Þjóðviljinn - 04.05.1965, Qupperneq 12
Ofheldisiög ríkisstjórnarinnar gegn
flugmönnum voru samþykkt í gær
Flugmenn tilkynntu Loftleiðum strax, að þeir myndu ekki
fljúga meira en 60 tíma á mánuði og mest 12 á sólarhring
Frumvarpið um bann við verkfalli flugmanna á Rolls
Royce 400 vélum Loftleiða var samþykkt sem lög frá Al-
þingi í gær, að viðhöfðu nafnakalli með 21 atkvæði gegn
16 atkvæðum stjórnarandstæðinga, en einn þingmaður sat
hjá.
Þar með eru flugmenn þvingaðir til að hefj'a störf á ný án
myndinni sést rjúkandi brakið úr þyrlunni, stélið eitt er heilt.
Rannsóknarnefnd send til
að kanna orsakir slyssins
*
Tveir af æðstu yfirmönnum Bandaríkjahers á Islandi meðal 5 sem fórust.
Þriðjudagur 4. maí 1965 — 30. árgangur — 98. tölublað.
■ Síðdegis í dag verður haldin minningarathöfn í kapellu
Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Verður þá minnet
þeirra fimm Bandaríkjamanna, sem fórust er herþyrla
steyptist til jarðar um kl. 7 síðdegis á laugardaginn. Tveir
þeirra sem fórust voru í hópi æðstu yfirmanna bandaríska
hernámsliðsins á íslandi.
Ríkisstjómin hefur skuída-
bréfaútgáfu é nýjan /eik
þess að fá nokkurn hluta þess, sem þeir hafa farið fram á.
Aðspurður sagði einn stjómarmanna Félags íslenzkra at-
vinnuflugmanna tíðindamanni blaðsins í gær, að flugmenn.
irnir myndu að vísu fljúga eftir þessa kúgunarlagasetn-
ingu en aðeins 12 tíma mest á sólarhring og 60 stundir á
mánuöi, og yrði það tilkynnt Loftleiðum þegar í stað.
------------------------------^ Stjómarmaðurinn sagði enn
fremur að þetta væri í fullu
samræmi við landsins lög, þar
sem segir að sá, sem fer með
þungavinnuvélar eða stór flutn-
ingatæki, megi ekki vinna meira
en 12 stundir á sólarhring.
— Umræður á Alþingi stóðu
yfir um þetta mál í neðri deild
Alþingis i gær fram til kl. 19.30.
Meðal þeirra, sem tóku til máls
voru Hannibal Valdimarsson,
Eðvarð Sigurðsson og Lúðvík
Jósepsson. Lögðu þeir allir á-
herzlu á það atriði að hér væri
um að ræða árás á helgasta rétt
verkalýðsins, samningsréttinn,
slik lögþvingun yrði til þess að
eitra andrúmsloftið við væntan-
lega samninga i vor. Ríkisstjóm-
in hefði i þessu máli verið undir
handarjaðri Vinnuveitendasam-
bandsins, en hefði ekki gert við-
hlítandi ráðstafanir til að leysa
verkfallið, t.d. ekki skipað sátta-
nefnd og fundir hefðu ekki verið
haldnir áður en frumvarpið var
lagt fram á Alþingi.
Hannibal Valdimársson benti
á, að Félag íslenzkra atvinnu-
flugmanna hefði kosið að draga
sig út úr A.S.l. til að flugfélög-
in yrðu ekki fyrir barðinu á
vinnudeilum Alþýðusambands-
ins, en þetta skref hefði ekki
nægt, flugfélögin hefðu átt að
segja sig úr Vinnuveitendasam-
bandinu, því að miklu meiri von
væri til þess að flugfélögin næðu
samkomulagi við sína menn á
eigin spýtur i stað þess að láta
atvinnurekendasambandið hafa
með þau mála að gera.
Ennfremur bentu þessir þing-
menn á, að sá málflutningur
flugmálaráðherra um að það
Framhald á 9. síðu.
Afmælishljómleik-
ar Alþýðukórsins
Alþýðukórinn heldur hátíðlegt 15 ára afmæli sitt með
samsöng í Gamla Bíó, miðvikudaginn 5. maí kl. 19,15.
Stjórnandi er dr. Hallgrímur Helgason en einsöng syngja
Álfheiður L. Guðmimdsdóttir og Florence Grindlay. Undir-
leik á píanó annast Jórunn Viðar og söngstjórinn.
