofni er lögreglumenn-
imir komu. Sögðust lögreglu-
mennimir hafa fyrirmæli frá
Þórður við innsiglaðar dyr Blómaskálans. — (Ljósm. Bj. Bj.i
bæjarfógeta um það að loka
skálanum og flytja allt lif-
andi þaðan á brott með valdi,
ef nauðsyn krefði. Tóku þeir
steikina úr ofninum og báru
út og eltust lengi við kött
sem þama hefur haft aðset-
ur um skeið og báru hann
einnig út. Skipuðu þeir síðan
Þórði og hans fólki á brott
úr húsinu og innsigluðu síð-
an allar dyr skálans. Komu
þeir ekki aftur til þess að
rjúfa innsiglið fyrr en kl.
9,30 um kvöldið.
Þórður kvaðst telja þessa
framkomu bæjarfógeta í sinn
garð fólskulega persónulega
árás og sagðist mundu höfða
skaðabótamál á hendur fógeta.
Sagði Þórður að yfirvöldin í
Reykjavík og í Hveragerði
létu blómasölu á þessum dög-
um afskiptalausa og væru
þau þó ekki lakari yfirvöld en
bæjarfógetinn í Kópavogi.
Hins vegar sagði Þórður að
þeir bæjarfpgeti hefðu undan-
farin tvö ár átt í nokkrum
erjum út af öðrum málum og
teldi hann að fógeti væri að
hefna sín á sér með þessum
aðgerðum.
Þá sagði Þórður að á páska-
dag hefði hann verið með
mikið af blómum í skálanum
og var hann með 6 menn í
Miðvikudagur 21. apríl 1965 — 30. árgangur — 89. tölublað.
Tveir slösuðust er
hópferðabíll valt
Innsiglið fyrir aðaldyrum
skálans. — (Ljósm. Bj. Bj.)
vinnu til þess að vinna við
blómin. Vegna lokunar skál-
ans var ekkert hægt að sinna
blómunum og eyðilagðist mik-
ið af þeim vegna þess. Var
sterkt sólskin um daginn og
ofþornuðu blómin þess vegna
en um kvöldið eftir sólsetur
snöggkólnaði í skálanum þar
sem skrúfað var fyrir hitann
og var komið frost er innsigl-
in voru rofin og hægt var að
sinna blómunum. Lét Þórður
sérfróða menn meta blómin
á annan í páskum og töldu
þeir þau 160 þúsund króna
virði. Kvaðst hann ætla að
krefja bæjarfógeta um skaða-
bætur fyrir tjónið á blóm-
unum svo og miskabætur fyr-
ir að reka sig og konu sína
úr eígin húsi.
A skírdag varð það slys að
hópferðabíll frá Ferðaskrifstofu
Úlfars Jacobsens sem var á Ieið
í öræfaferð valt út af veginum
í Skaftárcldahrauni skammt frá
Kirkjubæjarklaustri. Var bíllinn
fullskipaður farþegum og meidd-
ust þrír þeirra nokkuð. Einn
rifbeinsbrotnaði, úr öðrum brotn-
uðu framtennur og hinn þriðji
tognaði í baki.
Bifreið frá Guðmundi Jónas-
syni kom fyrst á slysstaðinn og
flutti hina slösuðu að Kirkju-
bæjarklaustri en síðan flutti
flugvél þann sem rifbeinsbrotn-
aði til Reykjavíkur.
Ekki er að fullu kunnugt um
orsakir fyrir slysi þessu en þar
í gær var frumvarpið um
fjölgun í þingfararkaupsnefnd
Alþingis úr fimm í sjö afgreitt
sem lög til ríkisstjórnarinnar.
Þá eru allar þingnefndir orðn-
ar sjö manna, því fyrr í vetur
var samþykkt lagabreyting um
fjölgun í öðrum fastanefndum
en þingfararkaupsnefnd.
Sveit Gunnars vann Islands■
meistaratitHinn í bridge
15. lslandsmótinu í bridge lauk
á föstudaginn langa og sigraði
sveit Gunnars Guðmundssonar
Bridgefélagi Reykjavíkur í mcist-
araflokki og hlaut lslandsmcist-
aratitilinn að þessu sinni. Auk
Gunnars eru í sveitinni Ás-
mundur Pálsson, Hjalti Elíassom
Einar Þorfinnsson, Kristinn
Bergþórsson og Lárus Karlsson.
