Þjóðviljinn - 02.10.1965, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 2. ofctóber 1965
Otgefandi: Sameiningarflofcfcur alþýðu — Sóslalistaflofcfc-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigur&ur Guómundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Siguróur V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðust 18.
Sími 17-500 (5 linur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
Hollusta á villigötum
JJagblöðin á íslandi eru gefin út af stjórnmála-
flokkum, og þeim er ætlað að skýra stefnu
flokka sinna og afla þeim fylgis; sú staðreynd
mótar að sjálfsögðu umræður og skoðanaskip'ti
um þjóðmál. En þá er hollustan við flokkinn kom-
in út í öfgar og orðin að skrípamynd, þegar rit-
stjórar blaða líta á það sem verkefni sitt að verja
hverskyns persónulegt misferli flokksbræðra-
sinna. Það er engan veginn í samræmi við stefnu
Alþýðuflokksins og, tilgang Alþýðublaðsins, að
einn af leiðtogum flokksins misno'ti aðstöðu sína
til þess að selja ríkissjóði gamla húseign fyrir
tvöfalt verð; jafnvel þótt í hlut eigi fyrrverandi
formaður fjármálaráðs blaðsins mæ'ttu ritstjór-
arnir minnast þess að þeim varð hált á að lýsa
fyrirrennara hans sem vammlausum engli. Varn-
arskrif af þessu tagi hljóta að koma sérstaklega
illa við heiðarlegt Alþýðuflokksfólk sem sízf af
ölíu vill að flokkurinn sé látinn bera ábyrgð á
þvílíku framferði. Enda er það fullvíst að rit-
stjórar Alþýðublaðsins mæla hér þvert um hug;
ef þeir skrifuðu af einlægni myndu þeir að sjálf-
sögðu taka undir hina óhjákvæmilegu gagnrýni á
hússölu Guðmundar í. Guðmundssonar.
Háskóladeild lokað
Jjað er undarlegt öfugstreymi á þessum svoköll-
uðu velmegunartímum, að á öllum stigum
skólakerfisins eru nú miklar og vaxandi þreng-
ingar. Enn er þrísett í barnaskóla í höfuðborg-
inni, aðgangur að héraðsskólunum er stranglega
skammtaður, húsnæðisskortur þrengir svo mjög
að menntaskólunum, að árlegur fjöldi s'tudenta er
hér meira en helmingi lægri en eðlilegt er talið í
nálægum löndum. Og í sjálfum Háskóla íslands
er svo ástatt að í haust var gersamlega lokað fyr-
ir aðgang að einni deild æðstu menntastofnunar
þjóðarinnar; 20 menn vildu komast í tannlækna-
deildina en enginn slapp inn! Er þetta bann við
tannlæknanámi þeim mun fráleitara sem mikill
tannlæknaskor'tur er nú í landinu, og heilsugæzlu
á því sviði mun frekar hafa hrakað en hitt, þar
sem skólatannlækningar hafa verið lagðar niður.
JJáskóli íslands mun afsaka þá neyðarráðs'töfun
að loka einni deild sinni með því að ríkis-
stjórnin hafi svikizt um að leggja fram nauðsyn-
legt fjármagn sem hún hafði þó gefið fyrirheit
um. Er það vafalaust rétt skýring hjá háskóla-
mönnum að vanefndir ríkisstjórnarinnar eru und-
irrótin. En þegar þannig kreppir að æðstu mennta-
stofnun þjóðarinnar ber forráðamönnum hennar
að haga ákvörðunum sínum svo að sem minnsf
tjón hljótist af. Til voru fleiri úrræði en að láta
þröngan fjárhag bitna einhliða á væntanlegum
tannlæknum; til að mynda hefði verið hægt að
loka guðfræðideildinni þar til úr rættist. Hefði
þjóðkirkjan getað huggað sig við það, að því að-
eins er hægt að bjóða lélegum ráðherrum upp á
gnístran tanna í eilífðinni, að heilzugæzla á því
sviði sé skapleg hérna megin grafar. — m.
