Þjóðviljinn - 04.05.1965, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.05.1965, Blaðsíða 1
NÝTT FRUMVARP UM LANDSVIRKJUN: VIDURKENNT AD BREYTA ÞURFI Séleyjarkvæði flutt í kvöld í kvöld er það efni á dagskrá menningarviku Samtaka her- námsandstæðinga, sem að lík- indum mun vekja mesta eftir- tekt og koma mest á óvart: Ung- ur listamaður, Pétur Pálsson, hefur búið ljóðaflokkinn Sóleyj- arkvæði eftir Jóhannes úr Kötl- um til flutnings á sviái og sam- ið við hann tónlist, Sem að nokkru er byggð á gömlum þjóð- lögum. Undir hans stjórn munu átta ungir flytjendur lesa og syngja Sóleyjarkvæði. Þeir eru auk stjómandans Péturs Pálssonar: Sólveig Haukgdóttir, Helga Helgadóttir, Edda Þórarinsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Ey- vindur Eiríksson, Gunnar Gutt- ormsson og Kristinn Jóhannes- son. Auk flutnings Sóleyjarkvæðis verður á dagskrá menningarvik- unnar í kvöld: Firnrn dangmeyjar undir stjóm Þórhildar Þorleifsdóttur sýna dansa, er hún hefur gert við lög eftir Bela Bartók. Þorsteinn frá Hamri og Jón Sigurðsson lesa frumsamin verk. Músíkalskur leikur; Atli Heim- ir Sveinsson sér um flutning. Dagskráin hefst kl. 20,30 á Litla sviðinu í Lindarbæ. Hernámsandstæðingar: gangan 1. maí-hátíðahöldin hér í Ueykjavík fóm fram með Iíku sniði og síðastliðið ár. Safnazt var saman við Iðnó og lagt af stað í kröfugöng- una um kJ. 2 og gengið und- ir fánum verkalýðsfélaganina og kröfuborðum um nokkrar götur miðborgarinnar. Að lok- inni göngu var staðnæmzt á Lækjartorgi og setti Öskar Hallgrímsson formaður Full- trúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík þar útifund en ræðumenn voru Guðmundur J. Guðmundsson varaformað- ur Dagsbrúnar og Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður. Fr ræða Guðmundar birt á 7. síðu. Á myndinni sést kröfu- ganga á leið niður Skólavörðu- stíg. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.) Engin heimild til alúmínsamninga í hinu nýja Landsvirkjunarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar ■ Ríkisstjórnin lagði í gær fram á þingi frumvarp til laga um landsvirkj- un. Er þar gert ráð fyrir nýju fyrirkomulagi á stjórn virkjana og verðlagn- ingu raforku. Einnig er leitað heimildar til 210 þús. kílóvatta virkjunar við Búrfell og 1204 milj. kr. erlendrar lántöku í því skyni. Hins vegar er ekki enn leitað neinnar heimildar til samninga við svissneska alúmínhringinn um alúmínbræðslu og raforkusölu til hennar, en aðeins rætt um þau við- skipti sem möguleika í greinargerð og fylgiskjölum. ■ Sérstaka athygli vekur að í sambandi við Búrfellsvirkjun er óskað eft- ir heimild til að „gera nauðsynlegar ráðstafanir á vatnasvæði Þjórsár ofan virkjunarinnar til þess að tryggja rekstur hennar“. Er þar með viðurkennd sú harða gagnrýni sem fram hefur verið borin á hinar bandarísku áætlan- ir og játað að gera þurfi sérstakar ráðstafanir vegna ísamyndana. Þær ráð- stafanir munu að sjálfsögðu raska þeim kostnaðaráætlunum sem tilboðin til svissneska hringsins hafa byggzt á. Nýtt stjórnarkerfi Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir þvi að komið verði upp nýrri stjórnarstofnun, Landsvirkjun, sem í fyrstu verði sameignarfyrirtæki ríkis- ins og Reykjavíkurborgar og eigi hvor aðili helming fyrir- tækisins. Tekur Landsvirkjun- in við öllum eignum Sogsvirkj- unarinnar, toppstöðinni við EU- iðaár, öllum vatnsréttindum og réttindum ríkisins og Reykja- víkurborgar í Sogi og í Þjórsá við Búrfell o.s.frv. Gert er ráð fyrir að Laxárvirkjun og fleiri virkjanir verði síðar aðili að Landsvirkjun, en svo er til ætl- azt að ríkið geti alltaf tryggt sér eignarrétt til helminga. Að því er stefnt að allar virkjanir á íslandi verði að lokum undir þessu fyrirtæki. Stjómin skal skipuð sjö mönn- um, þremur kosnum af Alþingi cg þremur af borgarstjórn Rvík- ur til sex ára, en ríkisstjórn og borgarstjórn Reykjavíkur eiga sameiginlega að skipa sjö- unda manninn og sé hann for- Framhald á 9. síðu. 1. maí kröfu- ★ Aðalskrifstofa Samtaka her- námsandstæðinga er þessa daga meðan menningarvikan stendur i Lindarbæ, 2. hæð, gengið inn frá Lindargötu. Síminn 20155. Þar eru seldir miðar á menningar- dagskrárnar í Lindarbæ og tek- ið er við nöfnum þeirra, sem skrá sig í Kefiavíkurgönguna. ★ Þegar Þjóðviljinn hafði sam- band vi^ skrifstofuna í gærdag höfðu rösklega 120 látið skrá sig í gönguna. ★ Þeim hernámsandstæðingum, sem ekki hafa aðstöðu til að ganga alla leiðina er bent á að Iáta skrá siS til þátttöku í göng- unni NOKKURN HLUTA LEIÐ- ARINNAR, t.d. í byrjun göng- unnar eða um miðjan daginn. Frá æfingu á flutningi Sóleyjarkvæðis. Frá vinstri: Eyvindur Eiríksson, Margrét Guðmundsdóttir, Gunnar Guttormsson, Sólveig Hauksdóttir, Helga Helgadóttir, Edda Þórarinsdóttir, Atli Heimir Sveinsson og Pétur Páisson. Á myndina vantar Kristin Jóhannesson. —• Ljósm. Þjóðv. A.K„ TÓLF RÉTTIR: Skilafrestur í getraun Þjóðviljans til 12. maí Þriðjudagur 4. maí 1965 — 30. árgangur — 98. tölublað. Orsakir þyrluslyssins rannsakaðar — Veðurþáttur Páls bannaður 7. maí! — Sjá fréttir á síðu O0 AÆTLUN UM BÚRFELLSVIRKJUN Látið skrá ykkur til göngunnar!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.