Sex sveitir kepptu í meistara-
flokki og varð röð þeirra þessi:
Sveit Gunnars hlaut 26 stig, sveit
Benedikts Jóhannessonar 22,
sveit Agnars Jörgenssonar 21,
sveit Halls Símonarsonar 12,
sveit Jóns Magnússonar 6 og
sveit Ólafs K. Guðmundssonar 3.
Falla tvær neðstu sveitirnar nið-
ur í 1. flokk.
1 1. flokki kepptu 20 sveitir í
tveim riðlum og síðan fjórar
þær efstu til úrslita. Sigurvegari
í þeirri keppni varð sveit Ólafs
Þorsteinssonar BR með 14 stig
og sveit Mikaels Jónssonar Ak-
ureyri varð önnur með 8 stig.
Flytjast báðar í meistaraflokk.
Vel heppnað landsmót skíðamanna:
Siglfirzkir og ísfirzkir skíða
menn urlu hlutskarpastir
sem bíllinn fór útaf er kröpp
beygja á veginum og er helzt
talið að hemlar bifreiðarinnar
hafi bilað er hún var í beygj-
unni.
Lenti í „Stein-
inum" að lokinni
vist á Hótel Sögu
Á laugardaginn fyrir páska
hafði sjómaður, búsettur hér í
Reykjavík, samband við rann-
sóknarlögregluna vegna þess að
þá um nóttina hafði verið frá
honum stolið nokkur þús. kr.
Sjómaðurinn tilnefndi sem grun-
aðan mann einn, sem hafði ver-
ið að skemmta sér með honum
um nóttina. Sá hinn sami fannst
um páskana og hafði þá leigt
sér dýrt herbergi á Hótel Sögu
og búið sig vel að vínföngum á
hótelherberginu. Lögreglan gat
upplýst að hótelgesturinn hafði
verið blásnauður áður en hann
tók herbergið á leigu, enda rak
að því við yfirheyrslur hjá lög-
reglunni að hann játaði að hafa
stolið af sjómanninum 7500 kr.
fyrrnefnda nótt.
Skíðalandsmótið, sem háð var við Akureyri uin
bænadaga og páska, þótti takast með afbrigðum
vel. Siglfirðingar urðu eins og oft áður sigursæl-
astir á mótinu, en ísfirðingar létu einnig mjög að
sér kveða.
Helztu úrslit urðu þessi:
15 km ganga: klst.
1. Kristj. Guðm.s. ísaf. 1.05,38
2. Gunnar Guðm.s. Sigl. 1.09,29
3. Frímann Ásm.s. Fljót. 1.11,33
Stórsvig kvenna mín.
1. Árdís Þórðard. Sigl. 1.34,0
2. Hrafnh. Helgad. Rvík 1.50,7
3. Jóna Jónsdóttir ísafirði 1.53,7
Stórsvig karla mín.
1. Kristinn Benediktss. ís. 2.02,3
2. Reynir Brynjólfss. Ak. 2.05.1
3. Jóhann Vilbergss. Sigl. 2.06,0
Svig kvenna sek.
1. Árdís Þórðardóttir Sigl. 68,76
2. Sigríður Júlíusd. Sigl. 73,49
Alpatvíkeppni kvenna:
1. Árdís Þórðardóttir Siglufirði
2. Jóna Jónsdóttir Siglufirði
3. Hrafnhildur Helgadóttir Rvík
4x10 km boðganga:
1. Siglfirðingar 3.15,13
2. ísfirðingar 3.18,13
3. Fljótamenn 3.19,56
Svig karla: sek.
1. Kristinn Benediktss. ís. 99,31
2. Hafsteinn Sigurðss. _ís. 102,99
3. Svanberg Þórðars. Ólf. 103,76
Alpatvíkeppni karla:
1. Kristinn Benediktsson ísafirði
2. Svánberg ÞÓfSarson Ólafsf.
3. Hafsteinn Sigurðsson ísafirði
Stökk:
1. Bjarnþór Ólafsson Ólafsfirði
2. Sveinn Sveinsson Siglufirði
3. Geir Sigurjónsson Siglufirði
30 km ganga:
1. Gunnar Guðm.s. Sigl. 1.31,59
2. Trausti Sveinss. Fljót. 1.32,50
3. Kristján Guðms. ísaf. 1.34,58
Datt úr pokastæðu
og fotbrotnaði
Laust fyrir kl. þrjú í gær
varð það slys í A-skála Eim-
skips á austurbakkanvm að 12—
13 ára gamall drengur, Kristján
Víðisson, Grettisgötu 82, datt úr
pokastæðu og fótbrotnaði á
vinstra fæti. Var hann fluttur
á Slysavarðstofuna og síðan
á Landspítalann.