í gær var frumvarpið um
beimild fyrir ríkisstjórnina til að
taka innlent lán afgreitt sem lög
frá Alþingi. í nefndaráliti 2.
minni hluta fjárhagsnefndar
neðri deildar gerði Lúðvík Jóseps-
son þá grein fyrir afstöðu sinni
til málsins, að hann geti ekki
greitt því atkvæði, að svo stöddu
máli, og færði þessi rök fyrir
því:
Ríkisstjórnin fékk samskonar
75 milj. kr lán í vetur og á enn
óráðstafað af því 32,9 milj kr.
en upplýsingar hafa ekki fengizt
um það hvernig þvi fé verður
varið.
Lánin eru óhagstæð vegna
vísitölutryggingar á vextina, sem
þó eru allháir eða 7,2%. Skulda-
bréfin þarf ekki að skrá á nafn,
sem gefur auðmönnum og auð-
félögum enn betra tækifæri til
að svíkja undan skatti.
Frumvarp þetta var samþykkt
i gær, og mun innan skamms
hefjast á ný skuldabréfa- eða
spariskírteinaútgáfa á sama hátt
og í desember siðastliðnum.
Upplýsingaþjónusta Banda-
,,rjiy,gnna. hefur skýrt Þjóðvilj-
anum svo frá, að þyrlan hafi
flogið upp í Hvalfjörf) fyrri
hluta laugardagsins og þar í
herstöðinni hafi liðsforingjarnir
unnið sín eftirlitsstörf, en að
þeim loknum verið haldið aftur
áleiðis til Keflavíkurflugvallar.
Rannsóknarnefnd frá Banda-
ríkjunum.
Slysið mun hafa orðið um
sjöleytið á laugardaginn og þyk-
ir ijóst af frásögnum sjónar-
votta að það hafi borið að með
mjög snöggum hætti. Hefur
þýrlan steypzt til jarðar, og
kviknaði þegar í henni mikiii
eldur. Gerðist þetta um 10 km
norð-austan við herstöðina á
flugvellinum, ekki fjarri nýja
Keflavíkurveginum.
Enn verður ekki fullyrt um
hvað valdið hafi slysinu, en
vörður var strax settur um slys-
staðinn og rannsókn hafin. Að
rannsókninni vinnur m. a. sér-
stök rannsóknarnefnd sem kom
hingað frá Bandaríkjunum um
Framhald á 9. síðu.
Af 23 liðum efnisskrár er
meiri hluti íslenzkur. Frum-
flutt verða 11 lög, eftir Friðrik
Bjamason, Sigursvein D. Krist-
insson, Guðmund Skúlason bónda
á Keldum á Rangárvöllum, Sig-
uringa E. Hjörleifsson, Ingunni
Bjamadóttur, Kristínu Einars-
dóttur og þrjú lög eftir söng-
Slökkviliðið
að Glaumbœ
Um kl. tvö í fyrrinótt kom
maður hlaupandi á slökkvistöðina
og sagði eld vera uppi í Glaum-
bæ. Slökkviliðið fór strax á vett-
vang og reyndist vera eldur í
öskutunnu utan við húsið, og
komst hann i þak á skúrbygg-
ingu, en slökkviliðið hindraði
frekari útbreiðslu.
Braggi brennur
í Múlakampi
Um kl. 17 f gær var slökkvi-
liðið kvatt að íbúðarbragga að
Múlakamp 20. Bragginn var þá
alelda og brann að mestu leyti.
Ibúi braggans, ' Sigríður Bene-
diktsdóttir, brenndist lítils háttar
á höndum og fótum og hár
sviðnaði. Ökunnugt er um elds-
upptök.
stjórímn, þar á meðal Hin hljóðu
tár, við hið áhrifamikla kvæði
Stetns Steinarrs. Auk þess verð-
ur fluttur hinn frísklegi veizlu-
Dr. Hallgrímur Helgason.
kór úr óratóríu Björgvins Guð-
mundssonar Friður á jörðu, og
Skógargildi úr Söngvum og
kvæðum Jónasar HelgasonaTj
sem um síðustu aldamót var
eitt vinsælasta lag hvarvetna á
íslandi, I glitfögrum, laufgraen-
um lundi, við hinn fjörmikla
texta Jóns Ólafssonar.
Af erlendum höfundum eru
á söngskránni, auk Mozarts og
Cherubinis, lög eftir hinn þjóð-
lega meistara Norðmanna Sparre
Framhald á 9. síðu.
Menningarvika Samtaka hernámsands tæðinga:
Málverkasýning leikþættír
danssýning og upplestur
Klukkan fjögur síðastliðinn
laugardag var mennJngar-
vika Samtaka hernámsandstæð-
inga sett með opnun málverka-
sýningar í sýningarsalnum á 2.
hæð í Lindarbæ. Þóroddur Guð-
mundsson rithöfundur flutti á-
varp, og er það birt á 4. síðu
blaðsins í dag.