Eiga siglfirzkir verkamenn að gc'a
miljón af kaupi sínu?
Allmikið hefur verið
rætt og ritað um að „deila“
standi yfir milli Verfca-
mannafélagsins Þróttar . á
Siglufirði og verktakanna
sem eru að sprengja
Strákagöngin. Þessi „deila“
er einfaldlega þannig til
komin, að verktakamir
neita að greiða kaup sam-
kvæmt samningum Verka-
mannafélagsins Þróttar í
vaktavinnu og vilja hafa
anað fyrirkomulag á launa-
greiðslum sem er verka-
mönnum óhagstæðara.
í blaðinu Mjölni á Siglu-
fgirði rekur formaður
Þróttar, Óskar Garibalda-
son, mál þetta og skýrir,
og þykir rétt að þær skýr-
ingar berist sem viðast, og
því leyfir Þjóðviljinn sér
að endurprenta viðtalið í
heild ásamt inngangi rit-
stjóra Mjölnis Hannesar
Baldvinssonar.
Fyrir nokkru hófust fram-
kvæmdir við gerð jarðgangn-
anna gegnum Strákafjall.
Verktakinn er félagið Efrafall
og mun það eiga að skila verk-
inu á rúmu ári, eða hafa lokið
því fyrir 1. okt 1966. í áætl-
un þess um verkið mun gert
ráð fyrir, að þar vinni 25
menn og verði unnið sam-
fleytt með 8 tíma vaktaskipt-
ingu.
Fram að þessu hafa aðeins
6 menn unnið þarna ásamt
verkstjóra og sprengimeistara
11 tíma á dag. Verkið hefur
gengið vel og gefur fremur
góð fyrirheit um, að vel muni
vinnast að sprengja göngin
inn i fjallið. Unnið hefur verið
að undirbúningi þess að vinna
geti hafizt af fullum krafti,
lögð hefur verið rafmagnslína
út fjallið, , endurbættir og
byggðir vinnuskúrar o.fl.
Margir verkamenn hafa látið
skrá sig á biðlista, þvi fjölgun
verkamanna stendur til.
Þegar liða tók að því að
vaktavinna gæti hafizt, kom
til athugunar, hvernig kaup-
greiðslum skyldi háttað, því
það hafði runnið upp fyrir
þeim Efrafallsmönnum, að í
kaupgjaldssamningum Verka-
■mannafélagsins Þróttar er ein-
ungis gert ráð fyrir, að verka-
menn fái greitt fyrir unninn
vinnutíma skv. klukkunni, þ.e.
dagvinnu, eftirvinnu, nætur-
og helgidagavinnu. Samkvæmt
þeim samningum var unnið i
sumar í sildarverksm. hér og
annars staðar norðan- og aust-
anlands. Að vísu var sólar-
hringnum skipt í fjórar sex
tíma vaktir, en hver fékk
greidda sína vakt með tíma-
kaupi því, sem gilti þann tíma
sólarhringsins, þegar hún var
unnin.
Þetta fyrirkomulag kom
þeim Efrafallsmönnum mjög
á óvart, að þvi er virtist, og
leituðu þeir fast eftir að fá
innleitt annað form kaup-
greiðslna við vaktavinpu í
jarðgöngunum. Verkamannafé-
lagið Þróttur hefur ekki vilj-
að ljá máls á neinni tilslökun
frá gildandi samningum, En®-
Efrafall hefur leitað fullting-
is hjá vegamálastjóm og
Vinnuveitendasambandi ís-
lands og hafa fulltrúar þessara
aðila heimsótt Siglufjörð til
stuðnings Efrafalli.
í nokkrum blöðum hefur
verið um þessi mál rætt, sums
staðar er talað úm deiiu við
Verkamannafélagið Þrótt, ann-
ars staðar er ekki rétt fiá
málum hermt.
