Þjóðviljinn - 16.07.1965, Qupperneq 3
r—nrp:
Föstudagur 16. Íúlí 1965 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Stríðið í Suður-Vietnam
Konum og unglingum boðið út til að
vega upp á móti sigrum skæruliða
SAIGON 15/7 - Stjórnarvöld í Saigon kvöddu í dag
til herþjónustu konur og unglinga til að vega upp
á móti því manntjóni sem Saigonherinn hefur orð-
ið fyrir í viðureignum við skæruliða undanfarnar
vikur. Þetta herútboð var tilkynnt samtímis því að
Bandaríkjastjórn kunngerði að ætlunin væri að
bjóða út 220.000 manna liði.
I Saigon var frá því skýrt
að enn hefðu 1.200 bandarískir
hermenn gengið á land í Suð-
ur-Víetnam, og að þeir væru
þá orðnir 75.000 talsins. Það
var einn af ráðherrum Saigon-
stjórnarinnar sem tilkynnti her-
útboð kvenna og sagði að það
tæki til allra kvenna á aldrinum
20—25 ára. — Á slíkri hættu-
stund sem við lifum nú getur
enginn skorazt undan merkjum
andkommúnismans, sagði ráð-
herrann.
•Skæruliðar Þjóðfrelsisfylking-
arinnar réðust í morgun á eina
sveit Saigonhersins um 60 km.
fyrir norðan Saigon. Saigon-
hermennirnir voru að ryðja úr
vegi vegatálmunum sem skæru-
liðar höfðu lagt þar. Að sögn
fréttaritara brezka útvarpsins
voru mörg hundruð Saigon-her-
menn þarna og er ekki vitað
um afdrif þeirra.
Einnig fyrir sunnan Saigon
áttu sér í dag stað viðureignir
milli skæruliða og Saigon-her-
manna, en fáum sögum fer af
þeim.
Fréttaburður bannaður.
Það má yfirleitt búast við því
að fréttum af atburðum í Víet-
nam fari að fækka. Bandaríska
herstjómin í Saigon hefur til-
kynnt að framvegis muni ekki
sagt frá einstökum viðureignum
né mannfalli í þeim og frétta-
ritarar í Saigo,n hefa veriðbeðn-
ir að láta ekkert uppi sem
skæruliðum gæti komið að
gagni. Reglan verður sú að
framvegis verður ekki tekið
neitt fram um mannfall í ein-
stökum viðureignum nema að
það hafi verið „lítið, í meðal-
lagi eða mikið“. Tilgangurinn á
að vera sá að koma í veg fyrir
að skæruliðar viti um árangur
hernaðaraðgerða sinna.
Ferðamannahópar frá Sovét-
rikjunum í íslandsferðum
□ Allstór hópur ferðamanna frá Sovétríkjunum dvelst
um þessar mundir hér á landi og annar hópur þaðan að
austan er væntanlegur hingað annan þriðjudag.
Intourist skipuleggur íslands-
ferð hópsins sem nú er hingað
Göngin gegnum Hvítaf/all
I dag verða mörkuð tímamót í sögu Evrópu. Þá opna þeir forsetamir de Gaullc og Saragat hátíðlega
göngin gegnum Mont Blanc. Þessi göng stytta Ieiðina úr norðri til suðurs í Evrópu um nokkur hundr-
uð kílómetra, og enginn, þarf nú að leggja á sig það erfiði sem þeir Hannibal og Napoleon urðu að
gera. Nú bruna menn á bílum sínum gegnum Alpana.
onstantín konungur neyðir
'apandreou að segia al sér
kominn í samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Landsýn. í hópnum
eru 29 ferðamenn frá Lettlandi
og Eistlandi, þ.á.m. læknar,
kennarar, bændur, listamenn.
Hingað komu ferðamennirnir á
þriðjudagskvöldið, næsta kvöld
héldu þeir til Akureyrar, en það-
an var ætlunin að halda til
Mývatns og víðar. Þeir komu
aftur til Reykjavíkur í gærkvöld
og munu þá daga sem eftir eru
íslandsdvalarinnar fara í kynn-
isferðir um borgina og nágrenn-
ið, halda til Þingvalla, Gullfoss
og Geysis og út á Reykjanes. Á
sunnudagskvöldið kl. 8.30 munu
sovézku ferðamennirnir mæta á
kaffikvöldi MÍR í Lindarbæ, en
aðgangur að því er heimill öll-
um MÍR-félögum og gestum.
