Þjóðviljinn - 11.11.1965, Page 6
0 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 11. nóvember 1965.
Enda þótt enn hafi ekki tekizt að framkvæma
svonefnda „hæga“ lendingu á mánanum, hlýtur
senn að því að koma, að slíkt takist.
Þá rennur upp innan hríðar sú
stund, að mannað geimfar verði sent til
manans.
í þessari grein lýsir sovézkur vísindamaður,
Júrí Marínin, því hvemig hann hugsar sér fyrstu
ferðina og fyrstu gönguferðina á yfir-
borði mánans.
FERÐIN
TIL
MÁNANS
í skáldsögum og greinum
hefur því oftlega verið lýst,
hvemig fynsti maðurinn kemur
til mánans. Nú vinna vísinda-
menn að því að leysa þau
verkefni, sem því vandamáli
eru samfara að lenda á mán-
anum. Þær Ijósmyndir, sem í
seinni tíð hafa fengizt af yf-
irborði mánans, gefa það til
kynna, að mögulegt muni
reynast að finna nægilega
flatt svæði til þess að geim-
far geti lent. — En hvort yfir-
borð mánans er nothæf lend-
ingarbraut fyrir geimfar — að
því geta menn aðeins komizt
með því að senda fyrst á vett-
vang ómannað geimfar —
nokkurs konar fljúgandi rann-
sóknarstofu — og kynna sér
þannig allar aðstæður eins og
bezt er unnt.
Mánaryk?
Getur yfirborð mánans bor-
ið geimfar? Enn eru margir
sem telja að yfirborð mánans
sé úr þykku ryklagi örsmárra
geimagna og að geimfar á yf-
irborði mánans muni einfald-
lega „drukkna“ í mánarykinu.
Ennfremur er að geta þeirrar
hættu, að geimfarið lendi í
lægð sem sífellt dýpki, þar eð
gasið frá stöðvunareldflaugun-
um verki sem nokkurs konar
bor, þannig að sjálft geimfarið
sökkvi dýpra og dýpra.
Með því að senda mannlaust
geimfar til mánans, búið vís-
indatækjumj munu menn ef
svo mætti segja framkvæma
„aðalæfingu“ raunverulegrar
mánaferðar með mönnuðu
geimfari. M.a. hafa menn unn-
ið að áætlunum þess efnis að
útbúa slíkt ómannað geimfar
„fótum“ þannig að þrýsting-
urinn á yfirborði mánans við
lendingu verði sem minnstur.
Ef í ljós skyldi koma, að yf-
irborð mánans sé gert af þykku
ryklagi (flestir vísindamenn
telja nú reyndar, að sú skoð-
un sé röng), þá kann svo að
fara, að grípa verði til ein-
hverra annarra ráða við lend-
inguna, beita t.d. einhverskon-
ar „loftpúðum".
Aðgát skal höfð
Á því getur hins vegar eng-
inn vafi leikið, að vísindamönn-
unum muni takast það að leysa
þau vandamál, sem tengd eru
því að lenda á yfirborði mán-
ans, og þá rennur upp sú stund,
er maður stigur fæti í fyrsta
sinn á aðra stjömu, enda þótt
aðeins sé um fylgihnött að
ræða.
Gera verður ráð fyrir því,
að fyrsta geimfarið, sem á
mánanum lendir, hafi innan-
borðs að minnsta kosti tvevgja
manna áhöfn. Eftir lending-
una getur áhöfnin ekki stvax
lagt upp í rannsóknarferð, en
verður fyrst að fullvissa sig
um það, að öll tæki geimfars-
ins séu í lagi og undirbúa ailt
sem bezt, þannig að unnt sé
að snúa heim á leið fyrirvara-
laust. Jafnvel með ítarlegustu
rannsóknum ómannaðra geim-
fara er ekki unnt að tryggja
það, að fyrstu ;,mánamennirn-
ir“ lendi ekki f einhverjum
þeim erfiðleikum; að þeir
Myndin hér að ofan, er af fyrsta
verksmiðju í Moskvu og sýnir
neyðist til að snúa þegar til
jarðarinnar aftur.
Skoðast um
Eftir að hafa fullvissað sig
um það að öll tæki séu í lagi,
verða geimfaramir þvínæst að
framkvæma ýmsar miídlvægar
og athuganir. Utan á geimfar-
inu verður komið fyrir tækjum,
sem mæla yfirborðshita og
geislavirkni. Gegnum „kýr-
auga“ geimfarsins geta geim-
fararnir svo skoðað umhverfi
sitt og skipulagt fyr&tu göngu-
ferðina um mánann. Jafnframt
þessu verða geimfaramir að
vegað það og meta, hver hætta
sé á loftsteinum. Ekki er unnt
að útiloka þann möguleika,
að geimfararnir lendi í loft-
steinaregni, þar eð máninn
hefur ekkert gufuhvolf einsog
jörðin, en í því gufuhvolfi
brenna loftsteinarnir uppnema
þeir allra stærstu. Allt þetta
munu vísindamerm hafa rann-
sakað að nokkru með vísinda-
............ — <S>
hnaUIikaninu sem gcrt var af mánanum. L/íkanid var smíðad í
allt yfirborð tunglsins, einnig þau svæði sem ekki sjást frá Jörðu.