Mjölnir hefur snúið sér til
formanns Verkamannaíélass-
ins Þróttar og spurt hann um
gang þessa máls og fer það
hér á eftir:
Viðtal við formann Þrótt-
ar. Óskar Garibaldason
— Óskar, vildir þú vera svo
góður og fræða lesendur
Mjölnis um málaleitan Efra-
falls um sérstakan kauptaxta
fyrir sprengingavinnuna í
j arðgöngunum?
— Já, mér er bæði ljúft_ og
skylt að gera það, svaraðj Ósk-
ar. — Efrafall kom til okkar
hjá Þrótti og vildi fá sam-
Óskar Garibaldason.
þykki okkar fyrir að greiða
25% álag á dagvinnutaxta við
sprengivinnuna, og það leit
svo« út frá upphafi, að fyrir-
tækið hafi reiknað með að
auðvelt yrði að fá slíkt vinnu-
og greiðslufyrirkomulag sam-
þykkt. Þá virtist það einnig
koma Efrafalli á óvart, að bað
þyrfti að greiða verkamönnum
nestispeninga, kr. 42,00 fyrir
eina máltíð, eins og samningar
okkar bera með sér. Ýmislegt
fleira virtist benda til, að þeir
Efrafallsmenn hafi aðeins laus--
lega skoðað okkar kjarasamn-
inga, er þeir undirbjuggu til-
boð sitt, eða ekki reiknað með
brevtingum á þeim. Þeir^,
breyttust á sl. vori á þann
hátt, að enda þótt vaktavinna
væri unnin, skyldi aðeins
greiða kaup samkvæmt klukk-
unni, eins og um tímavinnu
væri að ræða.
— Það hefur heyrzt, að full-
trúar vegamálastjóra og vinnu-
veitendasambandsins hafj kom-
ið hingað út af þessu máli. —
Hvað er um það að segja?
— Jú, það er rétt, hingað
hafa komið Einar Árnason,
fulltrúi Vinnuveitendasam-
bandsins og verkfræðingar
Efrafalls, þeir Páll Sigurjóns-
son og Siigfús Thorarensen.
Einnig Gíslj Felixson, fulltrúi
vegamálastjóra. Þessir aðilar
óskuðu fundar með fulltrúum
verkamannafélagsins og stóðu
þær viðræður í tvo daga. Að
þeim loknum lagði fulltrúi
Vinnuveitendasambandsins fram
tilboð, sem ég lagði siðan fyrir
stjórn og trúnaðarmannaráð
Þróttar. Tilboðið byggðist á
hugmynd Efrafalls um
greiðslufyrirkomulag, þ.e, 25%
á dagvinnukaup. En á útreikn-
ingi á kaupi skv. tilboðinu og
timakaupi skv. samningi, kom
í ljós mismunur, sem nemur
um það bil 1000 kr. á viku
fyrir hvern verkamann, sem
tímakaupið er hærra. Þetta til-
boð var fellt af öllum fundar-
mönnum,'
Þegar ég tilkynnti fulltrúa
Vinnuveitendasamb. þetta lét
hann þau orð falla, að ekki
væri útlit fyrir að atvinnuleysi
væri eins mikið á Siglufirði
og blöðin fyrir sunnan vildu
vera Iáta. Áður hafði fulltrúi
þessi gefið í skyn, að ekki
væri hægt að fallast á samn-
ing Þróttar, þvi að þá væri
skapað fordæmi fyrir kaup-
greiðslur við aðrar svipaðar
framkvæmdir í framtíðinni.
Fulltrúinu hélt svo úr bæn-
um og var ekki um málið rætt
um tíma.
Seinna gerðist það svo, að
Snæbjörn Jónsson, fulltrúi
vegamálastjóra kom fljúgandi
til bæjarins ásamt verkfræð-
ingi vegamálastjórnar. . Hann
óskaði eftir viðræðum við full-
trúa Þróttar og kvaddi einnig
til fundarins þá alþingismenn-
ina Ragnar Amalds og Einar
Ingimundarson og ennfremur
fulltrúa Efrafalls.