í ferðamannahópnum sem
hingað kemur 27. júlí n.k. verða
34 æskumenn víðsvegar að úr
Sovétríkjunum. Sá hópur kem-
ur á vegum Sputniks, fer.la-
skrifstofu sovézku æskulýðssam-
takanna, og annast Landsýn
einnig fyrirgreiðslu hér. Má og
geta þess, í framhaldi af þessu,
að ferðamannahópur héðan frá
íslandi leggur á morgun, laug-
ardag, upp í ferð til Finnlands
og Sovétríkjanna á vegum Larid-
sýnar undir fararstjórn Reynis
Bjarnasonar.
AÞENU 15/7 — Papandreou, íorsætisráðherra
’ ikklands, aðst í dag lausnar íyrir ráðuneyti sitt.
itæðan var sú að Konstantín konungur haíði neit-
5 að undirriti brottvikningu Garouíaliasar, land-
varnarráðherra úr embætti.
Þetta mál á sér nokkum að-
draganda. Það hefur verið vit-
að lengi að innan gríska hers-
ins voru skipulögð samtök
hægrimanna. 1 orði kveðnu var
þessum samtökum beint gegn
,.kommúnistum“, en Papandreou
og Miðflokkur hans hafa haít
fyllstu ástæðu til að telja að
tilgangur þeirra væri að bola
þeim frá völdum og koma aft-
ur á hernaðareinræði í landinu.
Þegar það vitnaðist að Garou-
Harðir bardagar
LIMA 15/7 — Stjóm Belaunde
í Perú viðurkenndi í dag að her-
lið hennar hefði lent í hörðum
viðureignum við skæruliðasveit-
ir sem hún segir að j.kommún-
istar" hafi komið sér upp í
Andreafjökmi í miðju landi, Kja>
Papandreou fram á við hann að
hann segði af sér. Því neitaði
Garoufalias og neyddist Papan-
dreou þá til að tilskipa brott-
vikningu hans úr embætti. Til-
skipanin gat hins vegar því að-
eins öðlast gildi að Konstantin
i konungur undirritaði hana. Því
falias landvarnarráðherra var í neitaði hann! og því neyddist
tygjum við þessa hægrimenn fór' Papanderou til að segja af sér.
Rætt við geimfara
í Moskvu
MOSKVU 13/7 — Fjórir rit-
stjórar æskulýðsblaða frá Nor-
egi, Finnlandi, íslandi og Dan-
mörku áttu fyrir skömmu
tveggja tíma viðtal við áhöfn-
ina á sovézka geimfarinu Vosh-
od 2. — Pavel Beljajev og Al-
eksej Leonov. Fundum þeirra
bar saman á hótel Junost í
Moskvu, og var sjónvarpað frá
fundinum.
Blaðamennirnir fpórir voru
þau Ingrid Andersen frá Nor-
egi, Helena Holtta frá Finnlandi,
Eyvindur Eiríksson frá íslandi
og Gunnar Kanstrup frá Dan-
mörku.
Myndin sýnir: Strikið sem á að tákna braut Mariners 4., fer-
hyrninga sem sýna svæði á Marz sem hver mynd nær yfir.
Áfangi á langri leið
Þegar þetta er skrifað er
enn ekki vitað með neinni
vissu hve mikilvægur árang-
ur verður af ferð geimfars-
ins Mariners 4 til Marz, en
samt er þegar orðið ljós.t aö
bandarískir vísindamenn hafa
unnið mikilsvert afrek, sem
talið verður síöarmeir einn af
merkustu áföngum á þeirri
löngu ferð sem hófst með
fyrsta spútniknum fyrir
tæpum átta árum. Þeir hafa
enn sannað hugvit sitt og
dæmalausa snilli í völundar-
smíði þeirra ótrúlega marg-
brotnu tækja sem geimrann-
sóknir krefjast. Sami hópur
vísindamanna við Jet Prop-
ulsion Laboratory sem ann-
ast ferð Maiririers 4. hafði áð-
ur unnið mikið afrek þegar
Mariner 2. fór fram hjá og
gerði athuganir á Venus í
desember 1962 og í fersku
•mmni eru myndatökumar af
tunglinu með þremur Rang-
er-förum. Mariner 4. var
skotið á loft 28. nóvember
með Atlas-Agena eldflaug.