,Ég hefði líka látið kasta
sprengjum yfir Hanoi"
- segir Barry Goldwater
Fyrrverandi forsetaframbjóó-
andi bandarískra Repúblikana,
Barry Goldwater, lét þess ný-
lega getið, nánar tiltekið 2 þ.
m„ að hann væri sammála
flestu því er Johnson forseti
hefði tekið sér fyrir hendur í
Víetnam, nema hvað hann
teldi það nú, að Bandarikja-
menn ættu að varpa sprengj-
um á Hanoi, höfuðborgina í
Norður-Vietnam
„Væri ég forseti
„Ef ég sæti í Hvíta húsinu,
myndi ég segja þeim það ó-
tvírætt í Norður-Víetnam, að
það sé ekki lengur öruggt í
Hanoi“ sagði Goldwater i sjón-
varpsviðtali. ;,Að öðru leyti
myndi ég hafa fýlgt nákvæm-
lega sömu stefnu og Johnson
gerir í Suðaustur-Asíu“; bætti
hann við.
Gamall hermaður.
Sjálfur er Goldwater liðsfor-
ingi í varaliði Bandaríkjahers;
nánar tiltekið í flughemum-, og
hefur haft við orð að hann
vildi gjaman aðstoða sjálfur
við sprengjuvarpið á Norður-
Víetnam, þótt enn hafi ekki
orðið af því. Og sjálfsagt verð-
ur bið á því að þessi stríðsóði
öfgamaður haldi sjálfur í
striðið — það hefur nefnilega
komið fyrir að flugvélar væru
skotnar niður yfir Norður-Ví-
etnam.
tækjum ómannaðra geimfarEU
en eigi að síður verða geim-
faramir sjálfir að framkvæma
víðtækar athuganir þar eð
vera kann að geislavirkni,
loftsteinaregn og yfirborðshiti
geti allt tekið breytingum af
orsökum, sem lítt eða ekki séu
þekktar. Sjálfur lendingarstað-
urinn getur lika lumað á ein-
hverjum óþægmdum, enda þótt
hann hafi sem vendilegast
verið rannsakaður áður frá
jörðu.
Að sjálfsögðu munu geim-
fararnir standa í sambandi við
jörðu og skýra jafnóðum frá
gangi ferðarinnar. Jafnframt
þessu munu vísindamenn á
jörðu niðri sífgllt fá upplýsmg-
ar frá sjálfvirkum tækjum
geimfarsins, meðal annars um
heilsufar og líðan geimfaranna.
Gönguferðin
Svo skulum við gera ráð
fyrir því, að ajliar mælingar og
athuganir hafi leitt það í ljós,
að áhöfnin geti óhrædd yfir-
gefið geimfarið. Áhöfnin, við
skulum enn gera ráð fyrir því
að hún sé tveir menn, yfirgef-
ur svo skip'ð einn í einu. Ann-
ar verður f fyrstu eftir en
stendur í radíósambandi við
þann, sem út fer, og fylgir að
sjálfsögðu hreyfingum hans
atneð athygli gegnum „kýraug-
að“. Jafnfrajmt þessu mun hann
sífellt hafa samband við vís-
indamenn á Jörðu niðri.
Fyrsti mánafarinn mun vera
búinn sérstökum búningi og á
bakinu mun hann m.a. bera
súrefnisgeyma og rafgeyms
fyrir útvarpssendi sinn. Telja
má og fullvíst, að atburðurinn
verði sýndur í sjónvarpi á
Jörðu niðri og myndir af hinu
sögulega augnabliki munu
verða sýndar í kvikmyndahús-
um um heim allan og birtast
á alfræðiorðabókum, kennslu-
bókum og jafnvel stafrófskver-
um. Á því er heldur enginn
vafi, að nafn „mánamannsins"
verður álíka þekkt og vinsælt
og nafn fyrsta geimfarans, Júrí
Gagaríns.
L
Vísindatllraun
Mánaferð er þó framar öllu
mikilvæg vísindaleg tilraun, og
áhöfn fyrsta mánafarsins verða
jafnframt vísindamenn. Mána-
farið mun hafa innanborðs
mikinn fjölda vísindatækja,
sem gera mun áhöfninni kleiít
að framkvæma mikilvægar
vísindatílraunir. Sumum tækj-
unum munu geimfararnir beita
sjélfir, öðrum sjálfvirkum
munu þeir hinsvegar aðeins
koma fyrir á ákveðnum stöð-
um á * yfirborði mánans. Slík
tæki munu starfa áfram eftir
að mánafarið hefur snúið
heim aftur, væntanlega marga
mánuði. Gera verður ráð fyrir
því, að fyrsta gönguferðm á
mánanum standi heldur stutta
stund eftir okkar mælikvarða,
aðeins nokkrar klukkustundir.