Á sýningunni eru verk 35 lista-
Taugaveiklun í útvarpinu:
VeBurþáttur Páls
bunnuður /. muíl
í vetur hefur Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur flutt
spjall í þætti Jónasar Jónas-
sonar siðdegis á laugardögum,
rabbað um veðurfarið vikuna
á undan og tengt það á létt-
an og skemmtilegan hátt við
ýmsa atburði í þjóðlifinu.
Hefur þáttur þessi verig mjög
vinsæll, og munu flestir hafa
gert sér í hugarlund að ráða-
menn útvarpsins gleddust yf-
ir því að geta boðið upp á
efni sem menn vildu hlusta
á. En sú virðist ekki hafa
orðið raunin. Að minnsta
kosti upptendraðist formaður
útvarpsráðs, Benedikt Grön-
dal, af mikilli skelfingu, þegar
hann áttaði sig á því að 1.
maí bæri upp á laugardag,
þannig að veðurfarsþáttur-
inn yrði fluttur á þeim hættu-
lega degi. Gaf hann strengi-
Páll Bergþórsson.
leg fyrirmæli um að engin
ótímabær gamansemi mætti
heyrast í útvarpinu þann dag
og var brugðið hart við og
þáttur Páls bannaður eftir að
búið var að tala hann inn á
band! Er þessi bannhelgi þátt-
ur birtur í heild á öðrum stað
í blaðinu, svo að menn sjái
hvaða efni það er sem hinir
geðstirðu og hræddu hlut-
leysisverðir þola ekki.
Þjóðviljinn hafði í gær
samband við Pál Bergþórsson
og kvaðst hann hafa því einu
við að bæta, er hann hefði
nú verið leystur frá störfum
„með smán“, að þakka hlust-
endum mjög vinsamlegar und-
irtektir og vara alla þá sem
koma fram j útvarpinu við
því að láta sér verða of hált
á svelli hátíðleikans.
Sjá síðu Q
manna. Verk ungra manna setja
mikinn svip á sýninguna og
koma fram margar skemmtilegar
og nýstárlegar hugmyndir, sem
dæmi má nefna tillögu um nýtt
skjaldarmerki Islands. Ætti fólk
alls ekki að láta sýninguna fram
hjá sér fara, en hún er opin
alla daga þessa viku frá kl. 14.00
— 23.00.
A sunnudag var fjölbreytt
menningardagskrá á Litla svið-
inu í Lindarbæ. Hófst hún með
því, að Atli Heimir Sveinsson
lék einleik á píanó, verk eftir
Jón Leifs og Magnús Blöndal
Jóhannsson.
Þá sýndi dansflokkur undir
stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur
dansa er hún hefur gert við
lög eftir Béla Bartok. Undirleik
annaðist Atli Heimir Sveinsson.
Fluttur var einþáttungurinn
Ætlar blessuð manneskjan að
gefa upp andann? eftir Thor Vil-
hjálmsson. Leikstjóri var Brynja
Benediktsdóttir og leikendur Þor-
steinn ö. Stephensen, Erlingur
Gíslason, Bríet Héðinsdóttir, Jó-
hanna Norðí:5rð, Leifur Ingv-
arsson og Pétur Einarsson.
Að því búnu las Þórarinn
Guðnason Iæknir upp Limrur
eftir Þorstein Valdimarsscn.
Limrur er íslenzk þýðing á enska
haettinum limmerick, og eru
kvæði ort undir þeim hætti oft-
ast í léttum tón og reyndist svo
einnig um limrur Þorsteins.
Að lokum lásu þeir Þórbergur
Þórðarson og Jón úr Vör upp úr
verkum sínum. Las Þórbergur
kafla úr Ofvitanum, en Jón þrjú
af kvæðum sínum.
Var vel til allrar þessarar dag-
skrár vandað og áhorfendur létu
óspart í ljós hrifningu sína.
I gærkvöld var einnig fjöl-
breytt menningardagskrá á Litla
sviðinu.
Vorú þar sýndir fyrir fullu
húsi Ieikþættimir Jóðlíf eftir
Odd Bjömsosn og Ætlar blessuð
manneskjan að gefa upp and-
ann? eftir Thor Vilhjálmssan*
og skáldin Guðbergur Bergsson,
Guðmundur Böðvarsson, Hall-
dóra B. Björnsson, Ingimar Er-
lendur Sigurðsson og Jóhannes
úr Kötlum lásu úr verkum
sínum.
FylR|ngin
N.k. fimmtudag, 6. m;
flytur Brynjólfur Bjamas<
erindi f Tjamargötu 20 up
er hann nefnir: Sósíalist
flokkurinn og samfylkingi
ÆF-félagar eru hvattir til ;
fjclmenna. Fræðsluneínd Æ