Erindi fulltrúans var að
skýra frá viðhorfi vegamála-
stjómarinnar til þessara fram-
kvæmda og kom það l.lóst
fram, að vegamálastjóri hafði
talið það auðvelt að fá þessar
framkvæmdir unnar samkv.
hugmyndum Efrafallsmanna.
Gaf hann i skyn, að ef þær
næðust ekki fram, myndi
verkið taka mun leogri tíma,
máske tvö til þrjú ár.
Hjá fulltrúa Efrafalls kom
það fram, að þeir líta á upp-
lýsingar vegamálastj. um til-
kostnað sem bindandi fyrir
sig, og allt. sem fram úr þeim
fer, verði á kostnað vegaœála-
stjórriar.
Lausleg ágizkun um .iris-
muninn á tímakaupi og vakta-
greiðslu skv. tilboði FJrafalls
er um ein milj. kr.
Þeirri fyrirspum var beint
til vegamálastj., . hvort ekki
myndi verða ódýrara fyrir
vegamálastj. að greiða þ=nnan
kaupmismun heldur en greiða
skaðabætur vegna seinkunar
verksins til Efrafalls, sem e.t.v.
næmi mörgum miljónum kr.
Fulltrúinn taldi, að sk'kar
skaðabótagreiðslur ''aemu ekki
til greina nema að unöan-
gengoum málaferlum og dómi.
Síðan þessar viðræður fóru
fram, hefur ekkert gerzt í mál-
inu.
Um deilu við Efrafatl er
naumast hægt að tala, samn-
ingar Þróttar eru skýnr um
þessi atriði og engin ieila um
þá út af fyriy sig. Ég get ekki
skilið, að nokkur sanngjam
maður telji það verkamönnum
í Þrótti til l'asts, þótt þeir
vilji standa á sínum samning-
um og ekki gefa miljónafyrir-
tæki eftir ca. eina miljón af
kaupi sín.u við þessar fram-
kvæmdir.
Efrafall hefur á allan hátt
virt samninga Þróttar og greitt
allt í samræmi við þá fram að
þessu, og samskipti fulltrúa
þess og Þróttar verið ágæt í
alla staði.
Það hlýtur að kpma í Ijós
áður en langt um líður, hvort
meira verður meti^ að spara
ca. eina miljón, sem af , gá-
leysi var ekki tekin með í
upphaflega útre'kninga og
seinka þar með verkinu og
hleypa kostnaði þess upp um
ófyri’-sjáanlega háar upphæðir,
— eða að framkvæma þetta
verk samkvæmt áætlun á eiri.u
ári. þótt verkamennirnir fái
greitt sitt kaup samkvæmt
samningi.
Við verðum að biða og sjá
hvað setur.
Mjölnir þakkar Óskari- fyr-
ir upplýsingarnar urn gang
þessa máls og ættj öllum að-
ilum afí vera fyrir beztu að
það liggi sem ljósast fýrir. "
Dansskóli Báru Magnusdóttur
tekur að fullu til starfa 5. október.
Kennt verður:
Ballett — Jazz — Modem — Stage.
Tek einnig í frúarflokka. Uppl. og innritun
í síma 15993 í dag og næstu daga.
Iðnskólinn íReykjavík
BAKARANÁM — FORSKÓLI
Verklegt forskólanám í bakaraiðn hefst í Iðnskól-
anum í Reykjavík hinn 15. okóber. Umsóknir um
námsvist þurfa að berast fyrir 10. október.
Umsókn um námsvist og nánari upplýsingar
verða lánar í té í skrifstofu skólans til 10. október,
á venjulegum skrifstofutíma.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Landssamband bakarameistara.
vinsœldstir skartgripir
jóhannes skólavörðustíg 7