Ingibjörg Steins-
dóttir látin
Látin er í Reykjavík Ingibjörg
Steinsdóttir leikkona, og verður
útför hcnnar gerð í dag. Minro-
ingarorð munu birtast hér í
blaðinu á morgun.
LEIÐRÉTTINGAR
Meinleg línubrengl urðu í ályktun Sósíalistaflokksins um kjara-
mál sem birt var í síðasta blaði. Setningar þær sem brengluðust
áttu réttilega að hljóða svo:
„Athuganir kjararannsóknarnefndar leiða í ljós að vinnutími
verkafólks hefur Iengzt ár frá ári að undanförnu, og nú er svo
komið að næstum því helmingur af meðalárskaupi verkafólks er
fenginn fyrir aukavinnu. Af slíkum vinnuþrældómi sem nú á sér
stað leiðir allt í senn, heilsutjón verkafólks, raunverulega skerðingu
á réttindum og launum, fjárhagstjón fyrir atvinnureksturinn og
menningarlega niðurlægingu þjóðarinnar.”
Einnig misprentaðist 18% í staðinn fyrir 12% þar sem rætt var
um rýrnun á kaupmætti tímakaupsins á valdaskeiði núverandi rík-
isstjómar. Aðrar prentvillur má lesa í málið.
Rætt við 17 ára íslandsmeistara
Eins og frá er sagt í frétt
á öðrum stað í blaðinu sigraði
17 ára menntaskólanemi í
landsliðsflokki á Skákþingi
fslands sem haldið var um
páskana. Heitir hann Guð-
mundur Sigurjónsson eg á
heima að Ránargrund 3 í
Garðahreppi sonur hjónanna
Steinunnar Sigurðardóttur og
Sigurjóns Guðmundssonar
rafvirkjameistara í Hafnar-
firði.
Þjóðviljinn átti í gær stutt
símtal við Guðmund. Var
hann fremur fátalaður um
sigurinn og lét ekki mikið yf-
ir sér.
— Hvenær byrjaðir þú að
tefla, Guðmundur?
— Ég lærði að tefla sjö eða
átta ára gamall og tók íyrst
þátt í mótum er ég var þrett-
án eða fjórtán ára og tók ég
þá þátt í nokkrum mótum
bæði í Hafnarfirði og Reykja-
vík.
— Hvenær vannstu þig upp
í meistaraflokk?
— Það var á Haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur haust-
ið 1963.
— Hefurðu tekið þátt í
mörgum mótum síðan?
— Nei, það hef ég nú ekki
gert, en ég tók þátt í Haust-
mótinu í fýrra og sigraði þá
í meistaraflokki og vann þar
með réttindi til keppni í
landsliðsflokki í ár.
— Bjóstu við svona góðum
árangri í mótinu núna?
— Nei, annars hugsaði ég
ekkert um það.
— Var þetta erfið keppni?
— Það var talsvert erfitt
undir lokin, þá var ég farinn
að þreytast dálítið.
— Geturðu nefnt einhverja
sérstaka skák er var erfið?
— Já, skákina gegn Frey-
steini, en í henni lenti ég í
taphættu, annars lenti ég i
taphættu í fleiri skákum en
ekki jafn alvarlegri.
— Þú gerðir fjögur jafn-
tefli, við hverja voru þau?
— Við Freystein Þorbergs-
son, Bjöm Þorsteinsson, Jón
Kristinsson og Magnús Sól-
mundarson.
— Hefurðu lesið þér mikið
til um skák?
— Já, ég hef stúderað skák
talsvert, bæði byrjanir og
eins skákir eftir ýmsa skák-
meistara, ég hef t.d. stúderað
talsvert skákir eftir Friðrik
Ólafsson en aldrei teflt við
hann.
— Ætlarðu að halda áfram
að leggja stund á skák?
— Já, ég geri ráð fyrir
því.
— Og þú ert í Menntaskól-
anum, í hvaða bekk ertu?
— Ég er í fjórða bekk í
stærðfræðideild.
— Og ertu búinn að ákveða
hvað þú leggur fyrir þig að
loknu stúdentsprófi?
— Nei, ég er ekkert ákveð-
inn í því ennþá.
Að lokum vill Þjóðviljinn
nota tækifærið til þess að
óska Guðmundi til hamingju
meg fslandsmeistaratitilinn.
!■■■■■■■■•»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»
'S