Afstaða Marz til jarðar var
þá heppileg til slíks geim-
skots, en verður það ekki aft-
ur fyrr en árið 1971. Það
kom því ekki á óvart að
tveimur dögum síðar, 30.
nóvember, skutu sovézkir
vísindamenn einnig á loít
geimfari, Zond 2., á leið til
Marz. Það var önnur tilraun
þeirra að senda geimfar til
þessarar plánetu, en hún
mun hafa mi&tekizt eins og
sú fyrri. Bæði Marzförin kom-
uzt að vísu á rétta braut,
en bilanir í senditækjum eða
rafhlöðum þeirra beggja ollu
því að allt samband rofnaði
við þau. Eins hafði farið fyrir
sovézku geimstöðinni sem
send hafði verið til Venusar.
Þessi endurteknu óhöpp sov-
ézkra vísindamanna í rann-
sóknum á plánetunum eru
nokkur vísbending um hve
geysilegum erfiðleikum slíir
geimskot eru bundin og þá
hve mikil afrek þau eru sem
hinir bandarísku starfsfélag-
ar þeirra hafa unnið með
Mariner-förunum tveim.
Teiknað kort af Marz og tvær myndir a£ honum úr síjörnusjám með 12 minútna millibili.
Ifréttum frá Pasadena í
Kalifomíu síðdegis í gær
var sagt að fyrsta myndin
frá Mariner 4., sem þá var
tekin að berast myndi verða
„nýtileg“. Ekki var hægt að
ráða af því orðalagi til hvers
hún eða aðrar sem á eftir
kæmu yrðu nýtilegar. Ráð-
gáturnar um yfirborð og eðli
Marz, sem menn vildu fá svar
við em svo margar að þótt
ekki fengist svar við nema
einni þeirra mætti vél við
una. Er líf á Marz? Em
„skurðirnir" annað en sjón-
blekking? Hvemig stendur á
þessum stöðugu litbrigðum í
„höfunum", sem fara eftir
árstíðarskiptum? Myndimar
sem við væntanlega munum
fá að sjá innan skamms
kunna að gefa einhver svör
við þessum spurningum, sem
sumir hverjir, jafnvel Islend-
ingar hafa velt fyrir sér,:' a.
m.k. allt frá því að Oranía
Flammarions kom út fyrir
síðustu aldamót, að ég hygg.
Þó er það með öllu óvíst að
nokkur áreiðanleg svör fáist.
Þær 17.000 myndir sem Rang-
erförin sendu til jarðar juku
að vísu stórlega vitneskiu
okkar um hvernig á horfðist
á yfirborði tunglsins, engáfu
mönnum fáar, ef nokkrar,
beinar vísbendingar um
hvemig á þeim fyrirbærum
stæði sem myndirnar sýndu.
Á fundi konunglegu aka-
demíunnar brezku £ vor um
tunglrannsóknir voru menn
alveg jafn ósammála og áður
en Ranger-myndirnar höfðu
borizt um eðli þeirra fyrir-
bæra sem þær sýndu betur
en áður hafði mátt sjá. Á-
greiningurinn hefur jafnvel
aukizt við aukna þekkingu.
Ástæða er til að ætla að
myndirnar frá Marz sem
verða að fara meira en 400
sinnum lengri leið en Rang-
er-myndirnar muni verða
miklu margræðari en þær.
Engu að síður munu þær
hafa aukið við þekkingu
mannsins á umhverfi sínu,
hversu margræðar sem þær
verða.
Raunvísindi og- siðmenning
hófust með áthugunum á
gangi himintungla. Marz
hefur lengi verið sú pláneta
sem öðrum fremur hefur
vakið forvitni manna. Hann
er næstur nágranni okkarog
verður áreiðanlega sú pláneta
sem menn heimsækja fyrst.
1 síðasta „Science Journal"
er sagt frá þvi að árið 1973
ættu Bandaríkjamenn að
hafa komið sér upp geimfari
sem gæti flutt menn til Marz
og heim aftur. Þá, en varla
fyrr, munum við fá áreiðan-
leg svör við þeim spuming-
um sem áður var drepið á.
Enn er maðurinn hæfari til
þeirra verka en þau vélrænu
tæki, sem hann af hugviri
sínu hefur smíðað. ás.
t