Og fjarlægðin, sem farin verð-
ur, þarf ekki að vera meiri
en nokkur hundruð metrar. En
það er nóg í það skiptið.
„Kosmovision
„Mánamaðurinn“ á ekki að
fara lengra í burt en svo, að
félagi hans í geimfarinu geti
fylgzt með honum allan tímann
með berum augum. Viðbúið er
og, að hann hafi ekki súrefni
eða rafgeyma nema til fárra
klukkustunda gönguferðar í
þetta skiptið. Hann mun ekki
sjálfur hafa með sér sjónvarps-
myndavél: Henni verður kom-
ið fyrir utan á geimfarinu, á
þann hátt að það geti fylgzt
nfeð gönguferðinni allri. Að
öllum líkindum verður sú
sjónvarpsmynd send til Jarðar
og verður þar emn liðurinn í
kvikmynd um fyrstu heimsókn
mannsins til mánans. Um heim
allan, að minnsta kosti þar
sem menn hafa sjónvarpstæki,
munu menn geta fylgzt með
gönguferð „mánamannsins“ en
gervihnettir munu annast
sendinguna. ;,Kosmóvisjón“
verður nýjasta tfzkan f sjón-
varpinu!
Meðan á gönguferðinni stend-
r, mun „mánamaðurinn“ sjálf-
ur ljósmynda sem óður væri,
hann mun hafa með sér tæki
ems og magnitómeter, geiger-
teljara eg j arðsk j ál ftamæli
Hann mun taka með sér hinn
sígilda haka jarðfræðingsins og
flytja heim aftur sýnishom af
yfirborði mánans. Á heimleið-
inni verða þau sýnishom
geymd í sérstökum geymum
þar sem svo er til stillt, að
þrýstmgurinn verði sá sami
og á yfirborði mánans.
Hlutverkum skipt
Þegar fyrsti „mánamaður-
inn“ snýr svo aftur til geim-
farsins eftir gönguferðina, get-
ur félagi hans lagt upp í Bka
ferð, en fer að sjálfsögðu í
aðra átt. Og nú er hlutverkum
skipt; fyrsti „mánamaðurinn"
fyílgist nú sem bezt hann má
með ferðum félaga síns og gætir
sem bezt að því, að öll tæki
séu í lag’.
Gera verður ráð fyrir því, að
fyrstu landkönnuðir ménans
fari f þrjár eða fjórar slfkar
gönguferðir. Sennilega munu
líða eitthvað um 12 klst., áður
en þeir leggja af stað heim til
Jarðar aftur. Síðari leiðangurs-
menn munu dveljast lengur á
mánanum. Á einhverju stigi
málsins verður svo byggð
mánastöð. Þeir sem þar munu
dveljast, verða þó leystir af
oftar en t.d. þeir, sem dveljast
á rannsóknarstöðvum Suður-
heimskautslands’ns. Þeir hafa
vanal'ega e’ns árs útivist.
Nýjabrumið
fer af
Þegar hér er komlð sögu,
•’erða slíkar mánastöðvar bún-
ar að glata ný.jabruminu. Sjálf-
•agt líður ekki á löngu áður
en þar er komið þróuninni, að'
það eru aðeins nánustu ætt-
ingjar og einstöku blaðamenn,
sem taka á móti þeim, er snúa -
aftur til Jarðarinnar eftir langa
dvöl á okkar góða, gamla
mána.
Mannrán
í París
PARÍS 9/11 — Meint marmrán
í París á einum af leiðtogum
stjórnarandstöðunnar í Marokkó,
Barka að nafni, hefur leitt til
þess, að fáleikar eru nú með
stjórnum þessara landa. Hefur
m.a. birzt í því, að Hassan, Mar-
okkókonungur, kemur ekki til
Parísar þann 11. nóv. eins og
ráð hafði verið fyrir gert. Frá
því er sagt í París, að de Gaulle;
Frakklandsforseti, líti mál þetta
alvarlegum augum, einkum þá
fullyrðingu innanríkisráðuneytis-
ins í Marotkkó, að franska ör-
yggislögreglan sé flækt í málið.
— Það var 29. okt. sl. sem Barka
hvarf á götu í Paris, og hefur
ekkert síðan til hans spurzt.
— Gómlu login eru bezt —
ekki hvað sízt fyrir það. að
þau heyrast aldrei sungfn
lengur.
(— Salon Gahlin).